Tíminn - 25.09.1993, Side 3

Tíminn - 25.09.1993, Side 3
Laugardagur 25. september 1993 Tíminn 3 I í gærkvöldi var opnuð sýning Ferðaklúbbsins 4x4 í Laugardalshöllinni í Reykjavfk. Þar eru sýndir marg- víslega útbúnir jeppar, torfærubílar og útbúnaður til fjaila-, jökla- og óbyggðaferða. Þá sýna fjölmargir að- hafa ásamt Ferðaklúbbnum lagt umtalsverða fyrir- höfh og fjármuni í að kynna sýninguna erlendis og bjóða á hana erlendum bílablaðamönnum og frétta- Stuðningsaðflar klúbbsins við sýningarhaldið eru einkum BÖabúð Benna og Fiugieiðir en þessir aðilar Evrópu. Um 40 aðiiar taka þátt {sýningunni auk þess sem klúbbfélagar sýna öölmarga bfla. Tímamynd Ami Bjanu. Enn mikil and- staða við húsa- leigubætur Ríkisstjómin ræddi ekki ágreining um húsaleigubætur á fundi sínum í gær eins og reiknað hafði verið með. Davíð Oddsson forsætisráðherra, Friðrik Sophusson fjármálaráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra ræddu hins vegar einslega um málið eftir ríkisstjóm- arfundinn í gær. Ekki fengust upp- lýsingar um hvort samkomulag hefði náðst milli ráðherranna. Þó að andstaðan við húsaleigubætur sé mikil innan Sjálfstæðisflokksins er talið að forystumenn flokksins muni reyna koma á móts við sjónar- mið Alþýðuflokksins í málinu. Menn telja einfaldlega að ágreiningsmál flokkanna séu orðin svo mörg að það verði að leysa húsaleigumálið ef rík- isstjómarsamstarfið eigi ekki lenda f sjálfheldu. -EÓ Reglur um bótarétt sjálfstætt starfandi einstaklinga: Atvinnuleysis- réttur víkkaður Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið gaf út í gær reglugerð þar sem til- greind eru þau skflyrði sem sjálf- stætt starfandi einstaklingar þurfa að uppfylla til þess að öðlast rétt til atvinnuleysisbóta. Reglugerðin er sett á grundvelli þeirra breytinga Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins um „permaform“-íbúðir Ármannsfells: Brjóta ekki í bága við byggingareglugerð Jón Sigurjónsson, yfirverkfræðingur hjá Rannsóknastofnun bygg- ingaríðnaöarins, segir aö íbúðir Ármannsfells sem byggðar eru með svonefndu Perma-form kerfi brjóti ekki á neinn hátt bygginga- reglugerðir. Eins og kunnugt er hefur Meist- ara- og verktakasamband bygginga- manna farið fram á nákvæma úttekt á því hvort hús þau sem Ármannsfell byggir í samvinnu við norska aðila, með svonefhdri Permaform-aðferð, standist byggingareglugerð. „Permaform-kerfið hefur verið til skoðunar í nokkra mánuði á þessu ári og menn eru búnir að vinna að því að aðlaga það íslenskum aðstæð- um frá því í vor. Við sjáum ekki að húsin brjóti byggingareglugerð á þann hátt sem í hyggju er að byggja þau hér,“ segir Jón. Hann segir að Rannsóknastofnunin hafi gert um þetta ítarlega greinar- gerð hlutaðeigandi byggingafyrir- tækjum en Ármannsfell byggir íbúðimar í samvinnu við norsk íyr- irtæki. „Það var vel að þessu staðið. Fyrir- tækin leituðu hingað mjög fljótt og menn hafa svo unnið með hönnuð- um þeirra að því að aðlaga þetta ís- lenskum aðstæðum og ég veit ekki annað en þetta standist bygginga- reglugerð," segir Jón. Hann segir að ákveðnar mælingar sé þó ekki hægt að gera fyrr en hús- in hafi náð ákveðnu byggingastigi. Þar á hann við m.a. vindþéttleika og hljóðeinangrun sem erfitt er að meta eftir teikningum. „Það er sam- komulag um að þetta verði gert og eftir það vitum við ennþá meira,“ segir Jón. Rannsóknastofnun kynnti sér einn- ig þessi hús í Noregi. „Þar er góð þriggja ára reynsla af þessum hús- um,“ segir Jón. -HÞ sem Alþingi samþykkti sl. vor á lög- um um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt reglugerðinni geta sjálfstætt starfandi einstaklingar öðlast rétt til atvinnuleysisbóta frá og með 1. október nk. að uppfylltum ákveðnum almennum skilyrðum. Fyrir það fyrsta þarf viðkomandi að hafa hætt sjálfstæðri starfsemi og tilkynnt það til opinberra aðila, hafa engar tekjur eða tekjuígildi af rekstri, hafa ekki hafið störf sem launamaður, vera í atvinnuleit og geta tekið tilboðum um vinnu. í reglugerðinni er einnig tekið skýrt fram að árstíðabundin stöðvun starfsemi eða tímabundið hlé vegna verkefnaskorts eða af öðrum ástæð- um, veita ekki rétt til atvinnuleysis- bóta. Til að öðlast rétt til hámarksbóta þarf viðkomandi að hafa staðið í skil- um með greiðslu tryggingagjalds og staðgreiðsluskatts af reiknuðu end- urgjaldi miðað við fullt starf vegna síðustu tólf mánaða áður en hann varð atvinnulaus. Biðtími eftir bót- um er tuttugu virkir dagar, eða fjór- ar vikur sem kemur til viðbótar við hinn almenna tekjutengda biðtíma. Sé bóta aflað með sviksamlegum hætti getur viðkomandi átt á hættu að verða endurkrafinn um allt að tvöfaldri þeirri upphæð. -grh HAUSTVERÐ A BÚVÉLUM Eigum örfáar vélar af eftirtöldum tegundum, sem viö seijum á hausttilboösverði. IhhjíhiIIb Kverneland GREENLAND LAh EŒJspin ciiifis wnn Hafiö samband viö söiumenn okkar, sem gefa aiiar nánari upplýsingar. Ingvar Helgason hf. vélasala Sævarhöföa 2. SÍMI 91-674000.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.