Tíminn - 05.06.1993, Qupperneq 10

Tíminn - 05.06.1993, Qupperneq 10
10 Tíminn Laugardagur 5. júní 1993 Heiðursformaður bridssambandsins Einn öldunganna er þó áfram engu síður voldugur en fyrr, eða a.m.k. virðast flestir fréttaskýrend- ur vera sammála um það. Sá er Deng Xiaoping, helsti valdhafi Kína síðan 1978. Hann er nú kom- inn undir nírætt, flestum heimild- um samkvæmt, en einnig hefúr heyrst að hann sé þegar kominn nokkur ár fram á tíræðisaldurinn. Vissum erfiðleikum er raunar bundið að henda reiður á hve miklu þessi einkar úthaldsgóði öld- ungur ræður í raun í fjölmennasta ríki heims. Hann hefur sem sé ekk- ert opinbert embætti eða stöðu, nema ef telja skyldi að hann er heiðursformaður kínverska brids- sambandsins. Eins og eðlilegt má kalla með hliðsjón af háum aldri, er heym leiðtoga þessa tekin að bila og mál hans orðið fremur óskýrL Þar að auki er hann ættaður frá Sichuan, en mállýska íbúa þess fylkis kvað vera mörgum öðrum Kínverjum torskiljanleg. Að sögn heimsfjöl- miðlanna fylgir gamla manninum því gjaman dóttir hans ein (eða tvær) og túlka á milli hans og ann- arra. Ýmissa ætlan er að þetta véfréttar- kennda samband Kínvetja við leið- toga sinn gefi dætmm hans og öðr- um hans nánustu tækifærí til mik- illa áhrifa, og bæta við að það væri þá ekkert einsdæmi í sögu landsins síðustu áratugina. Samband Maos við umheiminn síðustu ár hans hafi þannig verið eitthvað með svipuðu móti. Valdahópar peningamanna Sögur sem þessi em stundum sagðar til dæmis um, að margt sé það f stjómmálum og valdatafli Kfnaveldis sem utanaðkomandi gleymi stundum að reikna með eða taki ekki eftir. Því er haldið fram að stjómmálaráð og miðstjóm kommúnistaflokksins, sem menn em vanir að ganga út frá að séu valdamestu stofnanimar í ríkjum sem kommúnistar ráða, hafi aldrei haft eins mikil völd í Kína og var í Sovétríkjunum. Og með breyting- um þeim, sem orðið hafa á Deng- tímanum, hafi enn dregið úr völd- um stofnana þessara. Persónuleg sambönd skipti í Kína miklu meira máli en var í Sovétblökkinni, þótt þau vissulega væm einnig stað- reynd til að reikna með þar. í Kína nú á dögum em þesskonar sam- bönd „ringulreið af tilfinningaleg- um tengslum, fjölskyldusambönd- um“ og bandalögum, sem á einn eða annan hátt em sprottin út frá hinum og þessum atburðum í Kínasögu á þessari öld, skrifar Hans Schmidt Petersen, danskur hagfræðingur kunnugur þarlendis. í þessu kerfi fyrir bragðarefi sé Deng sannarlega eins og kóngur í ríki sínu, bætir sami maður við. Með geysihraðri þenslunni í efna- hagslífinu hafa þar að auki komið til sögunnar nýir valdahópar ný- ríkra fjármálamanna og atvinnu- rekenda og ráðamanna í ríkis- flokki, miðstjómarkerfi eða í borg- um og fylkjum í tengslum við þá. Deng ætti að hafa ástæðu til að líta með nokkurri ánægju yfir far- inn veg og ekki síst allrasíðustu ár- in. Hagvöxtur í Kína s.l. ár varð næstum 13% og bandarískir sér- fræðingar um efnahagsmál spá því að hann verði 14% í ár. Með því áframhaldi ætti ekki að líða á löngu áður en Kína yrði ekki ein- ungis risaveldi í krafti mannfjölda síns, heldur og (í bandalagi við Kínveija „erlendis") efnahagsmátt- ar. Suöurfylkin græða mest Vestrænir hagfræðingar segja þetta efnahagslega kraftaverk, eins Herinn er öflugur f Flokknum. Kapítalískt efnahagsundur kommúnista: 14% hag- vöxtur í Kína íár Frá í haust sem leið hafa orðið kynslóða- skipti í forustukjarna Kínaveldis, eða þannig orða það ýmsir sem fylgjast með gangi mála þar. Öldungar um áttrætt og þaðan af eldri hafa látið af stöðum, embættum og völdum, ekki þó endilega fyrir aldurs sakir. Við af þeim hafa tekið menn á sjötugs- og jafnvel sextugsaldri. Á kínverskan mælikvarða telj- ast stjómmálamenn á þeim aldri bráðungir. Nú er meðalaldurinn í kínverska forustu- kjarnanum aðeins lægri en á venjulegu dönsku elliheimili, stendur um þetta í Politiken. Vestræn lýöræöisgyöja á Himinsfriö- artorgi. og þeir kalla það, hafa hafist þegar árið 1978, er Deng hafði tryggt sér æðstu völd. Hann byrjaði með því að afleggja áætlunarbúskap í land- búnaði og draga úr verðlagshöftum á landbúnaðarvörum. Við það stórjókst framleiðsla á landbúnað- arvörum