Tíminn - 06.01.1993, Síða 12
Áskriftarsími
Tímans er
686300
NÝTTOG Bílasala Kópavogs
FERSKT Smiðjuvegi 1, 200 Kópavogi
DAGLEGA SÍMI 642190
Vantar nýlega bíla.
-MTÍreiSholtsbaka rí Mjög mikil eftirspurn.
VÖLVUFELL113 - SÍMI73655 VERIÐ VELKOMIN
«
Tímirni
MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1993
Vaxandi ásókn ríksins eftir fjármagni, verðbólga og afkoma bankanna ræður mestu um vaxta-
stigið. Magnús Geirsson form. Rafiðnðarsambandsins:
„Ekki pínlegt að sitja
báðum megin við borðið“
„Nei, það er ekki pínleg staða að sitja báðum megin við borðið.
Hækkun á raunvöxtum um 0,25%, gerir ekki útslagið um afkomu
heimilanna miðað við þá stórkostlegu kjaraskerðingu sem þau eru
að verða fyrir.
Hitaveitan
í Bessastaða-
hreppi seld
Reykvíkingum
Gerður hefur verið samn-
ingur um að Hitaveita
Reykjavíkur yfirtaki Hita-
veitu Bessastaðahrepps,
jafnt eignir sem skuldir.
Samningurinn hefur verið
samþykktur í stjóm veitu-
stofnana og borgarráöi.
Samningurinn gerir ráð íyr-
ir að Hitaveita Reykjavíkur
greiði rúmar 8 miÚjónir kr.
fyrir Hitaveitu Bessastaða-
hrepps og yfírtaki skuldir að
andviröi 32 milljónir.
Dreifíkerfí Hitaveitu
Bessastaöahrepps, ásamt
aðveituæð, er metiö á um
48,5 milljónir króna.
Skuldir veitunnar, sem
Hitaveita Reykjavíkur yflr-
tekur, eru metnar á 32
milljónir. Mismunur eigna
og tekna er um 16,4 miUj-
ónir. Samkomulagið gerir
ráð fyrir að Hitaveita
Reykjavikur greiði helming
þessarar fjárhæðar vegna
yfírtökunnar. Um er að
ræða fuUnaðargreiðslu.
Pjárhæðin mun ganga til
greiðslu á skuld Hitaveitu
Bessastaðahrepps við Hita-
veitu Reykjavíkur. Miðað er
við að Bessastaðahreppur
verði skuidlaus við Hita-
veitu Reykjavíkur 31. mars
1993.
Með yfirtökunni ervonast
til að Hitaveita Reykjavfltur
nái fram einhverri hagræð-
ingu í dreifingu og að hita-
veítugjöld í Bessastaða-
hreppi lækki. -EÓ
Bensínhækkun og önnur hækkun á
rekstri bifreiða hefur t.d. miklu
meiri áhrif á afkomu okkar fólks en
örlítil vaxtahækkun", segir Magnús
Geirsson, formaður Rafiðnaðarsam-
bands íslands sem situr í stjóm ís-
landsbanka og einnig í miðstjórn Al-
þýðusambands íslands.
Verkalýðsleiðtogar og forsvars-
menn í sjávarútvegi hafa harðlega
gagnrýnt þá ákvörðun banka og
sparisjóða að hækka vexti og telja að
það muni hafa alvarleg áhrif á stöðu
atvinnulífsins og heimila landsins.
Ef að líkum lætur, mun miðstjórn
ASf mótmæla vaxtahækkunum og
aðspurður um afstöðu sína til slíkrar
tillögu, sagðist Magnús ekki getað
svarað því fýrr en hún sæi dagsins
ljós. Hann segir að verkalýðshreyf-
ingin og vissir lífeyrissjóðir hafi lagt
sitt af mörkum gegn vaxtastiginu á
meðan aðrir lána sínum félags-
mönnum ekkert, heldur ávaxta sitt
fé í ríkisstryggðum pappírum og vísa
félagsmönnum sínum á bankakerfið.
Magnús Geirsson segir að í raun og
veru sé það ríkið sem ráði vaxtastig-
inu og ef það lækki sína vexti, muni
aðrir fylgja í kjölfarið. Aðrir þættir
sem ráða vaxtastiginu séu verðbólg-
an og afkoma bankanna.
Formaður Rafiðnaðarsambandsins
segir að hann sitji í stjórn íslands-
banka sem fulltrúi þeirra fjölmörgu
sem hlut eiga í Eignarhaldsfélagi Al-
þýðubankans og gæti hagsmuna
þeirra, þ.e. almennings og lífeyris-
sjóða.
