Tíminn - 16.09.1993, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 16. september 1993
Tíminn 3
Frystihúsin í Eyjum spara hátt á aðra milljón með því að hætta að krefjast skammtímalæknisvottorðs:
Gætu vinnuveitendur sparað
400 millj. í læknisvottorð?
„Já, ég held að það hafi veríð í kríngum milljón á árí sem þessi tvö
fyrirtæki, Vinnslustöðin og ísfélagið, voru hvort um sig að greiöa í
þessi vottorðagjöld. Auðvitað er þetta fljótt að koma þegar þessi
vottorð kosta langleiðina í þúsundkall — þá sér maður að hundrað
vottorö kosta hátt i hundrað þúsund krónur," sagði Amar Sigur-
mundsson þegar Tíminn spurði hvort rétt værí að frystihúsin í Eyj-
um hefðu veríð að borga á aðra milljón í endurgreiðslu læknisvott-
orða vegna veikinda starfsmanna.
Samanlagður fjöldi starfsmanna
þessara tveggja frystihúsa er á bilinu
400 til 500 manns. Kostnaður vegna
læknisvottorða hefur þannig verið
æm.k. um 4.000 að meðaltali á
mann. Sé starfsfólk frystihúsanna í
Eyjum jafnaðarlega ekki veikara en
annað vinnandi fólk í landinu mætti
þannig áætla að læknisvottorða-
kostnaður íslenskra fyrirtækja gæti
farið allt upp í 400-500 milljónir
króna á ári.
Hjá ísfélaginu og Vinnslustöðinni
lækkar þessi kostnaður nú verulega.
Þessi fyritæki tóku það upp um
miðjan júlí í sumar að fella læknis-
vottorðin niður nema þegar um eitt-
hvað sérstakt væri að ræða, lengri
veikindi eða slys. Amar sagði þetta
hafa átt sér nokkum aðdraganda.
Menn hafa vegið og metið gagnsem-
ina af þessu og m.a. var fundað með
heilsugæslulæknunum í Eyjum áð-
ur en endanleg ákvörðun var tekin.
„Kostnaðurinn gæti lækkað í
kringum 80% eftir að þessi skamm-
tímavottorð hafa verið felld niður.
Auk þess er þetta líka spamaður fyr-
ir fólkið, því það hefur oft orðið að
borga eitthvað til viðbótar fyrir
Iæknisheimsóknina, en endur-
greiðslan hefur verið fólgin í sjálfu
vottorðagjaldinu, og þá einungis ef
veikindi voru tilkynnt á fyrsta degi.
Staða Jóhönnu áfram óviss innan ríkisstjórnarinnar:
Þingflokksfundur
eftir helgina
Horfur em á að þingflokkur Al-
þýðuflokksins komi ekki saman til
fúndar fyrr en eftir helgina til að
ræða um ágreining Jóhönnu Sig-
urðardóttur, félagsmálaráðherra,
við samráðherra sína. Astæðan er
fjarvera þriggja þingmanna flokks-
ins, þeirra Sighvats Björgvinsson-
ar, Össurar Skarphéðinssonar og
Gunnlaugs Stefánssonar sem em
erlendis.
Óvíst er hvort ágreiningurinn við
Jóhönnu verður leystur á þing-
flokksfundi eftir helgina. Allt eins
er talið líklegt að menn gefi sér
tíma til að leita leiða til sátta fram
eftir vetri. Hafa ber í huga að Jó-
hanna er ekki eini þingmaður
stjómarflokkanna sem hefur fyrir-
vara við fjáriagafrumvarpið. Það
liggur því alveg fyrir að fiárlaga-
frumvarpið kemur til með að
breytast í meðfömm þingsins.
Hvort Jóhanna kemur til með að
geta sætt sig við fiárlagafrumvarp-
ið eins og það lítur út í desember
kemur ekki í ljós fyrr en atkvæði
verða greidd um frumvarpið. -EÓ
Ráðstefna um veiðar, vinnslu, meðferð og
markaðsmál ígulkera:
Hlutverk smá-
báta að stunda
ígulkeraveiðar
„Þar sem ígulkeraveiðar eru stund-
aftar á miklu gnmnsævi og nálægt
landi þá tel ég að það sé hlutverk
smábáta að sinna þeim. í stöðugum
samdrætti aflaheimilda eru ígul-
keraveiðar kjörið tækifæri fyrir
smábáta. Á meftan markaður fyrir
ígulker er fyrir hendi og miðin eru
góð er ekkert því til fyrirstöðu að
hefja veiðar með skipulögðum
hætti,“ segir örn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands smá-
bátaeigenda.
öm telur einnig að smábátaeigend-
ur séu best til þess fállnir að huga vel
að lífríki botnsins við veiðamar, því
þeir hafa ekki valdið botnróti hingað
til. Jafnframt kemur til greina að
veiðunum verði stjómað, t.d. þannig
að bátunum verði úthlutað ákveðn-
um veiðisvæðum.
Næstkomandi laugardag, 18. sept-
ember eftiir ráðstefnuþjónustan
Fagþing hf. í samvinnu við Eastem
Sea Product Ltd. til sérstakrar ráð-
stefnu um ígulker, vinnslu þeirra,
markaðsmál og möguleika lands-
manna á þeim markaði í Víkingasal
Hótels Loftleiða. Á ráðstefnunni
mun forstjóri Eastem Sea, Mr. Yasu-
hisa Sakai, sem er talinn einn virt-
asti sérfræðingur Japana um ígul-
ker, halda erindi um meðferð ígul-
kera og markaðsmál.
