Tíminn - 03.10.1992, Blaðsíða 3
Laugardagur 3. október 1992
Tíminn 3
Á annað hundrað manns sagt upp störfum á Norðurlandi. Kári Kárason, form. ASN:
Eyðimerkurstefna ríkis í
atvinnu- og efnahagsmálum
Á skömtqum tíma hefur hátt á annað hundrað manns verið sagt
upp störfum á Norðuriandi og virðist ekkert lát vera þar á. Kári
A. Kárason, formaður Alþýðusambands Norðuriands og formað-
ur Verkalýðsfélags Húsavíkur, segir að þetta sé hrikalegt og varia
líður sá dagur að ekki berist fregnir af uppsögnum eða gjaldþrot-
um. Hann segir að í sjálfu sér sé ekki við öðru að búast í ljósi
þeirrar eyðimerkurstefnu sem rekin er í atvinnu- og efnahags-
málum landsmanna.
„Stefna stjórnvalda í atvinnu- og
efnahagsmálum virðist ganga út á
það að gera ekki neitt. Ifyrstunni
gaeti maður ætlað að þetta stafaði
af sinnuleysi en svo er ekki. Þetta
er meðvituð pólitísk stefna þar
sem allri ábyrgð er varpað yfir á
hinn svokallaða markað sem
einnig er ætlað að leysa allan
vanda.“
Sem dæmi um uppsagnir starfs-
fólks á Norðurlandi má nefna að
fjörutíu og níu manns hefur verið
sagt upp í frystihúsi Hólaness hf.
á Skagaströnd og viðbúið að frek-
ari uppsagna sé að vænta í kjölfar-
ið í þjónustugreinum í kauptún-
inu. Þá hafa þrjátíu manns fengið
uppsagnarbréf frá ullarfyrirtæk-
inu Foldu hf. á Akureyri en áður
hafði fyrirtækið sagt upp fimm
manns og þá hefur ellefu af þrett-
án starfsmönnum skipaafgreiðslu
KEA verið sagt upp. Á Húsavík
hefur ellefu af þrettán starfs-
mönnum saumastofunnar Prýði
verið sagt upp og sex af sjö starfs-
mönnum skipaafgreiðslu Dalvík-
ur.
Formaður Alþýðusambands
Norðurlands segir að þótt ytri að-
stæður í efnahagsmálum lands-
manna séu ekkert sérlega hag-
stæðar um þessar mundir þá séu
viðbrögðin við þeim aðstæðum
frekar í þá átt að auka kreppuna en
að draga úr henni. í því sambandi
bendir hann á að það sé ekkert
frumkvæði af hálfu stjórnvalda til
að örva atvinnustarfsemi almennt.
Þá bendir Kári á að niðurskurður
stjórnvalda og þær harkalegu
spamaðarráðstafanir sem fýlgt
hafa í kjölfarið, hafi haft þær af-
leiðingar að þjónustustarfsemi
ýmiss konar hefur dregist saman
og fólki verið sagt upp störfum.
„Það fara allir að spara, almenn-
ingur hefur minna á milli hand-
anna, eftirspurnin í þjóðfélaginu
minnkar og samdráttareinkennin
verða sífellt meira áberandi."
Formaður Alþýðusambands
Norðurlands gagnrýnir harðlega
það sjónarmið að ríkissjóður eigi
aðeins við útgjaldavanda að glíma
en ekki tekjuvanda. „Menn virðast
ekki átta sig á því í mörgum tilfell-
um að þegar verið er að spara við
sig í útgjöldum þá er einriig verið
að skera niður tekjur. Það er jafn-
vel verið að skera niður þá þætti
sem gefa meira í skatttekjur en
þeir kosta ríkið, þannig að ríkis-
sjóður kemur öfugur út úr niður-
skurðinum."
