Tíminn - 24.02.1993, Side 7

Tíminn - 24.02.1993, Side 7
Miðvikudagur 24. febrúar 1993 Tíminn 7 Jóhannes Nordal segir að með samningi um fjárfyrirgreiðslu Seðlabankans við ríkissjóð sé brotið blað: Samningurinn þýðir kerfis- breytingu en ekki vaxtalækkun Friðrik Sophusson fjármálaráðherra og Jóhannes Nordal seðla- bankastjóri undirrituðu í fyrradag samning um fjárfyrirgreiðslu Seölabankans við ríkissjóð á árinu 1993. Með samningnum verður ríkissjóði bannað að yfírdraga í Seðlabanka. í staðinn verður hon- um gert að afla sér nauðsynlegs lánsfjár með útgáfu ríkisverðbréfa. Jóhannes sagði að hér sé á ferðinni mikilvæg kerfisbreyting, sem geri Seðlabankanum kleift að hafa áhrif á vexti til skamms tíma. Jóhannes sagði aftur á móti að samningurinn sjálfur hafi ekki áhrif á vaxtastig í landinu. Fjármálaráðherra líkti breyting- unni, sem samningurinn felur í sér, við mann sem á ávísanahefti. Ríkis- sjóður hefur fram til þessa getað skrifað út ávísanir úr hefti sínu í Seðlabanka án tillits til þess hvort einhverjir fjármunir eru inni á heft- inu. Nú verður ríkissjóður að taka lán áður en hann skrifar út af heftinu í Seðlabanka. Það gerir ríkissjóður með útgáfu ríkisverðbréfa, sem seld eru á almennum markaði. Friðrik sagði að með samningnum væri rík- issjóður að kalla yfir sig meira aðhald í fjármálastjóm. Samningurinn lokar þó ekki alger- lega fyrir að ríkissjóður geti dregið yfir í Seðlabanka, ef illa stendur á. Yf- irdrátturinn má þó ekki vera nema í 3-5 daga í hverjum mánuði. Með samningnum fær Seðlabank- inn meiri möguleika til að hafa áhrif á vaxtaþróun. Hann getur keypt og Jon Kjell Seljeseth, höfundur verðlaunalagsins „Þá veistu svarið": Bjóst við meiru frá fagdómnefnd en minna frá landsnefndunum „Þá veistu svarið", eftir Jon Kjell Seljeseth í flutningi Ingibjargar Stefánsdóttur, hlaut verðlaunin eftirsóttu í Söngvakeppni Sjón- varpsins síðasta laugardagskvöld — 250 þúsund krónur og 500 þúsund til undirbúings fyrir Söngvakeppni evrópskra sjón- varpsstöðva, sem fram fer í Mill- street Tovvn á írlandi þann 15. maí nk. í öðru sæti varð „Eins og skot“, eftir Ólaf Gauk, en það flutti dóttir hans Anna Mjöll. Við ræddum í gær við sigurvegar- ann Jon Kjell Seljeseth. Jon Kjell er Norðmaður eins og nafnið bendir til, 39 ára að aldri og arki- tekt að mennt frá háskólanum í Þrándheimi. Hann hefur þó haft tónlistina að aðalstarfi um árabil og hefur leikið sem hljómborðs- leikari með fjölda þekktra tónlist- armanna okkar, svo sem Gunnari Þórðarsyni, Jakob Magnússyni, Björgvin Halldórssyni og Stjórn- inni. „Ég hef annars ekki unnið svo mikið að tónsmíðum um dagana,“ segir Jon Kjell. „Ég sigraði í Landslaginu á Akureyri í vetur og það lag og þetta lag núna er það fyrsta sem ég sendi frá mér. En músíkin hefur verið nátengd mér alla ævina, allt frá því þegar ég sem bam fór á svonefnt tónlistar- dagheimili í Þrándheimi. Þessi sigur núna hlýtur að raska verkáætluninni hjá mér eitthvað á næstunni, enda verður að vanda sig við undirbúninginn. Sjónvarp- ið leggur til þessa ákveðnu upp- hæð, en þótt einhverjum geti virst hún vera há, þá mun reynslan vera sú að menn koma fremur út í mín- us. Menn átta sig ekki á hve um- fangsmikið þetta er. Ég var búinn að finna talsverðan meðbyr með laginu áður en að úr- slitastundinni kom, og reiknaði með að kannske mundum við Ingibjörg sigra. Þó urðu viðtök- umar betri en ég átti von á, þegar dómnefndirnar í kringum landið tóku að tilkynna um niðurstöður sínar. Hins vegar kom mér það að óvart að fagdómnefndin valdi öðru vísi. Við vorum 32 stigum á undan næsta lagi áður, en svo lauk að munurinn á okkur og lagi númer tvö varð 16 stig. Ég hélt að við fengjum betri undirtektir hjá fag- dómnefndinni, en færri stig hjá nefndunum úti um landið. En nú er ég bara ánægður með að málin skyldu æxlast svona.