Tíminn - 06.02.1993, Qupperneq 1

Tíminn - 06.02.1993, Qupperneq 1
Laugardagur 6. febrúar 1993 25. tbl. 77. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra hefur beitt sér fyrir miklum og umdeildum breytingum í heilbrigðiskerfinu: Hækkaði kostnað almennings um 29% í ráðherratíð Sighvats Björg- vinssonar, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, hafa átt sér stað miklar breytingar á greiðslu kostnaðar við heil- brigðisþjónustu. Sömuleiðis hafa verið gerðar margvíslegar breytingar á löggjöf um al- mannatryggingar. Frá því í maí 1991 hefur liðurinn heilsu- vernd í framfærsluvísitölunni hækkað um 29%. Á sama tíma hækkaði framfærsluvísitalan um 7%. Þær breytingar sem Sighvatur hefur beitt sér fyrir miða að því að vekja kostnaðarvitund hjá almenn- ingi eins og ráðherra segir sjálfur. í Tímanum í dag er gerð tilraun til að gefa yfirlit yfir þær breytingar sem átt hafa sér stað í ráðherratíð Sighvats Björgvinssonar. Það sem einkennir breytingarnar er kannski tvennt. Annars vegar er verið að láta sjúklinga borga meira en áður. Hins vegar einkennir það breytingarnar hve þær eru tíðar. Gefinn hefur verið út mikill fjöldi reglugerða sem sumar hverjar miða aðeins að því að laga augljósa agnúa sem komið hafa í ljós á fyrri reglugerðum. Dæmi um þetta eru reglugerðir um lyfjakostnað en Sighvatur hefúr á einu og hálfu ári gefið út fimm reglugerðir um lyfjaverð. Frá því að Sighvatur settist í stól heilbrigðisráðherra í maí 1991 til dagsins í dag hefur liðurinn heilsuvernd í framfærsluvísitöl- unni hækkað um 29%. Á sama tímabili hefur framfærsluvísitalan sjálf hækkað um aðeins 7% og matarkostnaður hefur nánast stað- ið í stað. -EÓ Sjá nánar á blaðsíðum 10-12. Fjölmargir árekstrar urðu á höfuðborgarsvæðinu í óveðrinu sem gekk yfir landið í gær. Tímamynd, Ámi Bjama. Mjög vont veður olli landsmönnum miklum erfiðleikum í gær: Vandræðaástand á höfuðborgarsvæðinu Mikið vandræðaástand skapaðist á höfuðborgarsvæðinu í gær þegar óveður gekk yfir landið. Fjölmargir árekstrar urðu og fólk lenti víða í vandræðum. Veðrið orsakaðist af djúpri lægð sem fór austur yfir landið í gær. Lægðinni fylgdi mikill vindhraði og mjög mikill skafrenningur. Ekki er vitað til þess að fólk hafí slasast í þeim óhöppum sem urðu í gær en mikið eignatjón varð, einkum á bflum. Hjá lögreglunni í Reykjavík höfðu verið skráðir um 20 árekstrar síð- degis í gær. í þeim rákust á allt frá tveimur upp í fjórtán bflar. Fjórtán bíla árekstur varð á Vesturlandsvegi um miðjan dag. Einnig varð stór Grásleppuhrognatunnan úr 1125 þýskum mörkum í 1300: Grásleppukarlar brosa út í annað Á komandi grásleppuvertíð í vor Kanada, Danmörku, Noregi og Is- verður hrognatunnan seld á 1300 landi, þótti það liggja nokkuð Ijóst þýsk mörk og er þar um umtals- fyrír að hægt yrði að hækka verð- verða hækkun að ræða frá síðustu ið í 1300 þýsk möríc. vertíð þegar tunnan var seid á öm Pálsson, framkvæmdastjórí 1125 mörk. Landssambands smábátaeigenda, Ástæöan fyrir þessari hækkun cr sem sat fúndinn í Hollandi segir fyrst og fremst sú að eftirspum að Kanadamenn ætli sér