Tíminn - 23.10.1992, Page 9
Tíminn 9
Föstudagur 23. október 1992
DAGBÓK
Húnvetningafélagið
Félagsvist kl. 14 á morgun í Húnabúð,
Skeifúnni 17. Vetrarfagnaður á sama
stað um kvöldið kl. 22. Allir velkomnir.
Eskfirðingar og Reyðfirðingar í
Reykjavík
halda árlegt síðdegiskaffi fyrir eldri sveit-
unga sunnudaginn 25. október kl. 15 f
Sóknarsalnum, Skipholti 50A.
Skaftfellingafélagið í Reykjavik
Félagsvist sunnudag 25. október kl. 14
að Laugavegi 178 (Skaftfellingabúð). All-
ir velkomnir.
Opna Veggsportmótið í skvassi
Fyrsta punktamót vetrarins í skvassi, á
vegum Skvassfélags Reykjavíkur, verður
haldið í Veggsport við Gullinbrú, helgina
24.-25. október. Keppt verður í A- og B-
flokkum karla og svo A-flokki kvenna.
Mótið gefur punkta til íslandsmóts.
Venja er að byrja mótin í lok september,
en það dróst vegna Evrópusmáþjóðaleik-
anna, sem haldnir voru hér á landi í lok
september.
Hannes Lárusson sýnir í
Gallerí 11
Á morgun, laugardag, kl. 15 opnar
Hannes Lárusson sýningu í Gallerí 1 1,
Skólavörðustíg 4A, sem ber yfirskriftina
,Aftur Aftur“. öll verkin, sem þar verða
sýnd, eru gerð á þessu eða síðasta ári.
Sýningunni lýkur 5. nóvember.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað
frá Fannborg 4 kl. 10.
Gönguklúbburinn heldur árvissan vetr-
arfagnað 1. vetrardag. Kaffi og bakkelsi
verða í Fannborginni. Allir Kópavogsbú-
ar og gestir þeirra eru velkomnir.
Skagfirðingafélagið í Reykjavík:
Vetrarfagnaður
Skagfirðingafélagið í Reykjavík verður
með vetrarfagnað í Drangey, Stakkahlíð
17, á morgun laugardag, kl. 20.
Þar verður m.a. spiluð félagsvist og
diskótekið Dísa kemur í heimsókn.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma
39833.
FUNDIR OG FÉLAGSSTÖRF
Aðalfundur Fram-
sóknarfélags
Mýrasýslu
verður haldinn miðvikudaginn 27. október kf. 21.00 að Brákar-
braut 1, Borgamesi.
Venjuleg aðalfundarstörf. Kosning fulltrúa á Kjördæmisþing.
Ingibjörg Pálmadóttir alþm. kemur á fundinn. Stjómln Ingibjörg
Framsóknarmenn á
Norðurlandi eystra
Kjördæmisþing verður haldið á lllugastöðum i Fnjóskadal dagana 13. og 14. nóvember.
Formenn flokksfélaga I kjördæminu eru hvattir til að halda aöalfundi sem fyrst og kjósa
þingfulltrúa.
Skrifstofa KFNE er opin alla virka daga. Simi 21180. Sljóm KFNE
Aðalfundur
Framsóknarfélags
Dalasýslu
verður haldinn f Dalabúð, Búðardal, laugardaginn 24. október
ki. 14.00.
Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál.
Ingibjörg Pálmadóttir alþingismaður mætir á fundinn , .....
Stjómln 'ngibjorg
33. þing Kjördæmissam-
bands framsóknarmanna á
Suöurlandi
veröur haldið i Leikskálum, Vik I Mýrdal, laugardaginn 31. október 1992.
Dagskrá:
Kl. 10:00 Þingsetning.
Kjömir starfsmenn þingsins.
Skýrsla formanns KSFS.
Skýrsla gjaldkera KSFS.
Skýrsla Þjóðólfs.
Skýrsla húsnefndar.
Umræður og afgreiðsla.
Álit kjörbréfanefndar.
Lögð fram drög að stjórnmálaályktun.
Lögð fram drög að umhverfismálaályktun.
Tillögur lagðar fram.
Kosning i miðstjóm samkvæmt 12. grein laga KSFS.
Ávörp gesta frá SUF og LFK.
Kl. 12:00 Hádegisverður.
Kl. 13:00 Efnahagsástandið — EES.
Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins.
Almennar umræður.
Kl. 15:30 Kaffihlé.
Kl. 16:00 Umhverfismál.
Kynnt drög fyrir flokksþing: Jón Helgason alþm.
Umræður.
Kl. 17:00 Afgreiðsla mála.
Kl. 17:30 Kosningar.
Önnur mál.
