Tíminn - 25.09.1993, Blaðsíða 12
12 Tfminn
Laugardagur 25. september 1993
Rúllupvlsa
Það að taka slátur
hefur um áratugaskeið
þótt ákaflega þjóðlegt og
hefur tilheyrt haustverk-
um á heimilum bæði í
þéttbýli og dreifbýli. Nú fer ein-
mitt sá tími í hðnd þegar flestir
leggja út í sláturgerð. Þrátt fyrir
að um ódýran mat sé að ræða,
hefur farið svo að sláturgerð
hefur farið minnkandi, þrátt fyr-
ir að hún hafi með nýjum
vinnsluaðferðum verið gerð auð-
veldari. f samtölum við kaup-
menn kom fram að þeir telja þó
að sláturgerð meðal ungs fólks
hafi talsvert færst í vöxt, enda
megi það í nokkrum tilvikum
heimfæra á verðið. Við birtum
hér uppskriftir að slátri og þeim
vinnubrögðum sem beita verður
við sláturgerð, auk þess sem við
látum rúllupylsugerð fylgja með.
Ekki er óalgengt að úr hveiju
slátri fáist um sjö keppir. Þegar
slátrið er tekið, er byrjað á því að
þvo vambimar vel úr köldu
vatni. Skafa þarf og reyta oft á
tíðum af vömbunum, en gæta
þarf þess þó að þær verði ekki of
þunnar. Leggið vambimar á
stórt bretti og sníðið keppi eins
jafna og hægt er, en nokkuð
heppilegt ku vera að sníða fímm
keppi úr vömbinni. Saumið
keppina saman með mjúku bóm-
ulíargami, en munið að skilja
eftir gott op. Geymið síðan kepp-
ina í köldu saltvatni þangað til
þeirra er þörf. Frysta má vam-
bimar, en þá þurfa þær helst að
vera saumaðar, þar sem það er
heldur leiðinlegt að sauma vam-
bir sem þegar hafa verið frystar.
Að þessu loknu er mörinn tek-
inn fyrir og eitlar hreinsaðir, þ.e.
ef þeir era til staðar og síðan er
mörinn biytjaður smátt Ágætt
er talið að bitarair séu á stærð
við litla sykurmola. Geymið síð-
an mörinn í ísskáp þar til hann
er notaður. Einnig er hægt að
geyma mörinn í hysti.
Því næst er lifrin tekin og allar
æðar hreinsaðar úr henni. Nýr-
un leggjum við í kalt saltvatn í
nokkra tíma og síðan tekin af
þeim allar himnur og æðar.
Blóðmör
1 lítri blóð
2 dl vatn
1 msk salt
300 gr haframjöl
400-500 gr rúgmjöl
400-500 gr mör
12-15 vambakeppir
Við byrjum á því að sía blóðið í
gegnum vírsigti og síðan er salti
og vatni blandað í það. Þetta er
hraert þar til saltið er uppleyst að
fullu, síðan er haframjölinu hrært
1 kg lambaslag
3 tsk. salt
örlítill saltpétur
1 tsk. allrahanda
1/2 tsk. pipar
Í/2 tsk. rúllupylsukiydd
2 tsk. fínt saxaftur laukur
Þvoið slögin og úrbeinið þau.
Blandið kryddinu saman og stráið
því á slögin. Vefjið þétt og saumið
með bómullargarni. Vefjið síðan
með saumagarninu tvöföldu.
Rúllupylsuna má frysta strax eða
setja í pækil.
FRYSTIKISTUR
TOPP - GÆÐI
152 lítra kr. 34.580,-
191 lítra kr. 36.480,-
230 lítra kr. 37.905,-
295 lítra kr. 40.280,-
342 lítra kr. 41.705,-
399 lítra kr. 45.980,-
489 lítra kr. 51.205,-
540 lítra kr. 58.330,-
BOTN - VERÐ
Verð miðað við staðgreiðslu
• HEIMILISTÆKJADEILD FÁLKANS •
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 814670
# Innrabyrði úr
hömruðu áli
# Lok með ljósi,
læsingu, jafn-
vægisgormum
og plastklætt
# Djúpfrystihólf
# Viðvörunarljós
# Kælistilling
# Körfur
# Botninn er
auðvitað frysti-
flötur ásamt
veggjum
SLÁTUR-
út í blóðið og að því loknu rúg-
mjölið. Þetta verður að hræra
mjög vel, annað hvort með hendi
eða sleif. Athugið að blóðhræran á
að vera þynnri en lifrarpylsuhrær-
an. Hrærið síðan smátt brytjuðum
mör saman við.
Takið vambirnar upp úr vatninu
og strjúkið vætuna af. Setjið
hræruna í vambirnir og hafið
keppina rúmlega hálfa. Saumið
fyrir, jafnið í hræruna í keppunum
og pikkið í þá með stórri nál.
Látið keppina í sjóðandi saltvatn
(1/2-1 msk. af salti í hvern lítra
vatns), en látið aðeins nokkra
keppi í í einu og bíðið eftir að suð-
an komi aftur upp áður en fleiri
keppum er bætt útí. Pikkið kepp-
ina með nál um leið og þeim skýt-
ur upp á yfirborðið og ýtið ofan á
Skerið mörinn I jafna bita.
þá með gataspaða. Hafið rúmt í
pottinum, sjóðið með hlemmi og
gætið þess að suðan sé hæg og
jöfn. Suðutími er rúmar þrjár
klukkustundir, reyndar eftir stærð
keppanna.
Lifrarpvlsa
3-4 msk. sykur
1 lifur (ca. 450 gr)
100 gr nýru
1/2 lítri mjólk efta kjötsoft
1 msk. salt
100 gr haframjöl
100 gr hveiti
250 gr rúgmjöl
400 gr mör
Vambakeppir
Lifur og nýru eru hökkuð tvisvar.
Salt og sykur er sett í soðið eða
mjólkina og blandað vel. Nú er
lifrarhrærunni og mjölinu bætt í
og hrært vel. Að lokum er mörn-
um blandað saman við. Gætið þess
að saxa mörinn smátt og hafa bit-
ana jafnstóra.