Tíminn - 01.07.1993, Qupperneq 5
Fimmtudagur 1. júlf 1993
Tíminn 5
Tansu Ciller hefur sópaö til hliöar rlkjandi karlaveldi, sem hefur stjórnaö tyrkneskum stjórnmálum f þrjá áratugi.
Tyrkne ska, ,j ámfrúin‘ ‘
nýtur mikillar hylli
Þetta var stundin sem gaf merki um að stjóramál í Tyrklandi hefðu tek-
ið endanlegum stakkaskiptum. „Ég er móðir ykkar og sálusystir,“ hróp-
aði laglega Qóshærða konan yfir allan kariaskarann sem troðfyllti
íþróttahöllina í Ankara. í stað þess að senda hana af sviðinu með fyrir-
litningu og hlátrasköllum, öskraðu þeir í hrifningu.
Um miðjan júní var Tánsu Ciller,
dugnaðarleg, háskólamenntuð kona
í Chanel-dragt, kosin foringi stjóm-
arflokks Tyrklands, Sannstígsflokks-
ins, og fyrsti kvenforsætisráðherra
landsins sýndi að ný kynslóð stjóm-
málamanna var komin til þroska.
Enn hafa fáir hugmynd um hvert
þessi töfrum gædda kona á eftir að
leiða 60 milljóna þjóð.
Einlægur aðdáandi
Margaret Thatcher
CiIIer, eins og Margaret Thatcher,
dýrkuð fyrirmynd hennar, er fremst í
flokki miðstéttanna sem lifa í borg-
um og eru á uppleið. Hún hefur sóp-
að til hliðar hefðarsinnuðum körl-
unum, sem hafa ríkt í tyrkneskum
stjómmálum í meira en þrjá áratugi,
og hefúr sýnt að hún hefur ekkert á
móti þvf að taka áhættu.
Lafði Thatcher, sem hefur hvatt
Ciller á leið hennar til valda, hringdi
f skjólstæðing sinn fyrir flokksþingið
til að óska henni góðs gengis og aft-
ur eftir að sigur var unninn til að
bera fram hamingjuóskir. Það er því
ekki að undra að tyrkneska pressan
hefur þegar gefið nýja foringjanum
sínum viðumefnið ,jámfrúin“.
Útnefning Cillers kom Suleyman
Demirel forseta greinilega á óvarL
Hann hafði gefið það skýrt til kynna,
þegar hann var að leita að einhverj-
um til að taka sætið sem hann sjálf-
ur stóð upp úr þegar hann erfði
skyndilega forsetaembættið frá
Tlirgut Ozal, að hann vildi fá Ismet
Sezgin innanríkisráðherra í sinn
stað. Ciller sjálf kom með sína eigin
skýringu á velgengninni: „Ekkert er
eins áhrifamikið og hugmynd þegar
hennar tími er runninn upp.“
Skuggar tíðra valdarána hersins,
bágrar frammistöðu f mannréttinda-
málum og ótrausts sambands við
bókstafstrúarmenn fslams kunna að
hvfla yfir Tyrklandi, en landið hefur
ákveðið snúið ásjónu sinni í átt til
frjálslyndra Vesturlanda og frjáls
markaðskerfis kapítalismans.
Tákn nýrra tíma
Ciller er tákn þessa nýja tíma, kona
sem er að móta valdamikla stöðu
konu í samfélagi þar sem karlar hafa
haft tögl og hagldir. „Þetta gerir okk-
ur feert að sanna fyrir umheiminum
að við erum ekki huldar svörtum
kuflum, „tsjador"," sagði kynsystir
hennar, Ajda Pekkan, söngkona sem
nýtur mikillar hylli.
Ciller stundaði nám við Yale og var
fyrst valin í ríkisstjóm fyrir tveim ár-
um. Hún hefur heitið því að einka-
væða banka og iðnað f rfkiseign og
að koma böndum á 60-70% verð-
bólgu í Týrklandi, en það tókst henni
ekki þann skamma tíma sem hún
skipaði sæti fjármálaráðherra.
Hún hlýtur líka að hleypa nýju lífi í
langvarandi baráttu Tyrklands fýrir
að fá aðgang að Evrópubandalaginu
og festa stöðu sína sem brenni-
punktur áhrifa fyrir múslímaríki
fyrrverandi Sovétríkja sem nú leita
nýrra bandamanna. En fyrst og
fremst hefur kosning hennar dregið
fjöldann allan af nýjum og ferskum
kröftum til þingsetursins Ankara,
sem svo lengi hefur verið lén þeirra
Ozals, Demirels og Sezgins.
Ciller er fúllkomlega dæmigerð af-
urð nýja Tyrklands. Hún feddist í
Istanbul inn í auðuga fjölskyldu og
faðir hennar gegndi embætti héraðs-
ríkisstjóra. Hún gaf sjálfstæði sitt til
kynna snemma, giftist 17 ára og hélt
því til streitu að maður hennar tæki
hennar nafn vegna þess að hún átti
enga bræður til að viðhalda fiöl-
skyldunafninu.
Hún var greindur nemandi og á
námsferlinum er að finna doktors-
gráðu í hagfræði frá háskólanum í
Connecticut, nám við Yale og
kennslu í Ameríku áður en hún
gerðist prófessor við Bospórus- há-
skóla.
