Tíminn - 29.04.1993, Page 7
Fimmtudagur 29. apríl 1993
Tíminn 7
Leikur að vonum í Hótel Selfoss:
Labbi í Mánum leikur og syngur
Leikur að vonum heitir söngskemmtun, sem frumsýnd var í Hótel
Selfoss á laugardagskvöld.Tdagskránni flytur Ólafur Þórarínsson,
sem margir þekkja efalítið betur undir nafninu Labbi í Mánum,
mörg af þeim lögum sem hann hefur samið og sungið gegnum ár-
in, en Ólafur hefur veríð í eldlfnu dægurtónlistar á Suðuríandi í tæp
30 ár.
Flutt eru 30 lög í bessari sýningu
og eru þau öll eftir Olaf, að tveimur
undanskildum. Elstu lögin eru af
fyrstu plötu hljómsveitarinnar
Mána, sem kom út árið 1967,
Yngstu lögin eru nýlega samin. Dag-
skráin er mjög fjölbreytt og lögin
sum hver í klassískum útsetning-
um. Jafnframt eru fluttar ballöður
og rokkslagarar.
Ólafúr Þórarinsson hefur eins og
áður sagði verið lengi í fremstu fylk-
ingu í dægurtónlistinni á Suður-
landi, samhliða öðrum störfúm, en
hann er nú svínabóndi á bænum
Glóru í Hraungerðishreppi, skammt
frá Selfossi.
„Það er margt fólk, sem tekur þátt í
þessari sýningu, og það gott fólk,“
segir Ólafur um þá sem með honum
starfa. Þar má nefna söngkonuna
Kristjönu Stefánsdóttur, sem syng-
ur við píanóundirleik Jónasar Ingi-
mundarsonar, blandaður kór syngur
nokkur lög og blásarar úr Lúðra-
sveit Selfoss þeyta hom sín í bar-
áttusöng stuðningsmanna hand-
knattleiksliðs Selfoss.
í síðari hluta sýningarinnar leikur
stórhljómsveit og þar syngja feðgin-
in Ólafur og Guðlaug Dröfn saman,
en Guðlaug hefur verið að hasla sér
völl sem söngkona á síðustu misser-
um. Hún söng meðal annars lag
Geirmundar Valtýssonar í Söngva-
keppni Sjónvarpsins og náði þar
ágætis árangri.
Næsta sýning á Leik að vonum
verður 8. maí. —SBS, Selfossi
Feðglnln Guðlaug Dröfn og Ólafur syngja saman.
í fjárhagsáætlun Bolungarvíkurbæjar 1993 er gert
ráð fyrir 10 milljón króna lækkun skatttekna frá fyrra
ári, eða úr 134 í 124 milljónir. Bæjarstjórinn:
Sveitarfélög frá
Þingeyri að Djúpi
verða að sameinast
„Ég er nú einn af þeim, sem sjá það fýrir sér að ef við ætlum að fara
að sækja fram aftur, þá getum við ekki búið við óbreytt ástand. Það
verður að tengja saman og sameina sveitarfélögin frá Þingeyrí og
hingað norður að Djúpi, en þó ekki með neinu offorsi," segir Ólaf-
ur Krístjánsson, bæjarstjórí í Bolungarvík.
í úttekt, sem Byggðastofnun gerði
fyrir Bolungarvíkurbæ um áhrif þess
ef báðir togaramir fæm úr bænum
ásamt veiðiheimildum, kemur fram
að það mundi hafa í för með sér að
allt að 200 ársverk hyrfú úr plássinu.
Það er um einn þriðji af ársverkum í
bænum, sem vom um 570 árið 1990.
Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið
1993 fékk bæjarstjómin mánaðar-
frest til að ganga frá síðari umræðu
vegna ástandsins í atvinnumálunum.
Á síðasta ári námu skatttekjur bæjar-
ins um 134 milljónum króna, en í ár
er hinsvegar gert ráð fyrir þær
minnki um allt að 10 milljónir og
verði 124 milljónir.
