Tíminn - 13.10.1993, Qupperneq 6
6 Tfminn
Miðvikudagur 13. október 1993
Handknattleikur 1. deild kvenna:
Auðveldur sigur Framara
stigu á topp deildarinnar ásamt Stjörnunni
Framstúlkur þurftu ekki að sýna
neinn stórleik í gærkvöidi til að bera
sigurorð af Haukastúlkum. Fram
sigraði í leiknum, 20-15, og var þetta
auðveldur sigur hjá þeim og til marks
um það komust Haukastúlkur aidrei
yfir í leiknum. Framarar eru nú með
fúllt hús stiga á toppi 1. deildar,
ásamt Stjömunni sem vann yfir-
burðasigur á Fylki, og er orðið æði
langt síðan það gerðisL
Jafnraeði var með liðunum á upp-
hafsmínútum leiksins en það var
Selka Tosic sem gerði íyrsta mark
leiksins fyrir Fram úr vítakasti.
Reyndar komu þrjú af fjórum íyrstu
mörkum leiksins úr vítaköstum. Stað-
an eftir um sex-
tán mínútna leik
var aðeins 2-2 og
það var engin
furðaaðlítiðværi
skorað því mark-
verðir liðanna,
þær Kolbrún Jó-
hannsdóttir í ______________________
Fram og Alma
Hallgrímsdóttir í Haukum, vörðu nær
allt sem á mark þeirra kom. Fram náði
mest fjögurra marka forystu í fyrri
hálfeik en staðan var 9-6 þegar flautað
var til leikhlés.
Hraðinn í leiknum jókst talsvert í
seinni hálfeik og við það varð leikur-
inn meira spennandi. Framstúlkur
áttu reyndar í hinu mesta basli við að
hrista frískar Haukastúlkur af sér en
þær síðamefndu komust næst Fram í
stöðunni 12-10, en þá fór bilið að
breikka á ný. Hafnarfjarðarliðið fékk
reyndar mörg tækifæri til að minnka
muninn í eitt mark en í fjórgang lenti
boltinn í stöng eða slá og að auki
brenndu þær einu vítakasti af í seinni
Tíma-maður leiksins
Selka Tosic Fram
Yfbburðarieikmaður Fnun í gær-
kvðldL Skoraði átta Iagleg mðrk auk
þess að fiska tvð vftakðst Haukar
idðu ekkert við hana.
hálfleik. Forysta Fram jókst við inná-
komu gömlu „ljónynjanná' Guðríðar
Guðjónsdóttur og Ömu Steinsen sem
höfðu góð áhrif á leik liðsins enda varð
munurinn í lokinn fimm mörk sem
var sá mesti í leiknum.
Selka Tosic í Fram var maður þessa
leiks. Hún er mjög skotviss og dugleg
að skapa sér færi en er að sama skapi
ekki snögg í hreyfingum.
Kolbrún Jóhannsdóttir varði vel í
markinu, m.a. eitt víti og fjögur skot
af línunni. Hafdís Guðjónsdóttir var
góð í síðari hálfeik en vantar talsverða
hörku til að geta orðið afbragðsstjóm-
andi. Alma Hallgrímsdóttir varði mjög
vel í marki Hauka og er þama á ferð-
inni stúlka sem
án efa á eftir að
verja mark ís-
lands í framtíð-
inni. Sömu sögu
má segja af skytt-
unni Hörpu Mel-
steð sem gerði
mörg falleg mörk
utan teigs.
Gangur leiksins: 1-0, 2-2,4-2, 5-4, 8-
4, 9-6- 9-7, 11-7, 12-9, 12-10, 15-11,
16-12,18-12,20-15.
Mörk Fram: Selka Tosic 8/3, Hafdís
Guðjónsdóttir 3, Kristín Ragnarsdótt-
ir 3, Díana Guðjónsdóttir 2/2, Ósk Víð-
isdóttir 2, Ama Steinsen 1, Margrét
Blöndal 1. Kolbrún Jóhannsdóttir
varði 14/1 skot og Hugrún Þorsteins-
dóttir 1.
Mörk Hauka: Harpa Melsteð 6/2,
Hrafnhildur Pálsdóttir 3, Kristín Kon-
ráðsdóttir 3/2, Hulda Svavarsdóttir 2,
Rúna Þráinsdóttir 1. Alma Hallgríms-
dóttirvarði 11 skot
Dómararan Gunnar Viðarsson og Sig-
urgeir Sveinsson. Vom nokkuð góðir.
Guflríður Guðjónsdóttir kom Inn á f selnnl hálflelk og Iffgaðl mjög upp á lelk
Framstúlkna.
Visa-deildin í körfuknattleik:
Öruggur
Hauka-
sigur
Haukar unnu auðveldan sigur á
Tlndastóli í Visa-deildinni í
körfuknattleik, 95-73, en leik-
urinn fór fram á Sauðárkróki í
gærkvöldi. Staðan í hálfleik var
53-34, Haukum í vil.
