Tíminn - 25.09.1993, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Laugardagur 25. september 1993
Sýnir sig að mismunandi verð gengur ekki á bensínmarkaðnum. Georg Ólafsson:
Samráð um verð á bensíni
hvorki sannað né afsannað
„FÍB byggir kvörtun sína á þvf að verðbreytingar olíufélaganna á
bensfnl hafi gerst nær samstundis. Slíkt sannar ekki að um sam-
stilltar aðgerðir hafi verið að ræða. Frekari röksemdir eða sannan-
Ir skortlr. A sama hátt nægja ekki svör olíufélaganna til að hreinsa
þau af ásökunum FÍB,“ segir f fréttabréfi Samkeppnisstofnunar,
þar sem fjallaö er um kvörtun FÍB um að olfufélögin heföu haft
samráð um verðbreytingar á bensíni.
Ofíufélögin hafi hins vegar mót-
mælt þeim ásökunum og auk þess
bent á að skýrínga á óverulegum
verðmun sé að leita í þeim sérstöku
aðstæðum sem ríki á sölu eldsneytis
hér og í nágrannalöndunum.
Vegna þeirrar fákeppni sem ríkir
hér á landi og hve erfitt það er fyrir
nýja aðila að hasla sér vöil á eíds-
neytismarkaði segir Samkeppnis-
stofnun það nauðsynlegt, við eftirlit
á markaðnum, að hafa verð og verð-
þróun á eldsneyti annars staðar í
Evrópu til hliðsjónar. Þá verður ol-
íufélögunum gert skylt að auglýsa
verð á bensíni á áberandi skiltum á
sölustöðum."
Georg Ólafsson, forstöðumaður
Samkeppnisstofnunar, var spurður
hvort hlutur olíufélaganna í olíu-
verðinu hefði minnkað eða stækkað
síðan verðlagning á olíu varð frjáls
og hvort eða hvað helst hefði breyst
„Við höfum engar nýjar tölur um
það. Það hefur verið þama ákveðin
samkeppni, en menn verða að hafa
sama verð. Það olíufélag sem hefur
kannski veríð seinna til að ná lægra
innkaupsverði hefur samt þurft að
lækka sig. Það hefur sýnt sig, eins og
við spáðum raunar fýrir um þegar
þetta frelsi var gefið, að þróunin
mundi verða með þessum hætti. Það
gengi ekki upp á þessum markaði að
félögin væm með mismunandi verð.
Kæmi einhver lækkun úti þá yrði
mikil tregða hjá þeim sem fengi
lægsta verðið að ríða á vaðið, vegna
þess að hann vissi að hinir myndu
fylgja á eftir. Viðkomandi mundi því
ekkert græða á lækkuninni, en hin
félögin aftur á móti tapa. Og eitt-
hvað slíkt hefur gerst, að einhver fé-
laganna tafa tapað tfmabundið,"
sagði Georg Ólafsson.
I fréttabréfi Samkeppnisstofnunar
er sýndur samanburður á verði á
bensíni (95 og 98 okt) og díselolíu í
18 Evrópulöndum, miðað við 15.
september 1993.
I ljós kemur að bensfn er langdýr-
ast f Noregi, en Holland og ísland
koma næst í röðinni. Díselolía er á
hinn bóginn langsamlega ódýrust á
ísland og meira en helmingi ódýrari
hér en víðast annars staðar. Og
þama em Norðmenn líka næstir
okkur.
Verð á lítra af 95 okt bensrni
Svíþjóð Frakkland 67,14 kr. 65,18 kr.
Belgía Þýskaland 60,69 kr. 59,59 kr.
Austurríki 59,01 kr.
Sviss Portúgal 57,56 kr. 57,11 kr.
írland Finnland 56 J9 kr. 55,62 kr.
Danmörk Grikkland 55,29 kr. 55,19 kr.
Spánn 54^39 kr.
Bretland Lúxemborg 5L87kr. 47,91 kr.
Langsamlega algengast virðist að
95 oktana bensín kosti einhvers
staðar á bilinu 55-60 krónur. Athygli
vekur hvað verðmunur á 95 og 98
oktana bensíni er mismunandi, eða
allt frá 3% dýrara (Ítalía) og upp í
13% dýrara (Lúxemborg).
Röð landanna snýst síðan alveg við
Verð á díselolíu á bfla
Sviss ..................60,52kr.
Ítalía..................53,81 kr.
Bretland ...............51,87kr.
Danmörk.................50,16 kr.
Belgía .................49,71 kr.
Austurríki..............49,27 kr.
Ítalía..................48,81 kr.
Grikkland...............47,73 kr.
Frakkland...............47,47kr.
