Tíminn - 05.06.1993, Page 3

Tíminn - 05.06.1993, Page 3
Laugardagur 5. júní 1993 Tíminn 3 Þeir sem stjómuðu samningagerð aðila vinnumarkaðarins voru þeir sem vilja gera minnstar kröfur til kjarajöfnunar í landinu. BSRB: Afleiðingin er aukin misskipting Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, segir að þeir sem stjómuðu samningagerð aöila vinnumaritaðarlns hafi verið þeir sem vilja gera minnstar kröfur til Iqarajöfounar í landinu. Hann segir einníg að samfé- lagið súpi nú seyðið af því með aukinni misskiptingu. Jafnframt sé það að koma æ betur i Ijós sem opinberir starfsmenn vöniðu rtrekað við að samningamir myndu hafia í för með sér enn frekari niðurskurð í sam- neyslunni og þaðan sé verið að ftytja störf yfir í verktakabransann. ögmundur Jónasson, formaður BSRB, segir að þeir sem stjómuðu samningagerð aðila vinnumarkaðar- ins hafi verið þeir sem vilja gera minnstar kröfur til kjarajöfnunar í landinu. Hann segir einnig að sam- félagið súpi nú seyðið af því með aukinni misskiptingu. Jafnframt sé það að koma æ betur í ljós sem opin- berir starfsmenn vöruðu ítrekað við að samningamir myndu hafa í för með sér enn frekari niðurskurð í samneyslunni og þaðan sé verið að flytja störf yfir í verktakabransann. j'jármálaráðherra hefur sagt að það þurfi að skera niður hjá rikinu, sameina stofnanir og leggja aðrir niður. Hann hefur jafnframt látið hafa eftir sér opinberlega að hann hvorki geti né vilji segja hvaða stofn- anir þetta séu. Svona þýðir auðvitað ekki að tala. Menn verða að koma hreint til dyranna og segja hvað það er sem fyrir þeim vakir. Hér er um að ræða störf fólks og það þýðir ekk- ert að tala í svona véfréttarstfl. Við viljum fá að vita hvað stjómvöld eru að hugsa og hvaða ákvarðanir hafa verið teknar," segir ögmundur Jón- asson, formaður BSRB. Forysta BSRB, BHMR, Kennara- sambands íslands og bankamanna hefur verið boðuð til fúndar við full- trúa ríkisstjómar á mánudag klukk- an 14. Á þeim fundi verður rætt um atvinnumál, kjör og réttindi félags- manna ofangreindra samtaka f Ijósi aðildar ríkisins að kjarasamningi á almennum vinnumarkaði. En skuld- binding ríkissjóðs vegna kjarasamn- ingsins er talin nema allt að á 3,5 milljörðum króna á samningstím- anum, eða til ársloka 1994. Jlaður hlýtur að gera ráð fyrir því að þetta sé byggt á einhverri rök- hugsun og það sé einnig búið að kannað málið til hlítar og menn séu búnir að hugsa hvemig þeir ætli sér að bregðast við þessu. Það er það sem við viljum fá að vita á þessum fundi, en síðast en ekki síst hvernig þeir ætla sér að fjármagna þær skuldbindingar sem ríkissjóður hef- ur tekið á sig,“ segir formaður BSRB. Aðildarfélög starfsmanna í opin- berri þjónustu og stéttarfélag banka- manna hafa verið með lausa samn- inga frá því snemma á þessu ári. Þrátt fyrir stóryrtar yfirlýsingar sl. haust um nauðsyn þess að allt launafólk stæði saman í kröfugerð um tekjujöfnun og varðstöðu um velferðarkerfið, þá reyndist það meira og minna byggt á sandi. Þess í stað fóm leikar þannig að ASÍ og VSÍ sömdu sín á milli um kröfugerð á hendur ríkinu án þátttöku opin- berra starfsmanna. „Það sem virðist hinsvegar vera að gerast er að menn em að færa til störi úr samneyslunni yfir í verk- takabransann. Þannig að það er allt að ganga eftir sem við vömðum við. í rauninni var það mikill ábyrgðar- hluti af hálfu ASÍ að ganga frá kjara- samningum sem em samfélagslegir að því leyti að þeir snerta allt þjóðfé- lagið, án þess að leita eftir breiðri samstöðu launafólks í landinu. Þetta er að sjálfsögðu algjörlega ósættan- leg vinnubrögð og til þess eins að kljúfa samstöðu launafólks í land- inu.