Kári A. Kárason segir að það sé í
sjálfu sér lítill vandi að skapa að-
stæður fýrir atvinnuleysi en sýnu
verra að snúa þeirri þróun við. Þar
að auki séu íslendingar vanbúnir
að fást við afleiðingar mikils at-
vinnuleysis sem landsmenn hafa
ekki þurft að glíma við, þar til
núna að öllu óbreyttu. -grh
Málmur, samtök fýrirtækja í málm- og skipaiðnaði:
Mótmælir að gert
sé við Heklu
í Póllandi
Málmur, samtök fýrirtækja í málm-
og skipaiðnaði, mótmælir harðlega
áformum samgönguráðuneytisins
um að semja við pólskt fýrirtæki
um viðgerðir á strandferðaskipinu
Heklu. Félagið bendir á að lægsta
innlenda tilboðið sé mjög aðgengi-
legt og við bætist hagræði sem því
fýlgir að láta vinna veridð innan-
lands. Bent er á að gjöld og skattar
renni til innlendra aðila ef veridð er
Níu tilboð bárust í orðabók
Menningarsjóðs:
ísafold og Mál
og menning
buðu hæst
ísafoldarprentsmiðja og Mál og
menning áttu hagstæðustu tilboðin í
útgáfúrétt og bókalager Bókaútgáfú
Menningarsjóðs. AHs bárust níu tíÞ
boð. Ön tílboðin voru í útgáfúrétt á
orðabók Menningarsjóðs og í sum-
um var einnig gert ráð fyrir fleiri
bókum. í aðeins einu tilboði, tilboði
Máls og menningar, var gert ráð fýrir
að útgáfúréthrr á öDum bókum og
bókalageryrði keyptur.
Stjóm Menningarsjóðs mun taka
ákvörðun um hvaða tdlboði verður
tekið á fundi næstkomandi þriðju-
dag.
ísafoldarprentsmiðja bauð tæpar 39
milljónir í orðabók Menningarsjóðs.
Tilboðið gerir ráð fýrir að talsverður
hluti kaupverðsins verði lánaður til
nokkurra ára. Mál og menning bauð
samtals 25,5 milljónir í útgáfurétt á
orðabókinni og öðrum bókum
Menningarsjóðs og bókalager. Gert
er ráð fýrir að kaupverð verði að
mestu ieyti greitt upp á einu ári.
Verið er að reikna út hvað hvert og
eitt tilboð þýðir í raua Nokkuð ljóst
þykdr að tdlboð ísafoldarprentsmiðju
og Máls og menningar eru hagstæð-
ust Hvort tdlboðið er hagstæðara
kemur í Ijós á þriðjudaginn þegar
stjóm Menningarsjóðs kemur sam-
an og tekur afstöðu til tilboðanna. -
EÓ
unnið hér á landi auk margvíslegra
óbeinna áhrifa á aðra atvinnustarf-
semi.
„Með því að ákveða að færa umrætt
verkefni til útlanda hlýtur þeim,
sem þá ákvörðun tóku, annaðhvort
að vera ókunnugt um að til auðnar
horfir í málm- og skipaiðnaði hér á
landi eða hitt að þeir láta sig slíkt
ástand einu gilda,“ segir m.a. í álykt-
un frá Málmi.
