Tíminn - 08.09.1993, Síða 8
8 Tíminn
Miðvikudagur 8. september 1993
Hússtjórnarskólinn í Reykjavík
SólvaUagötu 12, sími 11578
NÁMSKEIÐ VETURINN 1993-1994
l.Saumanámskeið 6 vikur
kennt mánudaga kl. 19-22 fatasaumur
n þriðjudaga kl. 14-17 n
n miðvikudaga kl. 19-22 n
n fimmtudaga kl. 19-22 n
n miðvikudaga kl. 14-17
(bótasaumur-
útsaumur/fata-
saumur)
2. Vefnaðamámskeið 7 vikur
kennt verður mánudaga, miðvikudaga og fimmtu-
daga kl. 13.30-16.30
3. Matreiðslunámskeið 6 vikur
kennt verður mánudaga og miðvikudaga kl. 18-21.
4. Stutt matreiðslunámskeið
kennt verður kl. 9-12 og 13.30-16.30
Forréttir 1 dagur
Gerbakstur 2 dagar
Grænmetis- 'og baunaréttir 3 dagar
Orkurýrt hollustufæði 3 dagar
Pastaréttir 1 dagur
Súpur og smábrauð 2 dagar.
5. í byrjun janúar hefst 5 mánaða hússtjórnar-
skóli með heimavist fyrir þá nemendur sem þess
óska. Námið er viðurkennt sem hluti af matar-
tækninámi og undirbúningur fyrir kennaranám.
Upplýsingar og innritun í síma 11578 mánudaga til
fímmtudaga kl. 10-14.
Skólastjóri
Vélstjórafélag íslands^^
VÉLSTJÓRAR
Félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 9. september
að Borgartúni 18, 3. hæð, kl. 17.00.
Fundarefni:
Uppstilling til stjórnarkjörs.
Uppstillingamefnd.
Vélstjórafélag íslands
FJORÐUNGSSJUKRAHÚSIÐ A ISAFIRDI
Gefin voru saman þann 24. júlf s.I. f Vfði-
staðakirkju þau Hildur Georgsdóttir og
S. Hlynur Ámason af séra Sigurði Guð-
mundssyni. Þau eru til heimilis að Eyr-
arholti 1, Hafnarfirði.
Ijósmyndastofan Mynd, Hafharfirði
Gefin voru saman þann 17. júlf s.l. í
Dómkirkjunni í Reykjavfk þau Lilja
Gunnarsdóttir og Jónas Guðmundsson
af séra Hjalta Guðmundssyni. Þau eru til
heimilis að Hringbraut 119.
Ijósmyndastofan Mynd, Hafnarfirði
Gefin voru saman þann 7. ágúst s.l. f
Stykkishólmskirkju þau Kristín Guðrún
Ásgeirsdóttir og Sigurður Sigurþórsson af
séra Gunnari Eiríki Haukssyni. Þau eru til
heimilis að Hlíðarvegi 56, Kópavogi.
Ijósmyndastofan Mynd, Hafharfírili
Gefin voru saman þann 17. júlí s.l. f Víði-
staðakirkju þau Sjöfn Eydís Sigfúsdótt-
ir og Jóhann Óláfur Hauksson af séra
Sigurði Helga Guðmundssyni. Þau eru
til heimilis að Laufvangi 12, Hafnarfirði.
Ijósmyndastofan Mynd, Hafnarfiröi
Gefin voru saman þann 17. júlf s.l. f
Carðakirkju þau Fanney Ásgeirsdóttir
og Gestur Skarphéðinsson af séra Vig-
fúsi Þór Ámasyni. Þau eru til heimilis að
Stuðlabergi 56, Hafiiarfirði.
Ijósmyndastofan Mynd, Hafharfiröi
Gefin voru saman þann 24. júlí s.I. í safn-
kirkjunni f Árbae þau Gunnhildur Gunn-
arsdóttir og ívar Bjamason af séra
Helgu Soffíu. Þau eru til heimilis að
Engihjalla 9, Kópavogi.
Ijósmyndastofan Mynd, Hafnarfiröi
Gefin voru saman þann 14. ágúst s.l. í Vfði-
staðakirkju þau Ólöf Björk Halldórsdóttir
og Jónas Friðrik Hjartarson af séra Sig-
urði Helga Guðmundssyni. Þau eru til
heimilis að Sléttahrauni 19, Hafiiarfirði.
Ijósmyndastofan Mynd, Hafnarfiröi
Gefin voru saman þann 14. ágúst s.l. í
Lágafellskirkju, Mosfellssveit, þau Nanna
Þorbjörg Pétursdóttir og Kjartan Magn-
ússon af séra Birgi Ásgeirssyni. Þau eru
til heimilis að Grýtubakka 24, Rvík.
Ijósmyndastofan Mynd, Hafharfiröi
Gefin voru saman þann 14. ágúst s.I. í Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði þau Þórunn Arin-
bjamardóttir og Hilmar Þðr Hilmarsson af
séra Einarí Eyjólfssyni. Þau eru til heimilis
að Stekkjarhvammi 50, Hafnarfirði.
