Tíminn - 06.02.1993, Blaðsíða 10

Tíminn - 06.02.1993, Blaðsíða 10
10 Tíminn Laugardagur 6. febrúar 1993 Sighvatur Björgvinsson, heilbrigðis- °9 tryggingaráðherra, hefur beitt sér fyrir miklum og umdeildum breyting- um í heilbrigðiskerfinu: Hvaðá að ganga langt í að vekja kostnaðar- vitund? í tíð Sighvats Björgvinssonar heilbrigðisráðherra hafa átt sér stað mjög miklar breytingar á heilbrigðiskerfinu. Breytingarnar einkennast af tvennu. Annars vegar miða þær að því að láta sjúklinga greiða meira fyrir þá þjónustu sem þeim er látin í té og hins vegar er áberandi hve breytingarnar eru margar og flóknar. Til dæmis hafa á einu og hálfu ári verið gefnar út fímm lyfjareglugerðir. Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráöherra. Hann hefur óneitanlega gengið í það af gríðarlegum dugnaði að koma þjóðinni í skilning um hvaö það kostar aö týna heilsunni — efla kostnaðarvitund fólks, eins og þaö hefur líka verið kallað. Það má sjá af því reglugerðaflóði sem hann hefur gefið út þaö sem af er ráðherradómi hans og talið er upp í þessari grein. Margar breytingar í tíð Sighvats Markmiðið með þessari grein er að gefa yfirlit yfir þær breytingar sem hafa orðið í tíð Sighvats Björgvins- sonar á kostnaði sjúklinga við að leita sér lækninga og einnig yfirlit yfir hluta af þeim breytingum sem orðið hafa í tryggingakerfinu. Meg- inefni greinarinnar er byggt á upp- lýsingum frá lyfjahópi BSRB. Eins og sjá má af greininni eru breytingamar sem gerðar hafa verið margar og margvíslegar. Ekki er einfalt mál að gera skýra grein fyrir þeim öllum. Það sem einkennir breytingamar öðrum þræði er kannski hvað þær eru margar. Það er ítrekað verið að breyta sömu hlutunum. Lyfjareglugerð hefur verið breytt fimm sinnum. Breyt- ingar á kostnaði sjúklinga við komu á heilsugæslustöð em líka flóknar samanber útgáfu fríkorta og afslátt- arkorta. Stefna heilbrigðisráð- herra er að auka kostnaðarvitund Stefna heilbrigðisráðherra kemur fram í fréttatilkynningu frá því í janúar, en þar segir: „Meginþráður- inn í breytingum á greiðslufyrir- komulagi á heilbrigðisþjónustu í tíð núverandi heilbrigðisráðherra hefur verið að vekja kostnaðarvitund al- mennings og fá hann til þess að veita aðhald. Því er talið nauðsyn- legt að sjá til þess að þjónustan sé aldrei ókeypis." Sem dæmi um þá þróun sem orðið hefur í tíð Sighvats má nefna hlut- deild sjúklinga í heildarlyfjakostn- aði. Hlutur sjúklinga var lengst af um 17-18%. Sighvatur hækkaði þetta hlutfall fljótlega upp í 24-25% en með nýjustu lyfjareglugerðinni er þetta hlutfall komið upp í 31- 32%. Heilbrigðisráðherra segir aö þetta hlutfall sé ekki hærra en gerist víða erlendis. Mæðra- og feðralaun lækka um 400 millj. Breytingar á lögum um almanna- tryggingar sem samþykktar voru 22. desember síðastliðinn valda eftir- töldum tilfærslum: Mæðra- og feðralaun verða skert verulega, þó ekki eins mikið og gert var ráð fyrir í byrjun. Framlag ríkisins Fjöldi baraa 1992 1993 Skeröing lbam 56.784 12.000 -44.784 2 börn 148.776 60.000 -88.776 3 börn 263.892 129.600-134.292 Þar sem mæðra- og feðralaun hafa verið skattskyld er gert ráð fyrir að þessi lækkun hafi í för með sér að