Tíminn - 05.08.1993, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 5. ágúst 1993
Breytinga að vænta á fjármálum Listahátíðar í Reykjavík:
Viíja losna við
hallasamninginn
Veríð er að íhuga breytingar á fjármálum Listahátíðar í Reykjavík
en óánægja ríkir með þau.
„Við erum að veita því fyrir okkur
hvemig hægt er að láta fjárhags-
áætiun Listahátíðarinnar vera í
samræmi við fjárframlög ríkis og
Reykjavíkurborgar," segir Hjörleifur
Kvaran, framkvæmdastjóri lög-
fræði- og stjómsýsludeildar Reykja-
víkurborgar. „Við viljum losna við
Halim bauð Sophiu að fá að sjá dætur sínar:
2-3 daga í viku
undir eftirliti
Halim A1 efndi til fundar í gær með
lögfræðingum sínum og lögmanni
Sophiu Hansen og bauð þar Sophiu
að hún fengi að hitta dætur sínar 2-
3 daga í viku að degi til á heimili
hans og undir ströngu eftirliti. Ef
hún gengi ekki að þessum reglum
fengi hún aldrei að sjá börnin.
Lögfræðingur Sophiu ítrekaði að
hún hefði umgengnisrétt um helgar
og sætti sig ekki við neitt annað.
„Ef maðurinn ætlar að brjóta af sér
aftur kemur að því að hann verður
tekinn í karphúsið," segir Sigurður
Pétur Harðarson úr stuðningshópi
Sophiu. „Ég er búinn að vera í sam-
bandi við tyrkneska dómsmálaráðu-
neytið í dag og þar segjast menn
gera það sem í þeirra valdi standi."
15. ágúst nk. verða þrjú ár liðin síð-
an dætumar áttu að koma heim frá
Tyrklandi. -GKC.
hallasamninginn sem ríkt hefur en
þar er kveðið á um að ríkið og
Reykjavíkurborg eigi að greiða það
tap sem af hátíðinni verður. Hallinn
hefur orðið vegna lágra framlaga
ríkis og Reykjavíkurborgar og alltaf
er gengið að því vísu að það verði
halli.“
Fyrir hönd Reykjavíkurborgar hef-
ur Hjörleifur rætt hugmyndir um
breytingar á fjármálum hátíðarinn-
ar við fulltrúa Menntamálaráðu-
neytisins.
„Fyrir síðustu Listahátíð var fram-
lag ríkisins þrjár milljónir og það
sama kom frá Reykjavík. Líkt og áð-
ur vissu menn að framlögin voru of
lág og þegar upp var staðið kom í
ljós að hefði þurft að vera tíu millj-
ónir frá hvomm aðila," segir Hjör-
leifur,"
Hann segir jafnframt að fram-
kvæmdastjóm Listahátíðar 1994
horfi til þess að 50 ára afmæli lýð-
veldisins er á sama ári. Svars er að
vænta bráðlega frá menntamálaráð-
herra um hvert framlag ríkisins
verði en borgarstjóri hefur Iýst því
yfir að framlag borgarinnar verði
jafn mikið. -GKG.
Hótelræninginn hefur áður komið við sögu
lögreglunnar:
Hafði fengið
reynslulausn
Maðurinn sem rændi 200.000 kr. á
Hótel Reykjavík á mánudaginn kom
í leitimar í fyrrinótt á öldurhúsi í
Austurbænum.
Hann er 29 ára að aldri og hefur
einu sinni áður komist í kast við
lögin og var það fyrir nauðgun.
Hann fékk reynslulausn fyrir nokkr-
um vikum og var því á skilorði þeg-
ar hann afréð að ræna hótelið.
Lýsingin sem móttökudaman á
hótelinu gat gefið af manninum
hjálpaði lögreglunni í Reykjavík við
að komast á spor mannsins en jafn-
framt bámst henni aðrar vísbend-
ingar.
Maðurinn var búinn að eyða mest-
um hluta ránsfengsins þegar hann
fannst.
Hörður Jóhannesson hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins býst við að
maðurinn verði strax settur inn til
að afþlána það sem eftir er að dómn-
um. -GKG.
Ingibjörg Pálmadóttir alþingismaður:
Verið að gera lyfsölu eins
og hverja aðra bensínsölu
„Það var mikil óánægja í heilbrígðisnefnd með þetta frumvarp fyrr-
verandi heilbrígöisráðherra um breytingar á lyfjalögum. Ég varð
þess vegna fyrír vonbrígðum með að nýr heilbrígöisráðherra
skyldi ætla að taka það upp óbreytt, eins meingallað og það var.
Við höföum vonast til að hann mundi fara betur yfir þaö og a.m.k.
sníða af því helstu vankantana.
Með þessu er verið að gera lyfsölu
eins og hverja aðra bensínsölu,“
sagði Ingibjörg Pálmadóttir alþing-
ismaður. Hún á sæti í heilbrigðis-
nefnd Alþingis sem á síðasta þingi
fékk frumvarpið til meðferðar. En
það var ekki afgreitt fyrir ráðherra-
skiptin.
„Það var fjallað um það í fréttum
alla helgina, að það ætti að afgreiða
þetta frumvarp um leið og þing
kæmi saman. Þar kom fram að þeg-
ar væri kominn fjöldi umsókna um
nýjar lyfjabúðir í Domus Medica,
Kringlunni og víðar. Það má því bú-
ast við kapphlaupi um að opna sem
flestar lyfsölur f Reykjavík og sjúk-
lingarnir verða látnir borga her-
kostnaðinn sem af því leiðir." Það
kosti mikið fé að setja upp fjölda
lyfjabúða sem ekki sé þörf fyrir.