og tekjur sveitafólks hækkuðu þrefalt á sex árum. Yfir 100 milljónir manna hófust á þess- um árum úr mikilli fátækt til sæmilegra efna á kínverskan mæli- kvarða. Lagt var í næsta áfanga „kínverska efnahagsundursins" um miojan s.l. áratug með þvf að upp spratt mikil mergð smárra fyrirtækja, sem framleiddu allt sem nöfnum tjáir að nefna. Þetta voru einkafyrirtæki öðrum þræði, en einnig var hér um að ræða einskonar samvinnurekst- ur. Ríkisbankamir, sérstaklega í dreifbýlinu, voru lítt undir það búnir að beina peningum, sem al- menningur var allt í einu kominn með á milli handa, til atvinnu- reksturs og varð það til þess að fólk myndaði eigin samtök til fjárfest- inga. Þessi margvíslega grein einka- og samvinnureksturs er nú farin að slaga hátt upp í ríkisgeir- ann í iðnaðinum. Vandræðalaust gengu þessi um- skipti í þjóðarbúskapnum ekki fyrir sig. Syðri strandfylkin hafa haft mest upp úr þeim, Mið-Kína hefúr dregist aftur úr. Því hefur verið haldið fram að í stórum dráttum hafi þetta orðið þannig að strand- fylki og borgir hafi grætt, fylki inni í landi og dreifbýli staðið í stað eða jafnvel tapað. Aðrir, þeirra á meðal áðumefndur Petersen, telja þessa mynd einföldun og hana jafhvel grófa. Mörg dreifbýlissvæði hafi þannig staðið sig betur í umskipt- unum en margar borganna. Menntunarbylting Verðbólga hefur verið einn mesti höfuðverkurinn út frá efriahags- undrinu. Hún varð það þegar 1985 og næstu ár á eftir. Verðbólgan olli kjararýmun hjá mörgum og sömu- leiðis ráðstafanir sem stjómin gerði til að draga úr henni. Úr óánægju út af því reis hreyfing undir forustu stúdenta, sem krafð- ist lýðræðis. Efnahags- og kjaramál vom raunar ekki það eina þar á bak við. Með framfömm þeim, sem kommúnistastjómin kom til leiðar f skólamálum, margfaldaðist fjöldi menntamanna og stúdenta í land- inu. Þar sem skólamenntun okkar tíma um allan heim er í eðli sínu fyrst og fremst vestræn, fór ekki hjá því að með þessari gífúrlegu stækkun menntakerfisins slæddust inn í þjóðarhugarfarið hugmyndir um lýðræði og mannréttindi í vest- rænum skilningi þeirra orða. Það sama gerðist í Sovétblökkinni og átti drjúgan hlut að hmni hennar. Kínverska lýðræðishreyfingin, sem náði hámarki vorið 1989, krafðist einmitt lýðræðis að vestrænni fyr- irmynd og lagði áherslu á það með því að reisa á Himinsfríðartorgi styttu í mynd Frelsisstyttunnar í New York, er hafði m.a.s. andlits- drætti evrópída. Með svo þjóð- hverfú fólki sem Kínveijar em, mátti það kallast stórviðburður. Herinn bældi sem alkunnugt er niður „vorið í Peking" með miklum manndrápum á götunum umhverf- is Himinsfriðartorg 3.-4. júní 1989; giskað hefur verið á að um 2000 manneskjur hafi þá látið lífið, en enginn — nema líklega fáeinir kín- verskir ráðamenn — veit töluna um það með vissu. Skelfdir leiðtog- ar Kína hertu þá um skeið eitthvað á miðstýringu í efnahagsmálum á ný, manndrápin við Himinsfriðar- torg og kúgun sem fylgdi í kjörfar þeirra vakti reiði og hneykslun á Vesturlöndum og víðar, með þeim afleiðingum að aðstoð við Kína var fryst. Einnig dró úr (járfestingum erlendis frá, meira þó líklega af ótta við áframhaldandi ókyrrð en í mót- mælaskyni vegna aðfara kínversku forustunnar við andófsmenn. Sjang kominn aftur? En þessi vísir að einangrun Kína stóð ekki lengi. Til þess var landið með efnahagsundri Dengs orðið of arðvænlegur markaður og gimi- legur vettvangur fyrir fjárfesta. Japan varð fyrst meiriháttar ríkja til að taka upp að nýju fúllt sam- band við Kína, og Vesturlönd fylgdu á eftir, meðffam af ótta við að annars næðu Japanir „óhóflega" miklu af risamarkaði þessum undir sig á þeirra kostnað. Þar með hélt kínverska efriahags- undrið áfram og varð enn meira en fyrir „Pekingvorið". En aftur hefúr því fylgt verðbólga. Bandarískur fréttamaður í Peking segir verð- bólguna til komna af því að stjóm- in láti prenta of mikið af peningum til að standa undir ríkisfyrirtækj- um, sem mörg em rekin með tapi, og einnig í þeim tilgangi að sjá al- menningi fýrir peningum, með það fyrir augum að ekki dragi úr eftir- spurn. Sagt er að ráðamenn séu

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.