Tíminn - 18.11.1992, Qupperneq 3

Tíminn - 18.11.1992, Qupperneq 3
Miðvikudagur 18. nóvember 1992 Tíminn 3 Vandræðagangurinn við að stjórna landinu: Andstaöa er í SjáKstæðis* flokkmm gegn skattahækkunum Lítil hrifning er innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins á hugmyndum at- vinnumálanefndar ríkisstjórnarinnar um hækkun tekjuskatts og útsvars og álagningu fjármagnsskatts. Andstaðan er það mikil að ekki er útilokað að farin verði sú leið að hækka frekar óbeina skatta, einkum virðisaukaskatt. Enn einu sinni hafa verið teknar til skoðunar hugmyndir um tveggja þrepa virðisaukaskatt Þingmenn Sjálfstæðisflokks sem Tíminn ræddi við voru tregir til að segja margt um hugmyndir um breyt- ingar á skattakerfmu. Þeir bentu réttilega á að enn sem komið er væru menn að velta upp hugmyndum og ríkisstjómin hafi enn engar tillögur lagt fram. Þeir sögðust þurfa að sjá heildarmyndina áður en þeir færu að segja eitthvað um einstaka liðið. Það er þó ljóst að veruleg andstaða er við hugmyndir um hækkun á útsvari og álagningu hátekjuskatts og fjár- magnsskatts. Sama gildir um nýjar hugmyndir um hækkun á tekju- skattshlutfalli um 2%. Sjálfstæðis- flokkurinn hefur margoft hafnað hug- myndum um skattahækkanir af þess- um toga. Vilhjálmur Egilsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að eins og staðan sé í dag greiði vinnuveitandinn um eina krónu í gjöld og skatta af hverri krónu sem launþegi, sem er yf- ir skattleysismörkum, fær í sinn vasa. Jaðaráhrif skattsins séu því ærið mik- il. Áhrifin séu enn meiri fyrir laun- þega sem ekki fái bamabótaauka og vaxtabætur. Vilhjálmur sagði takmörk fyrir því hvað sé hægt að ganga langt í þessa átt. „Það er bara þannig að þeg- ar kostnaðurinn við að koma pening- unum í vasa launþegans hækkar þá fara fyrirtæki og einstaklingar að leita að öðrum leiðum við að greiða laun- in. Ef að launþeginn fær aðeins eina krónu af hverjum þremur sem vinnu- veitandinn þarf að greiða af vinnu hans þá fer fólk aðrar leiðir. Það má ekki gleyma því að fólk á alltaf næsta leik þegar búið er að setja skattalögin. Þetta þarf allt að vega og meta í sam- hengi við heildarmyndina," sagði Vil- hjálmur. Menn eru sammála um að ekki megi draga mikið lengur að fá á hreint hvaða breytingar verða gerðar á skattakerfinu. Ekkert hefur verið litið á tekjuhlið fjárlaga síðan fjárlaga- frumvarpið var lagt fram í byrjun október. Ástæðan er að hugmyndir at- vinnumálanefndar ríkisstjómarinnar um miklar skattkerfisbreytingar. Vil- hjálmur sagði að menn geti ekki dreg- ið það mikið lengur að fá niðurstöðu í nokkra gmndvallarþætti í tekjuhlið fjárlaga. Ef efnahags- og viðskipta- nefnd eigi að hafa tök á að fara faglega yfir tekjuhliðina þá verði ríkisstjómin af fara að taka sínar ákvarðanir. -EÓ Verkalýðshreyfing og iðnrekendur benda landsmönnum á gildi þess að kaupa ísienskar vörur í stað erlendra: Herkostnað urinn nemur um 25 millj- onum Krona Verkalýðshreyflngin hefur lagt fram 8-10 milljónhr króna til að aug- iýsa giidi þess fyrir íslendlnga að kaupa innlendar framleiösluvörur f stað erlendrar og í sama tilgangi hcfur Félag fslenskra iðnrekenda lagt fram 7,5 miUjónir og svipaða upphæð hefur Landssamband iðn- aðarmanna reitt af hendi á þessu ári. Þessu til viðbótar greiddi Iðja, félag verksmiðjufólks, 300 þús- und krónur fyrir ieiknar auglýs- ingar í útvarpi, fyrr á árínu. Þannig að ailt f allt hafa hags- munaaðiiar f iðnaði lagt fram rúmar 25 milljónir króna til að auglýsa fslenskar iðnaðarvörur í stað eriendra og hvaða áhrif það hefur á atvinnu fólks. Þar fyrir utan hafa samtök at- vinnuiausra einnig verið iðin við kolann, en eins og kunnugt er þá hefur störfum í iðnaði fækkað töiuvert á undanfórnum árum á sama tfma og markaðshiutdeild innlends iðnvaraings hefur minnkað. Guðmundur Jónsson, formaður Landssambands iðnverkafólks, segir að erfltt sé að henda reiður á árangurinn að svo stöddu en hinu sé ekki að leyna að veruleg vakning virðist hafa orðið meðal