Tíminn - 25.09.1993, Qupperneq 11

Tíminn - 25.09.1993, Qupperneq 11
Laugardagur 25. september 1993 Tíminn 11 Frí undirskrtft samnings um stofnun Samtaka iðnaðatins. Tfmamynd Ami BJama Samtök iðnaðarins voru stofnuð í gær Ný heildarsamtök í iðnaði á íslandi, Samtök iðnaðarins, voru stofnuð í gær, en í þeim sameinast Landssam- band iðnaðarmanna, Félag íslenskra iðnrekenda, Félag íslenska prentiðn- aðarins, Verktakasamband íslands, Meistara- og verktakasamband bygg- ingarmanna og Samband málm- og skipasmíða. Megintilgangur sameiningarinnar er að efla starfsemi aðildarsamtak- anna, þjóna betur íslenskum iðnaði og að gæta hagsmuna hans á inn- lendum og erlendum vettvangi. Þannig munu samtökin vinna að bættum starfsskilyrðum. Innan samtakanna eru um 2500 fyrirtæki og einstaklingar með sjálfsstæðan atvinnurekstur og nemur heildarársvelta þeirra um 75 milljörðum króna. Innan fyrirtækja Samtaka iðnaðarins starfa um 25 þúsund manns, eða um 20% af heildarvinnuafli landsmanna og at- kvæðavægi samtakanna innan VSÍ verður um 40% Fyrstu mánuðina munu samtökin leggja áherslu á að sýna fram á að samkeppnishæfur iðnaður sé eitt helsta vopnið í baráttunni við at- vinnuleysið og að efna til kynningar á íslenskum iðnaði og framleiðslu hans. Þá munu samtökin leggja mikla áherslu á að hrint verði í framkvæmd raunhæfum aðgerðum til að lækka vexti í landinu og að frumvarp ríkisstjórnarinnar um ís- lenska fjárfestingarbankann verði að lögum í haust, svo eitthvað sé nefnt. -PS Frá Seyðlsfiröl. Nýja dráttarbrautin á Seyðisfirði er búhnykkur fýrir Austfirðinga: Hefur skapað verk- efni fyrir 20 til 30 milljónir á árinu í desember síðastliðnum var lokið við uppsetningu dráttarbrautar á Seyðisfírði, en það var Hafnarsjóð- ur Seyðisfjarðar sem keypti braut- ina árið 1988 og setti hana upp í samstarfí við fyrirtæki í bænum. Theódór Blöndal, framkvæmda- stjóri Vélsmiðjunnar Stál hf. á Seyðisfírði, sem hefur afnot af dráttarbrautinni, sagði í samtali við Tímann að dráttarbrautin ger- breytti aðstöðu fyrirtækisins og gerði því kleift að taka að sér fjöl- breyttari viöhaldsverkefni á skip- um. Síðan dráttarbrautin var sett upp hefur þónokkuð verið um verkefni, þótt alltaf megi velta fyrir sér hvað sé eðlileg nýting. Theodór sagði að það sem af er árinu hefði dráttar- brautin aflað fyrirtækinu verkefna fyrir um 20-30 milljónir og væri það nánast hrein viðbót, því áður hefði vélsmiðjan aðeins getað sinnt verk- efnum, þar sem ekki þurfti að taka bátana upp. Hann sagði að ekki væri Ijóst með verkefni í framtíðinni, nú væri sá tími sem menn huguðu að bátum sínum. „Framtíðin er óljós eins og alltaf. Það er hörð sam- keppni í þessu, það eru miklar efna- hagsþrengingar og allir að spara. Þá er minni stórhugur í útgerðar- mönnum, en við vonum að Eyjólfur hressist. Reyndar sé ég ekki merki þess, þar sem kvótinn er stöðugt skorinn niður og menn hafa alltaf minna, en vonandi snýst það við.“ Um 25 manns starfa hjá Vélsmiðj- unni Stál. Þessa dagana er verið að vinna að viðhaldi á Steinunni frá Homafirði og þegar því er lokið verða teknir tveir aðrir bátar frá Homafirði sem verða málaðir og fleira, en hingað til hafa eingöngu bátar ffá Homafírði verið teknir upp í slippinn. Um framtíð skipasmíðaiðnaðar á íslandi sagði Theodór að hún væri að miklu leyti í höndum stjórnvalda. „Veldur hver sem á heldur. Ef stjórn- völd vilja koma eitthvað til móts við þennan iðnað þá á hann framtíð fyr- ir sér, því að við höldum áfram að gera út skip og svo lengi sem þau verða til þurfa þau einhverja um- hirðu og sem betur fer er ennþá ein- hver þekking í þessum iðnaði til hér á landi. En ef það á að vera þannig að menn kaupi það ódýrasta erlendis frá án tillits til þess hvort það á að halda uppi atvinnu í þessu Iandi, þá fer þetta náttúrulega allt til fjand- ans.“ -PS Slátursala KS Nú er rétti tíminn til að gera hagstæð matarinnkaup! Dilkakjöt í heilum skrokkum ófrosið. Fitulítiö úrvalskjöt 425 kr. pr. kg. DIA fyrsti flokkur 407 kr. pr. kg. DIB meðal feitt 372 kr. pr. kg. DIC feitt kjöt 336 kr. pr. kg. Frosið sagað kjöt ca 6% dýrara. Slög aöeins 100 kr. pr. kg. Trippasaltkjöt 2500 kr. 9 kílóa fata, Heilslátur 505 kr. pr. stk. Dilkalifur 205 kr. pr. kg. Dilkasvið 250 kr. pr. kg. Opnunartími frá kl. 10 - 12 og 13-17. Munið pöntunarsímann 35200 (slátursala) Slátursala KS. Anlmo KAFFIVÉLAR iíMPIEX^ STANGARHYL 1 • P.O. BOX122 • 121 REYKJAVÍK • SÍMI 678200 • FAX: 678566 V__________________________ ^ \HOBART/ HRÆRIVÉLAR Hin heimsþekktu tæki til matvælaiðnaðar. /SIMPLEX/ hakkavélar fyrír minni kjötvinnslur. Vinsæiar og viðurkenndar fyrir gæði, bæði til sjós og lands. - VENDING HF

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.