Tíminn - 02.10.1992, Side 7

Tíminn - 02.10.1992, Side 7
Föstudagur2. október 1992 Tíminn 7 Frankfurt — Þýski Bund- esbankinn reyndi að lægja öldumar sem á honum hafa dunið um sök á því að Bretar drógu pundið út úr Evrópu- myntinni, en lenti þá ( nýrri deilu við þýska utanríkis- ráðuneytið. Bankinn kveðst harma þann misskilning sem leki á yfirlýsingu bankastjór- ans, Helmut Schlesinger, hafi valdið, yfirlýsing sú hafi aldréi átt að berast til Ijöl- miöla. En ráðuneytið segir að bankinn hafi leyft birtingu yfiriýsingarinnar. I London f gær var staða pundsins gagnvart markinu veni en nokkru sinni fýrr. Róm — (talir vörpuðu bág- um efnahag sínum undir vemdarvæng Evrópubanda- lagsins og báöu um stórt lán til að styðja líruna og undir- strika þar meö skuldbind- ingu EB til að aöstoða ítali við að yfirstiga erfiðleika sína. Sarajevo — [ Bosníu hafa nú verið birtar upplýsingar sem sýna að bardaginn milli Serba, múslima og Króata hafa tekið enn stæm' toll en taliö var. Meira en tíu þús- und böm hafa látið lifið eða horfið frá því bardagamir hófust. Washington — Milljarða- mæringurinn frá Texas, Ross Perot, mun tilkynna fljótlega hvort hann muni fara ( sjálfstætt framboð til forseta Bandarfkjanna. Frambjóðandi demókrata, Bill Clinton, segir að slíkt framboð muni kljúfa and- stæðinga George Bush, nú- verandi forseta, og að öllum líkindum verða til þess að hann haldi embættinu i flög- ur ár til viðbótar. París — Forsætisráðherra Frakka, Pierre Beregovoy, hefur stungiö upp á því að Bretar og Frakkar eigi við- ræður um að samræma kjamorkustefnu sfna og það yrði fýrsta skrefið að því að sameina stefnu allrar Evr- ópu f þeim efnum. Prag — Tékkneska þingiö hafnaði stjómarfrumvarpi sem gerði ráð fýrir því að hinu 74 ára gamla sam- bandsríki yrði skipt upp í tvo sjálfstæöa hluta og tæki skiptingin gildi 1. janúar á næsta ári. Vilnius — Litáen tók stórt skref í átt að efnahagslegu sjálfstæöi er þaö sagöi end- anlega skilið við fýrrum ráöamenn sfna í Sovétríkj- unum með þvi að kasta gömlu rúblunni fyrir róða og taka upp eigin gjaldmiðið sem nefnist lita. Nairobi — Sameinuðu þjóðimar segja að tveir frið- argæslumenn sem hurfu I Súdan hafi verið myrtir og vilja kenna uppreisnarmönn- um um og einnig um morðin á tveimur öðrum útlending- um fyrr i vikunni. Dubai — Ráðamenn f Qu- atar segjast munu skilorðs- binda landamærasamning við Saudi-Arabíu eftir landa- mæradeilur sem urðu þrem- ur mönnum að bana. Félag íslenskra fræða um lestrarskattinn og fleiri þætti menntastefnu ríkisstjómarinar: Aðför að hornsteinum íslenskrar menningar Stjórn Félags íslenskra fræða kom saman í gær og á fundinum var samþykkt eftirfarandi ályktun: Fyrir tveimur árum samþykkti Al- þingi íslendinga einróma að fella niður virðisaukaskatt af íslensk- um bókum. Með þeirri ákvörðun var mörkuð ný braut í menningar- málum þjóðarinnar, stjómvöld mátu það svo að blómleg inniend menning væri svo mikilvæg á þessum umbrotatfmum í málefnum þjóðanna að hún þyrfti fremur stuðning en skatt Og eins og einatt kemur fram í hátíð- arræðum fyrirmanna þá em bók- menntir homsteinn íslenskrar menningar, jafht fomar gullaldar- bókmenntir sem hinar nýrri. Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi bók- menntanna fyrir íslenskt mál sem stendur nú enn berskjaldaðra en nokkm sinni fyrr gagnvart ásókn er- lendra tungumála, m.a. í alþjóðlegri fjölmiðlun. Fyrirhuguð skattlagning á íslenskar bækur kemur harðast niður á þeim verkum sem ekki seljast fyrir kostn- aði á stuttum tíma, nýjum skáldskap, fræðiritum og kennslubókum. Útgef- endur þurfa þá að leggja út fyrir þeim innskatti sem safnast á prentvinnslu bókanna án þess að hafa tekjur af sölu þeirra fytr en síðar. Þegar virðis- aukaskattur var felldur niður var ákveðið að þeir lánuðu ríkinu fyrir þessum innskatti en fengju hann að sjálfsögðu endurgreiddan. Nú er fyr- irhugað að hætta að endurgreiða innskattinn. Þegar um er að ræða hraðsölubækur, Ld. metsölubækur á jólamarkaði, kemur það lítt að sök en gagnvart verkum sem seljast á löng- um tíma, vönduðum fræðiritum, kennslubókum og menningarlegum stórvirkjum í bókaútgáfu eins og orðabókum eða alfræðiritum, getur þessi aukna skattheimta reynst kom- ið sem fyllir mælinn og dregið svo kjark úr útgefendum að þeir veigri sér við slíkum verkefnum. Og þar með veiktist til muna staða íslenskr- ar menningar. Þessar fréttir um fyrirhugaðan Iestr- arskatt koma í kjölfar ákvörðunar stjómvalda um að íeggja af alla bóka- útgáfu á vegum Menningarsjóðs. Þar hafa komið út merkileg og nauðsyn- leg fræðirit á undanfömum áratug- um, nægir þar að nefha ritröð um al- fræði, lslenska sjávarhætti í fimm bindum eftir Lúðvík Kristjánsson og Orðabók Menningarsjóðs. Hæpið er að þessi stórvirki hefðu komist á þrykk án tilstyrks opinberra aðila. Ekki verður séð af yfirlýsingum ráða- manna að fyrirhugað sé að styrkja fræðiritaútgáfu með öðrum hætti nú þegar verið er að leggja bókaútgáfu Menningarsjóðs niður. Með ofangreindum aðgerðum er verulega þrengt að fræðiritum og ís- lenskum vísindamönnum gert tor- velt að koma niðurstöðum rann- sókna sinna fyrir sjónir almennings. Stjórn Félags íslenskra fræða mót- mælir því harðlega fyrirhuguðum lestrarskatti á íslenska lesendur og hvetur jafnframt stjómvöld til að efla með beinum styrkjum og annarri fyr- irgreiðslu útgáfu fræðirita, jafnt til þeirra sem birta niðurstöður gmnn- rannsókna og hinna sem reyna að færa fræðin til almennings. w w SAA opnar Úlfalda og Mýflugu í gær var tekin í notkun ný fé- lagsaðstaða SÁÁ í húsakynnum sem leigð hafa verið í Ármúla 17a. Þetta nýja félagsheimili hefur hlotið nafnið „Úlfaldinn" og kaffistofa þess gengur undir nafninu ,JHýflugan“. Við opnunarathöfnina í gær var bmgðið upp sýnishornum úr fé- lagsstarfinu s.s. spila- og tafl- mennsku, dansi o.fl. en það var formaður SÁÁ, Þórarinn Týr- fingsson, sem hélt opnunarræð- una. í Úlfaldanum rúmast um 250 manns í salnum og 50-70 í kaffi- stofunni Mýflugunni, en hús- næðisþörfin fyrir félagsstarf sam- takanna var orðin brýn þar sem það var búið að sprengja utan af sér allt fyrra húsnæði. Miðað er við að hafa starfemi í Úlfaldanum sjö daga vikunnar, t.d. birdge á þriðjudögum og diskótek á föstudögum og opið hús fyrir alla á laugardögum. Sjávarútvegsráðherra Grænhöfðaeyja í heimsókn: Kynnir sér sjávar- útveg