Tíminn - 22.01.1993, Blaðsíða 12

Tíminn - 22.01.1993, Blaðsíða 12
 Áskriftarsími Tímans er 686300 NÝTT OG SSSfr FERSKT s. DAGLEGA reiðholtsbakarí jif HOGG- DEYFAR Verslið hjá fagmönnum varahluti i i rm i i i Kirkjan, s itéttarfélög og VSÍ: Ráðgjöf ásamt aðsti iiöu fyrir atvin nulausa LU Hamarshófða 1 - s. 67-67-- 686300 TVÖFALDUR1. vinningur Tíniinn FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR1993 Persónuleg ráðgjöf ásamt upp- lýsingaþjónustu og félagsað- stöðu eru meginþættir í starf- semi sem hefst í safnaðar- heimili Dómkirkjunnar 1. febrúar og er ætluð atvinnu- lausum að sögn Halldórs Júlí- ussonar sem veita mun starf- seminni forstöðu. Hann segir að í safnaðar- heimilinu verði aðstaða fyrir fólk sem er í atvinnuleit á milli kl. 14 og 17 alla virka daga. Þjóðkirkjan, ASÍ, BSRB, VSÍ o.fl. standa að þessari starf- semi. Þá er sams konar starf- semi í burðarliðnum á Akur- eyri. hyggjumst við upplýsa fólk um ým- is fræðslutilboð, endurmenntun, símenntun o.fl,“ segir Pétur. „Hlutverk okkar er að takast á við og reyna að koma til móts við þær þarfir sem fólk hefur vegna þess persónulega vanda sem það lendir í,“ segir Halldór. Hann segir að starfsemin muni mótast mikið af því hvernig til tekst. „Þá vitum við ekki um þörf- ina. Við vitum að það er stór hópur fólks atvinnulaus sem að öllum lík- indum á við margvíslegan per- sónulegan vanda að stríða. Hvort við náum til hans með þessu það vitum við ekki,“ segir Halldór. Hann segir að allt bendi til að und- irtektir verði góðar og merkir það m.a. af mörgum upphringingum fólks í atvinnuleit. Allt bendir til þess að starfsemi Landspítalans stöðvist: Samstaða um að láta reyna á uppsagnir „Það kom skýrt fram að það er ríkj- andi samstaða í þessum hópi að láta reyna á uppsagnimar um mánaða- mótin,“ sagði Elínborg Stefáns- dóttir, talsmaður hjúkrunarfræð- inga og ljósmæðra á Landspítala að loknum fundi í gær, þar sem m.a. var rætt um bréf heilbrigðisráð- herra um framlengingu á upp- sagnafresti. „Eins og komið er bendir ekkert til þess að störf okkar verði endurmet- in og við höfum ekki verið boðaðar á neina samningafundi," segir Eh'n- borg. Elínborg segir að hver og einn muni svara bréfinu fyrir sig. „Þá kemur í Ijós hvað verður úr,“ segir hún. Hún segir að lítið miði í baráttu- málum stéttanna sem vilji sambæri- leg kjör við aðrar sambærilegar heil- brigðisstéttir. „Það voru óformlegar viðræður um helgina sem drógust fram á gærdag- Það virtist ríkja mikil samstaöa hjá hjúkrunarfræðingum og Ijós- mæðrum á Landspítala um að láta reyna á uppsagnir 1. febrúar. inn. Það var í sjálfu sér ósköp lítið sem kom út úr því,“ segir Elínborg. Hún segir að stjórnarnefnd ríkis- spítala sjái um þessar viðræður en heilbrigðisráðherra hafi ekki komið beint að málinu. -HÞ „Við opnum þarna aðstöðu fyrir fólk sem er í atvinnuleit til þess að geta komið saman og þegið veit- ingar," segir Halldór. Hann bætir við að einnig sé ætl- unin að koma á fót upplýsinga- ráðgjafa- og fræðsluþjónustu fýrir þá sem þess þurfa með. Þar nefnir hann aðila eins og presta, sálfræð- inga, félagsráðgjafa og lögfræð- inga. Þá nefnir Halldór að ætlunin sé að fá gesti í heimsókn reglulega sem haldi erindi um hvaðeina sem þurfa þyki. Hann telur að margir þurfi á upplýsingum að halda." Við ætlum að reyna að veita fólki upp- lýsingar um rétt þess eins og t.d. bótarétt. Það eru margiraðilar sem veita þessar upplýsingar en við ætl- um einnig að reyna að gera það. Þá Það er engu líkara en öku- maður dráttarvélarinnar hér á myndinni eigi fótum fjör aö launa, en dráttarvél þessi var í dag notuð til að hreinsa skautasvell af tjörninni í Reykjavík. Eftir að hafa lokið því verki ók hún þvert yfir tjömina til að komast upp á veg, en svo illa vildi til að ísinn undir henni gaf sig með þessum afieiðingum. Kalla þurfti til kranabifreið til að ná vélinni upp úr. -PS/Tímamynd Ámi Bjama ...ERLENDAR FRÉTTIR... BAGDAD Flugvél S.