“ Ögmundur Jónasson segir að það sé afar slæmt að samstaða launa- fólks skuli hafá verið klofin með þessum hætti. Hann segir að ef litið sé um öxl þá virðist það hafa verið aðalmarkmið forystu ASÍ að halda Alþýðusambandinu saman. „Þeir sem réðu svo taktinum vom þeir sem vildu gera hvað minnstar kröfúr til kjarajöfnunar í landinu. Þetta stjómaði samningagerð aðila vinnumarkaðarins og sá sem sýpur seyðið af þessu er samfélagið allt sem horfir uppá aukna misskipt- ingu.“ -grh Knatt- spyrna um helgina Laugardagur 1. deild karla Þór A.-ÍA..........kl. 16 1. deild kvenna KR-Þróttur N.......kl. 14 Stjaman-Valur......kl. 14 ÍBV-UBK ............kl. 14 ÍBA-ÍA.............kl. 14 2. deild karla UBK-Þróttur R......kl. 14 2. deild kvenna Bf-FH..............kl. 14 Reynir S.-Selfoss ..kl.14 Leiftur-Tindastóll .kl. 17.30 3. deild Reynir S.- Magni ...kl. 14 4. deild Léttir-Hamar.......kl. 13.30 HB-Víkingur Ó......kl. 14 Árvakur-Snæfell ....kl. 17 Hafnir-Emir ........kl. 14 HSÞ.B-Hvöt.........kl. 14 KS-Dagsbrún........kl. 14 Sutmudagur 1. deðd karla KR-Víkingur........kl. 20 Mánudagur 1. deild karh ÍBK-Fram ...........kl. 20 Valur-ÍBV..........kl. 20 FH-Fylkir..........kl. 20 Ferðir SL með eldri borgurum: ... ....«iiiiMMiiewinmMIIHI«IIfflr f Hressari, friskari m j i.j ra ■ ■ ■ * nr Megin markmið „Kátra daga“, ferða eldri borgara, erað farþegarnir komi heim hressari, frískari og um fram allt kátari en hair \/nrii f\/rir jjoii vuiu iy i n. kátari! Þess vegna er dagskráin létt, mikið sungið og dansað, málin rædd í rólegheitum og rómantíkin blómstrar. Asthildur Pétursdóttir fararstjórinn vinsæli. Mallerca 7. - 28. sept. Gist á Ponent Mar, glæsilegu íbúðarhóteli á Palma Nova ströndinni. Öll aðstaða til mikillar fyrirmyndar og loftslagið hressir bætir og kætir! De Vossemeren, SAureitur í Belgíu 13. - 27. dgúst. Þessi sæluhúsagarðurer „bróðir" hinna hollensku sæluhúsa í Kempervennen. Gistingin er fyrsta flokks og ótal möguleikar til upplyftingar og dægradvalar. Kátir haustdagar á Flórída, 16. okt. - 2. nóv. Sigling um Karíbahafið og dvöl á glæsihótelum á Flórídaskaganum. Ferð sem sæmir höfðingjum! Kempervennen Eldri en 60 - Legra verð f júní og ágúst gefum við farþegum okkar kost á tilboði sem er vel til þess fallið að treysta fjölskylduböndin: Ef einn eða fleiri í hópnum er eldri en 60 ára veitum við veglegan afslátt á gistingu í hollensku sæluhúsunum í Kempervennen. írland 19.júlí - 2 ágúst. Skemmtileg rútuferð um alla fegurstu staði írlands þar sem íslendingum er tekið með brosi á vör. Sam viiiniiferðir-L anðs ýn i'erði fyrir þ'f1 0ATLAS/® EUROCARD. Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 91 - 6910 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 69 10 70 • Símbréf 91 - 2 77 96 / 6910 95 • Telex 2241 • Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Símbréf 91 - 62 24 60 Hafnarfjörður: Reykjavíkurvegur 72 • S. 91 -5 11 55 • Keflavík: Hafnargötu 35 • S. 92 -13 400 • Símbréf 92 - 13 490 • Akureyri: Ráðhústorgi 1 • S. 96 - 27200 • Símbréf 96 - 1 10 35 Vestmannaeyjar: Vestmannabraut 38 • S. 98 - 1 12 71 • Simbréf 98 -1 27 92

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.