Tíminn - 03.10.1992, Blaðsíða 1

Tíminn - 03.10.1992, Blaðsíða 1
Laugardagur 3. október 1992 185. tbl. 76. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- Búðarþjófar stela vörum fyrir milljarða: Kyndir kreppan undir búðahnupli? „Þetta eru einhverjir milljarðar á ári hveiju og þjófnaður hefur aukist mikið að undanfömu. Það er kreppa og þetta eykst alltaf á þeim tímum,“ segir Magnús Finnsson, formaður Kanpmannasamtakanna. Magnús nefnir ýmis dæmi um hversu algengt búðamhnupl sé. Hann veit t.d. um frammámann í skólamálum sem var gripinn nýlega með vörur sem kostuðu tugi þús- unda kr. Þá segir hann að í sumum sérverslunum mæti afgreiðslumenn jafnvel á hlaupaskóm til að geta bet- ur elt uppi þjófana. Hann hefur það eftir kaupmönnum matvöruversl- ana að dæmi séu um að fólk setji vörur í innkaupakörfur inni í versí- ununum og aki þeim síðan fram hjá búðarkössunum. Hann segir að tap verslunarinnar af búðaþjófnaði hafi vaxið upp á síðkastið og þetta sé mikið vandamál hérlendis. „Ef við yfirfærum þær tölur sem við höfum fengið frá öðrum löndum þá skiptir þetta milljörðum," segir Magnús. Hann segir að m.a. vegna þess muni Búðahnupl hefur aukist að undanfömu, enda kreppuástand í þjóðfélaginu og þegar harðnar á dalnum eykst freistingin að stinga hinu og þessu í kápuvasann. Kaupmannasamtökin efna til sér- stakrar forvarnarumræðu á næst- unni í tengslum við úttekt félagsvís- indastofnunar sem hefur skoðað hátt í 500 verslanir. Magnús bætir við að hann hafi ný- lega átt fundi með kaupmönnum frá Norðurlöndum og þar hafi komið fram að búðahnupl aukist með vax- andi efnahagsþrengingum í þjóðfé- laginu. Magnús segir að sérstakir eftirlitsmenn séu jafnvel ráðnir í stærri verslanir til að koma í veg fyr- ir búðahnupl. „Þetta er aukinn kostnaðarliður á verslunina sem þýðir ekkert annað en hækkað vöru- verð,“ bætir Magnús við. Magnús segir búðaþjófa ekki vera einlitan hóp. „Þetta er sjúkt fólk, fólk sem neyðist til þess að gera þetta sökum fátæktar og ýmsir aðrir hópar,“ segir Magnús og bætir við að verðmæti varningsins geti numið mörgum tugum þúsunda í sumum tilfellum. Hann veit og dæmi þess að starfsmenn fyrirtækja hafi verið stórtækir og jafnvel stundað eigin vörusölu. Formaður VMSl flytur frá Höfn til Reykjavíkur: Hættir sem formaður Jökuls Bjöm Grétar Sveinssaon, formaður Verkamanna- sambands ís- lands, hefur ákveðið að flytja frá Höfn í Hom- afirði til Reykjavíkur. Hann mun láta af störfum sem formaður Jökuls á næsta aðalfundi félagsins, en þá hefur hann gegnt formennsku í félaginu í sjö ár. Ástæðan fyrir bú- ferlaflutningi formannsins em m.a. að verkefni hlaðast upp á skrifstofu VMSÍ en einnig er ætl- unin að sambandið auki verulega á allan erindrekstur sinn. Þar fyr- ir utan fylgja formannsstarfmu töluverð samskipti við stjómvöld, opinberar stofnanir og aðra og því ekki stætt á öðm en formaður Verkamannasambandsins sé í fullu starfi á skrifstofu sambands- ins. Björn Grétar segir að auðvitað sé það blendin tilfinning að hætta hjá Jökli og flytja frá Höfn til Reykjavíkur. „Þetta er búinn að vera mjög skemmtilegur tími og ég og fjölskyldan munum yfirgefa Höfn með söknuði þegar þar að kemur, í byrjun næsta árs.