Tíminn - 05.11.1992, Qupperneq 8

Tíminn - 05.11.1992, Qupperneq 8
8 Tíminn Fimmtudagur 5. nóvember 1992 FUNDIR OG FÉLAGSSTÖRF Freyja, félag framsóknar- kvenna í Kópavogi Almennur fundur I Freyju verður haldinn að Digranesvegi 12 fimmtudaginn 5. nóv- ember kl. 20.30. Stef fundarins: Hvert land bjargast við sln gæði. Á dagskrá veröur m.a. hvatning, félagsmál og fræðsluefni. Freyjukonur eru hvattar til aö mæta og taka með sér gesti. Stjómin Aðalfundur fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Reykjavík verður haldinn mánudaginn 9. nóvember 1992, kl. 20:30, að Hótel Lind. Dagskrá: Kl. 20:30 Setning: Valdimar K. Jónsson formaður. Kosning starfsmanna fundarins. Skýrsla stjóman a) formanns, b) gjaldkera. Kosningan a) Formanns. b) Aöalmanna I stjóm (5) og varamanna (3). c) Tveggja endurskoðenda og eins til vara. d) Aðal- og varamanna i miðstjórn (8). e) Aöal- og varamanna i stjórn Húsbyggingasjóðsins (3). Kl. 21:15 Stjórnmálaviðhorfiö: Steingrimur Hermannsson, formaður Framsóknar- flokksins. Efnahags- og kjaramál: Bolli Héðinsson, stjómandi málefnahóps. Umræður. Kl. 23:15 Önnurmál. Stjómin Félagsvist Hin ártegu spilakvöld Framsóknarfélags Arnessýslu hefjast 6. nóvember kl. 21 i nýja félagsheimilinu Þingborg I Hraungerðishreppi. Spilaö verður i Aratungu 13. nóvem- ber kl. 21. Aöalverölaun utanlandsferö. Góð kvöldverðlaun. Stjórnin Félagsvist á Hvolsvelli Spilað verður á sunnudagskvöldum 15. nóvember, 29. nóvember, 13. desember og 10. janúar. Auk kvöldverðlauna verða ein heildarverðlaun: Dagsferö fyrir 2 með Flugleiðum til Kulusuk. 3 hæstu kvöld gilda. Framsóknarfélag Rangárvallasýslu Reykjavík Fulltmaráð framsóknarfélaganna í Reykjavik hefur opnað skrifstofu að Hafnarstræti 20, 3. hæð. Skrifstofan er opin alla virka daga frá 13:00-17:00. Stjórn fulltrúaráðsins. Hafnarfjörður Framsóknarfélögin i Hafnarfirði hafa opna skrifstofu að Hverfisgötu 25 á þriöjudags- kvöldum frá kl. 20.30. Litiö inn, fáiö ykkur kaffisopa og spjallið. ^ ' Stjórnimar Keflavík — Suðurnesjamenn Vetrarstarfið er hafið. Opið hús alla mánudaga kl. 20.30. Mætum öll. Alltaf heitt á könnunni. Framsóknarfélögin i Keflavik. Siglufjörður Almennur félagsfundur Framsóknarfélags Siglufjaröar veröur haldinn aö Suöurgötu 4, þriöjudaginn 10. nóvember 1992 kl. 20.30. Dagskrá: 1. Bæjarmál. 2. Kosning fulltrúa á flokksþing. 3. Önnur mál. Stjómin Kópavogur — Opið hús Framsóknarfélögin I Kópavogi hafa opið hús á laugardögum kl. 10-12 að Digranes- vegi 12. Lltið inn, fáið ykkur kaffisopa og spjalliö. Framsóknarfélögin Borgarnes — Breyttur opnunartími Frá og með 1. október verður opið hús i Framsóknarhúsinu að Brákarbraut 1 á þriðjudögum frá kl. 20.30 til 21.30, en ekki á mánudagskvöldum eins og verið hefur undanfarin ár. Bæjarfulltrúar flokksins munu verða til viötals á þessum tima og ennfremur em ailir, sem vilja ræða bæjarmálin og landsmálin, velkomnir Að sjálfsögðu verður hellt á könnuna eftir þörfum. Framsóknarfélag