Tíminn - 24.02.1993, Page 5

Tíminn - 24.02.1993, Page 5
Miðvikudagur 24. febrúar 1993 Timinn 5 Þórarinn Þórarinsson: Forsetinn og löggj afarvaldið 1 þjóðaratkvæðagreiðslu, sem fram fór hér á landi vorið 1944, var samþykkt að slíta konungssam- bandi við Danmörku og að ísland yrði lýðveldi. í framhaldi af þessu þurfti að breyta stjómarskránni, en þar sem hún þurfti að taka gildi 17. júní sama ár, var samþykkt að ný stjómarskrá yrði að mestu leyti hin sama og gamla stjómarskráin, og ekki yrðu gerðar aðrar breyt- ingar á henni en að forsetinn tæki við þeim störfum sem konungur hafði gegnt áður. Mestur vandi var í sambandi við löggjafarvaldið, en samkvæmt gömlu stjómarskránni fóru Al- þingi og konungur með það sam- eiginlega, þannig að Alþingi sam- þykkti lögin en konungur undir- ritaði þau. Konungur gat hins veg- ar neitað undirritun og vom lögin þar með fallin. Alþingi vildi ekki veita forseta svo víðtækt vald og setti því ný fyrir- mæli, sem felast í 26. grein stjóm- arskrárinnar. Samkvæmt henni skyldi forseti fá vald til að vísa lög- um til þjóðaratkvæðis, en áður yrði hann þó að synja undirskrift þeirra. Lögin skyldu samt strax öðlast gildi. Fljótlega reis nokkur ágreiningur um þessa grein og kom það m.a. fram í riti Ólafs Jó- hannessonar um stjómarskrána, þar sem hann gagnrýndi ýmis at- riði, og einkum það, að lög gætu öðlast gildi án undirritunar for- seta. 26. grein stjómarskrárinnar hljóðar þannig: „Ef Alþingi hefur samþykkt laga- frumvarp, skal það lagt fyrir for- seta lýðveldisins til staðfestingar eigi síðar en tveim vikum eftir að það var samþykkt, og veitir stað- festingin því lagagildi. Nú synjar forseti lagafrumvarpi staðfesting- ar, og fær það þó engu að síður lagagildi, en leggja skal það þá svo fljótt sem kostur er undir atkvæði aílra kosningabærra manna í land- inu til samþykktar eða synjunar með leynilegri atkvæðagreiðslu. Lögin falla úr gildi, ef samþykkis er synjað, en ella halda þau gildi sínu.“ Árið 1978 var skipuð ný stjómar- skrámefnd undir forsæti Gunnars Ljóst er, að með þessari breytmgu er verulega styrkt bœði staða og sjálfstœði forsetans, þar sem hann getur vísað máli til þjöðarat- kvœðagreiðslu án þess að hafna lög- unum áður, og þau geta ekki öðlast gildi án undirritunar hans. Thoroddsen, og skyldi hún Ijúka endurskoðun stjórnarskrárinnar. Á fundum nefndarinnar urðu all- miklar umræður um 26. greinina og kom þar fram hjá Gunnari Thoroddsen og öðrum nefndar- mönnum að gera þyrfti á henni verulegar breytingar. Niðurstaðan varð sú, að samþykkt var í nefnd- Gunnar Thoroddsen. inni ný grein, sem er 24. grein í stjórnarskrárfrumvarpi sem Gunnar Thoroddsen lagði fram á Alþingi 1982. Greinin hljóðar þannig: „Ef Alþingi hefur samþykkt laga- fmmvarp, skal það Iagt fyrir for- seta eigi síðar en þremur vikum eftir að það var samþykkt Áður en forseti tekur ákvörðun um stað- festingu frumvarpsins, getur hann óskað eftir því, að um það fari fram þjóðaratkvæðagreiðsla. Þjóðarat- kvæðagreiðsla skal þá fara fram innan tveggja mánaða frá því að ósk um hana var borin fram. Sé frumvarpið þar fellt, er forseta heimilt að neita að staðfesta það. Sé það samþykkt, skal forseti stað- festa það.“ Rétt er að taka fram, að allir sam- nefndarmenn Gunnars í stjómar- skrárnefndinni voru sammála um þessa grein. í nefndinni áttu sæti eftirtaldir menn: Gunnar Thoroddsen formaður, Gylfi Þ. Gíslason, Jón Baldvin Hannibalsson, Matthías Bjama- son, Ólafur Ragnar Grímsson, Ragnar Amalds, Sigurður Gizurar- son, Tómas Tómasson og Þórarinn Þórarinsson. Ráðunautur nefndarinnar var Gunnar G. Schram og ritari Guð- mundur Benediktsson. Ljóst er, að með þessari breytingu er verulega styrkt bæði staða og sjálfstæði forsetans, þar sem hann getur vísað máli til þjóðaratkvæða- greiðslu án þess að hafna lögunum áður, og þau geta ekki öðlast gildi án undirritunar hans. Líklegt er, að deilur geti hafist um þetta atriði þegar stjómarskráin verður tekin næst til meðferðar, því að nokkrir leiðtogar Sjálfstæð- isflokksins ásamt Morgunblaðinu hafa lýst því yfir að þeir vilji fella 26. greinina alfarið niður án þess að annað komi í staðinn. Ef það yrði gert, væri forsetinn sviptur ailri aðild að löggjafarvaldinu, og löggjafarvaldið yrði þá í höndum Alþingis eins. Höfundur er fyrram ritstjórí Timans. S ardasfurstynj an „Fyrir undurfögmm konum / fellur maður ótt og títt,“ er efni Sardas- furstynjunnar, sem íslenska óperan frumsýndi sl. föstudag, 