“ Við þökkum Jon Kjell fyrir spjall- ið og óskum að framhaldið hjá þeim Ingibjörgu verði sem glæsi- legast. Jon Kjell Seljeseth. selt ríkisverðbréf á eftirmarkaði. Jó- hannes sagði að bankinn gæti með þessum viðskiptum aðeins haft áhrif á skammtímasveiflur á vöxtum. Bankinn geti hins vegar ekki haft eins mikil áhrif á langtímavaxtaþró- un. Jóhannes Nordal gekk svo langt að tala um að með þessum samningi hefði verið brotið blað. Aðspurður um hvað samningurinn myndi leiða til mikillar vaxtalækkunar á árinu, sagði Jóhannes að samningurinn sem slíkur hefði ekki áhrif á vaxta- stigið. Hér sé á ferðinni keríisbreyt- ing. Jóhannes var þá spurður hvert yrði fyrsta verk Seðlabankans nú þeg- ar samningurinn hefur v^rið undir- ritaður. Jóhannes svaraði því til að bankinn muni halda áfram á þeirri braut að auka frjálsræði í vaxtamál- um með það að markmiði að vextir ráðist sem mest af markaðinum. Nú hefur eftirspum eftir lánsfjár- magni minnkað. Fjárfestingar hafa aldrei verið jafnlitlar, atvinnulífið tekur mjög lítið að láni, hallinn á rik- issjóði hefur minnkað mikið og er í reynd mun minni en ríkissjóðshalli í nágrannalöndum okkar. Sú spuming vaknar því eðlilega hvers vegna vextir lækka ekki. Friðrik sagði að spamað- ur í þjóðfélaginu væri ekki nægilega mikill og Jóhannes nefndi mikla lánsfjáreftirspum hins opinbera sem skýringu á því hvers vegna vextir lækka ekki. Friðrik og Jóhannes sögðu hins vegar að vextir hafi þokast niður á við á síðustu mánuðum og allar forsendur séu fyrir frekari vaxta- lækkun. Vextir á ríkisvíxlum voru t.d. um 12% um síðustu áramót. Þeir em núna komnir niður í 11% og Jóhann- es sagðist telja að þeir færu fljótlega niður í um 10%. í dag verður haldinn fundur þar sem fulltrúar lífeyrissjóðanna, fjármála- ráðuneytisins og viðskiptaráðuneyt- isins ræða um vaxtamál. -EÓ frá Bessa- staðanefnd í athugasemdum ríkisendur- skoðunar við endurbætur og viðgerðir á Bessastaðastofu í ríkisreikningi 1991 segin „Eðlilegt hefði verið að fom- leifafræðingur hefði verið Bessastaðanefnd og verkefnis- stjóra til ráðgjafar um fram- vindu vcrksins.“ Af þessu tilefni óskar Bessa- staðanefnd að taka þetta fram: Allar framkvæmdir við Bessa- staðastofu voru undirbúnar f náinni samvinnu við fomleifa- deild Þjóðminjasafns íslands, þjóðminjavörð og fomleifa- nefnd eftir að hún var skipuð í mars 1990. Fornleifanefnd óskaði eftir því með bréfi 23. júlí 1990 að minjar yrðu varðveittar og loftræstibúnaður hússins, sem þar átti að vera, yröi stað- settur utan húss. Við þessum tilmælum var orðið og hönnun hússins breytt til samræmis. Bessa- staðanefnd harmar það, ef skortur á upplýsingum frá nefndinni hefur leitt til mis- skilnings í þessu efni. Reykjavík 19.2.1993, Bessastaðanefnd. Tvíhöfði fordæmdur Sjómannasamband íslands og Far- manna- og fiskimannasamband ís- lands fordæma vinnubrögð Tví- höfðanefndar við kynningu á tillög- um að breytingum á lögum um stjóm fískveiða. Samtökin telja að nefndin hafi ekki haft eðlilegt og lögboðið samráð við Sjávarútvegsnefnd Alþingis og hags- munasamtök í sjávarútvegi í mál- inu. 6 milljóna íbúð hefur hækkað um 100 þúsund á einu Vísitala byggingarkostnaðar hækk- aði um 0,2% milli janúar og febrú- ar. Byggingarvísitala fyrir mars- mánuð er 190,2 stig. Samkvæmt vísitölunni hefur byggingarkostn- aður í landinu aðeins hækkað um 1,7% á einu ári, eða sfðan í febrúar í fyrra. Þessi hækkun samsvarar því t.d. að íbúð, sem hægt var að byggja fyrir 6 milljónir kr. fyrir ári, mundi nú kosta tæplega 100 þús. kr. (eða 99.400 kr.) meira. Lánskjaravísitala marsmánaðar var líka reiknuð í gær. Hún reyndist 3273, sem er hækkun um 0,31% frá mánuðinum á undan. Lánskjaravísi- talan hefur hækkað um 2,3% síð- ustu 12 mánuði. Það þýðir að hver verðtryggð milljón hefur hækkað um 23.500 kr. á eins árs tímabili. Launavísitalan hækkaði ekki á milli janúar og febrúar. En hún hefur undanfarna tólf mánuði hækkað um 2,3%, eða nákvæmlega jafn mikið og lánskjaravísitalan. - HEI HÆGINDASTOLAR aSsláttur Síðumúla 30 — sími 68-68-22 0PIÐ MÁNUDAGA-FÖSTUDAGA 9-18 LAUGARDAGA KL. 10-17 SUNNUDAGA KL. 14-17

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.