Borgamess. Akranes — Bæjarmál Fundur verður haldinn I Framsóknarhúsinu laugardaginn 7. nóvember kl. 10.30. Farið veröur yfir þau mál sem efst em á baugi i bæjarstjóm. Morgunkaffi og meðlæti á staönum. Bæjarfulltrúarnir Guðmundur Matthíasson Fæddur 1. apríl 1897 Dáinn 8. október 1992 Uppundir hvelfing Helgafells hlýlegum geislum stafar frænda sem þangað fór í kvöld fagna hans liðnir afar. Situr að teiti sveitin öll, saman við langeld skrafar, meðan oss hina hremmir fast helkuldi myrkrar grafar. (Jón Helgason) Við hjónin dvöldum norður í Húnavatnssýslu þegar við fréttum að Guðmundur vinur okkar væri búinn að fá hvíldina. Atvikin höguðu því þannig að við áttum ekki hægt um vik að fylgja honum hinsta spölinn á annan veg en að láta hugann leita til kveðju- stundarinnar. Ég veit að dauðinn var kærkominn þessum háaldraða heiðursmanni, því síðustu mánuð- ina lá hann rúmfastur í sjúkrahúsi, heilsan þrotin, aðeins bið að lífið fjaraði út. Á fögrum degi liðu svo síðustu andvörpin inn í kyrrð og fegurð haustsins, jafnhliða því sem björkin fellir bliknuð lauf til foldar og móðir jörð býr sig undir komu veturs konungs. Pað getur tæpast talist sorg þegar gamall maður kveður, en það er mikill söknuður þegar góðir vinir kveðja. En þegar minningarnar eru hlýjar og bjartar, þá ylja þær manni um hjartaræturnar þegar þær eru rifjaðar upp. Þegar ég og mín fjöl- skylda kynntist fyrst Guðmundi Matthíassyni var hann kominn yfir sextugt. Kynni okkar hófust á þann veg að vinur minn og starfsbróðir á B.S.R., Ingimar Einarsson, er giftur dóttur hans Mattheu. Þau hjón er ég r frá Ospaksstöðum búinn að þekkja í 45 ár og á þau kynni hefur enginn skuggi fallið. Ingimar er bráðgreindur heiðurs- maður, vinsæll og vel metinn. Heimili þeirra hjóna er til fyrir- myndar, Matthea fyrirmyndar hús- móðir, gestrisni og frjálslyndi ræður þar ríkjum og hjónin eru samvalin með að gera öllum gott. Máltækið segir: ,J4argt er líkt með skyldum" og á það sannarlega við um þau feðgin Guðmund og Mattheu. Guðmundur var einstaklega gest- risinn, vinsæll, vinmargur og við- mótsþýður, naut þess að veita öðr- um og rétta þeim hjálparhönd sem MINNING 1 ^___________1___________) áttu í vök að verjast. Hann naut þess líka að þiggja boð frá vinum og vandamönnum, spjalla saman, lyfta glasi og vera með í glens og gríni. Hann var einstakur hófsmaður á vín og tóbak, en hafði gaman af að smakka vín, skála og reykja góðan vindil, hrókur alls fagnaðar og dans- maður mikill. Ég, sem þessar línur rita, átti oft samleið með Guðmundi á mörgum gleðistundum, en aldrei skyldi maður sjá hann undir áhrif- um víns, þó maður vissi að hann væri hreifur. Hann sat veislur frá byrjun til enda, þó þær yrðu í lengra lagi, lyfti glasi manna fyrstur og drakk skilnaðarskál með reisn. Síð- ustu veislu hjá Guðmundi sátum við hjónin þegar hann varð níræður, þá fór lítið fyrir því að sæist lát á reisn og risnu þessa háaldraða höfðingja. Guðmundur