ríkissjóður verði af 100 milljóna skatttekjum en nettóspamaður rík- isins vegna lækkunar mæðra- og feðralauna og hækkunar á meðlags- greiðslum er talinn verða um 400 milljónir. Meðlag lækkar um 11-35 þúsund á ári Bamalífeyrir, og þar með meðlag með hverju barni, hækkar úr 90.612 kr. í 123.600 kr. á ári eða um 32.988 kr. Þessi hækkun er ekki tekin úr kassa ríkissjóðs heldur úr vasa með- lagsgreiðenda. Þessi hækkun á meðlagi dugir þó engan veginn til að vega upp á móti skertum mæðra- og feðralaunum eins og sést í meðfylgjandi töflu. Samantekin áhrif breytinga á mæðra/feðralaunum og meðlags- greiðslum Fjöldi barna 1992 1993 Skerðing 1 bam 147.396 135.600 -11.796 2 börn 330.000 307.200 -22.800 3 börn 535.728 500.400 -35.328 Sighvatur hefur alls geftð út fimm lyfjareglugerðir Núverandi heilbrigðisráðherra hef- ur sett alls fimm reglugerðir á valdatíma sínum. Þegar fyrsta lyfja- reglugerð hans tók gildi sumarið 1991 var hlutur sjúklinga í lyfja- kostnaði um 18-20%. Þessi reglu- gerðarbreyting hafði í för með sér að hluti sjúklinga í lyfjakostnaði varð að meðaltali 24- 25%. Fjórða reglu- gerð ráðherra um hlutfallsgreiðslur miðaðist við að hlutur sjúklinga yrði nánast óbreyttur, sem sagt 24-25%, en hlutur þeirra mun aukast eftir síðustu reglugerðarbreytinguna frá 18.janúar síðastliðnum og verður 31- 32% samkvæmt upplýsingum heilbrigðisráðuneytisins. Fyrsta reglugerðin hækkaði fastagjald sjúklings Fyrsta reglugerðin tók gildi 1. júlí 1991. Hafði hún í för með sér að: - almannatryggingar tóku ekki leng- ur þátt í kostnaði vegna nokkurra lyfjaflokka svo sem svefnlyfja, róandi lyfja, nef-, háls-, hósta- og kveflyfja, hægðalyfja og sýklalyfja. - fastagjald almennra sjúklinga var hækkað úr 750 krónum í 850 og fastagjald elli- og örorkulífeyrisþega úr 230 krónum í 250. Fastagjald fyr- ir svokölluð „bestukaupalyf' lækk- aði hins vegar úr 550 í 500 krónur fyrir almenna sjúklinga og úr 170 í 150 krónur fyrir elli- og örorkulíf- eyrisþega. - hámarksskammtur lyfja var minnkaður úr 100 daga skammti í 60 daga skammt. Hækkunin á fasta- gjaldinu var því í raun meiri en krónurnar segja til um því að skammturinn hækkaði úr 7,50 krónum í rúmar 14 krónur. Há- marksskammtur lyfja var aftur hækkaður í 100 daga skammt með nýrri reglugerð sem tók gildi í árs- byrjun 1992. Tvær reglugerðir gefnar út til lagfær- ingar „að fenginni reynslu“ Tvær lagfæringar voru gerðar á reglugerðinni frá júlí 1991 „að feng- inni reynslu". Sú fyrri var gefin út 6. ágúst 1991 og sú síðari 1. janúar 1992. Þessar lagfæringar höfðu í för með sér, eins og áður sagði, að há- marksskammtur var hækkaður úr 60 í 100 daga skammt en einnig var nokkur tilfærsla lyfja milli greiðslu- flokka. Með Qórðu reglugerðinni voru teknar upp hlutfallsgreiðslur fyrir lyf Fjórða reglugerðin tók síðan gildi 1. ágúst 1992, en með henni voru teknar upp hlutfallsgreiðslur fyrir lyf sem áður voru háð fastagjaldi. Samfara þessu var læknum gert að merkja við á lyfseðlinum hvort af- greiða skyldi ódýrasta samheitalyfið eða dýrara lyf. Einnig var tekin upp sú nýjung að hægt var að fá fjórar af- greiðslur út á lyfseðilinn. Með fímmtu reglugerð- inni er sjúklingum