Málmur bendir einnig á að í utan-
ríkisráðuneytinu Iiggi fýrir drög að
samkomulagi mílli EFTA og Pól-
lands þar sem Pólverjum er veitt
undanþága frá almennu banni við
ríkisstyrkjum, a.m.k. næstu fimm
árin. „Þetta þýðir, að pólskur skipa-
smíðaiðnaður mun áfram — og með
fullu samþykki íslenskra stjórnvalda
— geta gert tilboð í smíði og einnig
hugsanlegar viðgerðir skipa sem
staðfastur grunur leikur á að sé
stórlega niðurgreidd." -EÓ
Ríkissáttasonrajari boðaði deiluaöila í álversdeilunni til samningafundar í gær og er ann-
ar fundur boðaður í dag klukkan 10 þar sem reynt verður til þrautar að ná samkomulagi. Starfsmenn
álversins vilja að fyrirtækið samþykki miðlunartillögu ríkissáttasemjara frá því í vor en þeir hafa ver-
ið samningslausir ( eitt ár. Á myndinni eru þeir Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ, og
Magnús Geirsson, formaður Rafiðnaðarsambands fslands. Tímamynd Ámi Bjama
Formaður VMSI og formaður Dagsbrúnar um könnun á eignamun framteljenda:
HINIR RÍKU VERÐA
RIKARI
Björn Grétar Sveinsson, formaður Verkamannasambands íslands,
og Guðmundur J. Guðmundsson, formaður verkamannafélagsins
Dagsbrúnar, eru sammála um það að könnun tekju- og lagaskrif-
stofu fjármálaráðuneytisins á eignamun framteljenda samkvæmt
skattframtali 1991, leiði í ljós að hinir ríku séu sífellt að verða rík-
ari, tekjumunur fólks að aukast og lagskipting þjóðfélagsins sé að
breytast til hins verra. Þess í stað benda þeir á nauðsyn tekjujöfn-
unar í þjóðfélaginu og hertu skattaeftirliti á þetta „himinhrópandi
ranglæti.“
Samkvæmt þessari könnun kemur í
ljós að 245 hjón eða 0,5% hjóna á ís-
landi, sem hvert eiga 50 miljónir króna
eða meir, eiga í raun 6% af heildareign
landsmanna. Á árinu 1990 nam hrein
eign þessa hóps um 16,6 milljörðum
króna en 20,4 milljörðum í fyrra. Þessi
vöxtur er talinn stafa fyrst og fremst af
aukinni eign þessara hjóna í hlutafjár-,
peninga- og verðbréfaeiga Ef sérstak-
lega er skoðuð peningaleg eign allra
hjóna landsins kemur í ljós að 10%
þeirra eiga helminginn af þeim en 90%
hinn helminginn.
Athygli vekur að á árinu 1990 var
fjöldi þeirra hjóna sem skulduðu eina
milljón króna 3266 en í fyrra hafði
fiölgað í þessum hópi um 30%, eða í
4254. Á sama tíma fjölgaði í hópi
hinna ríkustu um 20%, úr 204 hjónum
í 245 sem eiga 50 milljón krónur eða
meira.
Bjöm Grétar segir að þessar stað-
reyndir sfyðji framkomnar fullyrðingar
verkalýðshreyfingarinnar að auðurinn
sé að safnast á æ færri hendur á meðan
þeim fiölgar sem minna hafa á milli
handanna. Hann segir að kröfúr verka-
lýðshreyfingarinnar um tekjujöfnun í
þjóðfélaginu hljóti að fá byr undir báða
vængi, en það hefúr lengi verið eitt af
helstu baráttumálum hreyfingarinnar.
Guðmundur J. Guðmundsson, for-
maður verkamannafélagsins Dags-
brúnar, segir að það verði með öllum
tiltækum ráðum að stöðva þennan
ójöfriuð og segir að það nái engri átt að
hinir ríku séu oft á tí'ðurn að greiða
mun minni skatta en venjulegt launa-
fólk á töxtum. Hann segir skattakerfið
vera algjört gatasigti sem verður að
stoppa í.
Formaður Dagsbrúnar segir að það
nái heldur engri átt að ákveðnir hópar í
þjóðfélaginu komist upp með það að
skammta sér tekjur nánast að vild og
þurfi síðan ekki að greiða neitt af því til
baka til samfélagsins. Á sama tíma sé
skatturinn að eltast við venjulega
launamenn út af smáræði á meðan
hinir stóru fá að vera í friði.
J núverandi ástandi fer þeim sífellt
fiölgandi sem eru ákaflega þröngt
haldnir. Verkalýðshreyfingin verður því
að taka sér tak og harma jámið á með-
an það er heitt og krefiast þess að tekið
verði á þessari rosalegu tekjuskipt-
ingu,“ segir Guðmundur J. Guð-
mundsson, formaður verkamannafé-
lagsins Dagsbrúnar. -grh