þ. lent í írak Flugvél Sameinuðu þjóðanna lenti I Irak i gær og markaöi þar með endalok tveggja vikna þráteflis sem leiddi til fjögurra daga loft- og eldflaugaárása undir stjóm Banda- rlkjanna. Ríkisblöð sögðu i fréttum sinum um vopnahlésyfirlýsingu Iraks og tilboö til Bills Clinton, nýs Bandarikjaforseta, um .uppbyggjandi viðræður", að yfirvöld i Bagdad hefðu ekki gert slíkt vegna veikrar stöðu. I STRASSBORG, Frakklandi, jók framkvæmdastjóm EB á klofninginn í al- þjóölegu stefnunni gagnvart Irak með því að segjast efast um hversu skynsamlegar siðustu árásahrinur Bandaríkjanna væru. KÚVEIT „Saddam óútreiknanlegur vitfirringur" Yfirmaöur lofthers Kúveits sagöi I gær að herflugvélar sinar væru i viðbragðs- stöðu vegna þess að Saddam Flussein, (raksforseti, væri óútreiknanlegur vitfirr- ingur. .Þaö er ekki hægt að sjá fyrir upp á hverju Saddam Flussein gæti tekið," sagði Saber al-Suwaidan ofursti. 2AGREB Múslimar drepa króatisk- an hermann Skýrt var frá I gær aö leyniskyttur mús- lima hefðu drepiö króatiskan hermann þrátt fyrir vopnahlé milli nú óvinsam- legra fynverandi bandamanna i borg- arastríöinu. I GENF sögðu talsmenn Amnesty Intemational að konur úr hópi allra aðila borgarastríðsins i Bosniu hefðu orðið að þola kynferöislega mis- notkun, þ.á m. nauðgun, af hálfu strið- andi fylkinganna þriggja, en aö Serbar bæru mesta sök á glæpunum. MARJ AZ-ZOHOUR, Libanon Palestínumennirnir krefj- ast þrýstings S.þ. Palestinumennimir sem Israelar ráku úr landi fyrir fimm vikum sögðu í gær að sendimaður S.þ. ætti að þrýsta á að þeim yrði komið til baka strax I stað þess að gefa Gyöingaríkinu meiri tima. IJERÚ- SALEM sögðu Israelar að Bill Clinton, ný- bakaður Bandarikjaforseti, kynni að senda utanrikisráðherra sinn til Mið- Austurlanda til að reyna að leysa vandamálið vegna brottfluttu Palestínumannanna 400. SINGAPORE Risaolíuskip brennur noröan Súmatra Logandi risaoliuskip með næstum tveggja milljón tonna hráolíufarm, fór I gær að leka olíu I hafið við norðurodda Súmatra sem kallar á meiri háttar and- mengunaraögerðir. Áhöfnin hafði yfir- gefið 255.312 tonna skipiö Maersk Navigotor, sem enn var á floti 15 klukkustundum eftir árekstur viö annaö oliuskip. MINSK, Hvita-Rússlandi Rússar vilja ráöa kjarna- vopnunum Háttsettur rússneskur yfirmaður i hem- um sagði i gær að Rússar vildu taka stjómina á hemaöarlega mikilvægum kjamavopnum fyrrum Sovétrikjanna úr höndum Samveldis sjálfstæöra rikja (CIS). CAPE TOWN Carey, yfirmaöur ensku kirkjunnar, tjáir sig um S.-Afríku George Carey, yfirmaöur ensku bisk- upakirkjunnar, bar f gær lof á blakka erkibiskupinn Desmond Tutu fyrir and- stöðu hans við kynþáttaaðskilnaö I Suður-Afriku, en sagði um leiö að timi væri kominn til aö umheimurinn verö- launaöi umbætur F.W. de Klerks, for- seta. PEKING Frakkar loki ræðismanns- skrifstofu Kínverjar hvikuðu ekki I gær frá kröfunni um að Frakkar loki ræðismannsskrif- stofu sinni í borginni Guangzhou í suð- urhluta landsins til refsingar fyrir sölu á frönskum onustuflugvélum til Tævan. DENNI DÆMALAUSI ■vi 0-17 „Jóa þætti ströndin miklu skemmtilegrí, efhún værí ekki svona nærrí sjónum.“

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.