Tíminn - 21.04.1993, Qupperneq 6
6 Tíminn
Miðvikudagur 21. aprfi 1993
Höggmyndasýning:
Sverrir
Ólafsson
sýnir á
Borg
Nú stendur yfir í Gallerí Borg
sýning á höggmyndum eftir
Sverri Ólafsson, einn af þekkt-
ustu myndhöggvurum á ís-
landi. Á sýningunni eru 12 ný
verk af ýmsu tagi. Sýningin
stendur til 27. aprfl og er opin á
virkum dögum frá kl 12- 18 og
um helgar frá kl 14-18.
Sverrir Ólafsson hefur haldið
fjölda einkasýninga bæði hér
heima og erlendis og tekið þátt í
samsýningum. Verk eftir Sverri
eru á söfnum á íslandi, Svíþjóð,
Englandi, Frakklandi, Kanada,
Bandaríkjunum, Kúbu, Ítalíu,
Þýskalandi, Mexíkó, Spáni, Bras-
ilíu, Sviss, Danmörku, Finnlandi
og Rússlandi.
Svertir Ólafsson við eitt verk-
anna á sýningu hans í
Galleri Borg.
Tímamynd Áml Bjama
Sorpa skuldar milljarð og tapið í fyrra var 100 millj. kr.:
Staða Sorpu
er skuggaleg
„Skuldir Sorpu nema rúmum milljarði króna. Tapið á fyrsta starfs-
ári eru rúmar 100 millj. kr. Það er því ekkert eftir til að greiða niður
lán. Áætlanir fyrirtækisins hafa ekki staðist aö einu eða neinu
leyti,“ segir Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokks-
ins. Nú óskar fyrirtækið eftir 100 millj. kr. viðbótarframlagi.
Á borgarstjómarfundi í fyrradag
vakti Sigrún athygli á ársreikning-
um Sorpu. Hún segir að staðan sé
skuggaleg vegna hárra vaxta-
greiðslna af þessum háu erlendu
lánum.
„Þegar ársreikningurinn var lagður
fram í borgarráði vildi ég vekja at-
hygli borgarfulltrúa á því og gera
kröfu um að framkvæmdastjóri
mætti á fund borgarráðs en það hef-
ur ekki gerst,“ segir Sigrún. Hún tel-
ur það mikilvægt þar sem borgin
eigi rúm 70% í fyrirtækinu.
„Það hittist þannig á að það hafði
verið fundur í Sorpu í gærmorgun.
Þar var staða fyrirtækisins til um-
ræðu og rætt um greiðsluáætlun og
talað um að reyna að lengja lánin.
Jafnframt var beðið um að sveitarfé-
lögin legðu fram aukið hlutafé upp á
180 til 200 milljónir króna,“ segir
Sigrún en auk borgarinnar eiga
sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu
hlut í fyrirtækinu.
Hún hefur þetta eftir Vilhjálmi Vil-
hjálmssyni, fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins sem benti á að framlagið
yrði til næstu fimm ára og áleit að
ekki væri um stórfé að ræða. „Þetta
eru samt 25 til 28 milljónir króna á
ári fyrir borgina næstu fimm árin og
allt eru þetta peningar," bendir Sig-
rún á.
Hún segist hafa gagnrýnt það frá
upphafi að allt of hratt hafi verið far-
ið í uppbyggingu fyrirtækisins og
það hafi Vilhjálmur fyrst tekið undir
á borgarstjómarfundinum í fyrra-
dag.
Hún telur að gjaldskrá fyrirtækis-
ins hafi verið allt of há frá byrjun.
„Hún hefur orðið til þess að menn
hafa farið að fara í önnur sveitarfélög
með úrgang og sérstaklega spilli-
efni,“ segir Sigrún og bendir á að að-
eins 5% af áætluðu magni þeirra
hafi skilað sér. Hún nefnir dæmi af
fyrirtæki sem var rukkað um
400.000 kr. fyrir móttöku á úrgangi
sem til féll eftir Ióðahreinsun.
-HÞ
Andrésar Andar leikarnir heíjast í dag í Hlíðarfjalli á Akureyri:
Um 800 keppend
ur í Hlíðarfjalli
Eitt stærsta íþróttamót bama á
íslandi hefst í dag þegar Andrésar
Andar leikamir verða settir í Hlíð-
arfialli við Akureyri. Þetta er í 18.
sinn sem Andrésar Andar leikam-
ir em haldnir, en metþátttaka er í
mótinu nú og hafa skráð sig 800
keppendur. Auk þess má búast við
um 600 manns sem em fararstjór-
ar, starfsmenn og foreldrar.
Leikamir em fyrir böm á aldrin-
um 7-12 ára og em leikamir
styrktir af Pepsi Cola og Vöku-
Helgafelli. Setningarathöfri verð-
ur í íþróttahöllinni og hefst hún
með skrúðgöngu frá Lundarskóla
að íþróttahöllinni, þar sem Andr-
ésar- eldurinn verður kveiktur.
Keppni hefst síðan að morgni
sumardagsins fyrsta klukkan
10.00 með keppni í stórsvigi 7-8
hendingu í íþróttahöllinni áAkur-
eyri.
120 verðlaun verða veitt í 36
flokkum og þar af em veitt um 80
verðlaun fyrir bestu afrek. Ný
keppnisgrein lítur dagsins ljós,
því nú eiga böm á aldrinum 7-9
ára möguleika á að keppa í svig-
þrautum.
