Tíminn - 04.06.1993, Page 8

Tíminn - 04.06.1993, Page 8
8 Tíminn Föstudagur4. júní 1993 Sjötugur: Gunnar Dal Mér er tjáð að vinur minn, Gunnar Dal, sé að verða sjötugur 4. júní í ár. Sá maður hefur lagt mikið af mörk- um til skáldskapar og heimspekisögu. Núna seinast hefiir hann auk annars sent frá sér 5 bæklinga um heims- myndir hinna ýmsu fræðigreina. Lýs- ir hann þar þróunarferli heimsmynd- arinnar hjá manninum frá því að hann fyrst byijaði að hugsa þangað til aðrar greinar höfðu bæst við. Þetta er framhald af bókinni „Heimsmynd okkar tírna" sem hann gaf út fyrir tfu árum (1983) og lýsti þróun heims- myndarinnar frá árinu 1965, en það ár markaði viss tímamót. Því tala ég fyrst um þetta, að þegar ég stundaði nám í guðfræði um 1965 var hörgull á bókum sem sögðu okkur frá heims- myndum aldanna. Á þann skort reyndi stundum í tímum í trúar- bragðaheimspeki hjá séra Jóhanni Hannessyni prófessor. Úr þessari þörf hefur Gunnar bætt á þann einfalda hátt, sem honum einum virðist mögulegL Þegar fólk á um sárt að binda, hef ég tekið eftir, leitar það oft huggunar í ljóðabók sem Gunnar þýddi eftir kristið skáld að nafni Kahlil Gibran. Þar er um að ræða „Spámanninn", sem selst hefur í 30 þús. eintökum og oft er vísað til f minningargreinum við hlið versa eftir séra Valdimar Bri- em. Þetta á ekki að verða bókatal, heldur nefni ég þetta til að benda á spor sem Cunnar hefur skilið eftir sig, og eins og Ágústínus kirkjufaðir segir, eru sporin merki um einhverja lifandi veru. Gunnar hefur verið mér og mörgum öðrum, sem sitjum á Café Hressó („Skálanum" hinum eina og sanna) á morgnana, slík lifandi vera, sem hefur mótað fótspor sfn f sálir okkar. Hann er platónisti fram í fing- urgóma, hughyggjumaður sem hefur þurft að berjast við efnishyggjutrúar- brögð liðinnar aldar, og oft hefur hon- um sámað þegar fulltrúar þeirra trú- arbragða hafa beint að honum spjót- um sínum. Ég hefi tekið eftir því, að margir hafa talið sér skylt að ráðast á þennan fulltrúa hughyggjunnar, en hann hefur brugðið skjótum brandi mót slíkum öflum. FVrstu bækur Gunnars Dal las ég þegar systir mín keypti sér „Rödd Ind- lands“ (1953) og „Þeir spáðu í stjöm- umar“ (1954). Þá strax tók ég eftir einfaldleikanum f frásagnarstíl hans, sem allir leikmenn eiga að geta skilið. En það er fyrst síðustu 15 árin eða svo, sem ég hefi notið daglegra sam- vista við manninn um lengri eða skemmri tíma. Mér em minnisstæðar margar frásagnir úr Indlandsför hans um 1950, en þar lenti hann að sjálf- sögðu í merkilegum ævintýrum. Einu sinni villtist hann inn í glæpahverfi í Bombay, en það varð honum til lífs að bera á höfðinu einkennishúfu lög- reglustjórans í Bombay, sem af ein- hverju undarlegu tilefni hafði lent á fomsölu í London, þar sem fslending- urinn ungi fékk hana ódýrt — Auð- vitað án þess að hafa hugmynd um hverslags höfuðfat þetta væri! Gunnar Dal er kunnáttumaður í ljóðagerð. Hann stendur föstum fót- um f íslenskri skáidskaparhefð. Hann er sálufélagi Davíðs Stefánssonar, sem hann hyllti, að mér skilst, í nafnlausri grein í Mbl. á sextugsafmæli skálds- ins. Hann forsmáir þó ekki önnur Ijóðform, ef honum þykir þau ein- hvers virði, svo sem þýðingar hans á Ijóðum Gibrans og Tagores bera vott um. („Spámaðurinn" (10 útgáfur frá 1958) og „Mannssonurinn" (2 útgáfur frá 1986) eftir Gibran, en „Móðir og