Tíminn - 03.10.1992, Síða 13
Laugardagur 3. október 1992
Tíminn 13
Spámaðurinn spáði láti fyrri konu sinnar (innfellda myndin), þegar
hann vildi giftast annarri konu.
minnar," sagði Blaylock við lögregl-
una. „Hún lést af hjartabilun. Hún
hafði lengi verið mjög heilsuveil,
eins og læknirinn okkar getur borið
vitni um, og fékk oft svo svæsin
hjartaflog að það var bara spurning
um tíma hvenær þau riðu henni að
fullu.“
Þegar hann var spurður um áverk-
ana, sem kona hans hafði hlotið,
sagði hann: „Ég sat við rúmið henn-
ar og hún var með vasaljós í hend-
inni. Hún var ákaflega myrkfælin og
hafði vasaljósið alltaf við höndina ef
rafmagnið færi, en það hafði oft
gerst þennan mánuð.
Ég sagði henni frá því að ég hefði
ráðið lögfræðing til þess að fá skiln-
að frá henni, þar sem ég ætlaði að
kvænast Margaret Scott. Hún reiddi
þá vasaljósið til höggs og barði mig
með því í höfuðið. Eg held, en er þó
ekki alveg viss um það, að þá hafi ég
þrifið vasaljósið úr hendi hennar og
það er ekki útilokað að ég hafi barið
hana með því í reiði, þar sem hún
hafði ráðist á mig.“
Blaylock kvaðst svo hafa komið að
konu sinni látinni í rúminu þegar
hann kom inn í svefnherbergið til
hennar morguninn eftir. Lögreglan
áleit allar líkur benda til þess að um
morð væri að ræða, einkum eftir að
hið nána samband Blaylocks við
Margaret Scott kom á daginn.
Krufnmgin sýkn-
ar spámanninn
Sakarákæran á hendur honum féll
þó um sjálfa sig þegar niðurstöður
krufningar lágu fyrir. Jean Blaylock
hafði látist af hjartabilun. Áverkam-
ir, sem vom á líkinu, höfðu ekkert
haft með dauða hennar, enda varla
nema á hörundinu.
Á meðan ríkissaksóknarinn skoski
var að yfirvega allar staðreyndir í
málinu, sá Andrew Blaylock um að
annar af hjúskaparspádómum sín-
um rættist. Hann og Margaret vom
gefm saman, eins og hann hafði
spáð, þann 20. júní. Þar með var
Margaret Scott orðin þriðja eigin-
kona „spámannsins" í Dunfties, eins
og fólk var nú farið að kalla hann, og
hún settist að í húsinu sem Jean
Blaylock hafði nýlega verið borin út
úr á líkbömnum.
Skoski bóndinn
spáði andláti eigin-
kvenna sinna ávallt
þegar honum lá á
að losna við þær.
Og spádómarnir
gengu eftir. Og er
hann hafði í heiting-
um við gamla konu,
þurfti ekki að spyrja
að leikslokum.
Dómsyfirvöldin skoðuðu málið frá
ýmsum hliðum. Enda þótt kmfn-
ingin hefði leitt í ljós að Jean Bla-
ylock hefði hlotið eðlilegan dauð-
daga, var ekki þar með sagt að eigin-
maðurinn hefði ekki átt sök á
hjartaáfallinu með árás sinni. Ekki
var heldur útilokað að spádómur
hans hefði valdið henni slíkri
hræðslu að það hefði orðið til að
auka á hjartveiki hennar.
Rannsókn í málinu var síðan fyrir-
skipuð af dómsyfirvöldunum, en
jafnframt því sem lögreglan sá sér
skylt að vara Blaylock við að segja
nokkuð það sem gæti orðið honum
til dómsáfellis, fann réttarlæknirinn
hvöt hjá sér til að benda honum á að
hann væri ekki tilneyddur til að
svara neinum spumingum. Blaylock
gerði einungis að endurtaka það
sem hann hafði áður sagt, að slegið
hefði í brýnu með þeim hjónum
umrætt kvöld og hefði hann svo
komið að henni látinni um morgun-
inn.
Samkvæmt krufningarskýrslunni
gat því einungis sá úrskurður komið
til greina að hjartabilun hefði orðið
hinni látnu að bana og hún hefði því
hlotið eðlilegan dauðdaga.
Þar með var Andrew Blaylock frjáls
ferða sinna og sýknaður af öllum
sökum. Hver sá, sem gerðist til þess
að gefa í skyn að hann hefði myrt
eiginkonu sína, átti því aðeins um
tvennt að velja — greiða Blaylock
þúsund sterlingspund í skaðabætur
fyrir rógburð eða sitja af sér sökina í
fangelsi. En hin hálfáttræða móðir
Jean Blaylock lét það ekki aftra sér
frá því að ávarpa tengdason sinn
nokkmm vel völdum orðum, þegar
hann yfirgaf réttarsalinn ásamt
hinni ungu eiginkonu sinni.
Áhrínsorö
„Þú veist sjálfur best með hvaða
brögðum þú réðst dóttur minni
bana," sagði Agnes Paterson við
stórbóndann. „Og guð veit það líka.
Og ég veit það og margir aðrir. Við
getum að vísu ekki sannað það. En
guð sefur ekki og nú skal ég spá fyr-
ir þér, Andrew Blaylock. Þú verður
dauður áður en þessari árstíð lýkur
og kemst ekki hjá að mæta fyrir
æðri dómstóli en þessum, þar sem
þér tekst ekki að skýla þér með lyga-
vefþínum."
