Tíminn - 29.04.1993, Page 8
8 Tíminn
Fimmtudagur 29. apríl 1993
Framsóknarfélögin í Hafnarfirði
Opið hús að Hverfisgötu 25 alla þriöjudaga kl. 20.30.
Komlð og fáið ykkur kaffisopa og spjallið.
Fnmsóknaríélögln
Stjómarfundur SUF
Fundur veröur haldinn f stjóm SUF laugardaginn 8. mal nk. kl. 16:00. Fundar-
staður er Framsóknarhúsið, Suöurgötu 3 á Sauðárkróki.
Dagskrá:
1. Starf SUF næstu mánuði.
2. Sveitarstjömarkosningamar 1994.
3. Alyktanir.
4. Önnur mál.
Eftir fundinn um kl. 20 verður opið hús á sama stað. Þá fer fram 2. riöill undan-
keppni NoNu-keppninnar og eru allir velkomnir þangaö.
Framkvæmdastjóm SUF
Breyttur afgreiðslutími
Stjómarráðs íslands
Frá og með 3. maí næstkomandi verður almennur af-
greiðslutími Stjórnarráðs íslands ftá Id. 8.30 árdegis til kl.
16.00 síðdegis.
Forsætisráðuneytið.
RÆSTING
Innkaupastofnun rlkisins fýrir hönd dóms- og kirkjumálaráðu-
neytisins óskar hér með eftir tilboðum I þrif (ræstingu og hrein-
gemingu) húsnæðis embætta og stofnana, er undir ráðuneytið
heyra á höfuðborgarsvæðinu.
Alls er um að ræða 10 embætti og stofnanir og eru helstu kenni-
tölur þrifa eftirfarandi:
Árieg reglubundin ræsting 13.786 m2
Hreingeming, teppahreinsun og
bónun gólfs á fyrsta ári 9.153 m2
Útboðsgögn verða seld hjá Innkaupastofnun ríkisins, Borgartúni
7, Reykjavik, frá og meö fimmtudeginum 29. apríl 1993 og
kosta gögnin 6.225,- m/vsk.
Tilboð skulu hafa borist Innkaupastofnun ríkisins eigi siöaren
þriöjudaginn 25. mai 1993, kl. 11:00 og verða þau þá opnuö I
viðurvist viðstaddra bjóðenda.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7.105 REYKJAVÍK
Alúðarþakkirflyt égjjölda einstak-
linga víðsvegar um land og félagasamtök-
um, sem sýndu mér vináttu og hiýju við 80
ára aldursmörkin þann 18. mars s.l. með
góðum gjöfum, heillaskeytum, bréfum og
ýmsum öðrum hœtti.
Með kærri kveðju og bestu sumaróskum.
Akranesi, 22. apríl 1993
Daníel Agústínusson
Bændur
16 ára strákur, vanur sveitastörfum (er úr sveit), óskar eftir
vinnu í sveit.
Upplýsingar í síma 98-65502.
MUTTyfoin mrr l
uos rgjZ uos/ J
Eru yfirvöld að
ganga af göflunum?
Utanríkisráðherra íslands gerist nú
all breiður á erlendum vettvangi og
hvetur til loftárása og frekari mann-
fóma á átakasvæðum á Balkan-
skaga. Hið afar viðkvæma og flókna
deilumál, sem þar hefur kostað þús-
undir mannslífa, er og verður við-
fangsefni meginlandsþjóðanna, sem
allar götur frá því er þessi lönd
byggðust hafa staðið í endalausum
styrjöldum og óáran. Afskipti og
hvatning hinnar vopnlausu íslensku
þjóðar til enn frekari manndrápa í
okkur óviðkomandi landi er bæði
hættulegt og hrokafullt athæfi,
ósamboðið íslendingum með öllu.
íslendingar hafa skuldbundið sig til
þess að greiða 0,1% af stofnfé svo-
kallaðs þróunarbanka Evrópu. Þessi
fúlga er einar litlar 750 milljónir og
eiga 30% þess fjár að greiðast fyrir
árið 1995. Höfum við efni á að sól-
unda hundruðum milljóna í botn-
lausa hít og lúxus ráðamanna þessa
skrípa-banka, sem hefir eytt um 200
milljörðum í einkaþotur, lúxushótel
Lesendur skrifa
og annað brjálæði, í stað þess að
veita fjármunum til uppbyggingar
Austur-Evrópu? Loks hefur gengið
fram af Bretum, sem hafa verið vitni
að ósköpunum. íslendingar ættu að
huga vel að hvemig íslensk stjóm-
völd fara með fé landsmanna, með-
an þau segja að velferðarkerfið sé
okkur oíviða hér.
Nú em blómasalar æfir yfir að geta
ekki grætt á innflutningi blóma til
landsins. Flestir munu álíta að ís-
lensk blóm séu okkur nóg og því út í
hött að hefja innflutning á erlend-
um blómum. En er ekki að koma
betur í ljós, að samningurinn um
EES dregur okkur út í fen, sem
þjóðin mun að lokum dmkkna í, en
erlend fyrirtæki hirða auðlindimar?
í Morgunblaðinu þann 1. apríl s.l.
segir Friðrik Daníelsson efhaverk-
fræðingur í grein m.a.: „Svo virðist
sem yfirvöld orku- og iðnaðarmála
og sérfræðingar þeirra séu farin að
eyða tíma sínum og fé almennings í
að koma auðlindum landsins ónýtt-
um í hendur útlendinga..."