“ -grh r Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra um rekstrarerfiðleika Járnblendifélagsins á Grundartanga: Til greina kemur að Landsvirkjun lækki orkuverðið „Ég tei að það komi fyllilega til álita að íslenska jámblendifé- laginu á Grundartanga verði veittar ívilnanir, greiðslufrestur, á orkuverði við ríkjandi aðstæð- ur þar tii ástandið batnar. Þetta er hins vegar Landsvirkjunar að meta. En um þetta vil ég aðeins segja að það getur verið í lang- tímaþágu Landsvirkjunar. Eg mæli ekki með öðru en því sem það væri,“ sagði Jón Sigurðs- son iðnaðarráðherra um rekstr- arerfiðleika Járnbiendiverk- smiðjunnar. Erfiðleikar Jámblendiverksmiðj- unnar voru ræddir á ríkisstjómar- fundi í gær. Samþykkt var að fela iðnaðarráðherra og fjármálaráð- herra að skoða leiðir til að bæta erfiða stöðu verksmiðjunnar. Rætt verður við framkvæmdastjóm og stjóm Járnblendifélagsins, með- eigendur, lánardrottna og við- skiptaaðila, þar á meðal við Lands- virkjun. Jón sagði að það væri stjórn Landsvirkjunar að taka ákvörðun um hvort gerðir verði samningar við Járnblendifélagið um að orku- verð til félagsins verði lækkað tímabundið, en hann sagðist sjálf- ur telja að slík lækkun eða greiðslufrestur gæti verið í sam- ræmi við hagsmuni Landsvirkjun- ar. Jón sagði að eitt af því sem yrði skoðað á næstunni væri hvort til greina komi að eigendur Járn- blendifélagsins auki hlutafé sitt í verksmiðjunni. Hann neitaði að svara spurningu um hvort hann persónuíega teldi að hlutafjáraukning komi til greina. íslenska járnblendifélagið er að 55% hluta í eigu íslenska ríkisins, norska fyrirtækið Elkem á 30% hlut og japanska fyrirtækið Sumit- omo Corporation á 15%. Erfiðleikar Járnblendifélagsins stafa af langvarandi kreppu á málmmörkuðum. Eftirspurn eftir kísiljárni hefur ekki verið jafnmikil og vænst var, en framboð hefur hins vegar verið mun meira en reiknað var með, m.a. frá Kína. Járnblendiverk- smiðjan hefur verið rekin með tapi í þrjú ár. Á þessum tíma hefur fyr- irtækið tapað um einum milljarði króna. Vonir um bata hafa brugðist. Til viðbótar hefur síðan borið á sölu- tregðu og birgðasöfnun á kísil- járni. Jón sagði að greiðsluerfiðleikar og sölutregða hjá Járnblendifélag- inu stöfuðu ekki síst af því að El- kem, einn eigenda félagsins og samstarfsaðili Járnblendiverk- smiðjunnar í sölumálum, hefur verið að reyna að ná fram verð- hækkun á kísiljárni í Evrópu með því að draga úr sölu og safna birgðum. Jón sagði að svo virtist sem þessar tilraunir gengju gegn tímans straumi. -EÓ HAUSTFERÐIR/N E WCASTI Beint leiguflug til Newcastle. Hreint frábærar haustferðir á verði sem þú getur eklci hafnað 4 daga ferðir, verð frá 22.900,-* 5 daga ferðir, verð frá 24.900,— 8 daga ferðir, verð frá 32.400,- Brottfarardagar 21. október uppselt 25. október laus sæti 28. október uppselt 1. nóvember örfá sæti laus 4. nóvember uppselt 8. nóvember laus sæti 11. nóvember uppselt 15. nóvember örfá sæti laus 18. nóvember uppselt 22. nóvember laus sæti 25. nóvember aukaferö *Staðgreiðsluverð er miðað við tvo ( herb. Flugvallarskattur og forfallagjöld ekki innifalin. Ferðaskrifstofan Alís, sími 652266, fax. 65

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.