neytenda og sömuleiðis aukinn skilningur hjá þeim á mikilvægi þess fyrir atvinnustigið að keypt sé frekar innlend framleiðsia en eriend. Sveinn Hannesson, fram- kvæmdastjóri Félags fslenskra iðnrekenda, segir að ekki aðeins hafl orðið vart við aukinn áhuga og skilning almennings á þessu átald heidur einnig innan fyrir- tækjanna sjáifra og m.a. eru iðn- rekendur farair að versia meira sín í milli en áður. Þá eru dæmi um það að einstaklingar hafa sótt um aðild að félaginu til þess eins að geta sannað það fyrir sínum kúnnum að þeir séu með íslensk- ar framleiðsluvörur á boðstólum en ekki erlendar. -grh Afskurður um borð i frystitogurum ekki alltaf sem skyldi. Ríkismatið: Afbragðs vetrarveður var í gær í Reykjavík, vægt frost, heiðríkja og hægur and- vari og mávarnir voru ansi rólegir í tíöinni. Timamynd Ami Bjama Davíð kallarstjórnar- andstöóuna á fund Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur kallað leiðtoga stjóraarandstöðunn- ar á fund í Stjómarráðinu kl. 10 í dag. Fundarefnið er aðgerðir í atvinnu- og efnahagsmálum. Fundurínn er talinn gefa til kynna að stutt er í að aðgerð- iraar verði kynntar opinberlega. í dag verður einnig fundur f atvinnumála- nefnd ríkisstjómarinnar og aðiia vinnumarkaðarins. Ekki er talið að forsætisráðherra stuðningi stjórnarandstöðunnar við kynni endanlegar tillögur á fundin- um með stjórnarandstöðunni í dag. Frekar er reiknað með að hann kynni stöðu málsins og leiti eftir þær tillögur sem nú er verið að leggja síðustu hönd á. Síðan eftir miðstjórnarfund ASÍ á sunnudaginn hefur verið leitast við að skapa sem mesta samstöðu um þær aðgerðir sem gripið verður til. Fundurinn með stjórnarandstöð- unni er liður í þessu. Óvíst er hins vegar að hve miklu leyti ríkisstjórn- in mun setja sitt mark á tillögur at- vinnumálanefndarinnar, en vitað er að sumt í tillögum hennar gengur þvert á yfirlýsta stefnu stjórnarinn- ar. -EÓ Vænir flakhlutar og heii fiök í afskuröi Góð færð en hálka í athugunum sem Ríkismat sjávaraf- urða hefur staðið fyrir á vinnslu frystitogara hefur komið í ljós að vænir flakhlutar og jafnvel heil flök hafi fundist í afskurði. Ennfremur eru dæmi um innyflaleyfar séu í af- skurði en slíkt getur valdið gerla- mengun m.a. við frekari vinnslu t.d. í flskmaming. Þetta kemur fram í fréttabréfí Ríkismatsins. En afskurður er jafnan skilgreindur sem smávægilegir fiskafgangar sem falla til við snyrtingu fiskflaka. Alla jafna er afskurðinum haldið til haga um borð í frystitogurum þar sem fisk- afgangar eru heilfrystir og þýddir upp til frekari vinnslu í vinnslustöðvum í landi. Þórður Friðgeirsson, forstöðumaður eftirlitssviðs Ríkismatsins, segist ekki trúa því að óreyndu að sjómenn séu að henda fiski á þennan hátt í því aflaleysi sem verið hefur á veiðislóðum togara. Hins vegar vill hann taka fram að þrátt fýrir þetta séu mörg vinnsluskip til fyr- irmyndar hvað afskurð varðar þótt innan um fyrirfinnist dæmi um hið gagnstæða. -grh Greiðfært var í gærkvöldi í nágrenni Reykjavíkur og um Suðurland með ströndinni til Austurlands þar sem ágæt færð er einnig. Góð færð er fyrir Hvalfjörð og um Snæfellsnes en þungfært um Gils- fjörð. Klettsháls var fær jeppum og stærri bfium. Frá Brjánslæk var greiðfært til Bfidudals en Dynjand- isheiði og Hrafnseyrarheiði voru ófærar. Fært var um Holtavörðuheiði til Hólmavíkur en þungfært um Stein- grímsfjarðarheiði. Botns- og Breiða- dalsheiðar voru færar jeppum og stærri bfium. Fært var um Norðurland og með ströndinni á Norðausturlandi til Vopnafjarðar. Fært var um Möðru- dalsöræfi, Vopnafjarðarheiði og Hellisheiði eystri. Víðast hvar um allt land var hálka á vegum, einkum heiðum og fjallvegum. —sá Leiðrétting Jóhann Pálsson garðyrkju- stjóri Reykjavíkurborgar vill taka fram að misskilnings gæti í frétt um mengun í miðborg- inni. Hann segir að fyrsti vott- ur um mengun sé að skorpu- fléttur hverfi af trjám en fjölgi þegar mengun er lítil.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.