á íslandi Hér á landi er staddur í opinberri heimsókn sjávarútvegsráðherra Grænhöfðaeyja, frú Helena Vieira Semedo. Hún er hér í boði Þorsteins Pálssonar sjávarútvegsráðherra en í fylgdariiði hennar eru Femando Du- arte, framkvæmdastjóri útgerðarfyrir- Karlakór á ferð um Norðurlönd Þessa dagana er Karlakór Reykjavíkur í söngferð um Norður- lönd og Eystrasaltsríkin. Kórínn hóf söngferðalagið með söng- skemmtun í Helsinki sl. sunnudag og síðan hefur hann skemmt í Riga í Lettlandi, í Stokkhólmi og er nú staddur í Oslo. Þar er hann að taka þátt í afmælishátíð norska kórsins Handels- Ferðinni lýkur með söngskemmtun í Kaupmannahöfn annað kvöld en fram til þessa hefuer góður rómur verið gerður að söng kórsins. Á efnisskrá kórsins í þessu ferðalagi hafa verið gömul og ný íslensk lög og þjóðlög, nonæn lög, rússnensk lög og kórar úr óperum. Meðal höf- unda má nefna Jón Leife, Jón Ás- geirsson, Sigurð Þórarinsson, Pál Pampichler, Áma Thorsteinsson, Sigvalda Kaldalóns og Sveinbjöm Sveinbjömsson. í kómum syngja samatals 42 kór- menn í þessari ferð, en auk þeirra taka þátt í ferðinni eiginkonur nokk- urra félaga, þannig að þátttakendur verða alls 65. Einsöngvarar með kómum eru Inga Backman sópran og Hjálmar Kjartansson bassi, pí- anóleikari er Lára Rafnsdóttir og stjómandi er Friðrik S. Kristinsson. tækisins Pescave á Grænhöfðaeyjum, Arthur Correia, forstjóri Hafrann- sóknar- og þróunarstofnunar Græn- höfðaeyja, og Femando Feria, stað- gengill sendiherra íslands á Græn- höfðaeyjum, en hann hefúr aðsetur í HoDandi. íslendingar hefa um árabil átt nána samvinnu við stjómvöld á Grænhöfða- eyjum um eflingu sjávarútvegs þar. í undirbúningi er 5 ára áætlun um al- hliða uppbyggingu sjávarútvegs á eyj- unum og vinnur Þróunarsamvinnu- stofnun Islands með heimamönnum að þeim undirbúningi. Frú Semedo mun eiga fúndi með Þorsteini Pálssyni, fulltrúum Þróunar- samvinnustofnunar, Hafrannsóknar- stofnunar, Rannsóknarstofnunar fisk- iðnaðarins, fiskveiðasjóðs og sjó- mannaskólans á meðan á dvöl hennar stendur. Þá mun ráðherrann og fylgd- armenn hennar fara til Hafharfjarðar og skoða þar fiskmarkaðinn, bátagerð- ina Trefjar og Fiskvinnsluskólann. Einnig munu gestimir fara til Akur- eyrar og heimsækja Slippstöðina og UA auk þess að fara í skoðunarferð í Sæplast á Dalvík. Sláturtíð í fullum gangi á Suðurlandi: 125 þús. fjár slátrað Sláturtíð á Suðuriandi stendur nú yf- ir af fuHum krafti. Alls veröur slátrað um 125 þúsund fjár í héraðinu á þessu hausti. í sláturhúsi Sláturfélags Suðurlands á Selfossi er ráðgert að slátra 50 þús- und fjár. Hjá SS í Vík verður slátrað 20 þúsund fjár og 18 þúsund á Kirkjubæj- arklaustri. Höfn/Þríhymingur er einn stór aðili í slátrun og hjá því fyrirtæki er gert ráð fyrir því að slátra samtals 35 þúsund fjár, þ.e. 15 þúsund á Selfossi og 20 þúsund í Þykkvabæ. Sláturgerð er sömuleiðis árviss liður á mörgum heimilum enda gulls ígildi að borða lifrapylsu, blóðmör, hrúts- punga og svið. Hvert slátur kostar í kringum 550 kr. td. kostar slátur 566 kr. hjá Sláturfélagi Suðurlands. -SBS/Selfossi Kariakór Reykjavíkur.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.