Tíminn - 01.07.1993, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 1. júlí 1993
Tfminn 9
■ DAGBÓK
Þörunn Guðmundsdóttir og Davíð Knowles Játvarðsson.
Þriöjudagstónleikar í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
Á næstu þriðjudagstónleikum í Listasafni Sigurjóns Ölafssonar 6. júlí kl. 20.30 koma
fram Þórunn Guðmundsdóttir söngkona og Davíð Knowles Játvarðsson píanóleikari.
Þau flytja sönglög eftir Ivor Gumey, Claude Debussy, Johannes Brahms, Karl 0. Run-
ólfsson og Jón Leifs.
Þórunn Guðmundsdóttir lærði söng í Tónlistarskólanum í Reykjavík og stundaði síð-
an nám við Indiana University í Bloomington. Þórunn hefur haídið einsöngstónleika
hér á landi, meðal annars f Sigurjónssafni sfðastliðið sumar. Hún hefur einnig komið
fram sem einsöngvari með kórum og með Kammersveit Reykjavíkur.
Davíð Knowles Játvarðsson hefur verið búsettur á fslandi síðastliðin 10 ár og hlaut
nýlega fslenskan ríkisborgararétt Hann hefúr margoft komið fram með söngvurum og
hljóðfæraleikurum, bæði hériendis og erlendis.
Katrin Sigurðardóttir sýnir í
Galleri Sævars Karis
Katrín Sigurðardóttir sýnir rýmisverk í
Gallerf Sævars Karls, Bankastræti 9, 2.-
30. júlf 1993.
Hún er fædd 1967 og stundaði nám við
Myndlistar- og handfðaskóla íslands í
Nýlistadeild 1986-1988, en lauk síðan
námi frá San Francisco Art Institute
1990.
Verkið sem Katrín sýnir samanstendur
af teikningum og þrykki, þróuðum út frá
eigindum mannslfkamans. Jafnframt eru
í verkinu könnuð tengsl myndlistar við
hefðbundin innanhúss-skreyti.
Katrín hefur áður haldið tvær einkasýn-
ingar, báðar í Bandaríkjunum, og tekið
þátt f sex samsýningum, öllum f Banda-
rfkjunum.
Sýningin verður opnuð kl. 16 á morg-
un, fostudag, og verður opin á verslunar-
tíma á virkum dögum, frá kl. 10-18.
Fyririestur Mary Ellen Mark á
Kjarvalsstööum
Mánudaginn 5. júlí kl. 20.30 heldur
bandaríski ljósmyndarinn Mary Ellen
Mark fyrirlestur um ljósmyndir sfnar að
Kjarvalsstöðum, en sýning á verkum
hennar hefur staðið ýfir þar sfðan 22.
maís.l.
Mary Ellen Mark er um þessar mundir
einn þekktasti heimildaljósmyndari
heims og spannar sýning þessi fyrstu 25
árin af ferli hennar. Hún hefúr að geyma
125 myndir, allt frá blindum bömum í
Úkraínu til fjölleikahúslistamanna á Ind-
landi.
Mary Ellen Mark útskrifaðist sem frétta-
ljósmyndari 1964, eftir nám í listasögu
og listmálun. Hún fékk strax Fulbright-
styrk til að Ijósmynda í TVrklandi þar
sem hún dvaldi um tíma, en sneri heim
til Bandaríkjanna eftir árs dvöl og hóf að
skrásetja með myndavél sinni hvaðeina
sem vakti áhuga hennar. mannlff f
Central Park, mótmælafundi, kvenna-
hreyfinguna og líkamsræktarmenn. Hún
hlaut fljótlega alþjóðlega frægð fyrir Ijós-
eru óæskilegar á akbrautum,
sérstaklega á álagstímum í
umferóinni.
í sveitum er umferö dráttar-
véla hluti daglegra starfa og
ber vegfarendum aö taka tillit
til þess. Engu aö síður eiga
bændur að takmarka slíkan
akstur þegar umferð er mest,
og sjá til þess aö vélarnar séu í
lögmætu ástandi, s.s. með
glitmerki og ökuljós þegar ryk
eriá vegum, dimmviöri eöa
mýrkur.
iJUMFERÐAR
myndir sínar og myndraðir, en meðal
þeirra eru: „Deild 81“, „Eiturlyfjaneyt-
endur f London", „Heimilislaus fjöl-
skylda", „Góðgerðastofnanir móður
Theresu" og „Indversk fjölleikahús".
