Tíminn - 23.10.1992, Side 6
6 Tíminn
Föstudagur 23. október 1992
Fræðslusjóður Jóns Þórarinssonar:
Námsstyrkur til
Flensborgara
Auglýst hefur verið eftir umsókn-
um um námsstyrki úr Fræðslusjóði
Jóns Þórarinssonar, en Jón var fyrsti
skólastjóri Flensborgarskóla í Hafn-
arfirði, og eru styrkirnir ætlaðir
fólki sem lokið hefur stúdentsprófi
eða öðru lokaprófi frá Flensborgar-
skóla og hyggur á framhaldsnám.
Anna Jónsdóttir, ljósmyndari í
Hafnarfirði, er dóttir Jóns Þórarins-
sonar skólastjóra og síðar fræðslu-
stjóra. Hún stofnaði sjóðinn og
ánafnaði honum allar eigur sínar
eftir sinn dag, en Anna lést 4. júlí
1987.
Úthlutað verður úr sjóðnum í
fyrsta sinn 16. desember nk. en þá
verða 100 ár liðin frá fæðingu Önnu
Jónsdóttur. Úthlutað verður 250
þúsund kr að þessu sinni.
Samstaða um óháð ísland vill þjóðaratkvæða-
greiðslu um EES samninginn:
Lokaátak undir-
skriftasöfnunar
Nú um helgina fer fram Iokaátak í
undirskriftasöfnun samtakanna
Samstöðu um óháð ísland fyrir því
að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram
um EES-samninginn.
Söfnunin hefur að sögn Samstöðu-
fólks gengið vel úti á landi en sama
verði ekki sagt um höfuðborgar-
svæðið. Því á að gera lokaátak og
ljúka söfnuninni nú um helgina.
Fólk frá Samstöðu verður við allar
helstu verslunarmiðstöðvar og í
Kolaportinu með undirskriftalista
og eru allir hvattir til þess að rita á
þá áskorun til stjórnvalda um að þau
gefi þjóðinni kost á að segja álit sitt
á málinu.
Fyrstu vikuna í nóvember mun al-
þingi að öllum líkindum afgreiða
þingsályktunartillögu um að samn-
ingurinn verði borinn undir þjóðar-
atkvæði. Því hvetur Samstaða alla til
að rita undir áskorunina svo listarn-
ir geti orðið tilbúnir sem allra fyrst
og komist á skrifstofu Samstöðu að
Laugavegi 3, 2. hæð. —sá
stjórnstöð Vara. Árni Ólafsson öryggisvörður situr en fyrir aftan hann stendur Baldur Ágústsson,
forstjóri Vara. Tímamynd Áml Bjama
VARI TÍU ÁRA
Vari, ein elsta öryggisþjónusta
landsins, er 10 ára um þessar mund-
ir.
í upphafi fólst starfsemin í upp-
setningu þjófavarnarkerfa en tekur
nú til fleiri þátta. í því sambandi má
nefna öryggisráðgjöf, öryggisbúnað,
sérstaka þjónustu eins og t.d. flutn-
ing á verðmætum og öryggishólf.
Frá upphafi hefur öryggismiðstöð
fyrirtækisins verið opin allan sólar-
hringinn og eru nú mörg hundruð
stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar
tengdir við öryggismiðstöðina.
-HÞ
Hækkun flutningsgjalda hjá Eimskip og Samskipum á stykkjavöru er talin leiða til
3% hækkunar á almennu vöruverði:
Jólagjöfin í ár til almennings
Hjörtur Emilsson hjá Samskipum segir að félagið muni hækka flutnings-
gjöld á stykkjavörum svipað því og Eimskip hefur tilkynnt frá og með
næstu mánaðamótum, eða um 6% að meðaltali. Flutningsgjöld hækka þau
mest frá Ameríku og Bretlandi, eða um 11% og 4,2% frá Þýskalandi. Að
mati stórkaupmanna munu þessar hækkanir leiða til 3% hækkunar á al-
mennu vöruverði. Þar sem innflutningur jólavamings fer að mestu fram í
þessum og næsta mánuði má með sanni segja að þessar hækkanir á flutn-
ingsgjaldi skipafélaganna sé jólagjöf þeirra til almennings í ár.
Bókaskattur
íþyngir
heimilum og
skólafólki
„Fyrirhugaður bókaskattur mun
leiða til verðhækkunar á bókum og
hafa í för með sér samdrátt í bóksölu
og koma hvað þyngst niður á skóla-
fólki og heimilum þessa lands,“
segir Félag leikstjóra á íslandi.
