Tíminn - 21.04.1993, Qupperneq 9
Miðvikudagur21. apríl 1993
Tíminn 9
■ DAGBÓK
Hafnarborg, Hafnarfiröi
Berglind Sigurðardóttir hefur opnað
málverkasýningu í Kaffistofu Hafnar-
borgar. Á sýningunni verða olíumálverk
og pastelmyndir unnar á síðasta ári.
Berglind lauk námi frá MHÍ árið 1990
og hefur unnið að list sinni síðan. Hún
hefur haldið sýningu á verkum sfnum í
húsakynnum Menntamálaráðuneytisins
við Sölvhólsgötu.
Á sama tíma opnaði Gunnar Ásgeir
Hjaltason málverkasýningu í Hafnar-
borg. Hann sýnir málverk unnin með
akryl, vatnslitum og þurrkrít. Sýningin
er að hluta til yfirlitssýning, en elsta
myndin er frá árinu 1933.
Gunnar stundaði nám við teikniskóla
Bjöms Bjömssonar og Marteins Guð-
mundssonar 1933-1942. Gullsmíði nam
hann hjá Guðmundi Guðnasyni og Leifi
Kaldal 1943-1947.
Báðar sýningamar eru opnar frá kl. 12-
18 alla daga nema þriðjudaga og standa
til 3. maí.
Félag eldri borgara
Vetur kvaddur í Risinu í kvöld kl. 20.
Skemmtiatriði og dans.
Á morgun, sumardaginn fyrsta, er lokað
í Risinu.
Laugardag kl. 10 fara Göngu-Hrólfar frá
Risinu í fyrstu sumargönguna.
Átthagafélag Strandamanna
Á sumardaginn fýrsta, 22. aprfl, kl. 17
heldur kór Átthagafélags Strandamanna
f Reykjavík vortónleika sína í Breiðholts-
kirkju í Mjódd. Stjómandi er Erla Þór-
hallsdóttir. Undirleikari Laufey Kristins-
dóttir.
Tónleikar í Kópavogskirkju
f kvöld kl. 20 verða tónleikar f Kópavogs-
kirkju á vegum Tónlistarskóla Kópavogs.
Þá verður einsöngur og leikið á flautur,
píanó, selló, gítar, klarinettu og fiðlu.
Leikin verða verk eftir Atla Heimi
Sveinsson, Schubert, Charpentier, Bach,
Sor, Mercadanto, Schumann, Mozart og
fleiri. Aðgangur ókeypis og öllum heim-
ill.
BLAÐBERAVÁNTAR)
ÁRMÚLA - SÍÐUMÚLA
SUÐURLANDSBRAUT
Lynghálsi 9. Sími 686300 - kl. 9 til 17
Sumarfagnaður
framsóknarmanna í
Reykjavík
verður haldinn í hinum glæsilegu húsakynnum á Hótel
Borg miðvikudaginn 21. aprfl (síðasta vetrardag) og hefst
kl. 19.30.
Girnilegur kvöldverður,
skemmtidagskrá og
dansleikur á eftir.
Miðaverð kr. 3000
Miðapantanir og sala fer fram á skrifstofu
Framsóknarflokksins, Hafnarstræti 18 , sími 624480.
með kurt og pí og fögnum sumri í góðra
vina hópi. Og hana nú!
Skemmtilega nefndin.
Sean Penn í gönguferö meö kærustunni Robin Wright og dótturinni Dyian. Enginn hasar og áflog hér.
Umhyggjusamir
pabbar
Hér eru tveir harðjaxlar, sem hafa
skapað sér þá ímynd að þeir séu
kaldir karlar sem forðist það eins
og heitan eldinn að láta konur
bræða hjarta sitt. Þó er ekki ann-
að að sjá en einmitt það hafi
gerst, ungar dömur, ekki háar í
loftinu, virðast hafa náð taum-
haldi á þessum töffurum!
Sean Penn var lengi vel frægast-
ur fyrir ólæti og áflog, auk þess
sem hann er eini eiginmaður
Madonnu fyrr og síðar. Þá gengu
öldurnar að sjálfsögðu hátt, þau
bæði skapmikil og gefin fyrir að
láta bera á sér. En nú er því líkast
sem Sean sé farinn að róast.
Fyrir skömmu sást til hans í
gönguferð milli kvikmyndataka í
New York. Förunautarnir voru
kærastan Robin Wright og tveggja
ára dóttir þeirra, Dylan. Það fór
ekki mikið fyrir Sean þá, sem
gegndi hlutverki burðarkarls
meðan Robin ríghélt í hönd óvit-
ans í vægðarlausri umferð New
York-borgar.
Þá vakti ekki síður athygli um-
breytingin á Jack Nicholson, sem
orðinn er 55 ára og hefur lengi
verið eftirsóttasti piparsveinn
kvikmyndaheimsins. Hann bauð
þriggja ára dóttur sinni, Lorraine,
á körfuboltaleik og tók varla eftir
því að uppáhaldslið hans, Lakers í
Los Angeles, tapaði kirfilega með-
an öll hans athygli var bundin
áhugamálum þeirra stuttu. Og
takið eftir hvað hann er blíðlegur
í framan!
Jack Nicholson viröir ekki aörar
konur viölits en dótturina Lor-
raine og lætur ekki einu sinni
trufla sig að uppáhaldsliöiö
hans íkörfubolta er aö tapa.