Tíminn - 16.09.1993, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Fimmtudagur 16. september 1993
Skagamenn bættu enn einni skrautfjöður í hattinn í gærkvöldi þegar þeir sigruðu Feyenoord 1-0, fyrstir liða til að
j leggja þá að velli á þessari leiktíð:
IA skref i nær annarri umferð
Rúmlega sex þúsund áhorfendur
sáu meistaralið ÍA leggja hollenska
Uðið Feyenoord að velli 1-0 í fyrri
leik liðanna í 1. umferð Evrópu-
keppni meistaraUða. Sigurinn var
sanngjarn miðað við það að ÍA nýtti
sín færi vel. Sigurinn er enn ein
skrautfjöðrin í hatt Akumesinga
sem eru búnir að setja mikið sigur-
Uð saman. Sigurinn var einnig sæt-
ur fyrir þær sakir að ÍA var fyrst
iiða tíl að vinna Feyenoord sem á
þessari leiktíð hafði unnið alla leik-
ina í hoUensku deUdinni.
Fyrri hálfleikur var mjög opinn og
fjörugur. Baráttan var í fyrirrúmi og
hvorugt liðið gaf þumlung eftir í
hættulegum návígum en þrátt fyrir
hörkuna fékk enginn leikmaður að
Ifta gula spjaldið hjá ungverska
dómaranum Vargas sem stóð sig
sæmilega. Ekki var sjáanlegur getu-
munur á íslensku og hollensku
meisturunum og fengu bæði liðin
Lúkas Kostic og Þórður Guðjónsson gerflu góða hlutl með ÍAI gær sem og
alllr aflrlr lelkmenn llflslns 11-0 slgrl á Feyenoord. Tfmamynd PJetur
Úrslit í Evrópukeppninni
Evrópukeppni meistaraliða: FC Innsbruck-Ferencvaros ....3-0
Mónakó-AEK Aþena ,1-0
Honved-Man.UTD ,2-3 Evrópukeppni félagsliða:
Rangers-Levski Sofia ,3-2 Dynamo Moskvo-Frankfurt. „0-6
AIK Stockholm-Sparta Prag. „1-0 Lahti-Waregem . 4-0
HJK Helsinki-Anderlecht „0-3 Young Boys-Glasgow „0-0
Rosenborg-Austria Vín „3-1 Álaborg-Coruna ,.1-0
FC Aarati-AC Mflan .0-1 Karlsruhe-PSV ?-1
Lech Poznan-Beitar (ísrael)...3-0 Hearts-A.Madrid „2-1
Skonto Riga-Spartak Moskva.0-5 US Lúxemborg-Boavista „0-1
Dynamo Kiev-Barcelona „3-1 TVabzonspor-Valetta „3-1
Sl.Bratislava-Aston Villa „0-0
Evrópukeppni bikarhafa: Norwich-Vitesse Amheim.... „3-0
Real Madrid-Lugano „3-0 Lazio-PIovdiv „3-0
Odense-Arsenal 1-? FC TVvente- B. Miinchen 3-4
Craivo-Havnar (Fær.) „4-0 Inter Milan-Rapid Búkarest, „3-1
Standard Liege-Cardiff „5-2 Juventus-Lukom. Moskva.... ...3-0
Lilleström-Tórínó „0-2 Brendby-Dundee UTD ...2-0
Benfica-Koatowice „1-0 Norrköping-Mechelen ...0-1
Degerfors-Parma „1-2 0ster-Kongsvinger ...1-3
CSKA Sofia-FC Balzers „8-0
nokkur tækifæri til að gera mark í
fyrri hálfleik. Feyenoord fékk fyrsta
færið á níundu mínútu leiksins þeg-
ar Gaston Táument var á auðum sjó
við vítateigslínu og lét skotið ríða af
þaðan en Kristján Finnbogason
varði fastan jarðarboltann mjög ör-
ugglega. Á 17. mínútu fékk Þórður
Guðjónsson hættulegasta færi
Skagamanna en skot hans úr miðj-
um vítateignum eftir færi frá Mi-
hajlo Bibercic fór framhjá. Fyrrver-
andi Skagamaðurinn Amar Gunn-
laugsson fékk ágætt tækifæri til að
skora gegn sínum gömlu félögum á
27. mínútu en skot hans vinstra
megin úr vítateignum fór framhjá
markinu Akumesingum til mikillar
ÍÞRÓTTIR
UMSJÓN: KRISTJÁN GRÍMSSON
V- .. ' J
ánægju. Staðan í hálfleik var því
markalaus sem var sanngjamt.