Bæjarstjórinn segist vera í vafa um
hvort áætlunin hafi verið lækkuð
nægjanlega mikið, vegna eftirá
álagningar á atvinnuleysisbætur og
laun með ríkisábyrgð, sem skila sér
því ekki í bæjarsjóð fyrr en á næsta
ári. Þá hefur hægt á öllu innstreymi
til bæjarsjóðs, en þótt fjárhagsstaðan
sé mjög erfið em vansldl nánast eng-
in.
Ólafur Kristjánsson segir að í við-
ræðum við aðila í nágrannabyggðar-
lögunum hafi komið fram af þeirra
hálfú, að þeir eiga fullt í fangi með
sjálfa sig og em því ekki reiðubúnir
til að standa í fjárfestingum í Víkinni
að svo stöddu. En til lengri tíma litið,
þá sé það næsta víst að það verður
meira eða minna samstarf á milli
byggðarlaganna.
„Það, sem hér hefur gersL er óskap-
legt og skelfilegt áfall, sem við stönd-
um nánast berskjaldaðir fyrir. Þegar
ég kom hingað fyrst í sveitarstjóm
fyrir 28 ámm, vom hér malargötur,
það vantaði sundlaug, skóla, íþrótta-
hús o.fl. Á þessum tíma höfum við
byggt hér upp góðan bæ og Iagt
meira af mörkum til uppbyggingar
hans en við kannski máttum gera.“
-grh
Reyklaus dagur í dag:
Rætt um reykingar
kvenna á Borginni
Reyklaus dagur er í dag, fimmtudag, i níunda sinn og sjöunda
áríð f röö hérlendis. Dagurinn hefur veríð tímamótadagur og
margt reykingafólkið hafið reykingabindindi sitt þennan dag.
Rannsóknir sýna að flest reykinga- Nefndin vill enn hvetja fólk til að nýta
reyklausa daginn til þess að ræða og
skipuleggja tóbaksvamir á vinnu-
stöðum, einkum þar sem enn er
reykt
í dag verður opin ráðstefna um kon-
ur og reykingar á Hótel Borg á vegum
Krabbameinsfélags Reykjavíkur. Þá
verður opið hús kl. 12-16 hjá Krabba-
meinsfélagi Akureyrar að Glerárgötu
24,2. hæð, krabbameinsfélögunum á
Austurlandi í heilsugæslustöðinni á
Egilsstöðum.
fólk vill hætta að reykja, en er ekki til-
búið að stíga skrefið til fulls. Reyklaus
dagur getur orðið þeim sá hvati sem
dugar til að losa um þrælatök reyk-
tóbaksins.
Mikilvægur þáttur reyklauss dags er
sá að vekja athygli á afleiðingum
reykinga og þá ekki síður óbeinna
reykinga.
Undanfarin ár hefur Tóbaksvama-
nefnd lagt áherslu á að berjast fyrir
því að vinnustaðir verði reyklausir.
Halldór Bjömsson, forstjórl Gúmmlvlnnustofunnar (Lv.), afhendlr Svelnl Runólfssynl landgræðslustjóra ávfsun
upp á 435.750 krónur, en Gúmmfvlnnustofan hefúr ákveöiö að tfkall af hveiju Norödekki næstu tvö árin rennl til
landgræöslu. Við hllð Halldórs stendur Vlöar Halldórsson, framkvæmdastjóri Gúmmfvinnustofunnar, og vlð hllð
hans Pétur Guöjónsson, sem geról könnun fyrí r Gúmmívinnustofuna á vlöhorfl fólks til Landgræöslunnar og land-
græðslu á fslandi almennt Tlmamynd Aml Bjama
Landgræðslunni berst liðsauki frá Gúmmívinnustofunni:
Tíkall af hverju Norð-
dekki til landgræðslu
Halldór Bjömsson, forstjóri Gúmmívinnustofunnar hf., afhenti í
fyrradag Sveini Runólfssyni landgræðslustjóra ávísun upp á
435.750,- kr. Fyrírtækið hefur ákveðið að láta 10 krónur af sölu sér-
hvers sóiaðs hjólbarða af gerðinni Norðdekk næstu tvö árín renna
til Landgræðslunnar. Norðdekk eru mest seldu dekk á íslandi.