gert að greiða 500 kr. af hverri lyfjaávísun 18. janúar síðastliðinn tók gildi ný reglugerð um greiðslur almanna- trygginga á lyfjakostnaði. Helstu breytingar eru að tekið er upp svo- kallað gólf. Fyrir B- og E-merkt lyf voru hlut- fallsgreiðslur teknar upp s.l. sumar. Nú er sú breyting gerð að sett er ákveðið gólf, þannig að sjúklingur greiðir nú fyrstu 500 kr. af verði hverrar lyfjaávísunar ef um „al- mennan" sjúkling er að ræða, en fyrstu 150 krónurnar ef um elli- og örorkulífeyrisþega er að ræða. Fyrir B-merkt lyf greiða sjúklingar nú - fyrstu 500 krónumar af verði hverrar lyfjaávísunar - 12,5% af verði lyfjaávísunar um- fram 500 krónur - en þó aldrei meira en 1.500 krónur af verði hverrar lyfjaávísunar. Þess ber að geta að áður greiddu sjúkratryggingar að fullu B-merkt lyf gegn framvísun lyfjakorts en nú er sama greiðsla fyrir B-merkt lyf óháð því hvort viðkomandi hefur lyfjakort eða ekki. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða - fyrstu 150 krónurnar af verði hverrar lyfjaávísunar - 5% af verði lyfjaávísunar umfram 150 krónur - en þó aldrei meira en 400 krónur af verði hverrar lyfjaávísunar. Það ber að hafa í huga að hér er um lækkun á hlutfalli úr 10% í 5% og á hámarki greiðslu úr 700 krónum í 400 krónur fyrir elli- og örorkulíf- eyrisþega sem ekki hafa lyfjakort frá því sem var. Sem dæmi um B-merkt lyf má nefna hjartasjúkdómalyf, psoriasis- lyf, lyf við van- eða ofstarfsemi skjaldkirtils, asmalyf og sterk geð- deyfðarlyf. Greiðslutilhögun fyrir E-merkt Iyf verður þannig að sjúklingur sem ekki hefur lyfjakort greiðir: - Fyrstu 500 krónumar af verði hverrar lyfjaávísunar - 25% af verði lyfjaávísunar umfram 500 krónur - en þó aldrei meira en 3.000 krón- ur af verði hverrar lyfjaávísunar. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða: - Fyrstu 150 krónumar af verði hverrar lyfjaávísunar -10% af verði lyfjaávísunar umfram 150 krónur - en þó aldrei meira en 800 krónur af verði hverrar lyfjaávísunar. Sjúklingur með lyfjakort greiðir fyrir E-merkt lyf: - Fyrstu 500 krónumar af verði hverrar lyfjaávísunar - 12,5% af verði lyfjaávísunar um- fram 500 krónur - en þó aldrei meira en 1.500 krónur af verði hverrar lyfjaávísunar. Elli- og örorkulífeyrisþegar með lyfjakort greiða: - Fyrstu 150 krónurnar af verði hverrar lyfjaávísunar - 5% af verði lyfjaávísunar umfram 150 krónur - en þó aldrei meira en 400 krónur af verði hverrar lyfjaávísunar. Nokkur lyf sem sjúkratryggingar tóku þátt í að greiða em færð í svo- kallaðan O-flokk en í þeim flokki em lyf sem sjúklingur greiðir að fullu. Þetta em lyf til lækkunar blóðfitu og væg verkjalyf. Hægt verður þó að sækja um lyfja- kort vegna of hárrar blóðfitu og greiðir sjúklingur þá fyrir lyfið eins og um E-lyf væri að ræða. Þau skilyrði sem sjúklingur þarf að uppfylla til að fá lyfjakort em að hann hafi viðvarandi hærra kóleste- ról en 8.0 ef hann er karl en 9.0 ef sjúklingur er kona. Þó em mörkin 1.5 lægri ef sjúklingur hefur sykur- sýki, kransæðasjúkdóm, sterkar erfðir, lágt HDL-kólesteról eða er í meðferð vegna blóðþrýstings. Við þetta má bæta að reglugerðin

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.