að selja eftir hrognum til kavíarfram- sín hrogn á sama verði og því sé leiðslu er mun meiri en framboð- nokkuð Ijóst að stærstu hrogna- ið. Auk þess hafa verksmiðjumar framleiðendur heimsins eru sam- náð að hækka verð á sinnl fram- stfga í sínum verðhugmyndum. leiðsiu. Af þeim sÖkum má búast við að f fyrstunni var búist við að verð- mun fleiri smábátaeigendur muni ið fyrir hrognatunnuna mundi stunda veiðar í vor en á síðustu hækka í 1260 þýsk mörfc en eftir vertíð því eftirtekjan Verður vænt- sameiginlegan fund fulltrúa grá- anlega mun meiri með hærra steppuveiðimanna í Amsterdam í verði. Þá virðist allt benda tfl þess HoUandi í síðustu viku, þar sem að grásleppustofninn sé f góðu voru fulltrúar veiðimanna frl ástandi en á síðustu vertíð var niíkiö um smágrásleppu á miðun- um. Ef ótíð hamlar ekki veiðurn er ekkert sem bendir til annars en að komandl vertíð geti orðíð góð. Á síðasta árí nam útflutnings- verðmæti grásleppuhragna um einum milljarði króna. Jafnframt má benda á að í gangi er samstarfsverkefnl Landssam- bandsins og Rannsóknastofnunar fiskiðnaðrins þar sem unnið er að því að ná fram meiri gæöura í vinnslu grásleppuhrogna og auka þar með verðmæti þeirra. Enn- fremur er unnið að því að ná fram betri nýtingu á grásleppunni en hingað tfl hafa nær aðeins hrogn- in verið nýtt og öðru verið hent. -grh árekstur á Suðurlandsvegi upp við Rauðavatn. Margir árekstrar urðu á Reykjanesbraut en hún lokaðist síð- degis í gær fyrir allri umferð. Miklar umferðartafir urðu einnig á Vestur- landsvegi og á Suðurlandsvegi. Um- ferð gekk þó víða furðuvel fyrir sig í Reykjavík í gær að sögn lögreglu þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Mjög erfitt hafi verið hins vegar að komast um hliðargötur. Að veniu var færð erfiðust í Grafarvogi, Árbæjar- og Breiðholtshverfum. Allt flug innanlands lá meira og minna niðri í gær. Flugvél frá ís- landsflugi með sex farþega á leið til Norðfjarðar sneri við og lenti í Reykjavík um miðjan dag í gær. Töluvert mikil ísing hlóðst á vélina. Færð var slæm um allt land í gær og vegir víðast hvar ófærir vegna ófærðar eða snjóblindu. Ekki er vit- að til þess að slys hafi orðið á fólki en mjög víða lenti fólk í erfiðleikum við að komast úr og í vinnu. -EÓ Ófærö Ökumenn sem áttu leið um Lyngháls og Tunguháls í Reykjavík síödegis í gær lentu í miklum eriðleikum þar sem göturnar urðu fljótt báðar ófærar. Eins og komið hefur fram í fréttum mun Ár- bæjarstöö slökkvilösins í Reykjavík brátt flytja aðstöðu sína í fyrrverandi húsnæði Kjöríss við Tunguháls. Jón Viðar Matthías- son, varaslökkviliðstjóri í Reykjavík, sagði í samtali við Tímann að þeir væru meðvitaðir um snjóþyngslin á þessum slóðum og eftir að þeir flyttu yrði að tryggja að þessar götur væru ávallt færar, jafnt á nóttu sem degi. Hann sagði að gert væri ráð fyrir að snjómokstur yrði tvöfalt meiri en gerist á mestu strætis- vagnaleiðum í borginni. Á meðfylgjandi mynd má sjá ökumenn sem áttu í vandræðum vegna snjóþyngsla á Lynghálsi í gær. -PS/Timamynd Ámi Bjama

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.