Ijósmyndastofan Mynd, Hafnarfiröi
Hjúkrunarfræðingur
óskast á 30 rúma legudeild
FSÍ er nýr og glæsilegur vinnustaður og vel búinn tækj-
um og búnaði. Starfsaðstaða er til fyrirmyndar. Þar fer
fram öll almenn læknismeðferð og hjúkrun á sviði hand-,
lyfja- og slysalækninga, fæöingarhjálpar, öldrunarlækn-
inga og endurhæfingar. Fjölbreytni í starfi er mikil og
starfsandi mjög góður á deildinni. Gott samstarf er við
heilsugæslustöö sem rekin er í starfstengslum við
sjúkrahúsið.
Þvf ekki að athuga málið og kanna aðstæður!
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 94-4500 á
dagvinnutima og í síma 94-4228 á kvötdin.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Fullorðinsfræðsla —
hvað er í boði?
upplýsingabæklingur
I bæklingnum eru upplýsingar um þá aðila sem bjóða
upp á nám og fræðslu fyrir fullorðna. Ókeypis eintak
er hægt að fá I afgreiðslu ráðuneytisins, Sölvhólsgötu
4, 150 Reykjavik.
Yfirlýsing frá
McDonald’s á íslandi
Vegna fréttaflutnings undanfama
daga í blaða- og Ijósvakamiðlum af
málefnum McDonald’s á íslandi vill
Lyst hf. taka eftirfarandi fram:
Eitt af höfuðeinkennum McDonald’s
staðanna um allan heim er góður
starfsandi. Á hann leggjum við mikla
áherslu og gerum okkar ýtrasta til að
svo sé. Starfsfólk gerir sér einnig ljóst
að hjá okkur nýtur viðskiptavinurinn
forgangs. Hraði þjónustunnar er við-
hafður til þess að svara kröfúm við-
skiptavinarins um snögga og hnökra-
lausa afgreiðslu og að maturinn sé
fyrsta flokks.
Hjá okkur er vinnutími sveigjanlegri
en gengur og gerist á veitingahúsum.
Þess vegna starfar hjá okkur stór hóp-
ur skólafólks og húsmæðra, sem getur
ekki unnið á venjulegum dagvinnu-
tíma.
FVrirtækið hefur þá stefnu að vera
ekki í neinum samtökum atvinnurek-
enda og gera ekki kjarasamning við
verkalýðsfélög. Við gerum sérstakan
ráðningarsamning við hvem einstak-
an starfsmann, sem fær afhenta litla
bók um starfið, starfsskyldur og
vinnureglur. Þar sitja allir við sama
borð, yfirmenn og undirmenn. Engu
að síður gerir McDonald’s á íslandi alls
engar kröfur til starfsmanna sinna um
að þeir séu utan verkalýðsfélaga. Það
er alfarið mál starfsmannanna.
Við viljum sérstaklega taka fram, að
fyrirtækið virðir auðvitað öll lög og
allar reglur íslenskra stjómvalda.
Fyrirtækið greiðir laun sem em um-
talsvert hærri en þau laun sem skil-
greind em samkvæmt lögum. Launin
em einnig fyllilega samkeppnishæf
við laun, sem greidd em í öðmm sam-
bærilegum fyrirtækjum. öll laun em
að sjálfsögðu talin fram til skatts.
Kjör hjá okkur em meira en launin
ein. Starfsfólkið sækir á vinnutíma
ýmis starfsþjálfunar- og fræðslunám-
skeið, sem eflir það í starfi. Laun
hækka eftir afköstum og hæfni. Sú
þjálfun og starfsmenntun, sem starfs-
menn fá hér, mun nýtast þeim hvar
sem þeir starfa síðar á ævinni. McDon-
ald’s hefur á sér gott orð hvarvetna um
heiminn fyrir mjög nútímalega þjálf-
un og menntun starfsfólks.
Lögum samkvæmt verða allir starf-
andi menn að vera félagar í lífeyris-
sjóði viðkomandi starfsstéttar og
greiða iðgjöld til þeirra. Atvinnurek-
endum ber að innheimta þessi gjöld
og greiða þau til lífeyrissjóðsins ásamt
mótframlagi sínu. Þetta mun fyrir-
tækið að sjálfsögðu gera.
Við höfum mjög nána samvinnu við
starfsfólk okkar og hér verða í hverj-
um mánuði samskiptafundir undir- og
yfirmanna. Öðrum hverjum fundi er
stjómað af einhverjum starfsmanni
eftir vali þeirra, en öðrum hverjum af
einhverjum yfirmanni. Á þessum
fundum verða öll ágreiningsmál tekin
fyrir og vonandi leyst
Við viljum líka hafa gott samband við
fjölskyldur starfsmanna og í dag, mið-
vikudaginn 8. september, verður fjöl-
skyldunum boðið hingað í fyrstu
McDonald’s hamborgaraveislu á ís-
iandi.
Reykjavík,
6. september 1993