Tíminn - 23.10.1992, Blaðsíða 4

Tíminn - 23.10.1992, Blaðsíða 4
4 Tíminn Föstudagur 23. október 1992 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNPIS, SAMVIHNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Tfminn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aðstoöamtstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrímsson Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavfk Sími: 686300. Auglýslngasfmi: 680001. Kvöldsfmar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, fþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tfmans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1200,- , verð í lausasölu kr. 110,- Grunnverö auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Þverrandi traust Traust manna á milli er undirstaða allra eðlilegra við- skiptahátta. Á það jafnt við að staðið sé við gerða samninga og að ekki sé svikið gjald eða vog. Þegar ekki er staðið við gefín fyrirheit og traustið brestur, koma upp vandamál sem ýmist varða við lög eða grafa undan tiltrú manna hvers á öðrum, nema hvorutveggja sé, og samskipti innan samfélagsins verða önug og erfið. Þessa dagana eru mörg teikn á lofti um að einstak- lingar og fyrirtæki njóti ekki þess trausts sem nauð- synlegt er til að gagnkvæm viðskipti séu í eðlilegum farvegi og sýnist síga mjög á ógæfuhlið í þessum efn- um. Er það umhugsunarefni út af fýrir sig. Skattsvik eru áætluð um 10% af tekjum ríkisins sam- kvæmt fjárlögum. Miklum fjármunum er skotið und- an gjaldþrotum og verðbréfafyrirtæki deila um hver hafi svikið hitt um hundruð milljóna. Bankar og kaupmenn taka höndum saman um að sporna við ávísanasvikum, sem orðin eru geigvænlega algeng. En þessir aðilar geta sjálfum sér um kennt, því meðferð tékkareikninga og útgefinna ávísana hefur löngum verið forkastanleg. Bankar hafa hvatt mjög til að fá sem flesta viðskiptavini til að opna tékkareikn- inga, enda eru innlánsvextir á þeim í lágmarki. Hins vegar hafa lánastofnanir ekki verið vandar að við- skiptavinum og hafa sýnt mikið ábyrgðarleysi þegar þær afhenda margs kyns óreiðufólki tékkahefti. Svo vilja þær enga ábyrgð taka á því þegar misfarið er með það óhefta traust, sem bankarnir sýna, þegar þeir bruðla út tékkareikningum. Það er nefnilega ekki hægt að treysta því að bankarnir beri neina ábyrgð á sínum viðskiptamönnum. Aðrir verða að bera skað- ann. Þeir, sem taka við tékkum sem greiðslu, sýna líka full- komið kæruleysi í meðferð þeirra fjármuna. Þeir láta nota sig eins og banka og taka við tékkum, sem eru margfaldir að upphæð miðað við það, sem borgað er fyrir, og greiða mismuninn út í hönd. Þetta er fásinna, sem aldrei hefði átt að eiga sér stað og tími til kominn að stöðva. Þá á að fara að skera upp herör gegn svokölluðu búð- arhnupli. Tölur eru lagðar til grundvallar því að það sé að aukast. Óþekkt rýrnun í smásöluverslun er 4 millj- arðar á ári. Viðskiptavinirnir stela einum, starfsfólkið öðrum og svo vita kaupmenn ekkert hvernig tveimur er gloprað niður. Nútímaverslanir eru sérhannaðar fyrir búðarhnupl. Aðeins fjórðungur þeirra hefur einhverjar öryggisráð- stafanir til verndar. Afleiðingarnar liggja í augum uppi. Það er ekki hægt að treysta fólki til að stela ekki, þeg- ar varningurinn liggur vel við og stundum leikur vafi á að verðlagið