Sigur Hafnfirðinganna var í
öruggum höndum frá fyrstu
mínútu og áttu leikmenn
Tindastóls ekkert svar við Ieik
Hauka. Jón Amar Ingvarsson
var bestur í liði Hauka, en út-
lendingurinn í liði Tindastóls,
Robert Buntic, var bestur
þeirra. Hann var stigahæstur
norðanmanna með 32 stig og
Ingvar Ármannsson gerði 13
stig. Jón Amar gerði 26 stig fyr-
ir Hauka, Jón öm Guðmunds-
son gerði 22 stig og John Rho-
des 20. -PS
Handknattleikur 1. deild kvenna:
Stjarnan rúllaði
yfir Fylki
í kvöld:
Handknattleikur
1. deild karia
Stjaman-UMFA kl. 20
KR-Þór Ak kl. 20
KA-Selfoss kl. 20.30
FH-Víkingur .kl. 20
Valur-Haukar .kl. 20
ÍBV-ÍR .kl. 20
1. deild kvenna
Ármann-Valur .kl. 18
Grótta-ÍBV kl. 20
Körfuknattleikur
Visa-deild
Snæfell-Skallagrímur ... .kl. 20
Stjaman úr Garðabæ átti ekki í
miklum erfiðleikum með botnlið
Fylkis þegar liðin mættust í
Garðabæ í gærkvöldi. Lokatölur
urðu 32-15 eftir að Stjaman hafði
leitt í hálfleik, 15-6. Sigurinn
færír Stjömustúlkum efsta sæti
1. deildar ásamt Fram.
Það var alveg ljóst hvert stefridi í
upphafi leiks. Stjaman beitti hröð-
um sóknarleik sem Fylkir réð á
engan hátt við og að auki skomðu
Stjörnustúlkur mörg mörk úr
hraðaupphlaupum. Munurinn á
þessum liðum var alltof mikill til
að einhver spenna gæti orðið.
Stjaman hefur á toppliði að skipa
og án efa eiga þær eftir að vera í
toppbaráttunni enn eitt árið og
hver veit nema þetta verði þeirra
lukkuár og þær hampi íslandstitl-
inum. Lið Fylkis á talsvert mikið
eftir ólært í handboltanum en þó
sáust stundum ágæt tilþrif hjá
leikmönnum liðsins í gær en bara
alltof sjaldan.
Mörk Stjömunnar: Margrét VII-
hjálmsdóttir 5 (einungis í fyrri
hálfleik þar sem hún meiddist á
hné og þurfti að fara á slysavarð-
stofuna), Una Steinsdóttir 5, Ragn-
heiður Stephensen 5, Inga
TYyggvadóttir 3, Ásta Sölvadóttir 3,
Herdís Sigurbergsdóttir 2, Þuríður
Hjartardóttir 2, Drífa Gunnars-
dóttir 2, Ólavía Bragadóttir 2, Þur-
íður Þorkelsdóttir 2, Guðný Gunn-
steinsdóttir 1.
Mörk Fylkis: Anna Halldórsdóttir
5, Rut Baldursdóttir 4, Ágústa Sig-
urðardóttir 2, Súsanna Gunnars-
dóttir 2, Steinunn Þorkelsdóttir 1
og Eva Baldursdóttir 1.
L.H.Ó.
Knattspyrna:
Bjami JóhanneS'
son til ÍR-inga?
Samkvæmt heimildum Tímans
eru taldar miklar líkur á því að
Bjami Jóhannesson taki við þjálf-
un 2. deildarliðs ÍR í knattspymu
fyrír komandi leiktfð. Bjami var
aðstoðarmaður Ásgeir Sigurvins-
sonar hjá Fram í sumar en hætti á
sama tíma og Ásgeir. Bjarni hefur
m.a. áður þjálfað lið Grindavíkur í
2. deildinni.
Úrslit
Handknattleikur
1. deild kvenna
Fram-Haukar...20-15 (9-6)
Stjaman-Fylkir 32-15 (15-6)
Staðan
Stjaman 3 3 0 0 76-52 6
Fram 3 3 0 0 62-51 6
Grótta 3 2 10 69-49 5
Víkingur 3 2 0 1 74-58 4
KR 3 2 01 47-53 4
Valur 3 1 1 1 55-57 3
ÍBV 2 1 0 1 44-42 2
Haukar 3 10 2 49-53 2
FH 3 0 0 3 48-57 0
Ármann 2 0 0 2 35-46 0
Fylkir 4 0 04 67-98 0
Körfuknattleikur
Visa-deild
Tindastóll-Haukar 73-95(34-53)
Evrópuknattspyrn-
an-U21 árs:
Portúgal-Sviss.........3-0
Danmörk-Þýskaland......1-0
Svíþjóð-Finnland.......4-0
Búlgaría-Austurríki....3-0
Pólland-Noregur........2-0
Rúmenía-Belgía.........3-1
Undankeppni HM
5. riftill
Grikkland-Luxemborg....3-1
Staftan
Rússland.....7 5 2 0 15-3 12
Grikkland...752 0 9-2 12
ísland......8 3 2 3 7-6 8
Ungverjarl..7115 5-11 3
Luxemborg....7 016 2-16 1
... Chfp Entwistle frá Snæfelli
skoraði fyrstu körfu fslandsmóts-
ins f körfuknattleik gegn Val á
laugardaginn var. Snæfell sigraði
örugglega f leiknum.
