Tíminn - 29.04.1993, Qupperneq 3

Tíminn - 29.04.1993, Qupperneq 3
Fimmtudagur 29. apríl 1993 Tíminn 3 Ríkisstjórnin gagnrýnd á Alþingi fyrir aðgerðarleysi og stefnuleysi í sjávarútvegsmálum: Flokkarnir ósammála um stjóm fiskveiða Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra ákvað í fyrrakvöld að Þorsteinn sagði að í þjóðfélaginu hætta við að leggja fram frumvarp um stjóm fiskveiða. Hann sagði væri sæmileg samstaða um að nota að fyrirvarar einstakra þingmanna Alþýðuflokksins við frumvarpið aflamarkskerfið við stjóm fiskveiða. væru of miklir. Össur Skarphéöinsson, formaður þingflokks Al- Hann sagði eðlilegt að það væri þýðuflokksins, visar þessu á bug og segist vera tilbúinn til sam- ágreiningur um útfærslu á einstök- komulags um þau atríði sem ágreiningur sé um en þau lúta aö um atriðum. Leitað yrði málamiðl- sókn smábáta. ana um þessi atriði. Tallð frá vlnstri: Gylfl Þ. Glslason, Bergljót Jónsdóttir (fyrlr hönd Æsu Bjarkar Þorstelnsdóttur), Jóhann Tómas Sigurðsson, Þórdls Hadda Yng- vadóttir (fyrir hönd Ketlls Slgurjónssonar), Páll Matthfasson, Dóra Helða Halldórsdóttlr, Jóna Valdls Ólafsdóttlr og Sverrir Hermannsson. Timamynd Ama Bjama Ríkisstjómin heimilaði sjávarút- vegsráðherra að leggja frumvarp um stjóm fiskveiða, frumvarp um þróun- arsjóð og frumvarp um verðjöfhunar- sjóð fram. Frumvarpið um stjóm fiskveiða er í meginatriðum byggt á tillögum tvíhöfðanefndarinnar. Vikið er frá þeim í tveimur atriðum sem snerta smábáta. Lagt er til að smábát- ar búi við blöndu af sóknarmarki og aflamarki. Frumvarpið gerir ráð fyrir að ákveðinn verði heildarkvóti fýrir krókabáta sem nemi 70% af afla bát- anna á fiskveiðiárinu 1991-1992. Samkvæmt þessu yrði heildarkvóti krókabátanna tæplega 14.000 þorsk- ígildislestir. Gert er ráð fyrir veiði- banni í desember og janúar en að öðm leyti verði fiskveiðiárinu skipt í þrjú tímabil. Fyrsta tímabil yrði sept- ember til og með nóvember, næsta tímabil janúar til og með maí en það þriðja frá júní til og með ágúst. Á fyrsta tímabilinu yrði heildarkvótinn 20% af árskvótanum, á öðm tímabil- inu 25% en á því þriðja 55%. Ef heildarkvóta einhvers veiðitímabils er náð áður en því líkur skulu allar veiðar krókabátanna óheimilar það sem eftir er tímabilsins. Varðandi línuveiðar miða hugmyndimar að því að koma í veg fyrir að aflamark þeirra skipa sem ekki stunda línuveiðar skerðist meira en orðið er vegna línu- veiðanna. Fmmvarpið um verðjöfnunarsjóð gerir ráð fyrir að sjóðurinn verði lagður niður. Innistæður sem enn em í sjóðnum og em á nafni ein- stakra framleiðanda verði greiddar út en aðrar eignir renni til reksturs Haf- rannsóknarstofnunar. Áður hefur verið gerð grein fyrir frumvarpi um þróunarsjóðinn í Tímanum. Þingfiokkar stjómarinnar fjölluðu um frumvörpin í fyrrakvöld og sam- þykktu sjálfstæðismenn þau. Nokkrir þingmenn Alþýðuflokksins gerðu at- hugasemdir við ákvæði um smábáta. Sjávarútvegsráðherra taldi fyrirvar- ana svo mikla að sér væri ekki fært að leggja frumvörpin fram. Málið var rætt milli flokkanna í gær í óformlegum viðræðum en enn sem komið er hafa þær ekki breytt þeirri niðurstöðu Þorsteins að leggja frum- vörpin ekki fram. Flest bendir því til að þau verði ekki lögð fram og að þinghaldi ljúki í fyrstu eða annarri viku maímánaðar eins og upphaflega var gert ráð fyrir. Össur segir ekki ég Svo virtist sem Össuri Skarphéðins- syni hefði komið ákvörðun Þorsteins um að hætta við að leggja frumvörp- in fram á óvart Hann mótmælti því að hann einn hefði stöðvað málið. Andstaðan væri víðtækari. „í meginatriðum ríkir bærileg sátt innan stjómarflokkanna um lang- stærstu atriðin, þróunarsjóðinn, afla- markið og að aflaheimildir skuli vera framseljanlegar. Ég eins og fleiri