Þetta kemur fram í nýlegri sam-
þykkt félagsins þar sem það mót-
mæla harðlega öllum áformum rík-
isstjórnarinnar um bókaskatt. Þar
segir að íslensk tunga og menning
sé það sem næri líf þessarar þjóðar.
Orörétt segir og: „Nú þegar sam-
skipti þjóða verða æ nánari og
menningarleg landamæri eru að
hverfa er afar brýnt að standa vörð
um listræna framsköpun, fræðistörf
og námsgagnagerð á íslensku. Með
skattlagningu bóka er vaxtarskilyrð-
um menningar okkar stefnt í
hættu.“
Þessu til viðbótar er rétt að minna
á að Flugleiðir hækkuðu flutnings-
gjöld í fragtflugi til og frá Ameríku
um 5% um síðustu mánaðamót.
Þá hafa íslensk verslun, Bílgreina-
sambandið, Félag íslenskra stór-
kaupmanna og Kaupmannasam-
tökin mótmælt þessum hækkun-
um harðlega og einnig formaður
Neytendasamtakanna. Þá mun
Verðlagsstofnun láta kanna for-
sendur þessara hækkana en flutn-
ingsgjöldin hafa verið undanþegin
verðlagsákvæöum frá því í apríl í
ár. Að mati hagsmunasamtaka
kaupmanna og innflytjenda tekur
þessi hækkun allan þann ávinning
til baka sem náðist þegar jöfnunar-
gjaldið var lagt niður og umhugs-
unarvert að þegar flest fyrirtæki
þurfa að sætta sig við skertan hlut
vegna samdráttar í viðskiptum
skuli önnur komast upp með það
að hækka taxta sína einhliða.
Stefán Guðjónsson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra stórkaup-
manna, segir að innflutningur á
jólavarningi sé mestur í þessum og
næsta mánuði en einnig eitthvað á
fyrstu vikum desembermánaðar.
Hann segir að þessar verðbreyting-
ar hjá skipafélögunum muni ótví-
rætt leiða til verðhækkana á jóla-
vörum landsmanna í ár.
Eimskip mun hækka flutnings-
gjöld stykkjavöru í inn- og útflutn-
ingi og önnur þjónustugjöld um
6% frá og með næstu mánaðamót-
um. Breytingarnar eru þó mis-
munandi eftir myntum. Þannig
hækka t.d. flutningsgjöld frá Amer-
íku og Bretlandi um 11% á sama
tíma og flutningsgjöld frá Þýska-
landi hækka um 4,2%. Ástæða
hækkunarinnar er m.a. samdráttur
í efnahagslífi landsmanna sem hef-
ur minnkað flutning til og frá Iand-
inu um 10%, óraunhæf samkeppni
hefur rýrt tekjurnar enn frekar auk
þess sem félagið telur að almennt
verðlag hérlendis og erlendis hafi
hækkað um 5%-7% frá því flutn-
ings- og þjónustugjöld félagsins
hækkuðu síðast.
Hjörtur Emilsson hjá Samskipum
segir að félagið muni tilkynna við-
skiptavinum sínum um svipaðar
hækkanir og Eimskip hefur þegar
gert og einnig af sömu ástæðu.
Hins vegar verður engin breyting á
töxtum félagsins í strandsigling-
um.
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, segir að
þessar boðuðu hækkanir séu veru-
legur skellur fyrir almenning á
sama tíma og hann á æ erfiðara
með að ná endum saman. „Við
hljótum að harma og gagnrýna
þessar hækkanir," sagði Jóhannes.
Hann segir að þessar hækkanir
komi afar spánskt fyrir sjónir þegar
ástandið í þjóðfélaginu sé með
þeim hætti að kaupmáttur minnk-
ar og atvinnuleysi eykst. „Það kem-
ur mér einnig undarlega fyrir sjón-
ir þegar boðberar frjálsrar sam-
keppni og verðmyndunar bera því
við að samkeppnin sé orðin of mik-
il. Næsta skrefið hlýtur því að vera
að óska eftir því að flutningsgjöldin
lúti verðlagsákvæðum þar sem
frjálsræðið gekk ekki upp og allt tal
þar um var bara plat,“ segir Jó-
hannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna. -grh
Landeigendur í Mývatnssveit:
Enga raflínu
um Mý-
vatnssveit
Landeigendur Reykjahlíðar við Mý-
vatn vísa á bug hugmyndum um
línulögn samhliða byggðalínu um
Mývatnssveit frá Fljótsdalsvirkjun.