bam“ (1964) eftir Tágore). Nýjasta dæmið er í ljóðabók hans sjálfs: „Hús Evrópu" (1991). Gunnar hefur flokk- að ljóðagerð í nokkra flokka efdr gæð- um, formi og innihaldi. í efsta flokkn- um trónir „Faðirvorið" einsamalt. Það er best að segja honum núna, að nýlega las ég lærða þýska bók um upphaf endaríms. Höfundurinn telur þar, að „Faðirvorið" hafi upphaflega verið með endarími, og leiðir hann til þess rök frá Samverjum og úr Alex- andríu-kristni. Þessi rannsókn bendir á endarímið sem þróað form í Jerúsal- em á dögum Krists. Gunnar Dal er kristinn maður, en það jafngildir engan veginn því að við- urkenna danska, norska eða sænska guðfræði (en þær hafa mótað kenni- menn þjóðkirkjunnar á þessari öld). Nei, trú hans er trú heimspekings, sem mótaður er af kynnum við þrjá menningarheima: grískan, vesturevr- ópskan og fom- indverskan, einkum búddískan. Þess vegna talar hann um „öxulöldina": tímann sem ól Pýþagór- as, Plató, Búdda, Lao Tse og Jesaja. Hann heldur því meira að segja fram, að það geti ekki verið tiiviljun að nöfn Pýþagórasar, Búddas og Lao Tses merkja öll „hinn uppljómaði". Það segir hann að minnsta kosti. Honum líst ekkert á ýmsan misskilning Vest- ur-Evrópumanna á búddisma, sem grundvallast á slæmri franskri þýð- ingu í upphafi nítjándu aldar, en Schopenhauer las þessa þýðingu og bjó sér til túlkun á „Nirvana", sem á sér enga stoð í veruleikanum, en hef- ur engu að síður riðið húsum í há- skólum Vesturlanda síðan og farið inn í menntaskólabækur að auki. Kristin- dómur Gunnars birtist m.a. í jólaljóði hans, sem Jón Ásgeirsson samdi kór- lag við, sem mig minnir að hafi verið flutt í alþjóðlegri jóladagskrá fyrir nokkrum árum. Ljóð þetta, ,Á jóla- nótt“, birtist fyrst í bókinni „Kastið ekki steinum" (1977). Önnur ljóð um kristna trú eru m.a. „TVú mín“ („Öld fíflsins“ 1981) og „í Péturskirkju" („Land minna mæðra" 1988). Sjálfur á ég Gunnari Dal að þakka ábendingar hans um guðshugtakið „fs“, sem ég að vísu gleypti ekki við svo auðveldlega, fyrr en ég eftir nokk- ur ár hafði komist á snoðir um ýmis atriði, sem studdu orð hans. Greinar mínar birtust síðan í Mbl. árið 1987 og síðar í Alþýðublaðinu og Tíman- um. Ég hefi safnað fleiru í sarpinn þann. Skáldsögur hans eru athyglisverðar að ýmsu leyti. Má ég minnast á sögu hans úr stúdentabyltingunni, ,Á heitu sumri" (1970). Tvær bækur hans eru sögur úr indversku þorpi, þar sem nútíminn kveður sér hljóðs í formi samvinnuhreyfingan „Kamaia" (1976); „Gúru Góvinda" (1980). í þessum bókum, einkum þeirri síðari, má finna einhver spámæli um nútíma sögu. Önnur þessara bóka var send til UNESCO, Menningar- og fræðslu- samtaka Sameinuðu þjóðanna, f þeirri von að þeir vildu setja hana á bókalista sinn yfir góðar bækur. UN- ESCO veitti þá umsögn, að þeir gætu engan veginn mælt með henni, því að í henni væri ráðist á yfirvald í þriðja heiminum, en það var fjöldamorðing- inn Pol Pot í Kambódíu (Ég hefi séð bréfið). Fjórða skáldsaga hans heitir „Orðstír og auður" og fjallar um dramatíska atburði í einhverri skáld- legri Reykjavík og skáidlegu Amar- felli, og endar bókin sú á gosi f fellinu. Nú sendir útgefandi hans frá sér fimmtu skáldsögu hans. Fyrir tíu árum var Gunnari Reykja- vík einkar hugleikin, og orti hann þá tvær ljóðabækur: „Hundrað ljóð um Lækjartorg (1982) og „Borgarljóð" (1986). Áður hafði