Tíminn - 06.02.1993, Side 22
22 Tíminn
Laugardagur 6. febrúar 1993
Kjarni hf. flytur í nýtt húsnæöi
Kjami hf., se.n á 15 ára afmæli um þess-
ar mundir, flutti nýlega alla starfsemi
sína á Nýbýlaveg 26 í Kópavogi.
Tyrir u.þ.b. tveimur árum jók Kjami,
sem áður hafði verið í innflutningi á hrá-
efnum og vélum til matvælaframleiðslu,
við starfsemi sína og hóf innflutning og
sölu á bandarískum hágæðatölvum frá
fyrirtækinu Silicon Valley Computer
(SVC).
Kjami hefur fengið nýtt símanúmer:
643355.
Ballettsýningar í Ráöhúsinu
íslenski dansflokkurinn verður með há-
degissýningar í Tjarnarsal Ráðhússins í
næstu viku. Hugmyndin er sú að fólk
geti skroppið í hádeginu, fengið sér há-
degisverð og horft á stutta ballettsýn-
ingu.
Dansflokkurinn hefur undanfarið verið
að æfa fjögur ný dansverk fyrir þessa sýn-
ingu og er meðal annars um að ræða
frumsýningu á þremur nýjum verkum,
en þau eru: Evridís eftir Nönnu Ólafs-
dóttur, en verkið er samið við samnefnda
tónlist eftir Þorkel Sigurbjömsson, Milli
manna eftir Maríu Gísladóttur, sem sam-
ið er fyrir þrjá dansara, við tónlist eftir
Norman Dello-Joio og Svítur eftir Willi-
am Soleau, við tónlist J.S. Bach. Þá verð-
ur einnig sýnt eitt klassískt verk, sem er
„Pas de six“ úr Raymonda, sem Alan Ho-
ward hefur sviðsett. Auk 6 dansara dans-
flokksins taka 10 stúlkur úr Listdans-
skóla íslands þátt í „Pas de six“.
Einungis verður sýnt eitt til tvö verk-
anna hverju sinni og sýningartíminn
milli 20-30 mínútur. Þar sem Tjamarsal-
urinn er ekki hannaður sem leikhús,
verður sýning dansflokksins með ein-
földu sniði og aðlöguð að nútímalegri
hönnun Ráðhússins. Búningar og leik-
mynd er eftir Helgu Rún Pálsdóttur og
aðstoð við Ijósahönnun veitti Bjöm
Bergsteinn Guðmundsson.
Fyrsta sýningin veröur mánudaginn 8.
febrúar kl. 12.15 og önnur sýning
fimmtudaginn 11. febrúar kl. 12.15. Að-
gangur er ókeypis.
Kammerhljómsveit Akureyrar
á Myrkum músíkdögum
Kammerhljómsveit Akureyrar leikur ís-
lenska og skoska tónlist á tónleikum í
Glerárkirkju sunnudaginn 7.2. og hefjast
þeir kl. 17. Þessir tónleikar eru þáttur í
Myrkum músíkdögum, tónlistarhátíð
sem haldin hefur verið um þetta leyti árs
síðan árið 1980.
Hátíðin er nú stærri en nokkm sinni
fyrr, flutt tónlist frá 6 löndum á 18 tón-
leikum. Þetta em fyrstu tónleikar á
Myrkum músíkdögum utan Reykjavíkur.
Það er tvímælalaust heiður fyrir Kamm-
erhljómsveit Akureyrar að vera boðin
þátttaka. Efnisskráin var valin með tilliti
til Skosk- íslenskra menningardaga,
Skottís, sem hátíðin er hluti af.
Fulltrúi skoskrar tónlistar á tónleikun-
um er tónskáldið Thomas Wilson, en
hljómsveitarsvíta hans, SL Kentigem,
verður flutt að honum viðstöddum.
Það þykir jafnan mikill viðburður þegar
ný verk em fmmflutt og á þessum tón-
leikum verður fmmflutt nýtt íslenskt
verk eftir Atla Ingólfsson og heitir það
Brekkugata. Atli samdi verkið fyrir
Kammerhljómsveit Akureyrar í Bologna
á Ítalíu þar sem hann starfar nú að tón-
smíðum. Verkið hefur Atli tileinkað Guð-
mundi Óla Gunnarssyni, aðalhljómsveit-
arstjóra Kammerhljómsveitarinnar og
stiómanda á þessum tónleikum.
Á tónleikunum verður einnig flutt verk-
ið Epitafion eftir Jón Nordal, sem hann
samdi árið 1974 í minningu Einars Vig-
fússonar, eins besta sellóleikara landsins
og náins vinar tónskáldsins.