í búðunum sé áreiðanlegt miðað við verð- gildi vöru. Það er ekki einu sinni hægt að treysta því hvort vara er svikin eða ekki, og eru brigslyrðin um Levisbuxurnar, sem nú ganga á víxl milli kaupmanna, dæmi þar um. Ótal dæmi eru um að traust fer þverrandi og að orð eru ómerk. Þegar ráðherrar temja sér að segja eitt í dag og annað á morgun og lofa í sífellu upp í ermina á sér og standa ekki við neitt af gefnum loforðum, er ekki nema von að þegnunum verði fótaskortur í kröppum dansi kringum gullkálfinn, sem gyllingin er raunar farin að flagna af. Þaö er óhætt að segja að Þröstur Ólafsson, aöstoöarmaöur utanrík- isráherra, hafí náö sér á flug í grein se hann ritaöi í Morgunblaðið í gær. Þar er aðstoöarmaðurinn að útskýra fýrir þjóöinni að þjóðarat- kvæöi um EES $é hinn mesti óþarfi vegna þess að þó að IslanJ gerist aðöi að samningnum þá er Auk þess seghr Þröstur frá því í löngu máli í grein sinni að í sið- ustu alþingiskosningum hafí verið kosið um EES samninginn og því ástæðulaust að kjósa um hann aft- ur aðeins 18 mánuöum sfðar, enda hafl ekkert breyst og afstaða aDra aðiia Iiggi kýrskýr fyrir nú eins og hón gerði fyrir kosnlngar. Ektó er hægt annað en meta að verðleikum dirfsku og karl- mennsku Þrastar, en fáir myndu láta sér detta f hug að bjóða upp á svona eldamennsku á opinberum vettvangi. Því er rétt að skoða bet- sem Þröstur er áð segja, rétt MORGUNBLADID FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBKK 1992 Þjóðaratkvæði er þarflaust Það cina scm eflir er af mil- ; fluUúngi andabrðinga ÖS-tamn- ; ingiins er aS kreQast þjóðaral- ■ kvaeðia um aamninginn. Kg kalla Þettn verður enn óskifjanlegra landinu 1 þegar haft er I huga að verulegur Synjun 1 EES-samningnum ct hluU þessa þjóðarvanda er aflcíð raun til þess. atrsy'irsrs: síxsíí nefndir aðilar k.«nu ookkuð við atkva-ðagreiðslu eftir Þröst Ólafsson „ „ __________ k----u.n ... I k----A----1---- c------ « rro---------------Um þetta var ótvinett kosið I siðustu Alþingiskosningum. Siðan eru aðeins liðnir itjin minuðir. Þi lá samningunnn fyrir I drögum _ — ------------ -------------— sem I öllum aðalatriðum eru al skilkast i garð uUnrikiarúðherra ifigu, avo gaett só alls hófi f orfia- En snúum okkur að EES og tamningur scm nú liggur fyrir. eins og kom úr penna hagfra.'ðings notkun. krúfunni um þjððaratkvæða- Ef eitthvað rr þi er cndanlegur Stíttarsanibands bænda i Tíman- Ekld hvað slst etti það að vera grciðslu. Það cr stutt siðan kosið aamningur Ivið hagstteðari okkur, um 16. október ekki milflutning. hagfracðingi augijóst að afar var um EES. l-ótt sljómkerfi okk- einkum hvað sncrtir dómstólsmilið Það veldur ihuggjum hvað full- kostnaðarsóm yfirbygging þjóðfó- ar sé ekki I mjög fBstum skorðum svokallaða. tniar þeirra samtaka etia að verOa lagsina. sem m.a. er fágin 1 rikia- cr engan veginn eðlilegt að nú hu.i.