hann ort bók um „Lífið á Stapa“ (1979). Allar þessar bækur geyma stemningar um einstök atriði í menningu og lífi á þessum stöðum. Mér þykir Ld. skemmtileg samlíking spörfuglsins í pollinum og kaffikarlanna á „Skálanum". Seinasta ljóðabókin hans er ort í skugga Evrópubandalagsins: „Hús Evrópu" (1991), og spáir framrás mánans (múslíma) til norðurs á næstu áratugum. Hann býr til lík- ingamál um hús mannsins, sem fellur þegar hús Evrópu verður til og „feg- urð heimsins / fölnar / í mósku tím- ans“ (þ.e. tilvísun til mengunarinn- ar). Þama segir hann eftirfarandi orð um landið okkar: J?nn veður heimurim i skýjum sínum. Landokkarfs hvílir i svölum draumi. “ Megi þessu landi, íslandi, verða forð- að frá þeim óblíðu örlögum sem Evr- ópu bíða samkvæmt þessari bók. Ég og aðrir kaffifélagar á „Skálan- um“ óskum Gunnari Dal til hamingju með sjötugsafmælið. Kolbeinn Þorieifsson Framsóknarfélögin í Hafnarfirði Opiö hús aö Hverfisgötu 25 alla þriöjudaga Id. 20.30. Komiö og fáiö ykkur kaffisopa og spjalliö. Fnrnsóknarfótögln Sumartími skrifstofu Framsóknarflokksins Frá 17. mal veröur skrifstofa Framsöknarflokksins I Hafnarstrœti 20, III hœð, op- ln frá kl. 8.00 til 16.00 frá mánudegi til föstudags. Veriö velkomin FnmsóhnartloUaMim Maöurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi Daníel Fríðrík Guðmundsson fynverandl bóndi og oddvW Efra-Sell, Hrunamannahreppl veröur Jarösunginn frá Hrunakirkju laugardaginn 5. júni kl. 14. Blóm vin- samlegast afþökkuö, en þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarfé- lag aldraöra, Hrunamannahreppi, eöa Styrktarfélag lamaöra og fatlaöra. Ástriöur Guðmundsdóttfr Helgl E. Danfelsson Ásdfs Danfetsdóttir Ástríður G. DanfelsdótUr Jóhanna S. DanfelsdótUr " ___________________________________________J Eiginmaður minn Óskar Helgason fyrrverandi stöövarsfyóri Pósts og sfma Höfri, Homaflröl andaöist á gjörgæsludeild Borgarspltalans miövikudaginn 2. júnf s.l. Guöbjörg GisladótUr r Asa Jónsdóttir uppeldisfrœðingur og kennari Fædd 28. febrúar 1919 Díin 20. maí 1993 Fallin er f valinn þjóðkunn kona á efri árum. Þannig er þessu lífi varið, að kemur að því, að hjartað hættir að slá. Til hvers lifum við hér á jörðu? Til að ná sjötíu ára aldri eða ríflega það? Til að eignast íbúð? Til að mennta okkur og vinna eins og víkingar í um fjóra áratugi, áður en okkur er sagt að nóg sé komið af svo góðu? ÖIlu verðum við að skila við leiðarlokin. Er nema von, að margir efist um að lífið hafi tilgang, þegar svona er í pottinn búið? Ása Jónsdóttir fæddist á sveitabæn- um Ásum í Svínavatnshreppi í Aust- ur-Húnavatnssýslu. Þar ólst hún upp f hópi systkina. Systur átti Ása þrjár: Guðrúnu ljósmóður, fædda 1915, dána 1946; Helgu saumakonu, fædda 1911, dána 1989; og Soffíu húsmóður, fædda 1916, dána 1991; einnig bróðurinn Gísla, bónda á Stóra-Búrfelli í Svínadal, fæddan 1912, dáinn 1985. Með Ásu er nú þessi systkinahópur genginn þá götu, sem til grafar liggur. Foreldrar Ásu voru Anna Jónsdótt- ir frá Sauðanesi f Torfalækjarhreppi, systir Páls bónda þar, föður Páls Sig- þórs lögmanns og þeirra mörgu systkina, og Jón Gíslason frá Austur- hlíð í Blöndudal. Hann lést 1936, aðeins 55 ára, af afleiðingum slyss, en Anna lést 1948,67 ára. Ekki varð þeim aldurinn að meini. Bæinn Ása ber hátt á Ásum, vestan Blöndu. Líklega hefur það verið fyrsti