Úrslitakeppni 1. deildar í handknattleik:
Valsmenn áfram
Valsmenn tryggðu sér sæti í fjögurra Iiða úrslitum 1. deildar í hand-
knattleik þegar þeir lögðu Vestmannaeyinga að velli í öðmm leik liðanna
í Eyjum í gærkvöldi, 20-26. Staðan í hálfleik var 11-14, Valsmönnum í
vil. Vestmannaeyingar sem tryggðu sér sæti í úrslitakeppni á 11. stundu
em því úr leik en Valsmenn mæta annað hvort Haukum eða Selfyssing-
um sem mætast í þriðju viðureign liðanna í Hafnarfirði í kvöld. Jafnræði
var með liðunum í fyrri hálfleik en þó höfðu Valsmenn ávallt yfirhöndina
og höfðu þeir þriggja marka forskot í hálfleik. Þegar líða tók á síðari hálf-
leik náðu Valsmenn hins vegar 5 marka afgerandi fomstu og sigldu í 6
marka ömggan sigur. Ólafur Stefánsson, Dagur Sigurðarson og Jón
Kristjánsson vom bestir Valsmanna en Sigmar Þröstur Óskarsson átti
sem oft áður mjög góðan leik hjá Vestmannaeyingum.
Dómaran Einar Sveinsson og Gunnlaugur Hjálmarsson.
Mörk ÍBV: Zoltan Belányi 6, (3 v.) Sigurður Friðriksson 3, Guðfinnur
Kristmannsson 3, Erling Richardsson 3, Sigbjöm Óskarsson 2, Björgvin
Rúnarsson 2. Haraldur Hannesson 1.
Mörk Vals: Ólafur Stefánsson 7, Dagur Sigurðarson 6, Valdimar Gríms-
son 6,(3 v.) Jón Kristjánsson 5, Jakob Sigurðsson 1, Geir Sveinsson 1.
ára og 10 ára auk keppni í svigi 12
ára. Keppni lýkur síðan á laugar-
dag kl. 15.00 með verðlaunaaf-
Sveitaglímu íslands lokið:
Vegur íslensku glím
unnar fer vaxandi
Styrktaraðilar Andrésar Andar lelkanna eru Pepsl á íslandl og Vaka
Helgafell. Hér undirrita fulltrúar þeirra samkomulag vlð forráðamenn
lelkanna. Frá vlnstri: Benedlkt Hrelnsson frá Pepsl, Glsli Kr. Lórenson
f.h. Andrésar Andar leikanna og Kristinn Amarsson, fulltrúi Vöku-Helga-
fells.
Fyrri hluti sveitaglímu íslands fór
fram að Laugum í Þingeyjarsýslu
fyrir skömmu og var keppt í fimm
manna karla- og piltaflokkum.
í karlaflokki kepptu þrjár sveitir;
HSK, HSÞ og KR. Mættir vom til
leiks flestir sterkustu glímumenn
landsins og var keppni tvísýn og
spennandi. í sveitaglímu em oft
kallaðir til gamlir jaxlar til að
styrkja sveitimar og var svo gert nú.
Þingeyingar tefldu m.a. fram Ey-
þóri Péturssyni og Pétri Yngvasyni.
Greinilegt var að KR- ingar stefndu
stíft að sigri því að þeir sendu m.a.
Ólaf Hauk Ólafsson og Jón Unndórs-
son. Allir em þessir menn fyrrver-
andi glímukóngar íslands.
Sá fimmti, Jóhannes Sveinbjöms-
son núverandi glímukóngur, var fyr-
irliði Skarphéðinsmanna. Sem
vænta mátti var ekkert gefið eftir í
þessum slag og enginn kom taplaus
út úr keppninni.
Mesta breiddin var hins vegar hjá
Þingeyingum sem nú unnu það af-
rek að sigra í 14. sinn í röð. Hlutu
þeir samtals 31,5 vinning. Slík sig-
urganga er einsdæmi og ber vitni
miklum styrk þingeyskra glímu-
manna undanfama tvo áratugi.
í öðm sæti var sveit KR með 27,5
vinninga og Skarphéðinsmenn
höfnuðu í þriðja sæti með 15 vinn-
inga.
í flokki pilta 10-12 ára kepptu sveit-
ir HSK og HSÞ. Sveit HSK sigraði
með yfirburðum, 19,5 vinningum
gegn 5,5.
HSK sigurvegari í
yngri flokkum
Síðari hluti sveitaglímunnar fór
fram að Laugarvatni 17. apríl sl. Þar
var keppt í þremur kvennaflokkum
og tveimur yngri flokkum karla. í
unglingaflokki 16-19 ára gersigruðu
Skarphéðinsmenn sveit Ármenn-
inga 22,5-2,5. Þetta var f fyrsta sinn
í 20 ár sem Ármenningar sendu
glímusveit á mótið en þar er hafið
endurreisnarstarf undir forystu
Ingibergs Sigurðssonar, þjálfora fé-
Iagsins.
I sveinaflokki 13-15 ára átti HSK
báðar sveitimar og sigraði A- sveitin
með 24,5 vinningum gegn 0,5. í
telpnaflokki 10-12 ára sigmðu
Skarphéðinsstúlkur jafnöldmr sínar
úr KR með 10 vinningum gegn 6. í
meyjaflokki 13-15 ára og kvenna-
flokki 16 ára og eldri átti Skarphéð-
inn báðar sveitir í hvomm flokki. í
báðum flokkum sigmðu A- sveitim-
ar með yfirburðum, eða 16- 0.
Skarphéðinsmenn sigmðu í sex af
sjö flokkum mótsins og áttu þeir
rúmlega helming keppenda. Þetfo er
engin tilviljun heldur árangur af öfl-
ugu unglingasforfi. „Synir og dætur
sléttunnar" hafa því um sinn haft
betur við aðra landshluta í þjóðar-
íþróttinni.
-Tilk. frá Glímusambandi íslands