„ii™*„_ aeinir að ná landi i breyttu um- styrktum atvinnugreinum, er að mði attur kamð um mil sem , hverfi. Það er athygiisvert að i sliga þetu land og heldur kjórum skuldbindur þJMru aðeins eiU ir “Ví>kvóukerfið^ ** • »ð rcyna að itU fóíka ’niðri, langt umfram það scm tram I Umaiin t1___________________________________ : sig i þvi mcð hvaða hætti só skyn- samviskusamir fulltrúar vinnuveit- kosning væri vúuiulega ofrausn Jafnviðamikill samningur ptýði sem felst íþvíaö bjóða upp á fáranleikann undir þeim formerfcj- um að um vel fgrundaða skynsemi sé að ræða. Það má alltaf skilja við konuna FVrri stoðin í röksemdafærslu Þrastar gengur út á að menn geti óhræddir samþykkt EES samning- inn án þjóðaratkvæðis því hægt sé að segja samningnum upp aftur. Samkvæmt því verður það bara að koma f Ijós hvort mönnum Ukar ástandið þegar íslenskt þjóðfélag er farið að starfa í takt við EES og flöidi samninga og skuldbindinga hefur verið gerður á grundvelli samningsins. Það sem Þröstur hins vegar flallar ektó um er það hver á að ákveða hvort við göngum út úr EES samstarfinu eða ektó og hvenær er futlreynt með að þær skuldbindingar sem við tökumst á hendur séu ekki þess virði að standa við þær. Etóá verður það minna álitamál og er Þröstur tilbú- inn til að sætta sig við að eínfaldur meirihluti á Alþingi sb'ti þessu samstarfi eða mun hann þá krefl- ast þjóðaratkvæðis um úrsögn? Augflóslega felst hugptýði Þrastar og dirfska í þeini ósvífni að láta sem það sé sambærilegur hlutur að takast ektó á hendur ákveðnar skuldbindingar gagvart EES ann- ars vegar og hins vegar að undir- gangast þessar skuldbindingar í einhvem tíma og rjúfa sig síðan frá þeim og hætta. Samkvæmt sömu rökum eiga menn bara að drífa: og kvænast fyrsta kvenmanninum sem þeím Iíst á. Þaö er hvort sem er alltaf hægt aö stófla viö hana. Klukkan stopp hjá Þresti? Hin stoöin í röksemdafærslu Þrastar er aö búið sé aö kjósa um EES-samninginn. Þaö þarf mik- inn kjarkmann til að halda því fram aö ekkert hafi breyst siöustu tæpu tvö árin í Evrópumálum. Samningurinn um EES hefur alitaf verið kynntur þannig aö hann muni þá og því aðeins verða gerður að ákveðnum skflyrðum $é fullnægt. Hafiverið kosið um EES í síöustu alþinglskosningum þá var flka kosiö um þessi sldiyröi. Enídag talar Eramsóknarflokkur- inn um að á þessi stóiyröi vanti, Alþýðubandalagsmenn er þar sam- mála og síöast í gær, daginn sem grein Þrastar birtist, er Fistóþing að árétta að á vanti að mitólvægura stólyrðum sé nægjanlega fullnægt gagnvart sjávarútveginum. Og Þrösturtalar um að Kvennaflstftm hafi vissulega alltaf haft skýra stefnu og hafl enn. Sltkt mat kem- ur ektó á óvart ffá krata, því nú eru horfur á aö einhver hópur innan Kvennalistans, meö Ingibjörgu Sólrúnu í fyDdngarbrjósti, iáti ektó einasta af andstööu við EES heldur vifli koma landsmönnum afla ieið inn í EB. Á sama tíma landi Sjálfstæðisflokks fram i flöl- miðium, menn eins og Guðmund- ur H. Garöarsson og Pétur sjó- maður, og kreflast þjóðaratkvæöis umEES. Þetta er aðeins brot af þeim breytingum og hræringum sem oröið hafa hér heima í afstöðu manna. Stærstu breytingamar hafa hins vegaroröið útií Ewópu. Þar stefnir í aö EFTA þjóéimar gangi nær allar í EB nema Ísíand og af því tveggja-stoða kerfi sem ríkja átti á EES verði eftir einn stólpi og lítið prik. Það þarf því kjark til að segja frammi fyrir alþjóð að ekkert hafi breyst frá alþingiskosningunum og að þegar sé búið að kjósa um EES. Hann er djarfúr maftur, Þröstur. Garrf Dekruð óskaböm — Flutningar eru okkar fag—aug- lýsa þeir hjá Eimskip og dregur eng- inn í efa að óskabam þjóðarinnar kann nokkuð fyrir sér í þeirri grein. Hins vegar eru ekki allir vissir um hvort þetta eftirlæti kann sér nokk- urt