Tíminn - 15.07.1993, Page 2

Tíminn - 15.07.1993, Page 2
2 Tíminn Fimmtudagur 15. júlí 1993 OECD athugar framkvæmd umhverfismála á íslandi: Álag hrossa á beit vekur ugg Úttekt á OECD á stöðu og famkvæmd umhverfismála á íslandl hef- ur veríð gerð heyrínkunn. Tilgangurínn er að bæta framkvæmd og stjóm umhverfismála, bæði í einstökum aðildamkjum OECD og þeirri starfsemi sem innt er af hendi á þessu sviði á vegum fram- kvæmdastjómar OECD um umhverfismál. „í skýrslunni kemur fram að meng- un sé ennþá lítil hér við land og sér- staklega er tekið fram hvað vatns- mengun sé lítilsegir Össur Skarp- héðinsson umhverfismálaráðherra. „Engin spendýr, og hvalir þar með taldir, eru heídur sögð í hættu en skýrslan er reyndar gerð áður en þessi eini ísbjöm sem hingað rak á land var drepinn." í skýrslunni er athygli vakin á því að hrossum hafi fjölgað um 132% síðan árið 1970 og er sagt að sú fjölgun geri það að verkum að ekki hafi dregið úr álagi á landið þrátt fyrir fækkun sauðfjár um 29,5% frá 1979-1991. í skýrslunni segir jafn- framt að álag hvers hests á landið sé tífelt meira en einnar kindar. Hóf- amir em sagðir skemma meira og bitið vera öflugra. ,Aukning álags á beit er sögð jafn- gilda því að sauðfé væri orðið ein milljón talsins,“ segir össur. Mælt er með því í skýrslu OECD að samræma umhverfisvemd og ferða- þjónustu meira og auka þáttöku sjálfboðaliða og félagasamtaka í að gæta viðkvæmra svæða á landinu. Aðeins þrír landverðir em nú í fullu starfi og þykir það ekki nægja. Staðbundin mengun veldur sums staðar áhyggjum en aðeins fer skolp frá 6% íbúa landsins um hreinsi- stöðvar. íslendingar em hvattir til að halda áfram að vinna að sorp- hirðu- og fráveitumálum. í skýrslu OECD kemur fram að töluverður árangur hafi náðst á sviði löggjafar, uppbyggingar og sam- ræmingar stofnana á sviði umhverf- ismála. Bent er á að mengun hér á land sé minni en víðast hvar annars staðar vegna þess hve stór hluti orkunotkunar íslendinga sé frá hreinum og endumýjanlegum orku- gjöfum. Lagt er til að framkvæmdaáætlun verði gerð til að laga efnahags- og atvinnuvega þróun að markmiðum og meginreglum sjálfbærrar þróun- ar. Áhersla er lögð á að auka notkun hagstjómartækja s.s. umhverfis- gjald og umhverfisskatta í þágu um- hverfisvemdar. Þrír sérfræðingar frá Kanada Sviss og Noregi komu hingað til lands fyr- ir ári fyrir hönd OECD og nutu að- stoðar allra ráðuneyta og ýmissa fyr- irtækja og stofnana til að vinna að úttektinni um umhverfismál hér á landi. Sambærileg athugun var gerð í Þýskalandi og er ætlunin að taka fleiri lönd fyrir síðar. -GKG. Frá vlnstri: Blrglr Guðjónsson læknlr, Ólafur Ólafsson landlæknlr og Reynlr Karlsson, fþróttafulltrúi mennta- málaráðuneytisins. Bak vlð þá má sjá veggspjald sem kynnir hættur sem fylgja steranotkun. Timamynd Ami BJama Herferð landlæknis, menntamálaráðuneytis og ÍSÍ gegn lyfjamisnotkun: Grunur á að notkun stera fari vaxandi þjóðanna (UNESCO) og í því em rúmlega 10 þúsund söfn í 120 lönd- um. Söfn á íslandi er til sölu í bókabúð- um, bensínstöðvum og söfhum og kostar 400 krónur. Bók,um söfn á Islandi Út er komin handbókin Söfn á