Aðgöngumiðasala fer fram við inngang-
inn í Glerárkirkju og hefst einni klukku-
stund fyrir tónleika.
íslandsmeistarakeppni í
hárgreiðslu og hárskuröi
Á morgun, sunnudaginn 7. febrúar,
verður haldin íslandsmeistarakeppni í
hárgreiðslu og hárskurði. Keppnin fer
fram á Hótel Island, hefst klukkan 9 að
morgni og lýkur með lokahófi og verð-
launaafhendingu um kvöldið.
Keppt er í eftirtöldum greinum:
Meistarar og sveinar
Dömur: Tískulína, Kvöldútfærsla, List-
ræn útfærsla. Herrar: Listræn útfærsla,
Mótað form, Tískulína.
Nemar
Dömur: Kvöldgreiðsla ungu konunnar,
Tískulína. Herrar: Listræn útfærsla,
Tfskulína.
Parakeppni
Samleikur hárs og klæðnaðar. Verkefnið
er að skapa par.
Hugarfiug
Listrænt samspil hárgreiðslu og förðun-
ar.
Yfirdómari verður Tino Constantinou
frá Bretlandi. Aðrir dómarar eru Dórót-
hea Magnúsdóttir, Sólveig Leifsdóttir,
Ágúst Friðriksson og Sigurpáll Gn'ms-
son.
Keppni þessi verður litrík og skemmti-
leg, þar sem ekki er aðeins keppt í hefð-
bundnum greinum heldur koma fram
tvær nýjar keppnisgreinar þar sem förð-
un, hárgreiðsla og fatnaður verða að vera
í samkeppni.
íslandsmeistarakeppni er haldin á
tveggja ára fresti og er liður f að finna
landslið íslands, sem mun taka þátt í
keppnum erlendis fyrir fslands hönd.
Keppnin er haldin af Sambandi hár-
greiðslu- og hárskerameistara í sam-
vinnu við Sveinafélagið og Félag fs-
lenskra snyrtifræðinga.
Félag eldri borgara
í Reykjavík
Bridge kl. 13 sunnudag og félagsvist kl.
14 í Risinu. Gamanleikritið Sólsetur kl.
17. Dansað í Goðheimum kl. 20. Mánu-
dagur: Opið hús kl. 13-17 í Risinu. Fé-
lagsfundur kl. 17 á mánudag. Hagfræð-
ingur frá ASÍ kemur á fundinn og Ásta
Ragnheiður ræðir um breytingu á al-
mannatryggingum.
„Uppgangan“sýnd
íbíósal MÍR
Verðlaunamyndin „Uppgangan" verður
sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, á morg-
un, sunnudaginn 7. febrúar, kl. 16. Leik-
stjóri er Larissa Shepitko, en með aðal-
hlutverk fara Boris Plotnikov, Vladimír
Gostúkhin, Ljúdmilla Poljakova og Anat-
oli Solonitsin. f myndinni er lýst atburð-
um er gerðust veturinn 1942-43 meðal
skæruliða í Hvítarússlandi á hemáms-
svæði Þjóðverja. Kvikmynd þessi hlaut
„Gullbjöminn" á kvikmyndahátíðinni í
Vestur-Berlín 1977 og „Fipresci“-verð-
launin. Enskur texti fylgir myndinni.
Sala aðgöngumiða á „maraþonsýningu“
á stórmyndinni „Stríði og friði" laugar-
daginn 20. febrúar hefst á kvikmynda-
sýningunni 7. febrúar.
Látum bíla ekki
ganga að óþörfu!
UUMFEROAR
RÁÐ
ÞÚS/CMTTA/CA ÞESSAR
P/UC4RA(fATA.
WTPSmAPP/UC/PTTU
ÞAÐ, S/CjlCRCjT/R?
Þ/TRTRCC RDATD/. TA/CTU
T//JA ÞTCjART/mTRS/ÐUR
~ C/MTAUPH/T/CTU/J...
...DCj TV/TRÞTCjAR ZTR/CA/ÚÐSTT/ÖCj/lJ
/C/TRA Þ/CjTTR/RTT/ACjSDDM/.
DAGBOK
6693.
Lárétt
1) Ilmar. 6) Eyja. 10) Eins bókstafir.
11) Keyrði. 12) Ávöxturinn. 15) Mað-
ur.
Lóðrétt
2) Taka. 3) Rödd. 4) Burðardýr. 5)
Trosna. 7) Fárra ára. 8) For. 9) Sefa.
13) Vot. 14) Fraus.
Ráöning á gátu no. 6692
Lárétt
1) Sigta. 6) Kálorma. 10) Al. 11) Óð.
12) Platari. 15) Vaska.
