Tíminn - 05.11.1992, Page 9

Tíminn - 05.11.1992, Page 9
Fimmtudagur 5. nóvember 1992 Tíminn 9 Sýningum á DUNGANON fer fækkandi Nú fer sýningum að fækka á DUNGANON, leikriti Bjöms Th. Bjömssonar um lífs- nautnamanninn og listamanninn Karl Einarsson. Næstu sýningar em á Stóra sviði Borgarleikhússins 6. og 13. nóvember. Það er Hjalti Rögnvaldsson sem leikur titilhlutverkið og hlaut hann einróma lof gagnrýnenda íyrir túlkun sína á þessum margslungna manni og öllum hans uppákom- um í stríðinu miðju. „Hjalti Rögnvaldsson hefur hvert smáatriði gjörsamlega á valdi sínu.... Dunganon er í túlkun hans í senn seiðmagnaður og óþolandi. Hér búa spek- ingur og kjaftaskur í einum búk,“ sagði Auður Eydal um frammistöðu Hjalta í DV. Brynja Benediktsdóttir setti sýninguna á svið, Sigurjón Jóhannsson gerði leikmynd og búninga, en Hjálmar Ragnarsson tónlisL AIls koma nær þrjátíu leikarar fram í sýn- ingunni. „Sjónrænt var sýningin skemmtileg," sagði Súsanna Svavarsdóttir í Morgun- blaðinu. „Sýning Borgarleikhússins á DUNGANON er vönduð og hugvitssamlega upp- sett,“ var ni' írstaða Lárusar Ýmis í Pressunni. Og nú fer sýningum fækkandi. Kjöt á heildsöluveröi í JL-húsinu Sverrir Sigurjónsson, sem seldi dilka- kjötið á Svarta markaðnum um síðustu helgi, hefur ákveðið að bæta um betur og býður nú bæði lambakjöt og kjúklinga á heildsöluverði. Sverrir ætlar einnig að selja þetta ódýra kjöt og kjúklinga á Jólatorgi sem nú hef- ur verið opnað á sömu hæð og Svarti markaðurinn f JL-húsinu og er opið þar alia daga vikunnar. Það hefur ekki gerst áður að jólakjöt og kjúklinga hefur verið hægt að kaupa á al- mennum jólamarkaði. Fisksali í bænum ætlar að bæta um bet- ur og býður glænýja línuýsu á 320 kr. kg, sem er undir heildsöluverði, alla daga á Jólatorginu. Ef þessi algjöra nýjung fær góðar mót- tökur hjá neytendum, má þykja víst að allskyns matvara bætist við frá heildsöl- um. Þrír myndlistarmenn sýna aö Kjarvalsstöðum Um síðustu helgi opnuðu þrjár mynd- listasýningar á Kjarvalsstöðum. Hér eru á ferðinni þeir Hrólfur Sigurðsson, Ei- ríkur Smith og Thór Barödal. í Austursal er yfirlitssýning á verkum Hrólfs Sigurðssonar listmálara. Hrólfur á að baki merkan feril í heimi íslenskrar myndlistar og er verðugur fulltrúi síns tíma. Hann hefur lítt haft sig í frammi í sýningarsölum, — eina einkasýning hans til þessa var í Bogasal Þjóðminja- safnsins 1962, en þar fyrir utan hefur Hrólfur tekið þátt í fjölmörgum samsýn- ingum, bæði heima og erlendis. Síðast- liðna áratugi hefur Iistamaðurinn unnið markvisst að því að framkalla nýja sýn á landið. í verkum hans eru engir atburðir, engin frásögn, engin hreyfing, aðeins kyrrlát fegurð þar sem birta Iandsins umbreytist í birtu litarins. f Vestursal er sýning á nýjum verkum eftir Eirík Smith, olíumálverkum og vatnslitamyndum. Eiríkur Smith er einn vinsælasti Iistamaður íslensku þjóðar- innar. Fyrstu einkasýningu sína hélt hann árið 1948 og hefur síðan haldið fjölmargar sýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga heima og erlendis. Fáir ís- lenskir listamenn eiga að baki jafn fjöl- breyttan feril og Eiríkur, en hann hefur átt hlut í öllum helstu straumum og stefnum nútímalistar sem til íslands hafa borist, og er áhugavert að sjá nýj- ustu verk þessa þekkta listamanns. f Vesturforsal er ungur myndhöggvari, Thór Barödal, með sýningu á marmara- og granítskúlptúrum, sem allir voru unnir í Portúgal á þessu ári. Sýningamar standa til sunnudagsins 15. nóvember. Basar í þjónustuíbúðum aldraöra viö Dalbraut Þjónustuíbúðir aldraðra að Dalbraut 27, Reykjavík, halda sinn árlega basar laug- ardaginn 7. nóvember kl. 13.30. Á boðstólum verður margt skemmti- legra muna, svo sem: ofnar og smyrnað- ar mottur, tilvaldar í sumarbústaði; skemmtileg prjónuð leikföng í björtum