,Auk atvinnuleysisins hef ég mestar
áhyggjur af getu lífeyrissjóðanna til
að greiða þann lífeyri sem þeir hafa
lofað að greiða því fólki sem er búið
að slíta sér út við vinnu.“
Magnús segir að stjórn íslands-
banka hafi talið vaxtahækkunina
nauðsynlega í Ijósi þess að afkoma
bankans væri ekki nógu góð. „Fyrir
árið 1991 var greiddur 5% arður til
hluthafa íslandsbanka en verður trú-
lega enginn fyrir nýliðið ár. Þá minni
ég á að Islandsbanki var fyrstur til að
lækka vexti árið 1990 þannig að það
má ekki kenna Guði um allar synd-
ir“, segir Magnús Geirsson.
-grh
...ERLENDAR FRÉTTIR...
GENF
Sáttasemjarar til Belgrad
Alþjóðlegir sáttasemjarar, sem nú gera til-
raun til að ganga frá friðarsamningum um
Bosnlu, fóru I gær til Belgrad til að leita
stuðnings Serbíuforseta, Slobodans Mi-
losevic, við áætlun sína að sögn embætt-
ismanna S.þ.
SARAJEVO
14 stiga frost versti
óvinurinn
Kaldasti dagur vetrarins skall á íbúum
Sarajevo í gær og fylgdu honum brýnni
vandamál en frestunin á friðarviöræðun-
um í Genf. Hitinn fór niður í 14 stig á Celsi-
us og rafmagnsleysi og ónógur eldiviður til
aö hita heimili og mat, var íbúunum skæð-
asti óvinurinn I gær.
SUMBURGH, Skotlandi
Olíuskip strandaði og olían
flæddi
Skaddað olluskip strandaði I óveðri við
strönd Hjaltlandseyja við Norður-Skotland
I gær og olían flæddi að ströndinni. Óttast
er að þama hafi orðið umhverfisslys.
JERÚSALEM
Israelar gefa ekki eftir
Israelar sögðu í gær að þeir héldu fast við
ákvörðun slna um að visa 415 Palestínu-
mönnum af landi brott til Líbanon þrátt fyr-
ir aö framkvæmdastjóri S.þ. hafi hótað að
mæla með að griþið verði til aögerða til að
Íivinga Israela til að skila þeim aftur heim.
sraelar handtóku líka 17 ættingja Palest-
inumanns frá hinum hemumda vestur-
bakka, sem grunaðir eru um að hafa tekiö
þátt i drápi Shin Bet leynilögreglumanns,
að því er Palestínumenn segja.
MARJ AZ-ZOHOUR, Líbanon
Palestínumennirnir gera sér
vonir
Brottreknu Palestinumennimir sem kom-
ast hvergi frá vosbúðinni I einskismanns-
landinu I Suöur-Libanon, sögðust I gær
gera sér vonir um að nýr sendiboöi S.þ.
gæti gert heimför þeirra mögulega.
NABATIYEH, Libanon
Israelar særöu fjóra borgara
Fjórir óbreyttir borgarar særðust þegar
israelskir skotliðar dreifðu sprengjum yfir
Suður-Libanon I hefndarskyni fyrir skæm-
liðaárás við sólarupprás á herstöð undir
vemd (sraela, eftir því sem heimildir innan
öryggisliðsins hernidu I gær.
ADDIS ABABA
Friöarviðræöur út um þúfur?
Friðarviðræöur 15 sómalskra fylkinga
stefndu að hruni I gær þegar fulltrúamir,
undir forystu Mohamed Farah Aideed her-
stjóra, sökuðu Sameinuðu þjóðimar, sem
stuðluðu að viöræöunum, um að blanda
sér I sómölsk stjómmál, skv. villandi uþp-
lýsingum.
MOGADISHU
Kanar skjóta sómalskan
byssumann
Bandarískir landgönguliðar skutu, að öll-
um likindum til bana, sómalskan byssu-
mann I norðurhiuta Mogadishu þar sem
ringulreiöin rikir, að því er talsmaður
bandariska hersins sagði I gær.
LÚANDA
Margir falla í bardögum
Fjölmargir létu lifið I bardögum milli
uppreisnarmanna UNITA og stjórnar-
hermanna Angóla I gær í hafnarborg-
inni Benguela, aö sögn stjórnarerind-
reka.
COLOMBO
50 saknaö og taldir af
Stjómmálamenn Tamila á Sri Lanka
sögðu I gær að a.m.k. 50 manns sé sakn-
að og taldir af eftir að sjóherinn gerði árás
I síöustu viku á óbreytta borgara sem
gerðu tilraun til að komast yfir lón I norður-
hluta landsins.
varsjA
Stjórnin slapp enn
Pólsku stjórninni hefur tekist i annaö
sinn að sigrast á verkföllum með um-
bótastefnu sína óskaddaöa en þó rikir
engin sigurgleði I herbúöum hennaraf
ótta við meiri óróa á vinnumarkaði og
fjárlagavanda.
DENNI DÆMALAUSI
O-ix. 1
„Ég er ekki að strjúka að heiman ... mig vantarbara
fleiri vasa. “