Tíminn - 21.11.1992, Qupperneq 14
14 Tíminn
Laugardagur21. nóvember 1992
Sjómannafélag Reykjavíkur varar við fækkun í áhöfnum
togara, sem leiðir af sér aukna hættu á slysum:
Óheillaþróun sem
veröur að stöðva
Aðalfundur Sjómannafélags Reykjavíkur varar við þeirri fækkun, sem orð-
ið hefur í áhöfn togara, og telur að það leiði af sér aukna hættu á slysum
um borð. Að mati fundarins þykir eðlilegt að tekið verði á málinu í félögum
og samtökum sjómanna og unnið verði að því að stöðva þessa óheillaþróun,
því þegar sé slysatíðni sjómanna geigvænleg.
Þá mótmælir fundurinn fyrirhuguð-
um niðurskurði á rekstri Landhelgis-
gæslunnar og vill stórherða allt eftirlit
með veiðum fiskiskipa á íslandsmið-
um. Fundurinn vekur athygli á fram-
komnum fullyrðingum þess efnis að
færeysk skip á íslandsmiðum komi
með fleiri tonn af flökum að landi en
nemur þeim fiski, sem þeim er leyft að
veiða upp úr sjó. Jafnframt skorar
fundurinn á ríkisstjóm og Alþingi að
láta fara fram endurskoðun á fisk-
veiðiheimildum Færeyinga hér við
land.
í ályktun aðalfundarins kemur m.a.
fram að niðurskurður til Gæslunnar
muni ekki aðeins bitna á starfsemi
hennar, heldur skerðir það einnig ör-
yggi sjómanna, íbúa hinna dreifðu
byggða landsins og dregur úr allri lög-
gæslu á hafinu umhverfis landið. Til
hagræðingar í rekstri ríkisins og til
eflingar Gæslunnar skorar fundurinn
á ríkisstjómina að færa starfsemi Vita-
málastofnunar, veiðieftirlitið og starf-
semi mengunareftirlits Siglingamála-
stofnunar undir stjóm Gæslunnar.
Þá ítrekar fundurinn fyrri áskoranir
til stjómvalda um nauðsyn þess að
keypt verði ný og öflug björgunarþyrla
og jafnframt lýsir fundurinn yfir full-
um stuðningi við ríkisstjómina varð-
andi úrsögn úr Alþjóða hvalveiðiráð-
inu og hvetur til þess að hvalveiðar
verði leyfðar á næsta ári undir eftirliti.
-grh
Skipasmíöaiönaðurinn hefur átt undir högg aö sækja að undan-
förnu, eins og málmiðnaöarmenn vöktu rækilega athygli á þeg-
ar þeir böröu þaö í gegn aö gert yröi viö Búrfelliö hér heima, en
ekki i Póllandi.
0 í 2 3 4 5 6 7 8 9 ÍÖ 11 12 V3 14 16 17 íe 19 20 21 22~Z3
Teikning af 23 metra löngum tvíbolungi til Ifnuveiða. Mesta breidd er 10.40 metrar, en breidd á hvorn
bol 2.80 metrar. Lestarrými er 100 rúmmetrar.
BÆNDUR!
Leysið mykjuvandamálin í eitt skipti fyrir öll
með mykjutækjum frá Vélboða h.f.
Miðflóttaafls-
dæludreifarar
Snekkjudælu-
drelfarar
í stærðum 4000,
5000 og 6000 lítra
Flotdekk að vali
Mjöggottveröog
greióslukjörvið
allra hæfi
Nánarí upplýsingar hjá sölumönnum okkar í síma 91-651800.
Hvaleyrarbraut 2
ur 220 Hafnarfjörður
nr Sími 91-651800
VÉLBOÐI
Skipasmíðastöð Marselíusar hf.
á ísafirði hefur um tíma unnið
að hönnun og markaðssetningu
á svokölluðum tvíbolungum,
eða tveggja skrokka bátum, tií
fiskveiða við ísland og liggja nú
fyrir þijár stærðir af þessum ný-
stárlegu farkostum. Að sögn
Finnboga Rúts Jóhannessonar,
atvinnuráðgjafa á ísafirði, bauð
stöðin íslenskum sjómönnum í
kynnisferð til Frakklands nýlega
að skoða báta sem þessa, og
töldu þeir að bátamir mundu
reynast mjög vel hér við land.
Leitað hefur verið til hins opin-
bera um styrki til þess að smíða
fyrsta bátinn og mun iðnaðar-
ráðherra hafa tekið hugmynd-
inni vel.
Allt að 23 metra lang-
ur línubátur
Þeir bátar, sem stööin er nú tilbúin
að smíða, eru sem hér segir: 14
metra tvíbytna til línu-, neta- eða
dragnótaveiða. 16 metra tvíbytna til
línu- og dragnótaveiða.
23 metra tvíbytna til línuveiða.
Bátarnir yrðu smíðaðir úr áli, vegna
þess hve það er hentugra er kemur
að viðhaldi og léttleika. Þessi gerð
báta hefur marga ótvíræða kosti um-
fram hefðbundna báta og eru þessir
þeir helstu:
Aukið þilfarsrými og aukið rými í
íbúðum, samanborið við hefðbundna
báta af svipaðri lengd.
Minni veltingur og almennt betri
sjóhæfni. Þar af leiðir að hægt er að
vera lengur að við verri aðstæður.
Aukinn stöðugleiki og því engin
þörf á kjölfestu. Aukinn ganghraði
með sömu vélarstærð eða sami gang-
hraði með minni vél. Tvær vélar í
stað einnar og þar með aukið öryggi.
Auk tvíbolunganna má nefna aðra
nýjung, sem skipasmíðastöðin hefur
hannað og smíðað. Þar er um að
ræða nýja gerð skrúfuhringa, sem
skilar betri togkrafti togskipa án þess
að draga úr hraða. Nýjungin byggir á
því að notaður er vængprófíll, sem
hefur mun minni hvirfilmótstöðu en
hefðbundnir skrúfuhringir. Nýi
hringurinn var hannaður meðan
breytingar fóru fram á Gunnvöru ÍS
53 á fyrra ári og jókst togkraftur
skipsins um 53%. AM