hóf í verðlagningu á þeirri fag- mennsku sem svo mikið er látið með. Flutningar tii landsins og frá eru með þeim dýrustu sem um get- ur og oft og mikið hefur verið á það bent og kvartað yfir. Núna, mitt í stöðugleika verðlags og hagræðingar, tilkynnir óskabam- ið, sem ávallt hegðar sér eins og ráð- ríkt einbimi, verulega hækkun á farmgjöldum þvert ofan í allt efna- hagsumhverfi sem aðrir verða að búa við. Forstjórinn skýrir farmgjalda- hækkunina með því að flutningar hafi dregist saman og að því verði ekki mætt með öðm en að láta þá borga meira sem enn liafa eitt- hvað að flytja. Ánægðir hluthafar Hagræðing af þessu tagi er auðvit- að andstæð öllum kenningum um frjálsan markað en gefst einokunar- fyrirtækjum vel. Og satt best að segja verða sumir heldur langleitir og orðfáir þegar eini umtalsverði samkeppnisaðilinn í landinu gat ekki beðið nema fram á næsta dag að hækka einnig hjá sér. Maður skyldi halda að þegar verk- efnum fækkar og flutningar minnka verulega væri eðlilegt að rifa seglin og draga úr kostnaði og yfirbygg- ingu. Að minnsta kosti er það lagt að opinberum stofhum og fyrirtækjum sem standa frammi fyrir vesnandi efnahag að draga saman seglin. En Eimskip gerir ekkert slíkt Ef til vill lítur það ekki eins vel út fyrir hluthafana að minnka umfang fyrir- tækisins eins og að hækka flutnings- gjöldin. Það er alveg rökrétt að álykta svo því að Eimskip er fyrst og fremst óskabam hluthaíanna og verðbréfamarkaða og kærir sig koll- ótt um þjóðarhag eða þær samnin- gaumleitanir sem eiga sér stað um að halda kostnaði og verðbólgu í skefjum. Hjöðnun skípaflota í sjávarútvegskálfi Morgunblaðsins sl. miðvikudag var lítil frétt um hvemig útgerðin í bænum Vigo á Spáni bregst við verkefnaleysi og lækkandi fiskverði. Þaðan hafa verið gerðir út 180 frystitogarar. Togumn- um verður fækkað um helming, seldir, úreltir og aðrir sendir á fjar- læg mið og það sem eftir er af fiotan- um verður miðað við aflaheimildir á hefðbundnum miðum útgerðarinn- ar í Vigo. Aldrei heyrir maður orð um svona ráðagerðir á íslandi, en vel má vera að einhverjir sjái sér leik á borði að kaupa eitthvað af frystitogumnum sem Spánverjamir þurfa að losna við áður en þeir draga þá í gjaldþrot Ekkert er líklegra en að hægt sé að fá frystitogara frá Vigo með góðum kjörum. Engu gleymt og ekkert lært Umtalsverður hluti flotans sem hluthafar óskabams þjóðarinnar eiga siglir undir erlendum þjóðfan- um og eru skipin skráð hingað og þangað um veröldina annars staðar en á íslandi. Áhafnimar em útlendar, helst frá fatæktar- löndum þar sem kaupið er lágt og mikið offramboð á vinnuafli. íslenskum sjómönnum á at- vinnuleysisbótum fiölgar óðfluga. Þrátt fyrir það hagræði sem hlut- hafamir njóta af því að skrá skip er- lendis og losna við að borga íslensk- um sjómönnum laun dugir það ekki til að reka Eimskipafélagið í mesta stöðugleikatímabili sem verið hefur síðan það var stofnað fyrir fyrra stríð. Ofdekrað óskabamið ryðst út úr því efnahagsumhverfi sem öllum öðr- um í þjóðfélaginu er búið og ekki vantar að óþekktarormar fylgja í kjölfarið. Og svo á launafóikið í landinu að fara að standa undir efnahagsráð- stöfunum til þess að skipaeigendur þurfi hvergi að slá af vondum sið- venjum sínum. OÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.