Tíminn - 21.11.1992, Blaðsíða 6

Tíminn - 21.11.1992, Blaðsíða 6
6 Tíminn Laugardagur21. nóvember 1992 Byggingarfélag verkamanna í Reykjavík Aðalfundur félagsins verður haldinn á Hótel Lind, Rauðarárstíg 18, fimmtudaginn 26. nóvember 1992, kl. 20,30. Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Félagsstjórnin. Útboð Kúðafljót, smíði stálbita Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í smíöi stál- bita fyrir brú á Kúðafljót. Um eraö ræða smiði 30 soöinna plötubita, 18 og 22 m langra, ásamt tilheyrandi þverbitum og samskeytum, alls 200 t. Ennfremur er innifalin hreinsun og ryðvörn stálsins ásamt flutningi þess á byggingarstaö við Kúðafljót. Efni I stálbitana verður afhent á næstu uþþskip- unarhöfn Eimskips I janúar 1993 og skal smíði og afhendingu vera lokiö 15.05.-01.06.1993. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins ( Borgartúni 5, Reykjavlk (aðalgjaldkera), frá og meö 23. þ.m. Tilboöum skal skila á sama stað fyrir kl. 14:00 þann 14. desember 1992. Vegamálastjóri Auglýsing um veitingu leyfis til áætlunarflugs innanlands Samkvæmt auglýsingu nr. 523 frá 3. nóvember 1989 um leyfi til áætlunarflugs innanlands, munu sérleyfi til áætlunarstaða, þar sem árlegur meöalfjöldi farþega árin 1990 og 1991 var hærri en 12 þúsund farþegar, breytast í almenn áætlunarleyfi frá og með 1. janúar 1993. Ráðuneytið lýsir hér með eftir umsóknum flugrek- enda um leyfi til áætlunarflugs á flugleiðinni Reykjavík- Egilsstaðir-Reykjavík. Leyfið verður veitt með eftirfarandi skilyrðum: 1) Sætaframboð skal eigi vera meira en 10% af heildarsætaframboði á umræddri flugleið í vetrar- áætlun og sumaráætlun, samkvæmt mati ráðuneyt- isins. 2) Heildarfarþegaflutningar skulu ekki nema meira en 10% af heildarflutningum i áætlunar- og leiguflugi á sömu tímabilum. Með umsókninni skulu fylgja: - Drög að ársáætlun á viðkomandi flugleið. - Upplýsingar um þær flugvélar, sem áætlaö er að nota til flugsins. - Gögn um fjárhagsstööu fiugrekanda. - Önnur gögn sem umsækjandi telur skipta máli. Umsóknum, skv. ofanrituðu, skal skila til samgöngu- ráðuneytisins eigi síðaren 30. nóvember n.k. Samgönguráðuneytið, 19. nóvember 1992 Innkaupastofnun Reykjavfkurborgar, f.h. Hitaveitu Reykjavíkur, óskareft- ir tilboðum I foreinangraðar pipur. Um er aö ræöa lagnarefni I stærðum DN 20 — DN 150 mm. Helstu magntölur em: pípur 42.300 m og greinistykki 18.619 stk. Útboösgögn verða afhent á skrifstofu vomi, Frikirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboöin verða opnuö á sama staö fimmtudaginn 7. janúar 1993, kl 11,00. IN N KAUPASTÖFN U N REYKJAVÍ^U RBORGAR £ „• f' o Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 ° $ '*vc. tf ATVINNURE I FÆRA SER NYT Atvinnuleysi er orðið hluti af íslenskum veruleika og at- vinnulausir hafa stofnað með sér fjölmenn samtök. Reynir Hugason er formaður þeirra. Hann segirfólk vera reitt og þurfa vinnu strax, en ekki einverntímann í framtíðinni. Hann talar tæpitungulaust um stjórnmála- menn, sem hann segir að skilji ekki vandann og séu jafnvel argir vegna tilveru þeirra. Hann skýrir frá dæm- um um atvinnurekendur sem noti sér ástandið. Þá segir hann að dæmi séu um sjálfsmorð hjá atvinnulausu ungu fólki. Það er samt enginn uppgjafartónn í Reyni, og til marks um það munu samtökin standa fyrir kynn- ingu á ódýrum mat um helgina. Eru atvinnu- lausir að verða hin gleymdu börn þjóðfé- lagsins? Stjórn- málamenn sem skilja ekki vandann. Reynir Huga- son, formaður Samtaka at- vinnulausra: Samtökin hafa vaxið hratt. Reynir segir að félagsmenn í samtökunum séu núna orðnir 1250, en voru í upphafi um 50. Hann segir að þessi fjöldi nálgist helming þeirra sem séu atvinnulausir í Reykjavík, en flestir félagar eru þaðan. „Við höf- um lagt áherslu á að skrá menn af skráningarstofunni í Reykjavík. Nú er einnig verið að vinna að skrán- ingu á fólki úr Garðabæ, Kópavogi og Hafnafirði," segir Reynir. Hann getur þess að í upphafi hafi verið lögð mikil áhersla á að atvinnu- lausir skráðu sig í samtökin. „Nú leggjum við ekki svo mikla áherslu á þetta, en fólk skráir sig samt jafnt og þétt,“ segir Reynir. Hann telur að allt að þrír fjórðu hlutar at- vinnulausra skrái sig. „Einstaka maður vill ekki skrá sig. Sumir vilja það ekki og finnst samtökin ekki vera nógu róttæk. Þeir vilja