Holland.................47,47kr.
Svíþjóð ................44,70 kr.
Þýskaland...............44,58kr.
Spánn ..................43,48kr.
Portúgal ...............41,99kr.
Lúxemborg...............39,73 kr.
Finnland................36,60 kr.
Noregur.................32,77 kr.
ísland..................23,60 kr.
Díselolía á bíla er samkvæmt þessu
frá 40% og allt upp í 160% dýrari í
hér á
- HEI
Noregur 74,59 kr. þegar kemur að samanburði á verði öðrum Evrópulöndum en
ísland 69,23 kr. díselolíu á bíla. Þar finnast m.a. landi.
Holland 68,29 kr. dæmi um (Sviss) að hún sé dýrari en
Ítalía 67,17 kr. bensín.
SLATUR-
OG KJÖTMARKAÐUR KB!
Borgarbraut 59 (gömlu ESSO-stöðinni)
OPNAÐIMIÐVIKUDAGINN
15. SEPTEMBER KLUKKAN 13.00
Þar er á boðstólnum auk sláturs ferskt kjöt af ný-
SLÁTRUÐU, HLUTAÐ SAMKVÆMT ÓSKUM KAUPENDA.
Látum kjöt hanga ef óskað er.
Greiðslukortaþjónusta.
DAGLEGUR OPNUNARTÍMI
Mánudaga 13-17
Þriðjudaga-Fimmtiidaga 10-12 og 13-17
Föstudaga 10-12 og 13-19
Ákaflega óvenjulegt að sjá hafís í ágúst og byrjun
september. Þór Jakobsson veðurfræðingur:
Ekki áöur gerst
á þessari öld
„Það þarf að fara allt að 100 ár og
vel það aftur í tímann til að sjá haf-
ís á þessum árstíma, í ágúst og
fram í byijun september. Þannig að
þetta er ákaflega óvenjulegt. Þetta á
sér kannski sambland af veður-
fræði- og haffræðilegri skýringu,
getur m.a. stafað af óvenjulega
langvarandi loftstreymi að norðan
og svo kannski eitthvað öflugri A-
Grænlandsstraumi," segir Þór Jak-
obsson, veðurfræðingur og hafís-
sérfræðingur á Veðurstofu Islands.
Eins og kunnugt er hefur verið
óvenjumikið um hafís úti fyrir norð-
anverðum Vestfjörðum og Norður-
landi í sumar, sem er óvenjulegt
miðað við árstíma. Svo virðist sem
sumarið hafi verið nokkuð seinna á
ferðinni á Grænlandssundi en oft
áður og fór sumarsins ekki að gæta
fyrr en í þessum mánuði í stað júní-
mánaðar, eins og venjulega.
Þá hefur einnig orðið vart við
myndarlega borgarísjaka við norð-
anvert landið. Það þykir þó ekkert
óvenjulegt á þessum árstfma, en
öðru máli gildir um hafísinn sem er
eins og kunnugt er myndaður af sjó.
Þór Jakobsson segir að veðrið sem
var yfir Norðurlandi í sumar hafi
náð um allt íslandshaf og haldið við
ísnum fram eftir sumri. Það gerði
meðal annars að verkum að ísinn
minnkaði ekki eins og venjulega. En
hafísinn nær reglulega hámarki í
vetrarlok á ári hverju, um mánaða-
mótin maí — júní og snarminnkar
svo í júlí og ágúst.
„Um miðjan ágúst voru suðvest-
lægar áttir sem héldu hafi'snum
mjög útbreiddum í Grænlands-
sundi, á milli íslands og Grænlands.
Jafnframt fór ísinn svo austarlega að
sumt af honum rak norður fyrir
landið og inn í standstrauma með-
fram landinu."
Þór segir að ísinn í Grænlands-
sundi hafi þó minnkað mjög mjög
mikið og kennir þar áhrifa frá aust-
lægum áttum. Hinsvegar varð ís eft-
ir fyrir norðan Homstrandir og í
norðanverðum Húnaflóa. Sá ís er þó
farinn að bráðna og kannski ekki
seinna vænna.
-grh
Sprengitilboð á timbri
LAGERUTSALA
Dæmi um
verö í heiium
búntum:
38 x 125 ...67 kr.
38x150 ....79-
38 x 175 ....94-
38x250..133-
50x225..159-
75 x 150..159-
75x175-183-
75x200-209-
19x75....19-
Öll verð miðuð við lengd-
armetra með vsk.
Seljum einnig í lausasölu
með miklum afslætti.
Eigum von á spónaplöt-
um frá Svíþjóð á góðum
verðum.
NES-PACK
SÍMI 627066-611115
FAX 611120