... Bárður Eyþórsson, einnig
úr liði Snæfells, varð fyrstur til að
troða knettinum í körfuna á þess-
um fslandsmóti.
... Selfysslngar vinna nú hörð-
um höndum að því að fá að spila
báða leikina gegn UMAG frá
Króatfu f Evrópukeppni bikarhafa
hér heima. Leikið verður f Evr-
ópukeppninni um mánaðamótin.
... Valsmenn hafa ákveðið að
leika báða leiki sfna f Evrópu-
keppni meistaraliða í handknatt-
leik á útivelli þegar þeir mæta
norsku meisturunum frá Sandefj-
ord. í liði Sandefjord eru margir
norskir landliðsmenn.
... Badminton-vertíðin fer nú
brátt á fullt skrið og um helgina
verður fyrsta mótið og fer það
fram f TBR- húsinu. Þetta er ein-
liðaleiksmót og verður keppt f
bæði karla- og kvennaflokki. Þeir
sem tapa fyrsta leiknum, fara f
sérstakan aukaflokk.
... Ime Akpan frá Nfgerfu hefur
verið svipt gullverðlaununum f
100m hlaupi sem hún vann til á
heimsleikum stúdenta. Upp
komst um Akpan þegar hún var
sett f lyfjapróf sem hún féll á.
Engir aðrir íþróttamenn féllu á
lyfjafprófi á þessum leikum.
... Paul Gascoigne leikur loks-
ins með Lazio f ftölsku knatt-
spyrnunni á sunnudaginn eftir
langvarandi hnjámeiðsli en upp-
haflega var haldið að hann gæti
ekki leikið fyrr en f næsta mánuði.
Lazio leikur gegn Piacenza á
heimavelli.
... UMFÍ heldur 38. sambands-
þing sitt um næstu helgi á Laug-
arvatni. Þing UMFÍ eru haldin
annað hvert ár og eru málefni
hreyfingarinnar rædd þar og
veigamiklar ákvarðanir teknar.
Nokkur mikilvæg mál liggja fyrir
að þessu sinni eins og umhverf-
ismál og fræðslumál hreyfingar-
innar. Á þessu þingi munu u.þ.b.
100 fulltrúar vera þátttakendur og
koma þeir hvaðanæva af landinu.
Einnig verður kosin ný stjórn en
það liggur fyrir að formaðurinn
Pálmi Gfslason gefur ekki kost á
sér til endurkjörs.
... Halldór Hafsteinsson lenti
nýverið f 2. sæti á júdómóti f Kan-
ada f sfnum þyngdarflokki. Hall-
dór meiddist fyrir úrslitaviðureign-
ina og gat þvf ekki leikið um gull-
verðlaunin.
... Richard Moeller Nielsen,
þjálfari Dana f knattspyrnu, á við
það vandamál að etja sem flestir
starfsbræður hans geta aðeins
látið sig dreyma um. Það er
nefnilega svo að fyrir leikinn f
kvöld gegn N-frum f undan-
keppni HM þá getur hann valið
byrjunalið úr sterkasta leik-
mannahóp sem völ er á þar sem
enginn er meiddur eða getur ekki
leikið meö vegna leikja með fé-
lagsliði sfnu. Með sigri f kvöld
geta Danir tryggt sér farseðilinn á
HM f knattspyrnu f Bandarfkjun-
um á næsta ári.
... Svlss getur einnig gulltryggt
þátttöku sfna á HM ef sigur vinnst
á Portúgölum f kvöld. Ef það tekst
þá yrði það f fyrsta skipti slðan
1966 sem Sviss léki f úrslitum HM.
Sviss gæti þó lent (erfiðleikum
þar sem þjálfari Portúgal ætlar að
láta lið sitt leika mikinn varnarleik.
... Finnar eru ekki bjartsýnir fyrir
leikinn f kvöld gegn nágrönnum
sfnum frá Svfþjóð enda hafa þeir
ekki sigrað Svfana sfðan 1982.
... írar eru aftur á móti með
bjartsýnni mönnum og búast
fastlega við sigri gegn Spánverj-
um á heimavelli sínum enda hafa
þeir ekki tapað nema einum
heimaleik f sfðustu 7 heimaleikj-
um.