samtök sem fara niöur á Austurvöll með kröfuspjöld og heimta vinnu og mat,“ segir Reynir. Hann telur að það sé að finna menn úr öllum stéttum þjóðfélagsins innan vé- banda samtakanna og þar á meðal séu ótaldir viðskiptafræðingar og nokkrir verkfræðingar. Ekki hægt að hríngja í okkur heim „Þetta atvinnulausa fólk er í þeirri stöðu að það á enga peninga í dag. Það leysist ekkert með nýjum lög- um eða reglugerðum eftir hálft ár. Fólk vill fá peningana núna,“ segir Reynir. Hann bendir á að það sé fjöldi manns sem ekki fái neinar bætur og segist sjálfur vera þar á meðal. „Eg er nú svo heppinn að ég á konu sem er vísindamaður. Hún hefur þokkaleg laun, en það heldur ekki heimilinu á floti, að minnsta kosti ekki miðað við þann lífsstíl sem við vöndumst. Þetta stefnir allt til helvítis, eins og hjá flest- um,“ segir Reynir. Hann getur þess að í vikunni hafi verið lokunardag- ur síma og þá hafi síma hjá flestum félagsmönnum í samtökum at- vinnulausra verið lokað. „Það er ekki hægt að hringja í okkur heim, því að við getum ekki borgað fyrir sfmann og þar á meðal hjá mér,“ segir Reynir. Fólk er voðalega reitt Aðspurður um hug félagsmanna til samfélagsins segir Reynir: „Fólk er voðalega reitt og óþolinmótt. Það heimtar lausnir strax og getur ekki beðið. Það ásakar stjórnmála- menn um að vera valdir að þessu, þar sem þeir séu vanfærir um að koma með lausnir. Fólk þjappar sér saman um íslenska atvinnustarf- semi og er henni mjög hlynnt." Reynir telur að fólk trúi málflutn- ingi samtakanna, sem er að allir myndu fá vinnu ef eingöngu væru keyptar íslenskar vörur. „Við vor- um með þennan áróður um síð- ustu helgi og ætlum að halda hon- um áfram,“ bætir Reynir við. Hann er mjög ánægður með árangurinn. „Okkur var tekið svo vel að það var alveg með eindæmum. Fóik kom og sýndi okkur í pokana sína og sagði: „Sjáðu bara, ég er með allt íslenskt." Þá klappaði það manni á öxlina og sagði: „Gott hjá þér ég styð þetta." Við sögðum því að það gæti keypt atvinnuleysi af höndum sér með því að kaupa íslenska iðn- aðarvöru," segir Reynir. Hann bendir á að íslenskum iðnaði hafi hrakað undanfarin ár, þar sem allt að 4.000 störf hafi tapast. „Við vilj- um ekki áframhald á þeirri þróun. Við verðum að snúa þeirri þróun viö," segir Reynir. Hann nefnir sem dæmi um hversu undirtektirnar voru góðar, að hann hafi náð að dreifa sjálfur um 7.000 miðum á augabragði um síðustu helgi þar sem fólk var hvatt til að kaupa ís- lenskt. Hann segist hafa orðið var við jákvæðar undirtektir víða. Þar á meðal nefnir hann að einn af stór- mörkuðum borgarinnar hyggist styðja samtökin með margvísleg- um hætti. Fjölskyldan í mat fyrir 20 kr. Reynir segir að samtökin hyggist beita sér á margvíslegan hátt til stuðnings sínum skjólstæðingum. Hann nefnir t.d. að nú um helgina ætli þau að kynna félagsmönnum hvernig hægt sé að matreiða góða og mjög ódýra rétti úr sfld og skötu, en samtökin fengu um 20 tonn af skötu að gjöf frá aflakaupa- nefnd í vikunni. Að sögn Reynis hefur Reykjavíkurborg gefið vilyrði fyrir húsnæði þar sem kynningin fer fram. Matreiðslumenn munu þar matreiða, en fólki gefst kostur á að bragða á réttunum, sem það getur keypt hráefni í á staðnum. Reynir segir þetta góðan mat og mjög ódýran og nefnir sem dæmi að hálft kíló af roðflettri síld kosti 20 kr. og dugi í eina máltíð fyrir fjóra. „Með þessu viljum við benda verslunareigendum á það að það er fullt af fólki í þjóðfélaginu sem er það fátækt að það getur ekki leyft sé að kaupa ýsuflak fyrir 400 kr. kg. Sumir koma hér á skrifstofuna af því að hér fæst ókeypis kex,“ segir Reynir. Sumir atvinnurek- endur notfæra sér neyðina Reynir hefur slæma sögu að segja af sumum atvinnurekendum, sem leiti eftir starfskröftum hjá Sam- tökum atvinnulausra. „Það kemur fyrir að það hringja menn og biðja um fólk í vinnu, en það hafa ekki verið sérstaklega góö störf," segir Reynir og á við störf eins og sölu- mennsku upp á prósentur, sem hann telur hæpið að gefi yfirleitt mikið í aðra hönd. „Svo hafa kom- ið upp slæm dæmi, sem við viljum alls ekki eiga neinn þátt í, en það er þegar verið er að bjóða mönn- um svarta vinnu og laun sem eru lægri en atvinnuleysisbætur, eða um 200 kr. á tímann sem gefa af sér um 32.000 kr. á mánuði. Það

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.