tel að löggjafinn eigi að sjá til þess að með engu móti verði hægt að mis- nota framsal aflaheimildanna til að skerða kjör sjómanna og ég á von á að það verði gert En um meginatriðin ersátt Einstakir þingmenn hafa hins vegar gert fyrirvara við þann þátt sem lítur að smábátum og slíka fyrirvara er ekki einvörðungu að finna hjá mér og ekki heldur aðeins innan Alþýðu- flokksins. Ég vil ekki liggja á þeirri skoðun minni að ég tel að það sé þjóðhagslega hagkvæmt að hlúa að smábátaútgerð og það kemur raunar mjög skýrt fram í samþykkt síðasta flokksþings Alþýðuflokksins. Ég og aðrir sem eru sömu skoðunar höfum lýst því yfir að við erum reiðubúin til að finna ásættanlega málamiðlun. Þannig að yfirlýsingar góðra manna í fjölmiðlum um skyndilegan dauða þessara tillagna af þessum sökum eru afskaplega ótímabærar svo ekki sé meira sagt,“ sagði Össur. Alþýðubandalagið vill að Alþingi sjálft móti stefnuna Össur sagði þetta í umræðu um þingsályktunartillögu Alþýðubanda- lagsins um mótun fiskveiðistefnu. Tillagan gerir ráð fyrir að sjávarút- vegsnefnd Alþingis endurskoði lögin um stjóm fiskveiða. Fyrsti flutnings- maður er Jóhann Ársælsson og mælti hann fyrir tillögunni í gær. Jóhann sagði að það væri full þörf á því að Alþingi tæki frumkvæði í þessu máli. Ríkisstjómin hefði reynst ófær um að ná fram niðurstöðu um málið. Jóhann gagnrýndi harðlega tillögur tvíhöfðanefndarinnar og sagði: „Það er orðið deginum ljósara að öll end- urskoðun laganna um stjóm fisk- veiða er sýndarmennska sem átti frá upphafi aldrei að bera annan árangur en að festa núgildandi kerfi í sessi.“ Jóhann sagði að verstu gallar kvóta- kerfisins væri byggðaröskun, kjara- skerðing sjómanna og fiskverkafólks og óeðlilegir viðskiptahættir með kvóta. Hann sagði að endurskoðun lagana um stjóm fiskveiða sem ekki tæki á þessum göllum væri engin endurskoðun. Þorsteinn segir Alþýðu- bandalagið stefnulaust í sjávarútvegsmálum Þorsteinn Pálsson gagnrýndi til- löguflutning Alþýðubandalagsins harðlega og sagði hann ekkert annað en auglýsingu á stefnuleysi flokksins í sjávarútvegsmálum. Hann minnti á að Jóhann Ársælsson og sjávarút- vegsráð Alþýðubandalagins hefðu samið frumvarp um nýja stjóm fisk- veiða. Fmmvarpið hefði hins vegar ekki verið samþykkt í flokknum og því hefði flokkurinn lagt fram þings- ályktun um að sjávarútvegsnefhd Al- þingis mótaði sjávarútvegsstefnu flokksins. Fmmvarpið væri hins veg- ar prentað sem fylgisskjal við tillög- una. Þorsteinn hrósaði Álþýðubanda- laginu hins vegar fyrir að hafa hafnað frumvarpi Jóhanns því það væri della. Hann sagðist raunar aldrei hafa lesið frumvarp sem væri önnur eins della. Fleiri þingmenn tóku undir gagnrýni Þorsteins á Alþýðubandalagið. Steingrímur J. Sigfússon (Alb.) sagði Þorsteini ekki fara vel að gagn- rýna aðra fyrir stefnuleysi í sjávarút- vegsmálum. Engin samstaða væri í ríkisstjómarflokkunum um stjóm fiskveiða eins og berlega hefði komið í Ijós síðasta sólarhring. Rddsstjómin stefnu- laus og gerír ekkert meðan fyrirtækin tapa Framsóknarmenn hafa lýst yfir stuðningi við aflamarkskerfið. Jón Kristjánsson (Frfl.) sagði hins vegar að það þýddi ekki fyrir stjómarflokk- ana að treysta á að framsóknarmenn kæmu þeim til bjargar. Stjómin bæri ábyrgð á þeirri stöðu sem sjávarút- vegurinn væri kominn í og það þýddi ekki fyrir stjómarþingmenn að reyna að koma þeirri ábyrgð yfir á fram- sóknarmenn með því að leggja á flótta. Jón vék að ískyggilegum fréttum af rekstri sjávarútvegsfyrirtækja og sagði: „Það eykur ekki bjartsýni á þessum dimmu dögum í rekstri sjáv- arútvegsfyrirtækja að ríkisstjómar- flokkamir skuli ekki einu sinni koma sér saman um að leggja fram frum- varp um nauðsynlegar breytingar á fiskveiðistefnunni, hvað