Tíminn - 27.07.1993, Qupperneq 3

Tíminn - 27.07.1993, Qupperneq 3
Þriðjudagur 27. júlí 1993 Tíminn 3 Um 400 manns em á atvinnuleysisskrá á Akureyri og menn óttast að fleiri hundruð manns kunni að missa vinnu sína í haust og vetur: Fer atvinnuleysi á Akureyri yf ir 10%? Atvinnuástand á Akureyri er mjög vlökvæmt um þessar mundlr. Forsvarsmenn atvinnulífsins og stéttarfélaganna i bænum óttast aö svo geti farið aö atvinnuleysi fari upp fyrir 10% i haust og vetur ef ekkert verður gert til aö styrkja atvinnulífið ( bænum. Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, fer til fundar viö Akureyringa í dag til þess aö ræða um atvinnuástandiö í bænum. Nú eru um 400 manns án atvinnu á Akureyri, en mjög óvenjulegt er að svo margir séu án vinnu á þessum árstíma. Þetta mikla atvinnuleysi er til staðar þrátt fyrir að bæjarfélagið og Atvinnuleysistryggingasjóður hafi útvegað mörgum vinnu með sérstökum tímabundnum verkefn- um. Atvinnuleysi á Akureyri hefúr auk- ist eins og annars staðar á landinu síðustu tvö árin. Það er hins vegar ýmislegt sem eykur á erfiðleika bæj- arfélagsins í atvinnumálum. Iðnfyr- irtækin á staðnum, sem á sínum tíma áttu ekki hvað sfst þátt í vexti Akureyrar, hafa átt í miklum erfið- leikum sem hafa ýmist leitt til þess að þau hafa neyðst til að fækka starfsfólki eða hreinlega orðið gjald- þrota. Mjög stór fyrirtæki hafa orðið gjaldþrota á Akureyri og sumir tala um gjaldþrotahrinu í því sambandi. Alafoss varð gjaldþrota fyrir tveimur árum. Fáir mánuðir eru síðan K. Jónsson & Co og íslenskur skinna- iðnaður hf. urðu gjaldþrota og fúll- komin óvissa ríkir um framtíð þess- ara stóru vinnustaða. Þeir sem standa að rekstri þeirra í dag ætla ekki að gera það með óbreyttum hætti nema fram í september. Þessa dagana er reynt að finna leiðir til að tryggja áframhaldandi rekstur fyrir- tækjanna. En er gjaldþrotahrinunni á Akur- eyri lokið? Því svarar Hákon Hákon- arson, talsmaður verkalýðsfélag- anna á Akureyri í atvinnumálum. „Það er engin spuming að það á fjöldinn allur af fyrirtækjum á Akur- eyri í verulegum erfiðleikum. Ég vona að það eigi ekki eftir að hellast fleiri gjaldþrot yfir Akureyringa, en því miður er ekki hægt að taka af neinn vafa um að svo gæti farið.“ Hákon sagði að það sé ekki síst slæm verkefnastaða fyrirtækja, t.d. í byggingar og málmiðnaði sem menn hafi hvað mestar áhyggjur af í augnablikinu. Mörg stór fyrirtæki í þessum greinum sjái fram á verk- efhaleysi þegar kemur fram á haust- ið. Ef ekki úr rætist getur afleiðing- in aðeins orðið sú að annað hvort segja fyrirtækin upp fólki eða að þau verða gjaldþrota. í Ijósi þessa er skiljanlegt að Akur- eyringar hafa lagt mikla áherslu á að fá til sín einhvem hluta af þeim fjár- munum sem stjómvöld eru að verja til opinberra framkvæmda um þess- ar mundir. Hákon sagði að enn hafi ekki fengist skýr svör um hvemig þessum fjármunum verður skipt. Það er ekki síst til að ræða þetta mál sem forseti ASÍ kemur til viðræðna við Akureyringa í dag. Hákon sagði að það sé ærin ástæða fyrir því að menn séu að tala um at- vinnuleysi á bilinu 10-15%. Hann sagði atvinnuleysi af þessari stærð- argráðu verða nær örugglega í viss- um atvinnugreinum í vetur, en menn voni að hægt verði að halda atvinnuleysinu niðri. Til þess þurfi menn á öllu sínu að halda. -EÓ Líkamsárásir helgarinnar: Tilefnislausar barsmíðar Maður var stunginn sex sinnum í bakið með fjaðurhníf í miðbæ Reykjavíkur, aðfaranótt sunnudags- ins og gekk ein þeirra á hol inn í lunga sem féll saman. Árásarmaðurinn náðist og er málið í rannsókn hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins. Tllkynnt var um fjórar líkamsárásir til lögreglunnar á ísafirði og voru tvær þeirra kærðar. í báðum tilvikum var sparkað í menn að