var myndarmaður, þéttur á velli og þykkur undir hönd, kraftalega vaxinn, búinn miklu lík- amsþreki og átti létta og lipra lund. Hann var ein af hetjum hversdags- lífsins sem lét ekki baslið smækka sig, sótti á brattann þó móti blési, gat bognað undan þyngstu byrðum, en rétti sig við þegar áfanga var náð. Ævistarfið var helgað helstu at- vinnuvegum þjóðarinnar, sjávarút- vegi og landbúnaði. Búskap stund- aði hann bæði vestur á Skógar- strönd og á Óspaksstöðum í Hrúta- firði. Eftir rúmlega tuttugu ára búskap á Óspaksstöðum varð hann fyrir þeirri sorglegu lífsreynslu að missa eigin- konu sína, Jóhönnu Guðnadóttur, á besta aldri, 56 ára, en þá voru böm- in uppkomin og flutt að heiman. Eftir það hætti hann búskap, flutti til Reykjavíkur og átti þar heima síð- an í tæp fjörutíu ár. Hér í borg vann hann lengst af hjá Landssímanum og allt til þess er hann varð nær átt- ræður. Hann keypti sér íbúð hér í borg, var efnalega sjálfstæður og þurfti ekki til annarra að leita. Hann safnaði ekki veraldarauði, var alltaf frekar veitandi en þiggjandi, enda var það samkvæmt eðli hans. Fyrir rúmum þremur ámm síðan varð hann fyrir þeirri þungu sorg að missa son sinn Gísla aðeins um fimmtugt, einn af fjómm börnum hans, en hin em öll á lífi. Afkomend- ur Guðmundar em í dag alls 21 á lífi. Ekki dreg ég það í efa að hugur hans hafi staðið nær landsbyggðinni og sjónum en dvöl hans hér í borg- inni, þó hann yndi sér hér vel, því hann kunni vel við sig í fjölmenni. Hann var fæddur vestur á Barða- strönd, en ólst upp í Breiðafjarðar- eyjum þar sem landsýn er sérlega fögur og auðugt lífríki í eyjum og sjó. Strax mun sjórinn hafa heillað hann, enda stundaði hann sjó- mennsku á bátum og togurum í ára- raðir. Þar mun hann hafa kynnst þrældómi og illum aðbúnaði í rík- um mæli, en hann lifði það líka að sjá miklar stökkbreytingar til þess betra í þeim efnum. Guðmundi þótti vænt um land sitt og þjóð og mat mikils framtak og frelsi í athafnalífi og skoðunum. Hann hafði ákveðnar skoðanir í þjóðmálum og þó við værum þar á öndverðum meiði, hafði það engin áhrif á vináttu okkar. Hugur hans reis hæst þegar hann ræddi um at- vinnuhætti þjóðarinnar og mögu- leika sem ekki væri farið að nýta. Með huga og hendi vann hann sín verk, sannur sonur lands og þjóðar. Guðmundur var heimilisvinur okk- ar hjóna og barnanna okkar í ára- tugi. Á þau kynni féll enginn skuggi. Alltaf þegar Guðmundur leit inn til okkar, birti yfir þó bjart væri fyrir. Hlýja brosið og létti hláturinn smit- aði frá sér. Hann ræddi við börnin, ekki með tæpitungu heldur eins og fullorðið fólk. Þau hændust að hon- um, hann fræddi þau um eitt og annað, sagði þeim sögur úr sínu lífi og annarra, frásagnarglaður og hress í tali, uppbyggjandi fyrir alla sem á hann hlýddu. Vináttan er einn af þeim sterku þáttum sem gefa lífinu gildi, ef hún er sönn og einlæg. Hún er sú kær- leikskeðja sem ekki brestur þó sitt- hvað á móti blási. Þannig var vinátta