Aðrir fyrirlesarar em Gunnar Bragi
Guðmundsson frá Rannsóknastofn-
un fiskiðnaðarins sem mun fialla al-
mennt um ígulker við ísland, veiðar
og vinnslu. Öm Pálsson fram-
kvæmdastjóri LS og Þórarinn Sól-
mundarson búfræðingur munu
fialla um reynslu íslendinga af veið-
um og vinnslu ígulkera og framtíð-
armöguleika.
í lok ráðstefhunnaar verða pall-
borðsumræður og fyrirspumir en
fundarstjóri verður Halldór Ás-
grímsson alþingismaður og fyrrver-
andi sjávarútvegsráðherra.
-grii
Ef það hefúr eitthvað dregist og fólk
samt komið með vottorð þá var eng-
in endurgreiðsluskylda á því af hálfu
vinnuveitenda. Þannig að ég held að
þetta hafi verið ágæt breyting. Það
var ákveðið að reyna þetta til ára-
móta til að byrja með. En veit ekki
betur en að reynslan sé bara góð og
þetta hafi gengið mjög vel,“ sagði
Arnar.
Menn telji enda að gagnsemi af
þessum skammtímavottorðum hafi
ekki verið slík. Oftast hafi þetta ein-
ungis veri staðfesting læknis á frá-
sögn sjúklings. Eftir að vottorðin
vom felld niður hafi fólk bara sam-
band við vinnuveitanda, eða oftast
verkstjóra, og tilkynni sín veikindi.
En vottorð séu aðeins tekin vegna
lengri veikinda eða slysa. „Og nú
heyrir maður í fréttum þessa dagana
að landlæknir sé farinn að fialla um
þetta mál,“ sagði Arnar.
En má ekki búast við að fleiri fyrir-
tæki í Eyjum fylgi í kjölfarið?
„Það er eitthvað um að fyrirtæki
hafi útvegað sér trúnaðarlækni, en
þama er ekki um það að ræða. En
það má líka búast við að fleiri geri
þetta, og líka alveg viðbúið að þessi
umræða hjá landlækni muni ýta
undir það. Raunar er þetta regla sem
mikið hefur gilt í minnstu fyrirtækj-
unum“. Þar sem t.d. ynnu fiórar til
sex manneskjur saman væri ekki
verið að sendast eftir læknisvottorð-
um, heldur reiddi fólk sig þá gjaman
frekar á gagnkvæmt traust sín í
milli, sagði Arnar. - HEl
Halldóra Björnsdóttlr og Áml Tryggvason f hlutverkum sfnum f „Ferðalokum", nýju fslensku lelkritl eftir
Stelnunni Jóhannesdóttur.
Höfundur „Dans á rósum“ með nýtt leikrit í Þjóðleikhúsinu:
Ferðalok frumsýnd
á Smíðaverkstæðinu
Þjóðleikhúsið byrjar nýtt leikár á
Smíðaverkstæðinu með frumsýn-
ingu á nýju íslensku leikriti,
Ferðalokum, eftir Steinunnni Jó-
hannesdóttur í leikstjórn Þórhalls
Sigurðssonar.
í Ferðalokum segir frá viðureign
ungrar konu við skáldið Jónas og
manninn Jónas, þar sem fiallað er
um ástina sem yrkisefni og sem
viðfangsefni í lífinu. Aðalpersóna
Ieiksins er Þóra sem les bók-
menntafræði við HÍ en fer til Kö-
ben til að skrifa lokaritgerð um
Jónas Hallgrímsson og seinasta
veturinn í lífi hans. Þar hittir hún
fyrir æskuást sína, Jónas, sem hef-
ur dvalið erlendis.
Atburðarás leiksins fer fram í nú-
tímanum, en þó er þar fólgin sterk
skírskotun til sögunnar og kvæðis
Jónasar Hallgrímssonar, Ferða-
loka. Aðalhlutverk leika þau Hall-
dóra Björnsdóttir og Sigurður
Sigurjónsson. Aðrir leikendur eru
þau Amar Jónsson, Edda Amljóts-
dóttir, Baltasar Kormákur og Árni
Tryggvason. Grétar Reynisson ger-
ir leikmynd og búninga, lýsingu
annast Bjöm Bergsteinn Guð-
mundsson en tónlistin er eftir
Hróðmar Sigurbjömsson.
-grh
--------------D---------------------------
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
A VESTURLANDI
Félagsheimilinu Ólafsvík
föstudaglnn 1 7. september kl. 21.00
Jöklakórlnn tekur þátt í tónlelkunum
Kirkjunni Stykkishólmi íþróttahúsinu Borgarnesi
laugardaglnn 18. september, kl. 15:00 laugardaginn 18. september, kl. 21.00
Jöklakórlnn tekur þátt I tónlelkunum Borgflrskt söngfólk tekur þátt í tónlalkunum
EFNISSKRA' Kórarnir flytja efflrtalin verk meó hljómsvelfinni:
Beettibven: Fldello, forlelkur, Verdi
Grieg: Norsklr donsor, op. 35 Korl O. Runólfsson
Mossenet: Medltotion úr Thols Verdl
Mendelssohn Konsert f. klorlnett og bossethorn
Blzet: Carmen svíta nr. 1
Ur útsœ rísa (flutt 0 ollum stöðum)
Fangakórinn úr Nabucco (flutt ó öllum stöóum)
í f|arlœgð (flutt ó Ólafsvík og I Stykkishólmi)
Steðjakórinn úr II Trovatore (Flutt I Borgarnesi)
Hljómsveltarsfjóri: Örn Óskarsson