Tíminn - 02.10.1992, Side 3

Tíminn - 02.10.1992, Side 3
Föstudagur 2. október 1992 Tfminn 3 Menntamálaráðherra um heimflutt bein Fjölnismanna: Er tilbúinn að hlusta á aðra Eins og Tíminn hefur greint frá eru ýmsir aðilar áhugasamir um að flytja bein Fjölnismanna heim þar sem nú á að fara að gera grafreit þeirra í Kaup- mannahöfn að útvistarsvæði. Vilji stjórnvalda stendur til þess að minninga- skildir auðkenni grafreitína. „Ég held mig við það sem lagt hefur verið til og ýmsir menn komið að og rðdsstjórninni er kunnugt en ég er alveg tilbú- inn að hlusta á aðra og ég held mig ekkert fast við þessa niðurstöðu ef menn velja eitthvað annað," segir Olafur G. Einarsson menntamálaráð- herra. „Það er alveg nýtt að sá áhugi sé kominn upp,“ segir Ólafur en bætir við að hann hafi lesið grein Siglaugar Brynleifssonar sem vaktí máls á þessu á dögunum. Ólafur segist þá hafa verið búinn að kynna þetta mál í ríkisstjóminni, hvað hefði gerst og afskipti ráðuneytisins af því. Það segist hann hafa gert eftir ábendingar um að það ætti að breyta Assistentskirkjugarðinum í Kaup- mannahöfn í útivistarsvæði. Ólafúr segir að fljótlega eftir að hann tók við embætti menntamálaráðherra hafi athygli sín verið vakin á þessu máli en það hefði samt veríð búið að reyfa það fyrr. „Ég óskaði eftir greinar- gerð frá Aðalgeir Kristjánssyni og Bimi Th. Bjömssyni. Aðalgeir skilaði greinargerð og út úr henni og í sam- vinnu við sendiráðið í Kaupmanna- höfn kom þessi hugmynd að setja upp legsteina með nöfnum þessara mætu íslendinga og á þetta féllst ríkisstjóm- in," segir Ólafur. Hann segir að sér hafi fundist það eðlilegt að kynna mál- ið fyrir ríkisstjóminni, því það kynni að verða viðkvæmt, þó málið hafi kannski ekki verið stórt f sjálfú sér. ,Á þeim tíma hvarflaði það satt að segja ekki að mér að það kynni að koma upp áhugi einhverra á að flytja bein þess- ara mætu manna heim tíl íslands en síðan hefur það gerst," segir Ólafur. Hann segist þekkja vel til sögu þjóð- argrafreitsins á Þingvöllum því hann var í fjögur ár formaður Þingvalla- nefndar. „Ég hef aldrei á þeim tíma heyrt neinn nefna það að það ætti að fara að taka hann í notkun að nýju,“ segir Ólafur. „Það verður ekki að mínu frumkvæði sem farið verður að vekja upp þær deilur sem ég er alveg viss um að munu vakna upp við það,“ seg- ir Ólafúr. Samtök opinberra starfsmanna á Norðurlöndum halda aðalfund á íslandi: Ræða m.a. um samdrátt í opinberri þjónustu Aðalfundur Samtaka norrænna bæjarstarfsmanna stendur yfír í Reykjavík þessa dagana. Aðalmál fundarins er framtíð norrænnar samvinnu í samein- aðri Evrópu, staða verkalýðshreyfingarinnar í sameinaðri Evrópu og breytt staða kvenna í Evrópu. Auk þess er rætt um vinnumarkaðsmál almennt, ekki síst hvemig samdráttur í opinberri þjónustu á Norðuriöndunum kem- ur við opinbera starfsmenn. í gær fluttu erindi á fundinum ög- mundur Jónasson, formaður BSRB, Rannveig Sigurðardóttir, hagfræð- ingur BSRB, og Hildur Jónsdóttir, verkefnisstjóri Norræna jaftilauna- verkefnisins. Ögmundur sagði að á fundinum væru menn að velta vöngum yfir