Kl. 18:00 Þingslit.
Kl. 20:00 Kvöldveröur.
Kvöldvaka i umsjá Framsóknarfélaganna i V.- Skaftafellssýslu.
Með fyrirvara um breytingar.
Stjóm KSFS
Kópavogur
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna I Kópavogi halda almennan
stjómmálafund um EES-samningana að Digranesvegi 12, mið-
vikudaginn 28. október kl. 20.30.
Framsögumaður Steingrlmur Hermannsson, formaður Fram-
sóknarflokksins.
Stjómln
Steingrímur
Kjördæmisþing - Keflavík
Kjördæmisþing framsóknarmanna á Reykjanesi verður haldið I Keflavlk 1. nóvember
og hefst kl. 10.00.
Dagskrá auglýst siðar. Stjóm KFR
Hellaklúbbur SUF auglýsir
Fömrn I Vlðgelmi. Lagt af stað frá Hymunni, Borgamesi, kl. 13.00 sunnudaginn 25.
október n.k. Allir velkomnir.
Sé nánari upplýsinga þörf, hringið I Olgeir, slmi 93-71867.
Patriot Games ★★★
Handrit: Donald Stewart, W. Peter lllff
og Steven Zailllan.
Byggt á skáldsögu Tom Clancy.
Framleiðendur: Mace Neufeld og Ro-
bert Rehme.
Leikstjóri: Phlllip Noyce.
Aðalhlutverk: Harrison Ford, Anne
Archer, Patrick Bergin, Sean Bean,
Rlchard Harris, James Eari Jones og
James Fox.
Háskólabió.
Bönnuð Innan 16 ára.
Þetta er önnur kvikmyndin um
prófessorinn John Ryan og ævin-
týri hans en sú fyrri, Leitin að
Rauða október, þótti mjög góð. í
henni fór Alec Baldwin með hlut-
verk Ryans og til stóð að hann léki
prófessorinn aftur, en erfiðlega
gekk að semja um launin og því
var Harrison Ford ráðinn til starf-
ans. Vegna velgengni þessara
mynda, og ekki síður bóka
Clancys, er búið að ákveða að
framhald verði á þessum myndum.
Kannski er þetta hinn nýi James
Bond, eins og haldið hefur verið
fram.
Þar sem kalda stríðinu er lokið, er
hæpið að koma með mynd sem
fjallar um samskipti stórveldanna,
líkt og Leitin að Rauða október.
Hryðjuverk eru mun nærtækara
efni í dag, en um þau er fjallað í
Háskaleikjum.
Prófessor Ryan er staddur í Lond-
on ásamt konu sinni og barni, þeg-
skaleikir
ar hann verður vitni að árás IRA á
írlandsmálaráðherra Bretlands.
Ryan skakkar leikinn og bjargar
ráðherranum, en drepur einn
hryðjuverkamanninn að bróður
hans ásjáandi. Bróðirinn er hand-
tekinn, en sleppur fljótlega úr
vörslu lögreglunnar og vill ná fram
hefndum. Hann tekur að eltast við
Ryan og fjölskyldu hans og ekki
dugir annað fyrir Ryan en að snú-
ast til varnar.
Leikstjóranum Noyce tekst að
byggja upp hreint magnaða
spennu í þessari mynd, sem nær
hámarki í frábæru lokaatriði með
tilheyrandi skotbardögum. Phillip
Noyce á að baki nokkrar góðar
myndir, m.a. spennumyndina De-
ad Calm, en hún varð einmitt til
þess að hann var ráðinn til að
stjorna gerð þessarar myndar.
í bókum Clancys eru nákvæmar
lýsingar á ýmsum hertæknibún-
aði, innviðum bandarísku leyni-
Kvikmyndir
þjónustunnar og yfirstjóm hers-
ins. Þessar lýsingar hafa þótt svo
nákvæmar að ýmsum herforingj-
um hefur þótt nóg um. Þessar lýs-
ingar komast náttúrlega ekki
nema að takmörkuðu leyti fyrir í
myndinni, þannig að vissara er að
vara aðdáendur Clancys við að gera
of miklar kröfur um þessi atriði.
Harrison Ford hefúr mikla
reynslu af leik í hasarmyndum og
veldur þessu hlutverki auðveld-
lega. Anne Archer leikur konu
hans og er í sjálfu sér allt í lagi, en
mikið ósköp er hún alltaf væluleg
á svipinn í myndum sínum. Patr-
ick Bergin og Sean Bean eru þræl-
góðir í hlutverkum hryðjuverka-
manna og þá sérstaklega Bean,
sem leikur bróðurinn hefnigjama.