tilefnislausu. Á Hnífsdal var sparkað f andlit á manni svo hann bólgnaði allur upp en á Suðureyri var sparkað um allan skrokkinn á manni sem meðal annars viðbeinsbrotnaði. Lögreglan rannsakar nú málið og voru menn í yfirheyrslum hjá henni í gær. Manni nokkrum á Höfn í Hornafirði var veitt kröftugt kjaftshögg aðfara- nótt sunnudags og hlaut mikla áverka í andliti. Árásarmaðurinn kom aftan að honum svo fómarlamb- ið sá hann aldrei. Lögreglunni á staðnum veitist því málið nokkuð erfitt viðureignar en vitni eru beðin um að gefa sig fram. -GKG. Fólk í ferðaþjónustu athugið: Lýst eftir Lögreglan lýsir eftir tvítugum Þjóð- veija, Marc Philip Hilgenfeldt, að nafni sem kom hingað til lands 21. júlí sl. Marc Philip er grannur að vexti og 178 cm á hæð. Hann er ljósskolhærð- ur með blá augu. Lfklegt er talið að hann sé klæddur ljósbrúnum galla- buxum, grænum fóðruðum jakka og svörtum háum rússkinsskóm. Gistihúsaeigendur og bílstjórar fólksflutningabfla em sérstaldega beðnir um að gefa upplýsingar um piltinn hafi þeir orðið hans varir en hafi ella augun hjá sér. -GKG. Þjóðverja Flateyri Leikskólastjóri Flateyrarhreppur óskar eftir að ráða leikskólastjóra frá og með 1. ágúst nk. við leikskólann Brynjubæ. Skilyrði fyrir ráðningu er að umsækjandi hafi lokið fóstru- námi. Upplýsingar um menntun og fyrri störf óskast sendar skrifstofu Flateyrarhrepps, Hafnarstræti 11, 425 Flateyri, fyrir 30. júlí nk. Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri í símum 94-7665 eða 94-7765. .. 4 Syertarstjóri Rateyrarhrepps. 5 * AFLVAKI REYKJAVIKUH? Aflvaki Reykjavíkur hf. auglýsir lausa til umsóknar stöðu framkvæmda- stjóra. Ráðið verður í stöðuna frá 1. september nk. til fjögurra ára. Aflvaki Reykjavíkur hf. er hlutafélag í eigu Reykjavík- urborgar, Rafmagnsveitu Reykjavíkur, Hitaveitu Reykjavíkur, Vatnsveitu Reykjavíkur, Reykjavíkur- hafnar og Háskóla islands. Tilgangur félagsins er: 1. Að reka kynningar- og upplýsingaþjónustu í því skyni að laða að innlenda og erlenda fjárfesta sem vilja stofna til atvinnurekstrar í Reykjavík og skal í því sambandi leitað eftir víðtæku samstarfi við fyrirtæki, sjóði, rannsóknarstofnanir, mennta- stofnanir og samtök í atvinnulífi og aðra er vinna að svipuðum verkefnum. 2. Að afla upplýsinga og vinna að tillögugerð og stefnumótun um atvinnumál og stuðning Reykja- víkurborgar til eflingar atvinnulífs og fyrirtækja á sviði nýsköpunar í Reykjavík. Tillögurnar skulu lagðar fyrir atvinnumálanefnd og borgarráð til af- greiðslu. Jafnframt skal félagið veita ráðgjöf og umsögn um þau verkefni sem ráð og nefndir borgarinnar óska eftir hverju sinni og tengjast atvinnumálum. 3. Að standa með Reykjavíkurborg að stofnun hluta- félaga vegna breytinga á rekstrarformi stofnana og borgarfyrirtækja. Umsóknir um stöðu framkvæmdastjóra Aflvaka Reykjavíkur hf. berist til borgarstjóra, Ráðhúsi Reykjavíkur, fyrir 15. ágúst nk. F.h. stjórnar Aflvaka Reykjavíkur hf. Borgarstjórinn í Reykjavík Markús Örn Antonsson FLUGLEIÐIR Traustur íslenskur ferðafétagi imsmeistaramót á íslenskum hestum Spaarnwoude við Amsterdam 7*-22« ágúst. Glæsilegir gæðingar í harðri keppni. Heimsmeistaramótið er tilvalinn áfangastaður við upphaf eða í lok ferðar um Evrópu. Tryggið ykkur hótel, flug og bílaleigubíl tímanlega. Allar nánan upplýsingar hjá söluskrifstofum Flugleiða, umboðsmönnum félagsins um land altc, ferðaskrifstofunum eða í síma 690300 (svarað alla 7 daga vikunnar frá kl. 8-18). Brottfarir til Amsterdam 15. ágúst laus sæti 16. ágúst (dagflug) laus sæti 16. ágúst (kvöldflug) fá sæti laus 17. ágúst fá sæti laus Brottfarir frá Amsterdam 22. ágúst fá sæti laus 23. ágúst uppselt 24. ágúst laus sæti 25. ágúst laus sæti

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.