bærinn sem ég leit, er ég hélt niður Strjúgsskarð frá Refsstöðum á vit byggðar og þjóðleiðar. Hún lauk almennu kennaraprófi frá Kennaraskóla íslands vorið 1942, fyrir rúmlega hálfri öld, en það ár útskrifuðust 30 kennarar og einn stúdent. Kennaraviðkoman var ekki meiri en þetta um langt árabil. Úr þessum hópi eru nú allnokkrir falln- ir frá, og enginn lengur við keijnslu- störf. En Ása lét ekki staðar numið við að mennta sig, er náminu í Kennara- skólanum lauk. Hún hélt til Banda- ríkjanna á miðjum stríðstímanum (1943) og stundaði nám í uppeldis- og sálarfræði við háskóla í Minnes- ota og Norður-Dakota. Hún lauk MS-prófi frá síðamefnda skólanum árið 1947. Auk þessa náms sótti hún námskeið, bæði austan hafs og vest- an. Eftir að heim kom, vann Ása við gáfnapróf hjá dr. Matthíasi Jónas- syni um tíma. Stundakennari var hún um árabil við Kvennaskólann í Reykjavík og við Húsmæðraskólann á Staðarfelli. Hún var stundakennari og fastur kennari um tíma og tíma við aðra skóla. Sést af þessari upp- talningu, að kennslaÁsu var nokkuð brotakennd framan af. Heildstæðasta kennslutímabil Ásu var, er hún stýrði og rak einkaskóla fyrir ung böm í Breiðholti og bar nafn hennar. Áreiðanlega minnast margir nemenda þessa skóla og víð- ar frá, Ásu við leiðarlokin. Mér skilst, að hún hafi notað sálfræði- kunnáttu sína skólakennslu sinni til framgangs. Einhvem tíma spurði ég Ásu að því, hvemig hún faeri að því að halda aga, sem mér skilst að hafi verið góður hjá henni. Þá sagði hún þau orð, sem ég aldrei gleymi: ,Álað- ur verður að hafa stálklær í silki- hönskum!" Og sannarlega er góð stjóm og skynsamlegur agi forsenda alls gengis í skóla. Það skildi Ása vel. í gegnum kennslu sína og skóla- stjóm eignaðist Ása marga trygga vini, en þess þarfnaðist hún sannar- lega, einkum seinni árin, er hún var orðin ein á báti, eftir að hjónabandið leystist upp. Hún var góð og hlý sál, og viðkvæm í lund. Ása var Iöngum fjárhagslega sjálf- stæð og bjó í eigin íbúð. Þó brá hún á það ráð á s.l. hausti að flytjast til Sauðárkróks tímabundið, að Skag- firðingabraut 49, en þar býr Þorvald- ur Erlendsson frá Tungunesi, næsta bæ við æskuheimili Ásu. Þar kunni hún vel við sig, átti góða vini og blandaði við þá geði. Nokkur síðustu árin var heilsufar Ásu ekki upp á það besta. Hún hélt til Bandaríkjanna, dvaldist þar um tæpt ár og gekkst undir miklar læknisaðgerðir á æðakerfinu. Þá lá hún nokkrum sinnum í sjúkrahús- um hér heima, vegna sams konar veikinda. Seinast í vetur var hún um skeið til lækninga. Margar ferðimar hélt Ása til út- landa um sína daga, aðallega til enskumælandi Ianda, sem eðlilegt var, þar eð tunga þeirra var henni töm. Er hún lésL var hún nýkomin frá Florida, þar sem hitastigið er oft býsna hátL Mun Ása ekki hafa þolað þann mikla hitamun sem er þar og hér á norðurslóð. Hún andaðist, eft- ir að hafa fengið slag, í Sjúkrahúsi Skagfirðinga á Sauðárkróki aðfara- nótt 20. maí s.l., 74 ára að aldri. Hún var barnlaus. Oft barst tal okkar Ásu að dauðan- um, þessum fylginaut mannlegs lífs. Ekki var hún sátt við hann. Þrátt fyrir margt mótdrægt var henni lífið þetta kærL Hún nam staðar alllanga ævi á bakkanum héma megin. Mér fannst mér skylt að minnast hennar. Fari hún í friði, friður Guðs hana blessi. Auðunn Bragi Sveinsson

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.