Sýningin að Kjarvalsstöðum hefur ver-
ið fjölsótt og hlotið góða dóma. Vegna
óviðráðanlegra ástæðna lýkur henni fyrr
en áður var auglýst, eða miðvikudaginn
7. júlf.
Aðgangur að fyrirlestrinum á mánu-
dagskvöldið er ókeypis og hefst hann kl.
20.30.
Elín Jakobsdóttir sýnir í Menn>
ingarstofnun Bandaríkjanna
Laugardaginn 3. júlf nk. kl. 14 mun
skosk-fslenska listakonan Elín Jakobs-
dóttir opna sýningu á málverkum og
teikningum í húsakynnum Menningar-
stofnunar Bandarfkjanna að Laugavegi
26 (bflastæði og inngangur einnig frá
Grettisgötu).
Elfn er fædd á íslandi árið 1968, en hef-
ur verið búsett erlendis allt frá bam-
æsku. Hún stundaði nám við Glasgow
School of Art og lauk þaðan BA-prófi
með láði árið 1992. Elín hélt einkasýn-
ingu á verkum sfnum f Glasgow árið
1991, auk þess sem hún hefur tekið þátt
í námssýningum og hópsýningum
skoskra listamanna f Glasgow og f Lund-
únum og annast myndskreytingu bama-
bókar fyrir menntamálaráðuneyti Chile.
Þá sá hún um uppsetningu og skipulag
sýningar á vefnaði og listmunum frá
Andesfjöllum í Perú, „Winds across the
Andes“, sem haldin var í Glasgow fyrir
tveimur árum.
Elín hefur lagt leið sína til Perú og Ból-
ivfu í náms- og kynnisferðir, auk þess
sem hún hefur lagt stund á leiklist og
brúðugerð. Arið 1991 voru Elínu veitt
hin svonefndu Christie-verðlaun, en þau
falla í skaut efnilegasta nemandanum á
þriðja ári við The Glasgow School of Art
Þá hlaut hún myndlistarverðlaun W.O.
Hutchison árið 1992.
Sýning Elfnar verður opin alla virka
daga frá kl. 830-17.45 ffarn til föstudags-
ins 30. júlf. (Ath. Lokað verður mánu-
daginn 5. júlf.)
Tónleikar í Kristskirfcju
Þriðjudagskvöldið 6. júlí n.k. verða
haldnir tónleikar f Kristskirkju og hefj-
ast þeir kl. 20.30. Á þessum tónleikum
mun kammerhljómsveit ungra hljóð-
færaleikara frá borginni Cervera í Kata-
lóníu á Spáni leika tónverk eftir Rach-
maninoff, Grieg og katalónfska tónskáld-
ið Toldra. í hljómsveitinni leika nemend-
ur sem náð hafa miklum árangri f námi
sínu hjá frábærum kennurum. Jafnhliða
hljóðfæranáminu hafa þeir lagt stund á
kammertónlist og hljómsveitarleik. Frá
stofnun sveitarinnar hefúr hún ferðast
um Katalónfu og spænska rfkið og hald-
ið tónleika. Enn ffernur hefúr hún leikið
f Frakklandi, Þýskalandi, Austurríki,
Ungverjalandi og á Ítalíu. Stjómandi á
tónleikunum er Manuel Valdivieso.
Tónleikar katalónfsku ungmennanna
verða endurteknir 8. júlí kl. 20.30 í Borg-
ameskirkju.
Aðgangur er ókeypis á báða tónleikana.
Veiðimenn, athugið!
Stórir og sprækir laxa- og silungamaðkar til sölu.
Upplýsingar í síma 91-673212 og 91-672822.
Bréf Gretu
Garbo seld
háu verði
Greta Garbo var umvafin dularhjúpi f lifanda lífi og
enn lifir minning hennar l hugum aödáenda. Einn
þeirra keypti nýveriö dýrum dómum á uppboði I
London 66 bróf, sem hún skrifaði pólskri vinkonu
sinni á 40 ára tímabili.
Greta Garbo var
orðin þjóðsagna-
persóna í lifanda
lífi og enn lifir
minning hennar
góðu lífi, þó að
þrjú ár séu liðin
síðan hún lést, há-
öldruö, og áratugir
síðan hún hætti
kvikmyndaleik.
