Tíminn - 24.02.1993, Blaðsíða 1

Tíminn - 24.02.1993, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 24. febrúar 1993 37. tbl. 77. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- Næsta átak lögregluyfirvalda: Stútarnir mega fara að vara sig Lögregluyfirvöld á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum hyggja á sérstakt átak í næsta mánuði gegn ölvunarakstri og lélegum ljósa- búnaði birfreiða. Lögregluyfirvöld á þessu svæði hafa frá því í haust gert átak í að koma í veg fyrir ýmsar brotalamir í umferðamálum. Eins og kunnugt er lauk sérstöku átaki gegn óskoðuðum ökutækj- um í síðustu viku og telur Ómar Smári Armannsson, aðstoðaryfir- Iögregluþjónn í Reykjavík, að haft hafi verið afskipti af um 1.000 ökutækjum af þeim sökum. Næsta átak þessara aðila verður, að sögn Ómars, vikuna 8 til 15 mars. Þá er ætlunin að beina athyglinni að ljósabúnaði ökutækja svo og ölv- unarakstri. Að sögn Ómars hefur heldur dregið úr ölvunarakstri hjá lögreglunni í Reykjavík undafarin tvö ár en yfirleitt þarf að hafa af- skipti af um 1.000 ökumönnum vegna ölvunar við akstur. ðmar segir að ökumenn á öllum aldri séu gómaðir vegna meints ölv- unaraksturs en þó halli meiri á þá sem yngri eru. Þannig voru 32 sautján ára og 63 átján ára öku- menn teknir af þessum sökum á síðasta ári ásamt 341 á aldrinum 19 til 24 ára. Um 500 stútar undir stýri voru á aldrinum 25 til 60 ára eða um 14 ökumenn í hverjum árgangi að meðaltali. Yngsti ökumaðurinn sem Iögreglan hafði afskipti af reyndist vera réttindalaus 15 ára unglingur. Ómar leggur áherslu á að menn misbjóði ekki eigin skynsemi með því að leggja akandi af stað undir áhrifum áfengis. Hann telur að fræðsla og upplýsingar hljóti að kveikja neista skynseminnar og virka best í baráttu gegn ölvuna- rakstri. Jafnframt átaki gegn ölvunarakstri verður sjónum beint að ljósabúnaði bifreiða. Þar telur Ómar að ýmislegt megi betur fara. Hann bendir þar á að allt of algengt sé að sjá eineygða bfla í umferðinni. -HÞ Slys og árekstrar í nágrenni Reykja- víkur Ökumaður beinbrotnaði í allhöröum árekstri fólksbfls og flutningabfls í Hafnaflrði. Þá varð harður árekstur tveggja jeppa við Sraumsvík. Atta bflar voru í einum og sama árekstrinum í Kópavogi í gær. Fólksbfl var ekið í veg fyrir stóran flutningabfl á mótum Öldugötu og Reykjanesbrautar í gær. Ökumaður var fluttur á sjúkrahús en hann mun hafa hlotið minni háttar beinbrot. Fólksbfll- inn er mikið skemmdur en lítið sást á flutningabílnum. Þá skemmdust tveir jeppar mikið í árekstri við aðkeyrslu að álverinu í Straumsvík. í Kópavogi óku 8 bflar hver aftan á annan í Þverbrekku í Kópavogi í gær en engin meiðsli urðu á fólki. Að sögn lögreglu gerði mikla hálku um það leyti sem þessi óhöpp áttu sér stað. Borgin greiðir 7,5 milljónir til að kynna HM '95 Sjá íþróttasiðu Þorskverð hefur lækkað að meðaltali um 20%, ufsi hefur einnig lækkað en verð á öðrum tegundum hefur nokkurn veginn haldið sér: Kjaraskerðing fyrir sjómenn „f*egar fískverð lækkar þýðir það samsvarandi lækkun á kjörum sjó- manna. Þegar fískverð hækkar þá segja menn að það eigi að dreifa því til annarra en sjómanna en þegar físk- verð lækkar þá á enginn auðlind hafs- ins nema sjómenn. En við höfum alltaf sagt að við viljum fá markaðs- verð fyrir fískinn og njótum þess þeg- ar verð er hátt og svo öfugt þegar verðið lækkar," segir Hólmgeir Jóns- son, framkvæ mdastjóri Sjómanna- sambands íslands. Þorskverð á innlendum fiskmörkuð- um hefur