íslandi. í henni er aö finna upplýs- ingar á íslensku og ensku um öll söfn á landinu sem eru um sjötíu talsins. íslendingar eru miklir safnarar; um allt land hafa menn safnað munum sem lýsa lífsháttum liðins tíma, listaverkum og náttúrugrípum. Þetta kemur vel fram í safnabók- inni þvf þar er ekki bara greint frá listasöfnum heldur líka minjasöfn- um, náttúrugripasöfnum, minning- arsöfnum og sjóminnjasöfnum. í henni er að finna húsdýragarð, rjómabú, grasagarð, steinasafn, torfbæ, sfmaminjasafn, síldarminja- safn og heimilisiðnaðarsafn svo eitt- hvað sé nefnt Hingað til hefur skort á að til væru handhægar upplýsing- ar um söfri á íslandi og er bókinni ætlað að bæta úr því. Henni er ætlað að vísa íslendingum ekki síður en útlendingum á vit ókannaðra safna. Bókinni er skipt niður eftir lands- hlutum og fær hvert safn eina síðu með mynd og upplýsingum um heimilisfang, síma og afgreiðslu- tíma. Gefin er stutt lýsing á safhinu og þjónusta þess kynnt með einföld- um táknmyndum. íslandsdeild Alþjóðaráðs safna (Int- emational Council of Museums) gefur bókina út með styrk frá Land- mælingum íslands, Þjóðminjasafn- inu, Reykjavíkurborg, menntamála- ráðuneytinu og utanríkisráðuneyt- inu. Alþjóðaráðið starfar í tengslum við Menningarstofnun Sameinuðu Reynir Karisson, íþróttafulltrúi í menntamálaráðuneytinu, sagði á blaðamannafundi í gær að rökstuddur grunur væri fyrir því aö notkun stera færí vaxandi héríendis. Birgir Guðjónsson læknir sem jafnframt á sæti í lyfjanefnd ÍSÍ segir að frá árinu 1984 hafi níu sýni greinst jákvæö og þar af fjögur á síöasta ári. Ennfremur mætti rekja tvö dauðsföll til notkunar steralyfja og hefði það komið fram við réttarrannsókn. Pétur Pétursson læknir sagði að dæmi væru um það að steralyf hefðu verið boðin fólki á líkamsræktarstöð hérlendis. Svo virðist sem notkun steralyfja í íþróttum sé að mestu bundin við kraftlyftingar og líkamsrækt og aðr- ar einstaklingsíþróttir. Frægasta til- fellið um misnotkun lyfja í íþróttum til þessa var þegar Kanadamaðurinn Ben Johnsson varð uppvís að því á Ólympíuleikunum í Seoul árið 1988. í þýskalandi t.d. mun það vera skoðun sumra að ekki sé hægt að ná árangri á heimsmælikvarða í kraft- og líkamsræktaríþróttum öðruvísi en að nota steralyf. Aftur á móti gagnast neysla þessara lyfia ekki þeim sem ætla sér einhver afrek í boltaíþróttum svo dæmi sé tekið. Á blaðamannafundi í gær var kynnt útgáfa á veggspjaldi sem sýnir þau áhrif sem notkun stera getur haft á líkamann. Ætlunin er að dreifa þess- um spjöldum sem víðast og m.a. til líkams- og heilsuræktarstöðva. En neysla vefiaaukandi lyfia, stera, get- ur haft alvarlegar afleiðingar í för fyrir neytandann, bæði andlega og líkamlega, Ld. hjarta- og kransæða- sjúkdóma. Auk þess geta fylgt neyslu steralyfia ýmsir hættulegir fylgi- kvillar og einnig krabbi í lifur. Þótt eftirlit með neyslu þessara lyfia meðal íþróttamana sé sífellt að aukast, bæði hérlendis sem erlendis, munu þó vera til steralyf sem ekki koma fram við prófun, enn sem komið er. Þrátt fyrir þær hættur sem notkun steralyfia getur haft fyrir neytand- ann mun það ekki vera refsivert á ís- landi