19. febrúar. Sem sýnir að mannþekking var meiri en nú er í hinni sögufrægu „veröld sem var“ fyrir fyrra stríð, t.d. árið 1915 þegar Sardasfurstynja Emmerichs Kálmáns var fmmsýnd. Því óperettan „gengur út frá“ þeirri staðreynd Biblíunnar og Njálu, að konumar em hreyfiafl örlaganna en karlmennirnir Ieiksoppar kvenn- anna og viðfangsefni. Eins og endranær hefúr íslenska óperan gert allt eins vel og framast mátti verða: Sardasfurstynjan telst vera síðasta andvarp Vínaróperett-" unnar, og Vínarmaður íslands Páll P. Pálsson var fenginn til að stjóma. Sardasfurstynjan er farsi, og Kjartan Ragnarsson var fenginn til að leik- stýra. Og Sardasfurstynjan er full af gamansemi og smellnum hljóðum, og Flosi Ólafsson og Þorsteinn Gylfason þýddu texta og söngva. Að auki sá Sigurjón Jóhannsson um leiktjöld, Hulda Kristín Magnús- dóttir um búninga, Auður Bjama- dóttir um dansa, Jóhann B. Pálma- son um lýsingu, Kór íslensku óper- unnar um kórsöng og hljómsveit ís- lensku ópemnnar um hljóðfæraleik, konsertmeistari Zbigniew Dubik. Leikurinn gerist í Búdapest og Vín, en þær borgir vom þá báðar í Aust- urríska keisaradæminu. í fyrsta þætti skyggnast áhorfendur inn í öldurhúsið Orfeum í Búdapest, þar sem fram fer söngur og Can-Can- dans og starfskonur em nokkuð léttar á bámnni — raunar atvinnu- menn í faginu að því er virðist. Heyrðist miðaldra maður kvæntur hvísla stundarhátt í fyrra hléi, að svona stað vantaði sárlega hér í bænum. Þarna em skemmtiatriði öll fremur af grófara taginu, svo sem hæfir í útkjálkaborg hins víðlenda ríkis, og er það svo rækilega undir- strikað af dansahöfundi að blaða- manni Tímans þótti nóg um. Næsti þáttur gerist í veislu fyrir- manna í Vínarborg, og enda þótt yf- irbragð hlutanna sé fágaðra en á hinum staðnum, em hormónin enn á fullri ferð í æðum manna og kvenna. Lokauppgjör með „happy end“ fer svo fram í anddyri glæsihót- els í Vínarborg, og þar fær Bessi Bjarnason tækifæri til að leika dmkkinn þjón, hlutverk sem býður upp á fleiri möguleika en flest önn- ur. Sem hann auðvitað nýtir með næsta fullkomnum hætti. Sviðsmynd Sigurjóns er að vonum mjög haganleg, þannig að áhorfend- ur finna hreint ekki til þess að þröngt sé á sviðinu, eða stutt í vegg- inn á móti. Hins vegar mætti senni- lega, t.d. með ljósum, gera meiri mun en gerður er á knæpu-um- c Signý Sæmundsdóttir, Bessi Bjarnason og Jóhanna Linnet I hlutverkum sínum. hverfi fyrsta þáttar og glæsileik hins annars. Og búningar Huldu em fal- legir og smekklegir. Raunar em það „gömlu brýnin" — Bessi, Kristinn Hallsson, Sieglinde Kahmann og Sigurður Björnsson — sem stela senunni þegar þau yfirleitt eru á sviðinu, því öll hafa þau sviðs- reynsluna umfram yngra fólkið. Sem þó stendur sig prýðilega. Sardasfurstynjuna, söngkonuna Sylvu Varescu, leikur og syngur Sig- ný Sæmundsdóttir með góðum til- þrifum og hæfilegri reisn, en Edvin Ronald, mótpart hennar, syngur Þorgeir J. Andrésson. Þorgeir mætti svosem vera liprari leikari en hann er, en gerir þetta annars ágætlega. Ennþá meiri óperettustfll er þó á Jó- hönnu G. Linnet, Stasí, og Bergþóri Pálssyni, Bóní greifa, enda eru þær persónur þegar allt kemur til alls „lausari á prinsippinu" en fyrr- nefnda parið. Raunar fannst mér að af aðalhlutverkunum fjómm lægju lögin best fyrir raddsviði Bergþórs — öll hin þrjú áttu vissa örðugleika með lægstu tónana. Jóhanna og Bergþór leika bæði ágætlega, þótt hinn síðarnefndi minni að sönnu í framsögn og töktum meira á Papag- eno en á siðlítinn yfirstéttargosa. Ópemkórinn norðurlandafrægi stóð sig vel að vanda og sýndi auk söngsins á sér nýjar hliðar, svo sem þá að ein kórkvenna fór á handa- hlaupum um sviðið en einn kór- manna tók einhvers konar kósakka- dans, sem varla mun heiglum hent- ur. Fyrsti þátturinn þótti mér þó einna daufastur, en í staðinn var mikil stígandi í sýningunni og magnaðist fjör og stemmning eftir því sem á leið, þótt sumum þætti hápunkturinn líklega vera „Komdu inn í kofann minn“ í 2. þætti, en sá söngur er að vísu úr annarri óper- ettu eftir Kálmán, en textinn eftir Davíð (Stefánsson). Því þar var áhorfendum boðið að taka undir með Kristni og Sieglinde. Hljómsveitin spilaði mjög vel und- ir ákafri stjórn Páls P. Pálssonar, og almennt er þetta sýning sem hlýtur að höfða til allra, full af glensi og glysi og vinsælum söngvum. Sig. St. Líf og fjör f óperunni. Bergþór Pálsson liggur fyrír fótum syngjandi glæsikvenna.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.