Tíminn - 16.09.1993, Síða 9

Tíminn - 16.09.1993, Síða 9
Fimmtudagur 16. september 1993 Tíminn 9 ■ DAGBÓK 80 ára afmæli Ámorgun, 17. september, verðuráttræð- ur Guðmundur Ámundason bóndi í Ásum, Gnúpveijahreppi. Eiginkona hans er Stefanía Ágústsdóttir húsmóðir. Þau verða að heiman á afmælisdaginn. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágremi Aðalfundur bridsdeildar Félags eldri borgara í Reykjavík er kl. 13 í dag í Ris- inu. Spilað eftir fúnd. Tvímenningur. Dansað eftir lifandi músík kl. 20 f kvöld í Risinu. Félag eldri borgara í Kópavogi Félagsfundur verður haldinn sunnudag- inn 19. sept kl. 14 í félagsmiðstöðinni Gjábakka, Fannborg 8. Stjómin. Vfrnet hf. kynnir Galvaniseraö bárujám — þetta gamla, góöa Vfmet hf. hefur framleitt „galvaniserað bárujám" allt frá 1978. Þessi vara hefur átt mikilli velgengni að fagna á íslensk- um byggingamarkaði f gegnum árin. Sameinar allt f senn: fremur ódýrt, hefur sígilt útlit og er varanleg lausn við við- hald og nýbyggingar, á þök og veggi. Vímet hf. mun nú bjóða þetta efni með þykkari sinkhúð en áður hefur þekkst Stál, sem ætlað er til þak- og veggja- klæðninga, er alltaf húðað til þess að verja það málmtæringu. Sink (Zn) og ál (Al) era þeir málmar sem algengastir era til húðunar á stáli, eða blöndur af þeim. Hér er um sinkhúð að ræða. Sinkmagn á plötum er gefið upp f grömmum á fermetra, heildarþykkt sinkhúðar á báðum hliðum. Algengast er að klæðningaefni sé með 275 gr/m1. Þar sem ending sinkhúðar er í réttu hlutfalli við þykkt hennar þá leiðir aukið sinkmagn tdl lengri endingar án þess að stálið fari að ryðga eða tærast Með þetta að leiðarljósi hefur Vímet hf. ákveðið að bjóða þykkari sinkhúð eða 350 gr/m!. Vímet hf. er í Borgamesi, að Borgar- braut 74. Síminn er 93-71000. Bókaútgáfan Örn og Örlygur auglýsir eftir myndefni Á næstunni kemur út á vegum Bókaút- gáfunnar Amar og Örlygs hf. ritverkið Jfkureyri — höfuðstaður Norðurlands" eftir Steindór Steindórsson, fv. skóla- meistara. Bókin verður ríkulega skreytt Ijósmyndum, gömlum og nýjum, mál- verkum, teikningum, kortum og upp- dráttum. Af þessu tilefni vill Bókaútgáf- an Öm og Örlygur leita til fólks, sem kynni að eiga f fóram sínum gamlar ljós- myndir, teikningar eða annað myndeftii sem tengist Akureyri og umhverfi bæjar- ins og fá slíkt efni léð til birtingar í verk- inu. Þeir, sem kynnu að eiga slíkt efni eða vita um það, era góðfúslega beðnir um að hafa samband við fvar Gissurar- son myndaritstjóra í síma 91-684866. Einnig er væntanlegt innan skamms frá Emi og Örlygi umfangsmikið rit um sjávarhætti við suðurströndina, frá Lónsheiði til Þjórsárósa, eftir Þórð Tóm- asson í Skógum. Bókin verður fjölþætt að efni og má nefna kafla um skip og skipasmíði, farviði, áhöld og sjóklæði, útræði, gæftir og fiskigengd, vinnu í landlegum, fisknytjar, skiptapa og mann- skaða og er þá fátt eitt neftiL Þórður hef- ur um árabil saftiað Ijósmyndum er tengjast efni bókarinnar og verður hún ríkulega prýdd myndum. Af þessu tilefni vilja höfundur og útgefandi leita til fólks er kynni að eiga í fóram sínum myndir, er tengjast þessu efni, og fá þær léðar til birtingar í bókinni. Þeir, sem kynnu að eiga slíkar myndir eða vita um þær, era góðfúslega beðnir um að hafa samband við höfúnd, Þórð Tómasson, f síma 98- 78842 eða ívar Gissurarson myndarit- stjóra í síma 91-684866. Ragnar V. Björgvinsson Valgerður Sveinsdóttir ISTiUHIDSTÖÐIN UNGIOLTI It Langholt II • 801 Selfoss • lceland Tel: 354 (9)8-21061 Fox: 354 (9)8-23236 - HESTAFERÐIR - SAIA RIDING TOURS - SALE - EXPORT Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra Reykjanesi Forstöðumaður og deildarþroskaþjálfar óskast! Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi óskar eft- ir að ráða til starfa forstöðumann við sambýli fatlaðra í Njarðvík. Óskað er eftir þroskaþjálfa eða öðrum fagmenntuðum starfsmanni með uppeldisfræðilega menntun og reynslu af stjómunarstörfum. Ennfremur óskar Svæðisskrifstofan eftir að ráða deildar- þroskaþjálfa til starfa við sambýli fatlaðra í Kópavogi og Hafnarfirði. Forstöðumenn og deildarþroskaþjálfar taka þátt í fram- sæknu starfi í málefnum fatlaðra á vegum Svæðisskrif- stofu með öflugum faglegum stuðningi í formi hand- leiðslu, námskeiða og víðtæku faglegu samstarfi með öðrum stjómendum hjá Svæðisskrifstofu. Umsóknarfrestur er til 24. september. Nánari upplýsingar em veittar í síma 641822 og um- sóknareyöublöð liggja frammi á Svæðisskrifstofu Reykja- ness, Digranesvegi 5 í Kópavogi. Sameiginleg áhugamál eiginmanna Önnu, þess fyrrverandi Marks Phitiips og núverandi Tims Laurence, eru sjátf- sagt fjölmörg, en hér ræöa þeir að sjálfsögöu um hesta. Er Anna Breta- prinsessa kona ekki einsömul? Eini ljósi punkturinn í hjóna- bandsmálum barna Elísabetar Bretadrottningar á árinu 1992 — árinu sem drottningin kall- aði „annus horribilis" — var brúðkaup dóttur hennar Önnu og Tims Laurence sjóliðsfor- ingja í desember. Þá hafði loks nýlega verið gengið frá skilnaði prinsessunn- ar og fyrrverandi eiginmanns, Marks Phillips, og reyndist prinsessan þar vera skrefinu á undan bræðrum sínum Karli og Andrési, sem þetta endemisár tilkynntu báðir skilnað að borði og sæng við konur sínar. Nú hafa frekari ánægjufréttir borist af prinsessunni, að vísu ekki staðfestar enn, en vonandi sannar. Sterkur orðrómur er á kreiki um að prinsessan, sem orðin er 43ja ára, eigi von á sér og sé þegar gengin þrjá mánuði með. Meðfylgjandi myndir voru teknar fyrir um mánuði, þegar hjónin voru viðstödd árlegt hestamót á Gatcombe Park, landareign prinsessunnar þar sem hún hélt heimili með Mark Phillips. Phillips hefur búið þar síðan, en er nú að láta fullgera sér híbýli í næsta nágrenni, svo að þau hjónin fyrrverandi þurfi ekki að sofa undir sama þaki til frambúðar. Þar má sjá að hið besta fer á með fyrirfólkinu og þó að Tim sé ofurlítið utangátta í þessum hestaheimi, hann seg- ist ríða skipum en ekki hestum, lætur hann það greinilega ekki á sig fá. Þá má ekki gleyma því að böm þeirra Marks og Önnu skemmtu sér ekki síður en þeir fullorðnu í góða veðrinu á Gatcombe Park. Anna var I essinu stnu á hestamótinu. Anna Bretaprinsessa og Tim Laur- ence gengu í hjónaband f desem- ber sl. og segja má aö hamingjan geisli afþeim. Hér eru hjónin stödd á hestamóti, sem haldiö er árlega á heimavelli Önnu prinsessu, Gatc- ombe Park, en þar hélt hún einmitt heimili með fyrri manni sínum, hestamanninum Mark Phillips. í baksýn er Peter, sonur Önnu og Marks.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.