Fyrstu 30 mínútur seinni hálfleiks
skiptust liðin á að hafa yfirráðin á
miðjunni og kom sú barátta nokkuð
niður á spilamennsku Iiðanna. Á 65.
mínútu bjargaði Kristján Finnboga-
son meistaralega þegar Arnold
Scholten var í mjög góðu færi en
Kristján sá við honum.
Mark Akurnesinga kom á 75. mín-
útu og var undirbúningurinn afar
glæsilegur. Sigursteinn vann boit-
ann á miðjunni sendi boltann áfram
á Harald Ingólfsson sem fleytti bolt-
anum til Mihajlo Bibercic. Bibercic
geystist upp vinstri kantinn alveg að
endamörkum og sendi glæsilega
sendingu inn í vítateig Feyenoord
þar sem Ólafur Þórðarson kastaði
sér fram fyrir vamarmann og skall-
aði í netið af stuttu færi. Frábært
mark og einkennandi fyrir ÍA þar
sem undirbúingurinn var í margra
höndum. Alexander Högnason átti
ágætisskot skömmu seinna en rétt
yfir. Leikmenn Feyenoord komust
ekki inn í leikinn eftir þetta mark ÍA
enda hefur það komið þeim mjög á
óvart Lokastaðan var því 1-0 fyrir
ÍA
Skagamenn em nú skrefi nær 2.
umferð Evrópukeppninnar eftir
þennan magnaða sigur. Þeir sýndu
landanum að þeir eiga lið á Evrópu-
mælikvarða, það er engin spuming.
Allt Skagaliðið lék vel f gær. Sigurð-
ur Jónsson var sem herforingi miðj-
unni sem og Lúkas Kostic í vörninni
og Sigursteinn Gíslason sem án efa
spilaði sinn langbesta leik til þessa.
Mihajlo Bibercic var sprækur í sókn-
inni. Amar Gunnlaugsson stóð
þokkalega með Feyenoord en ekkert
meira en það. Seinni leikur liðanna
fer fram eftir hálfan mánuð og mið-
að við þennan leik á ÍA góða mögu-
leika að komast áfram.
KR mætir ungverska liðinu MTK í dag. Janus Guðlaugsson þjálfari KR:
Ahersla á sóknina
KR-ingar mæta ungverska liðinu
MTK Búdapest frá Ungveijalandi í
dag kl. 17.30 á KR-vellinum við
Frostaskjól. Leikurinn er liður í 1.
umferð Evrópukeppni félagsliða. Jan-
us Guðlaugsson þjálfari, sem stýrir
nú liði í fyrsta skipti í Evrópuleik,
sagði í samtali við Tímann að þessi
leikur gætí orðið mikil lyftistöng fyr-
ir félagiö ef það næði jafntefli eða
sigri. KR hefur aldrei náð því áður í
Evrópukeppni heldur tapað öllum
leikjum sínum til þessa.
Janus Guðlaugsson er nýtekinn við
KR-Iiðinu og hefur stýrt því í þrem-
ur leikjum samtals og ekki beðið
ósigur hingað til. Tíminn tók hann
tali.
— Hvernig líst þér á leikinn í dag?
„Mér líst vel á leikinn því íslenska
landsliðið hefúr náð góðum úrslit-
um gegn Ungverjunum og það ætti
að gefa okkur einhverja von. Þó má
varast að vera of bjartsýnn."
— Veist þú eitthvað um getu MTK?
