Tíminn - 24.07.1993, Side 1
Frétta-Tíminn... Frétta-síminn. ..68-76-48... Frétta-Tíminn... Frétta-síminn.. .68-76-48... Frétta-Tíminn...Frétta-síminn—68-76-48
Laugardagur
24. júlí 1993
138. tbl. 77. árg.
VERÐí LAUSASÖLU
KR. 125.-
Ríkisstjórnin fól Davíð og Sighvati að spjalla við bankana eftir helgi um háa raunvexti hér á landi:
Seðlabankinn gerir engar athugasemdir við ákvarðanir bank-
anna f vaxtamálum og segir að þeir hafi einungis veríð að
hækka vexti nokkum veginn f samræmi við hækkun verðbólgu.
Álit Seðlabankans var rætt á ríkisstjórnarfundi í gær og var
samþykkt aö forsætisráöherra og viðskiptaráðherra ræddu við
forráðamenn bankanna um vaxtaþróunina. Viðskiptaráðherra
segist gera sér vonir aö þær viðræður geti leitt til lækkunar
raunvaxta.
Sighvatur Björgvinsson við-
skiptaráðherra lagði tvær spurn-
ingar fyrir Seðlabankann fyrr í vik-
unni. Hafa raunvextir hækkað og
hafa bankamir aukið vaxtamun
sinn? Síðdegis í gær barst svar og
er skemmst frá því að segja að báð-
um spumingunum var svarað
neitandi. Jón Sigurðsson seðla-
bankastjóri sagði að bankamir
hefðu með vaxtahækkun sinni á
dögunum hækkað vexti sína til
samræmis við hærri verðbólgu.
Raunar væri hækkunin í flestum
lánaflokkum minni en verðbólgu-
hækkunin. Með öðrum orðum
hefðu raunvextir lækkað en ekki
hækkað. Einungis á verðtryggðum
lánum hefðu bankar hækkað
raunvexti og væri hækkunin 0,2%.
í öðrum lánaflokkum hefðu raun-
vextir lækkað á bilinu 3,7-4,7%.
Bankarnir hafa lækkað vexti á
verðtryggðum óhreyfðum innlán-
um, en hækkað nafhvexti á öllum
tegundum útlána. Þetta myndu
flestir telja ótvírætt merki um að
bankamir væm að auka vaxtamun
og þar með tekjur sínar. Þetta seg-
ir Jón Sigurðsson ekki vera rétt.
Bankamir hafi ekki aukið vaxta-
mun sé tekið tillit til „verðtrygg-
ingarhalla bankanna".
En þrátt fyrir að Seðlabanki og
viðskiptaráðherra telji að ekkert sé
athugavert við síðustu vaxtahækk-
un bankanna ákvað ríkisstjómin
að fela Davíð Oddssyni og Sighvati
Björgvinssyni að ræða við bankana
eftir helgina. Sighvatur sagði að
það væri Ijóst að vextir væm háir
hér á landi og að þeir hefðu ekki
farið lækkandi þrátt fyrir að vextir
á ríkisverðbréfum á fjármagns-
Hvert liggur leiðin
Verslunarmannahelgin 1993
Verslunarmannahelgin hefst eftir tæpa viku. Tímanum í dag fylgir í
tilefni þess ítaríegur blaðauki um útihátíðir og feröalög.
Sjá bls. 9-20.
markaði hefðu lækkað á síðustu hann ræða við bankana eftir helg- þær viðræður leiddu til raunvaxta-
vikum. Um þetta tvennt myndi ina. Hann sagðist vonast eftir að lækkunar. -EÓ
Óli H. Þórðarson leikstjóri, Bessi Bjamason, Álfrún Helga Örnólfsdóttir, Margrét Guðmundsdóttlr og Ólaf-
ur Öm Haraldsson höfundur við upptöku þáttanna. Tlmamynd Ámi Bjamason
Umferðarráð sendir út leikna útvarpsþætti til varnar
umferðarslysum:
Jónasarfjölskyld-
an komin á kreik
Jónasarfjölskyldan er aftur komin fram á sjónarsviðið en hún
var nokkuð áberandi í Ríkisútvarpinu fyrír nokkrum ámm síð-
an. Umferðarráð hefur fengið fjölskylduna til liðs við sig tii aö
kenna ökumönnum að haga sér vel í umferðinni.
Margrét Guðmundsdóttir og
Bessi Bjamason leika hjónin og
Álfrún Helga Ömólfsdóttir fer
með hlutverk dóttur þeirra
hjóna. Álfrún er ekki óvön að
leika dóttur Bessa og Margrétar
því hún lék ídu f leikritinu Em-
il í Kattholti í Þjóðleikhúsinu
en þau léku foreldra hennar og
Emils.
Fjölskyldan kemur fram í Út-
varpi Umferðarráðs og verður
fyrstu þáttunum útvarpað um
næstu verslunarmannahelgina.
Hver þáttur er 11/2-3 mínútur
að lengd og höfundur þeirra er
Ólafur Örn Haraldsson. Hann er
einn af Grænlandsfömnum
þremur og segist hafa fengið
hugmyndirnar af sumum þátt-
unum meðal annars uppi á
Grænlandsjökli. Leikstjóri er
Óli H. Þórðarson. -GKG.
Ommuflatkökur ó ferð um landið!
Ommuflatkökur eru alveg ómissandi í ferðanestið.
/oa*"****"■
Mundu e
Bakarí Friðriks Haraldssonar sf.
Kársnesbraut 96, Kópavogi Sími 91-41301
-