„Heimska kerling," hreytti Bla-
ylock út úr sér. „Það er ekki á þínu
auma valdi að kalla fordæmingu yfir
mig, þú sem ert fordæmd sjálf. Ég
réð dóttur þinni ekki bana, en það
get ég sagt þér að fyrir þína svívirði-
legu lygi skalt þú detta dauð niður
áður en þessi dagur er allir. Megi ég
sjálfur detta dauður niður, beri ég
nokkra sök, en sé ég saklaus þá verði
það þú.“
Þetta gerðist þann 18. janúar 1971
og klukkan var 11.35 fýrir hádegi,
þegar gamla konan og fyrrverandi
tengdasonur hennar höfðu í þessum
heiftúðugu heitingum hvort við
annað. Þegar gamla konan gekk upp
þrepin að útidyrunum heima hjá sér
um fjögurleytið þennan dag, greip
hún hendi að hjartastað, rak upp
lágt óp og hneig niður meðvitundar-
laus. Hún var flutt í sjúkrahús í
skyndi, en var látin af hjartaslagi
þegar þangað kom.
Blaylock brá ekki hið minnsta, þeg-
ar honum voru sagðar fréttimar.
„Kannski fer þá fólk að trúa því að ég
er saklaus af dauða konu minnar,"
var allt og sumt sem spámaðurinn
lét sér um munn fara.
RÁDNING Á
KROSSGÁTU
Verkakvennafélagið Framsókn
Allsherjar-
atkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu við
kjörfulltrúa á 37. þing ASl 23. nóv. 1992.
Og er hér með auglýst eftir tillögum um fulltrúa á þingið.
Fresturtil að skila listum ertil kl. 12 á hádegi mánud. 12. okt. 1992.
Hverjum lista þarf að fylgja meðmæli 100 fullgildra félagsmanna. List-
um ber að skila á skrifstofu félagsins, Skipholti 50A.
Stjórnin
FÉLAG JÁRNIÐNAÐARMAHMA
Félagsfundur
verður haldinn þriðjudaginn 6. okt. 1992 kl. 20:00
að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð.
Dagskrá:
1) Félagsmál.
2) Samningar.
3) Erindi: Atvinnumál í málmiðnaði.
Gylfi Arnbjörnsson, hagfræðingur ASÍ.
4) Önnur mál.
Mætið stundvíslega.
Stjórnin
Keflavík-Njarðvík
og nágrenni
Steingrlmur Hermannsson alþingismaður, formaður Fram-
sóknarflokksins, verðurtil viðtals i Félagsheimili framsóknar-
manna í Keflavik mánudaginn 5. október kl. 17.00-19.00. All-
ir velkomnir.
Framsóknarfélögin
Steingrfmur
Keflavík —
Suðurnesjamenn
Vetrarstarfið er hafið. Opið hús alla mánudaga kl. 20.30. Mætum öll. Alltaf heitt á
könnunni.
Framsóknarfélögln I KaHavfk.
Viðtalstímar
borgarfulltrúa
Þriðjudaginn 6. október n.k. verða
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi og
Alfreð Þorsteinsson varaborgarfulltrúi til
viðtals á skrífstofu Framsóknarflokks-
ins, Hafnarstræti 20, 3. hæð, frá kl.
17-19.
Stjóm FFR
Reykjavík
Fulltrúaráð framsóknarfélaganna I Reykjavfk hefur opnað skitfstofu að Hafhar-
stræti 20, 3. hæð. Skrifstofan er opin alla virka daga frá 13:00-17:00.
Stjóm fulltrvariöslns.
Utanríkismálanefnd SUF
Fundur verður haldinn I utanrikismálanefnd SUF mánudaginn 5. október kl. 17 á
skrifstofu Framsóknarflokksins. Öllum áhugamönnum um utanríkismál innan SUF
er frjálst að sitja fundinn með málfrelsi og tillögurétti.
Formaður
Fundur
í þjóðmálanefnd SUF
verðurhaldinn mánudaginn 5. okt. n.k. að Hafnarstræti 20, III. hæð, kl. 17:00. Öllum
ungum framsóknamnönnum er velkomiö að sitja fundinn.
Þjóðmálanefnd SUF
Framsóknarfélag Selfoss
heldur almennan fund um bæjarmál miðvikudaginn 7. október að Eyrarvegi 15, kl.
20.30.
Framsögumenn verða bæjarfulltrúamir Guðmundur Kr. Jónsson og Kristján Einars-
son.
Fulltrúar flokksins I nefndum mæta.
Stjómln
Borgarnes —
Breyttur opnunartími
Frá og með 1. október verður opið hús I Framsóknarhúsinu að Brákarbraut 1 ð
þriöjudögum frá kl. 20.30 til 21.30, en ekki á mánudagskvöldum eins og verið hefur
undanfarin ár.
Bæjarfulltrúar flokksins munu verða til viðtals á þessum tima og ennfremur eru allir,
sem vilja ræða bæjamiálin og landsmálin, velkomnir. Að sjálfsögðu verður hellt á
könnuna eftir þörfum.
Framsóknarfélag Borgamess.
Félag ungra framsóknar-
manna í Reykjavík
Aðalfundur
Aðalfundur verður haldinn miðvikudaginn 14. október n.k. kl. 20:30 að Hafnarstrætl
20, 3. hæð.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
StjómFUF