„Atli Eðvaldsson og Óskar Hrafn
Þorvaldsson fóru til Ungverjalands
og skoðuðu liðið í sömu ferð og
meiðsli Óskars voru athuguð í
Þýskalandi. Þeir sáu MTK einu sinni.
Þarna eru hættulegir leikmenn eins
— nýliði í byrjunarliðinu
og Gábor Pölöskei sem er miðvallar-
leikmaður. Hann líkist svolítið
ítalska leikmanninum Baggio, bæði
í stfl og reyndar hárgreiðslu einnig,
þannig að þar er góður maður á
ferðinni. Ætlun okkar er að ná Gá-
bor alveg úr umferð í dag. MTK spil-
ar með einn frammi og tvo rétt fyrir
aftan hann og miðjan er setin af
fimm mönnum ef ekki sex. Ég á von
á því að þeir spili rólega í dag og það
verði kannski okkar að reyna að
sækja.“
— Hvert verður Ieikskipulag KR?
„Menn verða stilltir inn á sókn. Við
setjum það þannig upp að við gefum
mönnum ákveðið frelsi til að sækja
og höfum stillt varnarleiknum
þannig upp.
Það er gífulega mikið í húfi fyrir
leikmenn KR. Þeir þurfa að sanna að
þeir séu góðir knattspymumenn,
sem ég álít að þeir hafi ekki fengið
að sýna nógu vel í sumar. Menn
verða að fara setja markið hærra og
meðal þess er að komast áfram í 2.
umferð í Evrópukeppni. Þetta er Iíka
mikið fjárhagslegt atriði fyrir félag-
ið.“
Aðspurður um byrjunarlið KR sagði
Janus að Vilhjálmur Vilhjálmsson,
sem aldrei hefur hafið leik með
meistaraflokki KR, myndi byrja leik-
inn.
„Vilhjálmur er einn af faum sem ég
hef tekið í mjólkursýrupróf og það
próf segir mér að líkamlega eigi
hann vel að geta staðið undir þeim
kröfum sem gerðar eru til hans í
leiknum. Það eru fáir sem hafa feng-
ið sömu niðurstöðu og Vilhjálmur
hér á landi. Niðurstaða prófsins er
svo góð að hann jafnast alveg á við
þá bestu sem eru í atvinnumennsk-
unni í Þýskalandi þannig að hann er
í mjög líkamlega góðri þjálfun. Ung-
lingalandsleikir hans eiga svo að
hjálpa honum með andlegu hliðina.
Ánnars sagði Janus að byrjunarliðið
yrði eftirfarandi: Ólafur Gottskálks-
son, Izudin Daði Dervic, Þormóður
Egilsson, Vilhjálmur Vilhjálmsson,
Þorsteinn Þorsteinsson, Rúnar
Kristinsson, Sigurður Ómarsson,
Einar Þór Daníelsson, Bjarki Péturs-
son, Ómar Bendtsen og Atli Eðvalds-
son. Janus sagði að hann hefði ekki
hikað við hingað til að nota báða
varamennina í íslandsmótinu. „Ef
einhverjir standa sig ekki þá eru all-
ir varamennimir tilbúnir," sagði
Janus Guðlaugsson að lokum.
SVARSEÐILL
Tímaleikmaður 1. deildar karla:___________________________________
Tímaleikmaður 1. deildar kvenna:__________________________________
Nafn:________________________________________________________Sími.
Heimilisfang______________________________________________________
Tímaleikmenn 1. deildar karia og kvenna fá að launum Sælulykil fyrir tvo að Hótel Örk í
Hveragerði, þar sem innifaliö er gisting, kvöldverður, dansleikur og morgunverður.
Þrír aðilar verða dregnir úr innsendum svarseðlum og fá þeir heppnu Adidasvörur frá
Sportmönnum hf.
Svarseðlar sendist inn fyrir 28. september næstkomandi merkt:
Tíminn „Tímaleikmenn ársins“ Lynghálsi 9,110 Reykjavík
HÓTELÖÍ2C
PARADlS RÉTTHANDAN V7Ð HÆÐINA
adidas =