Þetta kemur fram í samþykkt land-
eigendanna. Þar kemur fram stuðn-
ingur við tillögu Landsvirkjunar um
línulögn yfir Ódáðahraun. Þá segir
að það væri þjóðarskömm að leggja
línu um Mývatnssveit þar sem í kjöl-
farið yrðu unnar verulegar gróður-
skemmdir á viðkvæmum svæðum.
Jafnframt er dregið í efa öryggi línu-
lagnar yfir Kröflu/Öskjusvæðið.
MERKIÐ
VIÐ 13 LEIKI
Leikir 24.og 25. okt 1992
Viltu gera
uppkast
að þinni
spá?
1. Malmö FF-AIK O ESCZl
2. Norrköping — Trelleborq FF B [DHC2]
3. Öster — IFK Göteborg 11 L±][x J[ 2 ]
4. Diurqárden — Hácken □ ! 1 II x 'il 2 |
5. GAIS — Brage B 000
6. V-Frölunda — Örebro Q I 1 II x || 2 I
7. Arsenal — Everton
8. Blackbum — Manch. United □ mmrá'i
9. Coventry City — Chelsea □ msi 21
10. Liverpool — Norwich Citv ib mmm
11. Middlesbro — ShefF. Wed. Qi mmm
12. Oldham — Aston Villa mmmm
13. Q.P.R. — Leeds United eq mmm
JÖI I I ö' o 1 p ; 1 m cc 1,3 > SlcS o'pll .1 tr Z3 O < o /II í cr | o cs> * cc IC —i LU u. e •o Í II s' 2 ./ Z s —J < s li s 3 m 3 Q >- 4X s >1 SAk 71 ITA xl á| LS ||
1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 10 0 0
2 1 1 1 1 1 1 X X X X 6 4 0
3 2 1 2 1 1 1 2 2 X 1 5 1 4
4 X X 2 1 2 1 1 1 1 1 6 2 2
5 X X 1 X 1 X 1 1 2 X 4 5 1
6 2 2 2 2 1 X X 2 2 2 1 2 7
7 1 1 1 X 1 1 1 1 1 1 9 1 0
8 1 X 1 1 X 1 2 1 X 1 6 3 1
9 1 X 1 1 1 1 X 1 X 1 7 3 0
10 1 1 X 1 X 1 1 X 1 X 6 4 0
11 2 X 1 X X 1 X 2 2 2 2 4 4
12 X X 2 X 1 2 2 2 2 1 2 3 5
13 X X X 2 2 2 1 X X 1 2 5 3
STAÐAN í SVÍÞJÓÐ 28. október 1992
MEISTARAKEPPNIN
1. Öster ....74 2 1 15-7 29
2. AIK ....74 12 16-7 27
3. Norrköping .... ....73 04 9-14 27
4. Malmö FF ....73 13 9-9 23
5. Trelleborgs FF ....7 3 0 4 12-20 23
6. IFK Göteborg. ....72 0 5 10-14 18
KVALSVENSKAN
1. Djurgárden .... ..11 55 1 25-9 20
2. Örebro ..11 6 1422-13 19
3. Brage ...11 542 16-8 19
4. Halmstad ...106 13 19-16 19
5. GAIS ...1052 3 17-10 17
6. Hácken ...10514 19-19 16
7. V-Frölunda ...11 1 37 15-23 6
8. IFK Sundsvall ...100 1 9 4-38 1
STAÐAN í ENGLANDI
20. október 1992
Úrvalsdcild
Norwich
Blackbum 11 73 1 24- 9 24
Coventry
QPR .... 12 5 52 18-12 20
Manchester Utd 12 552 14-10 20
Arsenal 12 624 15-12 20
AstonVilla 11 54220-14 19
Leeds 12 45322-19 17
Middlesbro 1144 321-1616
Ipswich 123 7 2 17-16 16
Chelsea 12444 16-15 16
Sheffield Wed 1243 5 15-16 15
Oldham 123 5420-21 14
Manchester City 12 34 5 13-13 13
Everton 1234 5 11-14 13
Liverpool 1234 5 16-20 13
Sheffíeld Utd 12 33 6 12-18 12
Southampton 12255 11-16 11
Tottenham 12255 11-21 11
Wimbledon 12 2 4 6 16-20 10
Crystal Palace 1217415-1910
Nottingham Forest 11 1 37 10-22 6