Guðmundar Matthíassonar. Nú er þessi öldungur horfinn okk- ur sjónum og ég vona að hann njóti sín vel undir hvelfingu Helgafells, sem hann hafði í augsýn á uppvaxt- arárum sínum. Ekki efast ég um við- tökurnar, ég sé hann í anda við há- borðið, kneyfa mjöðinn og skrafa létt við frændur og vini sem á undan eru gengnir. Við hjónin og börnin kveðjum látinn vin með söknuði og trega. Birtan og ylurinn frá kyndli minn- inganna mun verða okkur leiðarljós á ókomnum árum. Hann helgaði ævina þeim ákveðna ásetningi „að vera í lífinu sjálfum sér trúr“. Blessuð sé hans minning. Jakob Þorsteinsson Umboðsmenn Tímans: Kaupstaður Nafn umboðsmanns Helmill Slml Keflavík Guöriöur Waage Austurbraut 1 92-12883 Njarðvik Katrin Siguröardóttir Hólagata 7 92-12169 Akranes Aöalheiöur Malmqvist Dalbraut 55 93-11261 Borgarnes Soffia Óskarsdóttir Hrafnarkletti 8 93-71642 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410 Grundarfjöröur Anna Aöalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604 Hellissandur Lilja Guömundsdóttir Gufuskálum 93-66864 Búðardalur Sigurlaug Jónsdóttir Gunnarsbraut 5 93-41222 isafjöröur Jens Markússon Hnífsdalsvegi 10 94-3541 Hólmavik Elísabet Pálsdóttir Borgarbraut 5 95-13132 Hvammstangi Hólmfriöur Guömundsd. Fifusundi 12 95-12485 Blönduós Snorri Bjarnason Uröarbraut 20 95-24581 Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut 27 95-22772 Sauöárkrókur Guönin Kristófersdóttir Barmahliö 13 95-35311 Siglufjöröur Guörún Auðunsdóttir Hverfisgötu 28 96-71841 Akureyri Halldór Ingi Ásgeirsson Sólvöllum 7 96-24275 Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbaröseyri 96-25016 Húsavik Sævar Salómonsson Vallholtsvegi 11 96-41559 Ólafsfjöröur Helga Jónsdóttir Hrannarbyggö 8 96-62308 Raufarhöfn Erla Guömundsdóttir Aöalbraut 60 96-51258 Vopnafjöröur Svanborg Víglundsdóttir Kolbeinsgötu 44 97-31289 Egilsstaöir Páll Pétursson Árskógum 13 97-11350 Seyöisfjöröur Margrét Vera Knútsdóttir Múlavegi 7 97-21136 Neskaupstaður Bryndís Helgadóttir Blómsturvellir 28 97-71682 Reyöarfjöröur Ólöf Pálsdóttir Mánagötu 31 97-41167 Eskifjörður Björg Siguröardóttir Strandgötu 3B FáskrúösfjöröurGuöbjörg Rós Guöjónsd. Skólavegi 26 97-51499 Djúpivogur Ingibjörg Ólafsdóttir Borgariandi 21 97-88962 Höfn Sigurbjörg Einarsdóttir Víkurbraut 11 97-81274 Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Engjavegi 5 98-22317 Hverageröi Þóröur Snæbjamarson Heiömörk 61 98-34191 Þorlákshöfn Halldóra S. Sveinsdóttir Egilsbraut 22 98-33627 Eyrarbakki Bjami Þór Erlingsson Túngötu 28 98-31198 Laugarvatn Kjartan Kárason J.K.L 98-61153 Hvolsvöllur Lárus og Ottó Jónssynir Króktúni 18 98-78399 Vík Sigurbjörg Bjömsdóttir Mánabraut 4 98-71133 Vestmannaeyjar Marta Jónsdóttir Helgafellsbraut 29 98-12192 Afmælis- og minningargreinar Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveimur dögum fyrir birtingardag. Þœr þurfa aÖ vera vélritaÖar.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.