Tíminn - 24.07.1993, Síða 16

Tíminn - 24.07.1993, Síða 16
Áskriftarsími Tímans er 686300 NYTT OG FERSKT DAGLEGA m reiðholtsbakarí VÖLVUFELU 13-SlMI 73655 labriel HÖGG- DEYFAR Verslið hjá fagmönnum Glvarahlutir Hamarshöfða 1 Tíminii LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ1993 „Nú jæja, sunnudagssteikin farín þar,“ varö Bryndísi að orði þegar hún var stoppuð með kjöt í farangrinum í Leifsstöð fyrir skömmu. Tollvörður finnur kjöt í poka á farangursvagni Bryndísar Schram. Bryndís segir vinkonu sína hafa átt kjötið. Bryndís er handhafi rauðs vegabréfs: Farangurinn átti að fara óhindraður í gegnum toll Bryndís Schram, framkvæmdasljóri Kvikmyndasjóðs og eiginkona Jóns Baldvins Hannibalssonar utanrikisráðherra, vísar því á bug aö þau hjón- in hafi reynt að flytja inn ósoðiö kjöt, þegar þau komu frá Kaupmanna- höfrí 2. júlí sl. Bryndís segir að kjötið, sem tollvörður fann í poka á henn- ar farangursvagni, hafi ekki veríð þeirra kjöt, heldur kjöt vinkonu hennar, sem hún hitti í flugvélinni á leiðinni heim. „Við vorum tvær saman með vagn og pokinn var á vagninum. Þriðji að- ili ók vagninum í gegn og hann var stoppaður. Hann kallaði á mig, þar sem ég var hlaupandi fram og til baka að reyna að hjálpa konunni að finna töskuna sína. Eg kíkti ofan í þennan poka og sá að þama var svínabógur. Það var ekki meira en það,“ segir Bryndís. Utanríkisráðherrahjónin eru hand- hafar rauðs vegabréfs, og fá þá nær undantekningalaust að fara í gegn- um toll án þess að leitað sé í farangri þeirra. Bryndís gaf vinkonu sinni leyfi til þess að setja föggur sínar á hennar vagn. Því hefði vinkonan átt að njóta sömu réttinda og Bryndís og komast hjá leit í tollinum. En tollvörður þekkti hins vegar ekki bílstjórann, stoppaði hann og fann kjötið. „Ég segi við bílstjórann að fara með dótið. Hann er stoppaður. Svo kem- ur hann og nær í mig. Ég kíki í pok- ann, sé að það er poki frá fríhöfninni í Kaupmannhöfn og í honum er eitt- hvað kjöt. Mig minnir að ég hafi sagt, „Nú, jæja, sunnudagssteikin farin þar,“ segir Bryndís. GS. Coca Cola-verksmiðja byggð í Rússlandi: Tveir Rússar lærðu hjá Vífilfelli hf. „Það er alitaf eitthvað um það að hingað komi hópar frá framleiöendum Coca Cola víðsvegar að úr heiminum til að skoða og kynna sér starf- semina hjá Vífilfelli. Fyrír nokkru voru m.a. hértveir Rússar í námi. Ann- ar þeirra er væntanlegur gæðastjóri í Coca Cola-verksmiðju sem þar er verið að byggja og hinn mun sjá um viöskipti viö veitingahús,“ segir Páll Kr. Pálsson, forsljóri Vrfilsfeils hf. Það er ekki aðeins að erlendir fram- leiðendur sendi starfsmenn sfna til náms hjá Vífllfelli hf. heldur er tölu- vert um að þangað komi hópar frá erlendum framleiðendum þessa vin- sæla drykkjar til að kynna sér starf- semina og annað sem henni við- kemur. Nýlega voru m.a. hér á ferð hópar frá Austurríki og írlandi í þeim tilgangi. Páll Kr. segir að íslenska vatnið veiti Coca Cola á íslandi ákveðið samkeppnisforskot, enda ekki marg- ir sem geti státað af því að eiga eins gott og tært vatn og íslendingar. Þess sjáist auk þess merki í þeim viðtökum sem íslenskt vatn hefur fengið erlendis. Vegna 7,5% gengisfellingarinnar hækkuðu mamota glemmbúðir ut- an um Coca Cola um 4% en einnota plast- og dósaumbúðir um 5%. Hinsvegar varð engin verðhækkun hjá fyrirtækinu í kjölfar 6% gengis- fellingarinnar í nóvember sl. For- stjóri Vífilfells segir að tveggja lítra flöskur hafi ekki hækkað í verði og þrátt fyrir hækkun gosumbúða hafi margir kaupmenn ekki hækkað smásöluverðið hjá sér. -gríi Samtök herstöðvarandstæðinga mótmæla æfingum Bandaríkjahers á íslandi: Hvetja fólk til að trufla þær sem mest Samtök herstöðvarandstæðinga mótmæla harðiega yfirvofandi æfing- um Bandaríkjahers á islandi og hveQa fólk um land alft til að tnifla þær semmest í yfirlýsingu samtakanna benda þau m.a. á að þótt reynt sé að tengja heræfingamar landgræðslu, íþrótt- um og náttúruskoðun þá sé tilgang- ur þeirra að þjálfa hermenn til manndrápa. Samtökin vara við þeirri umhverfisógn sem er samfara hernaðarbröltinu og undrast að hemum skuli hleypt inn á viðkvæm svæði, perlur íslenskrar náttúru, eins og t.d. Dimmuborgir, Surtsey og Sprengisand. Þá fordæma samtökin fyrirhugaða þátttöku Jóns Baldvins Hannibals- sonar utanríkisráðherra í heræfing- unum sem að þeirra mati er í full- kominni andstöðu við ímynd íslend- inga sem friðsamrar þjóðar. -grh Styrkir veittir til kvennarannsókna: Tölvunotkun barna könnuð Sólveig Jakobsdóttir, M.Ed. í kennslufræði, og Agnes Amórs- dóttir, cand.mag. í sagnfræði, hafa fengið styríd úr sjóði til ís- lenskra kvennarannsókna sem Rannsóknarstofa í kvennafræð- um vift Háskóla íslands veitir. Sólveig fékk 150.000 kr. til verk- efnisins „Mismunur á tölvunotk- un stúlkna og drengja á grunn- skólaaldri". Agnes hlaut aftur á móti 100.000 kr. til verkefnisins „Metoden ved middelalderen. Et politisk per- spektiv fra Island". -GKG. DENNI DÆMALAUSI

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.