Það er líka mjög gaman að sjá
Richard Harris á hvíta tjaldinu, en
þessi frábæri leikari er nú kominn
aftur til starfa eftir langt hlé.
Það er óhætt að mæla með
Háskaleikjum, enda er hér á ferð-
inni pottþétt afþreying með af-
bragðsleikurum. Eins og áður
sagði má búast við fleiri myndum
um John Ryan og ævintýri hans á
næstu misserum. Búið er að semja
við Harrison Ford um að hann
leiki Ryan í nokkmm myndum í
viðbót, sem verða að sjálfsögðu
byggðar á bókum Clancys.
Örn Markússon
Lygakvendiö
Housesitter ★★
Framleiöandi: Brian Grazer.
Handrit: Mark Stein.
Saga: Mark Stein og Brian Grazer.
Leikstjóri: Frank Oz.
Aðalhlutverk: Steve Martin, Goldle
Hawn, Dana Delany, Julie Harris, Don-
ald Moffat, Peter MacNlchol.
Laugarásbió og Sambióln.
Öllum leyfö.
í þessari mynd koma saman tveir
af þekktustu gamanleikurum
Bandaríkjanna, þau Steve Martin
og Goldie Hawn. Frank Oz, leik-
stjóri myndarinnar, á að baki
ágætis myndir eins og Litlu hryll-
ingsbúðina og What About Bob?.
Glöggir lesendur þekkja e.t.v.
Frank Oz úr þáttunum um Prúðu-
leikarana, en þetta er maðurinn
sem talaði fyrir Fossa björn og
Svínku í þáttunum. Útkoman er
farsi, sem á ágæta spretti en er yf-
irleitt lítið annað en í meðallagi.
Ekki er við Martin og Hawn að
sakast, heldur líður myndin aðal-
lega fyrir slakt handrit.
Newton Davis (Martin) er frekar
óspennandi arkitekt og þeirri lýs-
ingu á honum er æskuástin hans
sammála, því hún hafnar bónorði
hans í upphafi myndarinnar.
Þremur mánuðum seinna er hann
ennþá í ástarsorg, en hittir Gwen
(Hawn), sem er gengilbeina á veit-
ingastað. Hann segir henni af ásta-
málum sínum og af húsinu, sem
hann byggði fyrir æskuástina og
sig, í heimabæ sínum. Þarna gerði
hann mistök.
Gwen er ekki sein á sér að flytja í
húsið og tilkynna öllum í bænum,
þ.á m. foreldrum Davis, að þau séu
nýgift. Þegar Davis kemur í bæinn,
er Gwen búin að ljúga einu og
öðru að bæjarbúum varðandi sam-
band þeirra. Þá er æskuástin orðin
afbrýðisöm og til að Davis geti
fengið hana í hjónaband með sér,
er hann til í að halda lyginni
áfram. Fjöldi fólks flækist inn í
þennan lygavef, sem verður sífellt
flóknari með hverri mínútunni.
Eins og áður sagði er slakt hand-
rit það sem dregur myndina niður.
Það tekur myndina of langan tíma
að byrja. Farsinn nær sér ekki
verulega á strik fyrr en um miðbik
myndarinnar og þá er öllu skyn-
sömu fólki ljóst hvernig hún end-
ar. Fátt kemur verulega á óvart,
nema kannski lygasögurnar sem
Gwen spinnur jafnóðum og hún
talar.
Goldie Hawn er í skemmtilegra
hlutverki en Steve Martin. Hún
leikur þennan lygamörð með
ágætum og kemur á óvart í þau fáu
skipti sem hún þarf að vera alvar-
leg. Hún mætti að ósekju reyna
aftur við alvarlegt hlutverk eftir
ágætis tilburði í Deceived. Steve
Martin á sína spretti, en handritið
lætur honum oftar en ekki verri
setningar f té en Hawn. Hann á
samt hrós skilið fyrir fyndnasta at-
riði myndarinnar þar sem hann
þarf að syngja út af einni lygasögu
Gwen. Flest aukahlutverk eru vel
mönnuð, en Donald Moffat, sem
leikur pabba Davis, er fremstur
meðal jafningja.
í heildina er myndin í meðallagi
og fær hún flest atkvæðin út á góð-
an leik. Margir brandararnir eru
ósköp þunnir, en það er hæpið að
farsi geti gengið nema brandararn-
ir séu góðir. Þetta eru engin ný
sannindi. Það er ljóst að misskiln-
inginn, vandamálin og ruglið verð-
ur að skrifa af mikiili vandvirkni.
Aldrei má fara yfir strikið, því þá
verður þreytandi að fylgjast með.
táilliveginn verður að finna og það
tókst því miður ekki hér nema að
litlu leyti.
Örn Markússon