Lóðrétt
2) 111. 3) Túr. 4) Skapa. 5) Baðir. 7)
Áll. 8) Oft. 9) Móð. 13) Aka. 14) Akk.
Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apóteka i
Reykjavík frá 5. febrúar til 11. februar er i
Laugavegs Apótekl og Holts Apóteki. Þaó apótek
sem fyrr er nefnt annast eitt vörsluna frá kl. 22.00
að kvöldi til kl. 9.00 aó morgni virka daga en kl.
22.00 á sunnudögum. Upplýsingar um læknis- og
lyfjaþjónustu eru gefnar I sima 18888.
Neyðarvakt Tannlæknafélags Islands
er starfrækt um helgar og á stórtiátíöum. Slmsvari 681041.
Hafnarfjörður Hafnarfjarðar apótek og Norðurbæjar apó-
tek em opin á virkum dðgum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis
annan hvem laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl.
10.00-12.00. Upplýsingar i simsvara nr. 51600.
Akureyrl: Akureyrar apótek og Stjömu apótek em opin
virka daga á opnunartima búða. Apötekin skiptast á slna
vikuna hvort að sinna kvöid-, nætur- og helgidagavörslu. A
kvöldin er opið i þvi apóteki sem sér um þessa vötslu, til kl.
19.00. Á helgidögum er opið frá kt. 11.00- 12.00 og 20.00-
21.00. Á öðmm timum er lytjafræðingur á bakvakl Upplýs-
ingar em gefnar I sima 22445.
Apótek Keflavikur: Opið virka daga frá kl. 9.00-19.00.
Laugard., helgidaga og almenna fridaga Id. 10.00-1200.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl. 8.00-
18.00. Lokað i hádeginu mOli Id. 12.30-14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á laug-
ardögum og sunnudögum kl. 10.00-1200.
Akranes: Apótek bæjaríns er opið viríta daga til Id. 18.30. A
laugard. Id. 10.00-13.00 og sunnud. kl. 13.00-14.00.
Garðabær Apótekið er opið rúmhelga daga kl. 9.00-18.30,
en laugardaga kl. 11.00-14.00.
5. febrúar 1993 kl. 9.15
Kaup Sala
Bandarikjadollar.....65,390 65,530
Stertlngspund........94,570 94,773
Kanadadollar.........51,825 51,936
Dönsk króna.........10,2614 10,2834
Norsk króna..........9,3057 9,3256
Sænsk króna..........8,7472 8,7660
Finnsktmark.........11,4119 11,4363
Franskur frankl.....11,6508 11,6757
Belgiskur franki.....1,9098 1,9138
Svissneskur franki ....42,6688 42,7602
Hollenskt gyllini...34,9819 35,0568
Þýskt mark..........39,3560 39,4403
Itölsk líra.........0,04254 0,04263
Austurriskur sch.....5,5925 5,6044
Portúg. escudo.......0,4358 0,4367
Spánskur peseti......0,5548 0,5560
Japansktyen.........0,52465 0,52578
irskt pund...........95,849 96,054
Sérst. dráttarr.....88,9160 89,1064
ECU-Evrópumynt......76,9673 77,1321
HELSTU BÓTAFLOKKAR:
1. febrúar 1993. Mánaðargreiösiur
Elli/örorkulífeyrir (gmnnlifeyrir).......... 12.329
1/2 hjónalifeyrir.......................... 11.096
Full tekjutrygging ellillfeyrisþega..........22.684
Full tekjutrygging örorkulífeyrisþega........23.320
Heimilisuppbót...............................7.711
Sérstök heimilisuppbót........................5.304
Ðamalífeyrir v/1 bams........................10.300
Meðlagv/1 bams ..............................10.300
Mæðralaun/feðralaun v/1bams...................1.000
Mæöralaun/feðralaun v/2ja bama................5.000
Mæöralaun/feðralaun v/3ja bama eða fleiri...10.800
Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaða .............15.448
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaða.............11.583
Fullur ekkjulifeyrir.........................12.329
Dánarbætur 18 ár (v/slysa)...................15.448
Fæðingarstyrkur..............................25.090
Vasapeningar vistmanna ......................10.170
Vasapeningar v/sjúkratrygginga...............10.170
Daggreiðslur
Fullir fæðingardagpeningar....................1.052
Sjúkradagpeningar einstaklings...............526.20
Sjúkradagpeningar fyrir hvert bam á framfæri ...142.80
Slysadagpeningar einstaklings................665.70
Slysadagpeningar fyrir hvert bam á framfæri ....142.80
Tekjutryggingarauki var greiddur I desember og janúar,
enginn auki greiðist I februar. Tekjutrygging,
heimilisuppbót og sérstök heimilisuppbót eru þvi lægri
nú.