þeim breytingum sem framundan eru ef áætlanir um stofnun EES ganga eftir og Evrópubandalagið heldur áfram að þróast í átt til meiri samruna. „Það kemur berlega fram á fundinum að fólk er farið að fylgj- ast með þessum málum af miklu meiri áhuga en áður var. Menn rekja það eindregið til þeirrar um- ræðu sem fram fór í kjölfar þjóðar- atkvæðagreiðslunnar um Maast- richt-samkomulagið í Frakklandi og Danmörku. Þó að það sé annar handleggur en Evrópska efnahags- svæðið þá hefur umræðan innan EB leitt til þess að það hefur orðið eins konar vakning víða um Evrópu um framtíð evrópskar samvinnu," sagði ögmundur. ögmundur sagði að samdráttur í opinberri þjónustu setti svip á þennan fúnd eins og fleiri fundi sem opinberir starfsmenn hafa tekið þátt í síðustu misseri. Á öllum Norður- löndunum er verið að draga saman opinbera þjónustu á mjög mörgum sviðum, ekki síst í Svíþjóð og á ís- landi. Ögmundur sagði mjög gagn- legt fyrir opinbera starfsmenn að bera saman bækur sínar um þessi mál því þróunin sé um margt svip- uð milli Norðurlandanna. Hann sagði þó að í Svíþjóð virtist sem áhugi væri á að ræða breytingar á opinberri þjónustu á þverpólitísku plani. Umræðan þar sé því á nokkuð öðrum nótum en hér á landi. í dag flytur Claus Hangaard Sören- sen, ráðuneytisstjóri í danska utan- ríkisráðuneytinu, erindi á fundin- um um Norðurlöndin og Evrópu- bandalagið. Fundinum lýkur á morgun. Félög bæjarstarfsmanna á Norður- löndum eiga öll aðild að Samtökum norrænna bæjarstarfsmanna. Fé- lagsmenn eru um 400 þúsund. -EÓ HSK heldur landsmót: Undirbúningurinn á Laugarvatni hafinn „Mótið verði í samræmi við stað- hætti og umhverfi, tengist umhverf- isvernd og beri þess jákvæð merki að vera haldið í dreifbýli," segir m.a. í þeim markmiðum sem nefnd á veg- um Héraðssambandsins Skarphéð- ins hefur sett sér en nefnd þessi undirbýr af fullum krafti 21. lands- mót UMFÍ sem haldið verður á Laugarvatni í júní 1994. Allt bendir til að sett markmið muni nást hvað það varðar að halda mótið á þessum tíma. Ungmennafé- lag íslands frestaði á sínum tíma landsmótinu um eitt ár, en upphaf- lega stóð til að það yrði haldið næsta sumar. Frestunin kom til vegna þess að Ijóst var að sú aðstaða sem þarf til að halda megi mótið yrði ekki tilbú- in í tæka tíð. Þar heftir málið eink- um snúist um þá spumingu hvort frjálsíþróttavöllurinn yrði tilbúinn. Menntamálaráðherra, Ólafur G. Ein- arsson, hefur nú gefið góð orð um Frá Laugarvatni. það að hann muni beita sér fyrir því að sú aðstaða sem vantar verði tilbú- in í júlí 1994. Á síðustu árum hefur mikil upp- bygging á íþróttamannvirkjum á Laugarvatni átt sér stað. Komið er myndarlegt íþróttahús, knatt- spymuvöllur og í sumar var glæsileg sundlaug tekin f notkun. Landsmótsnefnd HSK hefur nú hafið störf að fullum krafti. Meðal fyrstu verka hennar var að auglýsa hugmyndasamkeppni um tákn fyrir mótið og er skilafrestur í þeirri keppni til 15. þessa mánaðar. Úrslit verða svo kynnt eigi síðar en 1. nóv- ember. - SBS/Selfossi TVÖFALDUR 1. VINNINGUR

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.