Greta er einhver
frægasta og skær-
asta stjarna kvik-
myndanna fyrr og
síðar og var blóma-
skeið hennar á
hvíta tjaldinu á ár-
unum um og eftir
1930. Þegar hún
lék í þýskri útgáfu á
Anna Christie 1930
bar fundum hennar
og pólska rithöf-
undarins og leik-
konunnar Salka Vi-
ertel saman og upp
úr því skrifuðust
þær á í 40 ár. Bréfin 66, sem
Greta skrifaði í því sambandi,
voru nýlega seld á uppboði hjá
Sotheby’s í London fyrir 26.450
sterlingspund og var kaupandinn
safnari í Flórida, David
Walskovski. Hann hitti leikkon-
una á fimmta áratugnum og hefur
verið einlægur aðdáandi hennar
síðan.
Greta var einfari og dulúðug.
Ráðgáta, segja ýmsir. Bréfin þykja
gefa einstæða innsýn í hugsana-
gang þessarar konu, sem svo fáir
þekktu en margir vildu þekkja.
Þar segir hún frá löngun sinni til
að vera einsömul og á einum stað
viðurkennir hún: „Það er dapur-
legt að vera alein, en stundum er
jafnvel enn erfiðara að vera með
einhverjum." í öðru bréfi upplýsir
hún: „Ég á enga elskhuga, en
engu að síður á ég í vandræðum."
Fréttinni fylgja ekki upplýsingar
um hvernig stendur á sölu bréf-
anna nú, en ólíklegt má telja að
þessi Iokaða kona, sem ekki vildi
láta aðra hnýsast í einkamál sín,
hafi haft í huga að þau kæmu fyrir
augu almennings. Og ólíklegt má
telja að nokkur hefði haft áhuga á
þessum bréfum, ef einhver óþekkt
persóna hefði skrifað þau. En
frægðinni fylgja ýmsir ókostir og
einkaiíf Gretu Garbo er ekki heil-
agt eftir dauðann.
ísabetu Bretadrottningu, Baldvin
Belgfukonungi og Fabiolu drottn-
ingu hans, þegar Bretadrottning
kom til Belgíu til aö minnast orrust-
unnar viö Waterloo.
Bretadrottning
í Belgíu
Margar eru skyldur þjóðhöfðingja
og misánægjulegar. Sennilega hef-
ur Elísabetu Bretadrottningu bara
þótt gaman að fara til Belgíu ný-
lega til að minnast orrustunnar
við Waterloo 1815, þar sem her-
toganum af Wellington tókst að
vinna slíkan sigur á her Napóleons
að Evrópuvaldadraumur keisarans
hrundi endanlega til grunna.
Eftir heimsóknina á orrustuvöll-
inn heilsaði drottningin upp á
belgísku konungshjónin Baldvin
og Fabiolu f kastala þeirra hjóna f
Laeken. Sú heimsókn hafði reynd-
ar áður valdið deilum og nokkru
írafári.
Þannig er nefnilega mál með
vexti að um orrustuvöllinn ók
drottningin í japönskum Toyota
Previa „space wagon", þó að hún
hefði verið flutt á staðinn í Jagúar-
bíl. lálsmaður breska sendiráðsins
skýrði þá ráðstöfun með því að
auðveldara væri að komast inn í
japanska bílinn og út úr honum
aftur.
Bálreiðir breskir þingmenn
höfðu nefnilega húðskammað fólk
við hirðina fyrir að sýna litla ást á
föðurlandinu með þessu háttalagi.
Sophia fögur sem fyrrum
Sophia Loren vekur alltaf at-
hygli hvar sem hún fer. Hún er
alltaf jafnfalleg, þó að hún fari
að náígast sextugsaldurinn, og
hún hefur alltaf í nógu að snú-
ast. Nú gegnir hún embætti
velvildarsendiherra hjá Flótta-
mannastofnun Sameinuðu
þjóðanna og í fyrra lagði hún
m.a. leið sína til Sómalíu til að
telja kjark í sveltandi fólk í
miðri borgarastyrjöld.
En Sophia á líka rólegri
stundir og nýlega sást til
hennar í Genf þar sem hún,
maður hennar Carlo Ponti og
Eduardo sonur þeirra gáfu sér
tíma til að neyta góðs hádegis-
verðar í rólegheitum. Þá var
meðfylgjandi mynd tekin.
Sophia Loren er alltaf jafnfalleg, þó
aö vissulega hljóti aldurinn að fær-
ast yfir hana eins og aöra. Fjöl-
skyldullfiö er hamingjusamt og
sjálfsagt á þaö sinn þátt í þvf hvaö
hún heldur sér vel. Maöur hennar
Carlo Ponti og Eduardo sonur
þeirra eru hér meö henni.