Ciller á stuðning víða
Þrátt fyrir reynsluleysi í stjómmál-
um hefur Ciller sýnt mikla fæmi í að
afla sér stuðnings. Henni er annt um
að hrekja ekki þá, sem aðhyllast ís-
lam frá sér, en þeir gegna mikilvægu
hlutverki f þessu að nafninu til ver-
aldlega ríki. Hún vitnaði hvað eftir
annað í Allah í ræðu sinni á flokks-
þinginu, lofaði fegurð bænarkalls
múslíma og hét því „að láta betur
heyrast rödd Tyrklands og múslíma í
veröldinni". Hún grét þegar dagblað
birti myndir af henni á sundbol, þó
að ekki væri ljóst hvort tárin hrundu
af hvörmum hennar vegna músl-
ímsks tepruskapar eða — eins og
hárgreiðslukonan hennar sagði f
trúnaði — vegna þess að myndimar
sýndu að hún væri a.m.k. 5 kílóum
of þung.
TVrkneskir kjósendur virðast furðu
lostnir vegna eigin dirfsku og eru nú
í óðaönn að hrósa Ciller í hástert, þó
að hún verði að takast á við geysileg-
ar hindranir auk efnahagsmála. Eftir
friðsælt tímabil, hafa árásir Kúrda
aftur blossað upp í suðausturhlutan-
um. Erlendis em Týrkir orðnir fóm-
arlömb aukinnar tilfinningar Evr-
ópumanna til að loka að sér og Ciller
hefur lofað að fara til Þýskalands til
að hitta augliti til auglitis leiðtoga
landsins vegna árása nýnasista.
Vandamálið vegna Kýpur er enn
óleyst og hún hlýtur að verða beitt
þrýstingi bókstafstrúarmanna um að
koma til bjargar múslímum í Bos-
níu, svo og að skipta sér af málefn-
um Azerbadzjan.
Þó að hún eigi áreiðanlega eftir að
njóta hylli vestrænna bandamanna,
sem er áfram um að Týrkland haldi
áfram að gegna lykilhlutverki sem
vamarmúr gegn öfgastefnum Mið-
austurlanda, kann Ciller að eiga eftir
að komast að því að Demirel muni
grafa undan stöðu hennar, en hann
er útsmoginn bragðarefúr sem
greinilega varð undir þegar hún var
kosin.
Getur hún varast
skyssur Thatchers?
Hugsanlega eiga fjölmiðlaárásir eft-
ir að beinast að geysilegu ríkidæmi
hennar, en eignir Cillers og manns
hennar, Ozers Ucuran, eru metnar á
40 milljónir sterlingspunda og er
mikið af þeim auði bundið í fasteign-
um. Ozer er nú stórhluthafi í 7-EIev-
en, bandarísku verslanakeðjunni, og
hefúr verið viðriðinn fjölmörg um-
deild dómsmál meðan hann var for-
stjóri banka, sem nú hefur dottið
upp fyrir, og forstjóri byggingasam-
steypu.
Að hveiju svo sem persónulegar
árásir beinast verður raunverulegur
prófsteinn Cillers efnahagsstefna
hennar. Fari svo að hún falli fyrir því
að færa vonglöðum tyrkneskum al-
menningi skjótan árangur, tekur
hún þá áhættu, eins og Thatcher, að
njóta meiri aðdáunar utan land-
steinanna en heima fyrir.
Frá Singapore
fjölgun sáralítil. Vinnuaflsekla er
viðvarandi. Af pólitískum ástæðum
vill Singapore ekki flytja að fleira út-
lent verkafólk en nauðsyn krefur."
„... Singapore þarf líka að huga að
stöðu sinni í hópi Asíulanda með ört
vaxandi atvinnulíf. Allt frá Kína í
norðri, Indlandi í vestri til grann-
landa í Suðaustur-Asíu er verið að
opna vaxandi atvinnuvegi útlendu
fjármagni."
Með Finandal Times 29. mars 1993
var fýlgiblað, Singapore. í yfirlits-
grein þess sagði: „Á hvaða mæli-
kvarða metið er, er Singapore dæmi
um einstaklega öra atvinnulega
framvindu. Eftir þrjá áratugi nær
órofinnar útþenslu, vex verg lands-
framleiðsla þess árlega um 6% án
umtalsverðrar verðbólgu. Á mann
eru tekjur þess meiri en í nokkrum
öðrum asískum „dreka“ og eru þegar
meiri en f allmörgum löndum Evr-
ópu.“
„í Singapore er næg atvinna, sér-
lega mikill pólitískur stöðugleiki og
óspillt og dugandi stjómsýsla. Og
hlutfall íbúða í eigu ábúenda hið
hæsta í heimi. Spamaður er sá mesti
sem þekkisL Að streymir enn útlent
fjármagn, þannig að í eyríki þessu
með 3,1 milljón íbúa, er eitt erlent
fýrirtæki á hveija 1.000 íbúa. Og
Viðskiptalifíðj
borgaraðbúnaður á engan sinn líka f
heimshluta þess.
Viðkvæði forsætisráðherra og ann-
arra ráðherra (1992) var þó það, að á
tíunda áratugnum yrði Singapore
eins mikill vandi á höndum sem
nokkm sinni, síðan því var hrundið
úr Sambandsríki Malasíu 1965. Því
er ekki aðeins á höndum að halda
forskoti í samkeppni (ath. á meðal
granna sinna) í Asíu, heldur líka að
endumýja eftiahagslíf sitt, svo að
verði sem í háþróuðum löndum ...
fjárfesting í vélum og tækjum í vöru-
framleiðslu (manufacturing invest-
ment in fixed assets) var meiri en
nokkru sinni áður (1992), 3,48 millj-
arðar S$, 21% meiri en 1991 ... At-
vinnuleysi er innan við 3% og fólks-