„Eftir því sem búðimar eru fleiri
þurfa menn að selja meira af lyfjum
og/eða hafa hærri álagningu til þess
að þær gangi. Þetta verður til þess
að lyfsalar fara að auglýsa lyf sem
þeir hafa hingað til ekki gert. Það
eru ýmis lausasölulyf sem verða
vanabindandi ef þeirra er neytt í
miklu magni. Þama er verið að
Inglbjörg Pálmadóttlr
alþlnglsmaöur.
hvetja til aukinnar lyf]aneyslu,“ seg-
ir Ingibjörg.
Síðan sé það hinhliðin; að víða ífá-
mennari byggðarlögum úti um land
geti fólk lent í stómm vanda vegna
skorts á Iyfjabúðum. Hingað til hafi
lyfjafræðingar látið sig hafa það að
reka litlar lyfsölur í dreifbýli í von
um „betra brauð“ síðar, þ.e. í von
um að fá síðar lyfsöluleyfi á stærstu
stöðunum, þar sem gróðayon er
margföld. Nú verði þetta hins vegar
ekkert spennandi lengur, þegar það
hætti að gefa mönnum möguleika á
að vinna sig upp. „Þá hætta menn að
nenna að standa í því að reka litlar
lyfjabúðir í dreifbýli. Þar með versn-
ar þessi þjónusta verulega á mörg-
um stöðum, sem vitanlega er hið
versta mál,“ segir Ingibjörg Pálma-
dóttir.
Stefán Jasonarson:
Heimsækir Hólm-
víkinga í dag
„Hér er sveitasælan í algleym-
ingi,“ segir Stefán Jasonarson
göngugarpur sem kom til
Blönduóss í glampandi sól-
skini í gær.
,J4ér Iíður dásamlega og fólkið
hér er indælt. Ég er búinn að
læra mikið af landi og þjóð á
göngunni og vil þakka fyrir
þær góðu móttökur sem ég hef
notið.“
Það hefur sérstaklega glatt
Stefán að sjá hvað mikið hefur
verið af snyrtilegum bóndabýl-
um á leið hans.
„Það er undantekning ef ég sé
einhvem óþverra meðfram
þjóðveginum," segir Stefán.
„Veðrið hefur ekki leikið við
okkur allan tímann og á tíma-
bili þurfti ég að vera í tvöföld-
um regngalla til að blotna ekki
í gegn. En mér líður alltaf vel
og það er dásamlegt að vera
til.“ í dag kemur Stefán til
Hólmavíkur og á morgun til
ísafjarðar. -GKG.
Póstur og sími bætir þjónustuna:
Nákvæm sund-
urliðun farsíma-
reikninga
Póstur og sími býður nú vissum sín á milli.
rétthöfúm farsfma nákvæma Þeir sem þurfa að fá undanþágu
sundurliðun símtaia á reikning- frá takmarkaðri sundurliðun geta
um iíkt og gert var f farsfmakerf- sótt um hana á sérstökum eyðu-
inu fram að síðustu áramótum. blöðum sem fást á öllum póst- og
Frá 1. janúar hefur borið á því að símstöðvum. Þar skuldbinda þeir
tvo sfðustu tölustafina hafi vant- sig tíl að tilkynna þeim sem nota
að á símanúmerunum sem símann um sundurliðunina og
hringthefurveriðf. auðkenna símann þannig að á
Þettahefúrvaldiðvandaþarsem honum sé þess getið að númer
margir nota sama farsímann og sem hringt sé í séu að fullu skráð.
fólk þarf að gera upp reikninginn -GKG.
Borgarstjórn leyfir Hagkaupi að gera ráð fyrir bensínstöð:
Minnihlutinn krefst
útboðs aðstöðunnar
Borgarstjóm hefur gefíð Hagkaupi
leyfi til að gera ráð fyrir bensínstöð
í Kjama í Grafarvogi þar sem Hag-
kaup hefur fyrirheit um lóð. Mikið
var um bókanir þegar fjallað var um
málið á þriðjudaginn.
Alfreð Þorsteinsson Framsóknar-
flokki lét bóka að Borgarráð sam-
þykkti að aðstaðan fyrir bensínstöð
yrði boðin út þar eð síðast þegar út-
boð var á slíkri aðstöðu hefði borg-
arsjóði áskotnast 7-8 milljónir auka-
lega. En sú tillaga var fellt með
þremur atkvæðum gegn tveimur.
Alffeð lét þá bóka að Hagkaup ætti
ekki að njóta sérstakra forréttinda
hjá Reykjavíkurborg.
Guðrún Ágústsdóttir Alþýðubanda-
lagi, Guðrún Ögmundsdóttir
Kvennalista og Ólína Þorvarðardótt-
ir Nýjum vettvangi óskuðu eftir að
bókað yrði að þær tækju unadir bók-
un Alfreðs.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins létu á hinn bóginn bóka
eftirfarandi: „Hér er um að ræða lóð
sem Þyrping hf. vegna Hagkaups
hefur þegar fengið fyrirheit um. Því
er óeðlilegt að bjóða út starfsemi
eins óg tillaga Alfreðs Þorsteinsson-
ar gerir ráð fyrir.“
Þeir létu jafnframt bóka að borgin
hefði aðeins haft tvær milljónir
króna upp úr sölu lóðar undir bens-
ínsölu í Húsahverfi.
Að lokum lét Alfreð Þorsteinsson
bóka að túlkun Sjálfstæðismanna á
umframtekjum í þessu tilviki væri
út í hött, enda var tilboð Olíufélags-
ins hf. í umræddu útboði mun
hærra en annarra olíufélaga.
-GKG.