þá aðgerðir gagnvart aðsteðjandi vanda. Núverandi stjómarflokkar lögðu upp með það vegamesti að atvinnu- lífið í landinu ætti að bjarga sér án af- skipta stjómvalda. Þessi trúarbrögð virðast enn vera við Iýði. íslenskur sjávarútvegur er sveiflukennd at- vinnugrein og allt of stór þáttur í okkar þjóðabúskap til þess að ríkis- stjóm á hverjum tíma geti verið stikkfrí af erfiðleikum hans. Hvemig hyggst ríkisstjómin taka á þeim vanda sem nú er uppi? Á að fara nið- urfærsluleið? Á að breyta skráningu gengis? Á að fara leið skuldbreytinga og fjárhagslegrar endurskipulagning- ar eða á ekkert að hafast að og fara gjaldþrotaleiðina sem mun setja þjóðfélagið á annan endann?“ spurði Jón. „Mér er það ljóst að núverandi kerfi er ekki fullkomið enda byggt á vissri sáttagjörð þeirra sem við eiga að búa. Því tel ég að við núverandi aðstæður sé skynsamlegt að bæta núverandi kerfi fremur en að umbylta því. Auð- vitað er það svo, ef af sanngimi er skoðað, að það er ekki sjálf fiskveiði- stjómunin sem vandanum veltur. Það er fyrst og fremst minnkandi afli og alveg afleit rekstrarskilyrði," sagði Stefán Guðmundsson (Frfl.). Stefán ræddi um smábátana og sagði að Alþýðubandalagið og Al- þýðuflokkurinn hefðu komið í veg fyrir það á sínum tíma að fjöldi smá- báta yrði takmarkaður. -EÓ Landsbanki veitir sjö Námustyrki Landsbankinn hefur veitt sjö styrki úr Námunni, námsmannaþjónustu Landsbankans, en þetta er í fjórða sinn sem bankinn veitir slíka styrki. Tæplega 500 umsóknir bár- ust að þessu sinni en félagar í Nám- unni eru um tíu þúsund. Þeir sem styrki hlutu em: Brynjar Skúlason sem er í skógræktamámi Heimir Steinsson og Hrafn Gunnlaugsson: Tímanum barst í gær eftirfar- andi yfirlýsing sem dagsett er 28. ajprfl 1993, undirrituð af Heimi Steinssyni útvarpsstjóra og Hrafni Gunnlaugssyní fram- kvæmdastjóra Sjónvarps: „Undirrítaðir hafa sammælst um að leggja tii hliðar fyrri deil- ur og vinna saman af fullum heilindum að framgangi Rflds- útvarpsins-Sjónvarps. Fyrri skrif og deilur munu látnar liggja f þagnargildl. Hvor aðila mun virða starfssvið hins. Þetta samkomulag er gert til eflingar íslensku sjónvarpi og til þess að stuðla að góðum starfsanda meðal starfsmanna Rfldsútvarpsins- Sjónvarps þannig að notið fái sln við upp- byggingu góðrar dagskrár, áhorfendum tfl fróðleiks og yndisauka. Við væntum þess að þessi yflr- iýsing okkar geti orðið öðrum aðilum, hvort sem þeir standa innan eða utan vébanda stofn- unarínnar, hvatning tii þess að láta frið rfkja um starfseml Rflc- isútvarpsins. Aöalfundur Reykjavíkurdeildar Rauða kross íslands verður haldinn miðvikudaginn 5. maí 1993 kl. 20.30 í „Múlabae", Ármúla 34. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins. Félagsmenn sýni félagsskírteini 1992 við innganginn. Stjórn Reykjavíkurdeildar RKÍ. við Landbúnaðarháskólann í Ási í Noregi, Ketill Sigurjónsson sem er í mastersnámi í Evrópurétti og þjóð- arrétti við London School of Econ- omics, Dóra Heiða Halldórsdóttir nemandi á öðru ári við Þroskaþjálfa- skóla íslands, Páll Matthíasson nem- andi á fimmta ári í læknisfræði við Háskóla íslands, Jóhann Tómas Sig- urðsson nemandi á öðru ári við Menntaskólann á Akureyri og jafn- framt í múraranámi við Verk- menntaskólann á Akureyri, Jóna Valdís Ólafsdóttir nemandi við Fjöl- brautaskóla Suðurlands og Æsa Björk Þorsteinsdóttir glerlistamemi við Myndlistarskólann í Edinborg. í dómnefndinni sem sá um val á styrkþegum vom dr Gylfi Þ. Gísla- son fýrrverandi ráðherra, Almar Ei- ríksson, formaður BÍSN, Sverrir Hermannsson bankastjóri, Kjartan Gunnarsson starfandi formaður bankaráðs og Kristín Rafnar útibú- stjóri Vesturbæjarútibús Lands- bankans. -EÓ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.