Fýrir réttu ári síðan ákvað ÓIi Kr. græðsluna, svo hægt yrði að koma til
Sigurðsson heitinn, forstjóri Olís hf.,
að láta hluta af andvirði seldra lítra af
bensíni á stöðvum Olís renna til
Landgræðslunnar og hvatti jafnframt
önnur fyrirtæki til að láta einnig eitt-
hvað af hendi rakna til landgræðslu á
íslandi.
Aðstandendur Gúmmívinnustof-
unnar ákváðu að gera það með fyrr-
nefndum hætti, en einnig að kosta
gerð skoðanakönnunar fyrir Land-
móts við viðhorf almennings.
Skoðanakönnun Gúmmívinnustof-
unnar var gerð af fyrirtækinu IMG
stjómunarfræðsla. Fólk af Suður-
landi og Reykjavíkursvæðinu var
spurt hver ímynd Landgræðslunnar
væri í hugum þess, hvað því fyndist
um starfsemi og áherslur og hvem
árangur af starfsemi hennar það teldi
hafa náðst. Þá var spurt hvort fólk
væri sátt við fjárframlög stjómvalda
Geisladiskur Kristjáns í DAS-vinninga
Happdrætti DAS og Kristján Jó-
hannsson tenór hafa gert með sér
samkomulag um útgáfu á safndiski
með Kristjáni Jóhannssyni, þar
sem hann syngur einsöngslög og
þekktar óperuaríur eftir helstu
óperutónskáld sögunnar.
Líklegt er að diskurinn verði í
stærra upplagi en áður hefur þekkst
hér á landi og verður hann ekki seld-
ur í verslunum, heldur verður eina
leiðin til að eignast hann að spila og
vinna í happdrætti DAS.
Geisladiskurinn verður í vinninga í
1. flokki hjá Happdrætti DAS, sem
dregið verður í þann 7. maí næst-
komandi. Þar sem í útdrættinum
eru 80 þúsund miðar alls og heildar-
útgáfa geisladisksins er 79.964 ein-
tök, fá allir þeir, sem ekki hreppa
stærri vinninga, geisladisk. Stærri
vinningar eru 35 ferðavinningar og
íbúðarvinningur að verðmæti 3
milljónir króna.
Kristján hefur sjálfur valið allt efti-
ið á geisladiskinn, sem er það vin-
sælasta af þremur eldri diskum.
Hann gefur eftir allar flytjenda-
greiðslur af efninu og leggur þannig
milljónir króna til DAS og málefna
aldraðra.
Kristján Jóhannsson og Sigurður
Ágúst Sigurðsson, forstjóri DAS,
undirrituðu samninginn um útgáf-
una í Toulouse í Frakklandi fyrir
nokkmm dögum.
til landgræðslu, viðhorf til umhverf-
ismála almennt, samskipta Land-
græðslunnar við önnur félagasamtök
og hvemig kynning á starfi stofnun-
arinnar hefði skilað sér.
Af svömm má ráða að fólk telji að
Landgræðslan sé almennt á réttri leið
í starfsemi sinni, en þurfi að efla
tengsl við félagasamtök og einstak-
linga sem vilja leggja hönd á plóg.
Það þurfi að gera með aukinni kynn-
ingu og auglýsingum. Þá telur mikill
meirihluti að stjómvöld ættu að auka
framlög til landgræðslu. Aðeins 1%
taldi að þau ætti að minnka.
„Ég tel að þessi könnun komi okkur
að miklum notum,“ segir Sveinn
Runólfsson landgræðslustjóri. „Við
störfum að sjálfsögðu fyrir þjóðina að
því að græða og vemda landið okkar,
og viðhorf hennar er því okkur mjög
mikils virði," sagði Sveinn. Sveinn
segir að þrátt fyrir að Landgræðslan
hafi lagt meiri áherslu á kynningar-
starf en margar aðrar stofnanir, þá
hafi sér komið þægilega á óvart að
fólk virtist óska eftir meiri kynningu
og upplýsingum. „Við emm greini-
lega á réttri braut, en betur má ef
duga skal í þessum efnum,“ sagði
Sveinn Runólfsson landgræðslu-
stjóri. —sá