lækkað um allt að 20% að meðatali og sömuleiðis hefur verð á ufsa einnig lækkað en verð á öðrum fisktegundum hefur nokkum veginn haldið sér. Öfugt við starfsbræður sína í Evrópu ætla íslenskir sjómenn ekki að fara fram á bætur við stjómvöld vegna verðlækkana og þaðan af síður að óska eftir lágmarksverði, eins og tíðkaðist hér ekki alls fyrir löngu. Að mati hagsmunaaðila er talið að þetta ástand á mörkuðunum sé aðeins tímabundið og er vonast til að fiskverð eigi eftir að hækka á ný áður en langt um líður. En eins og kunnugt er þá er hálfgert vandræðaástand á ferskfisk- mörkuðum ytra sökum verðfalls í kjölfar mikils framboðs af ódýrum fiski inn á markaðina. Þetta hefur m.a. leitt til þess að sterkir fiskkaupendur á íslenskum mörkuðum halda að sér höndum á meðan fárið stendur yfir ytra. Þar fýrir utan ríkir óvissa í salt- fiskverkuninni vegna þess að tollfrjálsi sölukvótinn til Evrópu er uppurinn. Þótt verð á sjávarfangi sé frjálst í orði eru ýmis frávik frá því á borði og í reynd em mörg verð í gangi sem mis- muna sjómönnum í kjömm eftir um- hverfi og aðstæðum. Af þeim sökum m.a. em það eitt af forgangskröfum samtaka sjómanna, jafnt undir- sem yfirmanna gagnvart viðsemjendum sínum, að reynt verði eftir föngum að ná samkomulagi um framkvæmd frjáls fiskverðs án opinberra afskipta. -grh Gufubaðsframkvæmdum miðar vel í ráðuneyti Framkvæmdum miðar vel áfram við gerð gufubaðs hjá Friðriki Sop- hussyni í fjármálaráðuneytinu. Eins og áður hefur komið fram er gufubað þetta og líkamsræktarað- staða jafnframt ætlað embættis- mönnun og starfsfólki ráðuneytis- ins og hafa smiðir verið að vinna við innréttingar um nokkurra vikna skeið, eða frá því um áramót. Búið er að ganga frá Ioftræstikerfi og ýmsum öðrum lögnum og stúka rýmið af með milliveggjum og á myndinni má sjá smiði að störfum. Myndin er tekin úr gufu- baðinu sjálfu og sést fram í tækja- sal þar sem líkamsræktartæki og þjálfunaraðstaða verður. Einnig er búið að stúka af búningsklefa og sturtuaðstöðu fyrir karla og konur. Timamynd Ámi Bjama Stjóm HAB íhugar að veita stórum víðskipta- vínum afslátt: Tryggt verði að hiti sé ávallt nægilegur Stjóra Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar hefur samþvkkt að kanna þann möguleika að veita stórum viðskiptavinum veitunnar afslátt. Stjórain sam- þykkti jafnframt að fara út í ýmsar aðgerðir sem miði að þvf að koma « veg fyrir kólnun á vatni. Miklar umræður hafa ver- ið um málefni veitunnar upp á síðkastið. Nýlega var haldinn fúndur á Akranesi sem stjóra- endur veitunnar voru gagnrýnd- ir. Óánægjan beinist að hárri gjaidskrá og að því að í einstök- um húsum hefur hiti á hvem- vatninu ekki verið nægilegur. Stjórain telur nauðsynlegt að hraða sem mest störfum þeirrar nefndar sem iðnaðarráðherra skipaði 8. febrúar síðastliöinn, en nefndin hefur það hlutverk að gera úttekt á fjárhagsstöðu Bæj- arveitna Vestmannaeyja, Hita- veitu Akureyrar, Hitaveitu Akra- ness og Borgarfjarðar og Hfta- veitu Rangæinga og koma með, á grundvelli úttektarinnar, tfí- lögur um leiðir til að lækka kostnað við húshitun á veitu- svæði þeirra. Stjómin samþykkti jafnframt að kaupa búnað sem sfskrái rennsli, vatnshita og útíhita á Akranesi, Borgarnesi og Hvann- eyrL Jafnframt var ákveðið að fara út f ýmsar aðgerðir sem miði að því að koma í veg fyrir kóinun vatnsins og tryggja að allir viöskiptavinir veitunnar fái nægilega heitt vatn inn í hús sín. -EÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.