litum, dúkar, lopapeysur, sokkar, vett- lingar, húfur, treflar, útskomir trémunir, brúðurúm, körfur, bakkar fyrir laufa- brauð og margt fleira tilvalið til jólagjafa. Gott verð. Kvenfélag Óháöa safnaöarins heldur fund í kvöld í Kirkjubæ kl. 20. Tupperwear-kynning. Félag eldri borgara Opið hús í Risinu kl. 13-17. Kynningar- fundur um málefni eldra fólks kl. 15. Kóræfing kl. 17. „Maður meö byssu“ í bíósal MIR Kvikmyndasýning verður í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, nk. sunnudag 8. nóvember kl. 16. Sýnd verður gömul kvikmynd, „Maður með byssu", sem gerð var í Moskvu á árinu 1938. Myndin er byggð á samnefndu leikriti eftir Nikolaj Pogodin og leikstjóri er Sergei Jútkevitsj, einn í hópi fremstu kvikmyndagerðarmanna í Sovétríkjunum íyrr og síðar. í kvikmynd- inni er fjallað um byltingartímann í Rússlandi og aðdraganda byltingarinnar í nóvember 1917 og þar kemur Lenín við sögu, en með hlutverk hans fer hinn kunni leikari Maxím Shtraukh. Meðal annarra frægra leikara í myndinni má nefna Nikolaj Tsjerkasov. Tónlistin er eft- ir Shostakovitsj. Skýringartextar á ensku. Aðgangur öllum heimill. Nýtt rafkerfi í Kolaportinu Nú um helgina verður tekið í notkun nýtt rafkerfi í Kolaportinu, sem hefur í för með sér algjöra byltingu í sambandi við lýsingu og rafmagnsmál markaðs- torgsins almennt. Settar hafa verið upp þrefaldar rafbrautir, sem eru samtals um 500 metrar að lengd, og eru ljóskastarar og raftenglar settir beint upp í þessar raf- brautir. Með tilkomu þessa nýja rafkerfis getur hver seljandi fengið eins mikla lýsingu og hann vill á sitt svæði og fengið teng- ingu á hvers kyns raftækjum, þar á með- al sjóðvélum og reiknað er með að notk- un þeirra verði nú mjög vaxandi í Kola- portinu, flestum til mikillar ánægju. BÍLALEIGA AKUREYRAR MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM LANDIÐ. MUNIDÓDÝRU HELGARPAKKANA OKKAR REYKJAVÍK 91-686915 AKUREYRI 96-21715 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS interRent Europcar í tvö ár hafa þau Clint Eastwood og Frances Fisher búiö undir sama þaki. En hjónaband hefur ekki bor- iö enn á góma, segir Frances. Hjónaband ekki á aöfinni hjá Clint Eastwood og Frances Fisher! Clint Eastwood er orðinn var um sig í hjónabandsmálum. Hann var lengi vel giftur sömu konunni og varð að borga dýrum dómum fyrir að fá sig lausan úr þeirri hnappheldunni, þegar hann vildi ólmur og uppvægur taka upp sam- búð við Sondru Locke á sínum tíma. í 13 ár bjuggu þau svo sam- an, Clint og Sondra, en aldrei tókst henni að draga hann upp að altar- inu. Þegar hann fór frá henni, gerði hún himinháar meðlagskröf- ur til hans og þau hafa ekki litið hvort annað réttu auga síðan. Og enn er Clint við sama hey- garðshornið í hjónabandsmálun- um, og reyndar kvennamálunum líka. Undanfarin tvö ár hefur hann verið í sambúð með bresku leik- konunni Frances Fisher og hefur í spegli Timans vakið athygli hversu mjög hún lík- ist Sondru Locke í sjón. Og kannski er eitthvað fleira líkt með konunum tveim. A.m.k. fást engin ákveðin svör, þegar forvitnir spyrja Frances hvort brúðkaup sé á næsta leiti, enginn virðist leggja í að spyrja Clint! „Við höfum aldrei talað um hjónaband," segir Frances. „En ég veit að margir tala um mig sem kærustuna hans Clints, og ég lít svo sannarlega á Clint sem kærast- ann minn.“ Kannski er það full- nægjandi svar. Hjaiti ásamt einum gesta sinna, Andrési Pálssyni á Hjálmsstööum. Tlmamyndir GTK' Merkisafmæli: Hjalti Pálsson sjötugur Hjalti Pálsson, hestamaður og fyrrv. framkvæmda- stjóri, hélt upp á sjötugsafmæli sitt nýlega og heiní- sóttu hundruð manns afmælisbarnið og eiginkonu hans til að samfagna þeim á þessum tímamótum. Frú Ingigeröur Karlsdóttir og Hjalti Pálsson.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.