Já, það er vissulega kominn tími til
að íslensk þjóð vakni til meðvitund-
ar um, að hér er veruleg hætta á
ferðum, hætta sem án efa mun leiða
til þess að íslendingar missi með
öllu sjálfstæði sitt og fullveldi í
hendur þeirra, sem síst skyldi.
Stani
Siðleysi
Damage ★ ★★
Handrit: Davld Hare. Byggt í samnefndrl
skáldsögu Josephine Hart
Framlelöandi og leikstjóri: Louis Malle.
Aðalhlutverk: Jeremy Irons, Jullette
Blnoche, Miranda Rlchardson, Rupert
Graves, lan Bannen og Leslie Caron.
Regnboglnn.
Bönnuð Innan 12 ára.
Franski leikstjórinn Louis Malle á
nokkuð brokkgengan feril að baki,
en hefur gert nokkrar mjög góðar
myndir eins og Atlantic City
(1980) og Au revoir, les enfants
(1987). Myndir hans hafa stundum
vakið hneykslan fólks og sjálfsagt
er Pretty Baby (1978) þekktasta
dæmið um það, en hún fjallaði um
barnavændi. Siðleysi er byggð á
metsölubók Josephine Hart, en
það var breska leikritaskáldið Dav-
id Hare sem gerði handritið upp
úr henni. Efnið er allsérstætt og
hefur vakið umræðu, þó ég dragi í
efa að myndin hneyksli marga,
eins og sagt er í auglýsingum um
hana.
Sagan er á þá leið að Stephen
Fleming (Irons), þingmaður á
uppleið f breska íhaldsflokknum,
verður samstundis ástfanginn af
hinni frönsku Önnu Barton
(Binoche) þegar hann hittir hana
fyrsta sinni. En málið er flóknara
en það, því hann hefúr til margra
ára verið giftur Ingrid (Richard-
son) og Anna er kærasta Martyns
(Graves), sonar hans. Anna endur-
geldur ást hans, þau taka að hittast
reglulega og elskast og Stephen
verður algerlega heltekinn af sam-
bandinu. Fortíð önnu er sveipuð
Innan breska íhaldsflokksins
eru uppi háværar kröfur um
þjóðaratkvæðagreiðslu um Ma-
astricht- samninginn, sem nú er
til umfjöllunar í þinginu. Því
veldur einkum þrennL í nóvem-
ber 1992 greiddu 26 þingmanna
íhaldsflokksins atkvæði gegn
samningnum, er honum var vís-
að til nefndar, og andstæðingum
hans innan flokksins fer fjölg-
andi. í vikunni eftir páska kemur
til atkvæðagreiðslu á þingi um þá
tillögu frá Verkamannaflokkn-
dulúð og Ingrid líkar ekki alls
kostar við hana, en bæði Stephen
og henni bregður í brún — ástæð-
an er þó ekki sú sama — þegar
Martyn tilkynnir þeim að þau ætli
að giftast, og eftir það virðist upp-
gjör óumflýjanlegt.
Það er hægur stígandi í sögunni,
en myndin verður samt aldrei
langdregin og alltaf er nokkur
spenna um hvað næst gerist.
( Viaskipti
um, að félagsmálasamþykkt EBE
(social chapter) verði tengd
samningnum. Og þá eru nokkrar
líkur á, að lávarðadeildin mæli í
sumar með þjóðaratkvæða-
greiðslu. Þótt neðri deildin geti
hafnað þeim tilmælum, yrði það
ekki vandkvæðalaust fyrir íhalds-
flokkinn. (Skv. Sunday Times 4.
apríl 1993, forsíðu).
Helsti gallinn við söguna er að ást-
arsamband Stephens og önnu
verður á stundum dálítið tilgerð-
arlegt og það er e.t.v. einum of
mikið fært í stílinn. Að öðru leyti
eru samskipti persónanna vel
skrifuð og sérstaklega þá uppá-
komumar sem óneitanlega verða
þegar öll fjölskyldan hittist, en það
er oft ansi fyndið að fylgjast með
Martyn ræða um kærustuna sína
fallegu við pabba sinn, sem hann
heldur auðvitað að þekki hana lítið
sem ekkert
Siðleysi er unnin af fagmennsku
tæknilega séð og Malle hefur feng-
ið í lið með sér tökumanninn Pet-
er Biziou (Mississippi Buming),
sem vinnur verk sitt vel, og tónlist
Zbigniews Preisner er góð og mjög
í takti við efnið.
Leikaramir em allir fyrsta flokks,
en það mæðir auðvitað mest á Jer-
emy Irons og Juliette Binoche
(Óbærilegur léttleiki tilverunnar).
Þau sýna bæði afbragðs leik í krefj-
andi hlutverkum, en þegar upp er
staðið er það þó Miranda Richard-
son sem stendur upp úr. Hún er
frábær f sínu hlutverki og var til-
nefnd til Óskarsverðlauna fyrir
bragðið.
Að lokum vil ég gera að umkvört-
unarefni nokkuð, sem fer í taug-
amar á öllum kvikmyndahúsa-
gestum. Það er þegar gert er hlé á
myndum á viðkvæmum stöðum.
Þegar undirritaður sá þessa mynd,
var gert hlé í miðju ástaratriði,
áhorfendum til mikillar gremju.
Hlé þarf auðvitað ekki að vera ná-
kvæmlega í miðri mynd og það á
auðveldlega að vera hægt að finna
góðan stað fyrir það í öllum mynd-
um. örn Markússon
Kröfur um þjóðar-
atkvæðagreiðslu
r innan breska
íhaldsflokksins