að neyta þeirra né flytja þau inn og selja. Það vakti athygli á blaðamanna- fundinum í gær að til hans var ekki boðið fulltrúum kraftlyftingamanna né líkamsræktarfólks. Hinsvegar mun einhverjum eigendum líkams- og heiluræktarstöðva hafa verið boðið en þeir mættu ekki. -grh Fjórhjólum fækkað úr 800 í 500 á skömmum tíma: Miklu fleiri vélsleðar en dráttarvélar fluttir inn Vinsældir hjólhýsa og tjaldvagna hafa aukist gríðarlega á skömmum tíma, þannig að fiöldi skráðra vagna hefur hátt í tífaldast (í nær 2.100) á síðustu fimm árum. Þessi sömu ár hefur innflutningur vélsleða sömuleiðis þrefaldasL Hátt í 400 sleðar eru nú fluttir inn árlega, sem er Ld. fleira en þær dráttarvélar sem fluttar eru inn ár hvert. Fjöldi vélsleða hefúr um tvöfaldast (í rösklega 2.300) á sl. fimm árum. Á hinn bóginn hrapaði innflutningur fiórhjóla allt í einu úr 800 á ári 1987 ísland hefur staðið sig vel í að vernda votlendissvæði: Mývatn og Þjórsárver ur hættu Mývatn og Þjórsárver hafa verið tekin út af skrá Ramsarsáttmálans, en hann er sáttmáli um alþjóðlega mikilvæg votlendissvæði í hættu, sérstaklega sem búsvæði vatnafugla. Votlendissvæðin tvö teljast ekki leng- ur í hættu. Svæðin voru einu svæðin sem tekin voru út af skrá sáttmálans á ársfundi Ramsarsáttmálans sem haldinn var í Japan í síðasta mánuði. Á fundinum kom fram hörð gagn- rýni á aðgerðaleysi þjóða heims til vemdar votlendissvæða í heiminum. íslandi var hins vegar hrósað fyrir að- gerðir til verndar votlendis hér á landi. Jón Gunnar Ottósson, skrifstofu- stjóri í umhverfisráðuneytinu, og Gísli Már Gíslason frá Náttúruvernd- arráði sátu fundinn í Japan fyrir ís- lands hönd. -EÓ niður í aðeins örfá hjól árlega síðan. Nýskráning vélhjóla er aftur á móti nokkuð stöðug, á milli 120 og 150 hjól á ári. Skráðum vélhjólum hefur fiölgað úr rúmlega 900 í um 1.300 á umræddum fimm árum. Fyrir fimm árum áttu landsmenn einungis um 230 hjólhýsi/tjald- vagna á skrá og aðeins sex vagnar voru þá fluttir inn (nýskráðir) á ári. Innflutningurinn óx svo í kringum 40 árlega næstu árin, upp í 120 árið 1990. Árið eftir Qölgaði nýskráning- um hjólhýsa/tjaldvagna síðan allt í einu upp í um og yfir 500 á ári. í lok síðasta árs vom skráðir vagnar orðnir 2.065 þannig að fiöldinn hafði nærri því tífaldast á aðeins fimm árum. Um 1.290 vélsleðar voru skráðir í landinu í árslok 1987 en þar af voru um 130 nýskráðir það ár. Kringum 200 nýir sleðar bættust við næstu tvö ár á eftir, en árið 1991 voru ný- skráðir nærri 400 vélsleðar og iitlu færri í fyrra. í lok síðasta árs áttu landsmenn um 2.340 slík tæki á skrá, eða hátt í tvöfalt fleiri en fimm árum áður. Fjórhjólaæðið sem greip lands- menn árið 1987 virðist á hinn bóg- inn hafa verið jafn fljótt að gufa upp. í lok þess árs voru 806 fiórhjól á skrá en þar af voru um 800 þeirra ný- skráð það sama ár. Innflutningurinn datt niður í 50 hjól árið eftir og að- eins 10 til 25 hjól á síðustu árum. Skráð fiórhjólaeign landsmanna var komin niður undir 500 í lok síðasta árs, þannig að mörgum virðist hafa verið hent eða þeim lagt endanlega. - HEI

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.