Tíminn - 16.11.1993, Page 9

Tíminn - 16.11.1993, Page 9
ibróttir JF' Þriðjudagur 16. nóvember 1993 * á fleygiferð ''isadeildinni TÍMA-maður leiksins Hermann Haukss. KR. Stórleikur hjá honum a& þessu sinni. Skoraái siáustu tvo stig leiks- ins úr vítum og trygg&i þar mei sig- ur KR- inga. Setti samtals 33 stig og gerír mjög mikift fyrir liáiá. eru nú ekki meistarar fyrir ekki neitt og á þessum stutta tíma tókst þeim að jafna leikinn, 93- 93, með frábærri pressuvöm þar sem KR-ingar fóm alveg á taug- um og hentu boltanum í gríð og erg út af vellinum enda vissu þeir ekkert hvert þeir áttu að gefa bolt- ann. ÍBK var _____________ með boltann þegar rúmlega þijátíu sekúndur voru eftir en mistókst að skora sem og KR-ingum og grípa þurfti til framlengingar. Enn var jafnt, 107-107, þegar flautað var til loka framlengingar en Kristinn Friðriksson átti síð- asta skotið í þeim hluta en það geigaði og því varð að framlengja aftur. Keflvíkingar byrjaði af krafti seinni framlenginguna og vom yfir, 114-116, þegar tæpar tvaer mínútur voru eftir. Eftir það skomðu þeir hins vegar ekki stig en KR gerði síðustu sjö stigin í leiknum og þar á meðal Her- mann Hauksson sem tryggði endanlega sigur þeirra þegar hann skoraði úr tveimur víta- skotum er nokkrar sekúndur vom eftir. Þar með urðu sigur- vonir ÍBK að engu. Sigur KR var sanngjam miðað við gang leiksins enda höfðu þeir frumkvæðið stærri hluta leiksins. Sigur þeirra var líka sætur fyrir þær sakir að Davíð Griss- om, einn af betri mönnum liðins í leikn- um, fékk fimmtu villuna undir lok venjulegs leiktíma en Tómas Hermannsson kom í hans stað, stóð sig hörkuvel og hirti mörg fráköst, sannkallaður baráttujaxl. Hermann stóð upp úr jöfnu liði en annars er gaman að sjá hver- su Mirko Nikolic fellur vel inn í leik liðins. Allt byrjunarlið KR skoraði fjórtán stig eða meira í leiknum. Keflvíkingar nutu ekki lukk- unnar í þessum leik en í tvígang fengu þeir tækifæri til að skora sigurkörfuna en skotin klikkuðu frá reyndum mönnum, þeim Kristni Friðrikssyni og Guðjóni Skúlasyni. Jonathan Bow lék vel og fyrir utan að skora mörg stig þá greip hann ekki fá fráköstin. Albert Óskarsson gerði góða hluti og Jón Kr. Gíslason vann á þegar leið á leikinn en fimm tap- leikir í níu leikjum hljóta að vera áhyggjuefni fyrir þjálfarann. Þess ber að geta að ÍBK hefur tapað öllu þessum leikjum sínum með mjög litlum mun. Gangur leiksins: 3-0, 3-4, 5-8, 14- 17, 21-17, 25-19, 27-27, 31- 33, 38- 36, 38-39, 42-39, 44-44, 46-47—46- 49, 49-49, 57-50, 62-58, 75-72, 82- 75, 86-76, 91- 82, 93-88, 93-93—97- 93, 99- 102, 103-106, 107-107—107- 110, 112-112, 114-116, 121- 116. Stig KR- 3ja stiga körfur í sviga: Mirko Nikolic 35 (1), Hermann Hauksson 33 (3), Davið Grissom 20, Lárus Ámason 15 (3), Guðni Guðnason 14, Tómas Hermanns- son 2, Benedikt Sigurðsson 2. Stig ÍBK: Jonathan Bow 29, Kristinn Friðriksson 21 (4), Guð- jón Skúlason 20 (4), Albert Ósk- arsson 18, Jón Kr. Gíslason 16 (2), Sigurður Ingimundarson 6, Birgir Guðfinnsson 3, Ólafur Gottskálksson 3. Dómarar: Bergur Steingrímsson og Leifur Garðarsson. Dæmdu erfiðan leik vel og hallaði á hvorugan aðilann. Skallagrlmur lá á Króknum Skallagrímur beið ósigur gegn Tindastóli á Sauðárkróki á sunnudagskvöld, 84-80, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 34- 33, Tindastóli í vil. Sigur heima- manna var nokkuð öruggur, en Skallagrímur náði að minnka muninn skömmu fyrir leikslok. Tindastólsmenn höfðu lengst af forystuna í leiknum og náðu á köflum góðri forystu, en jafn- harðan náðu Skallagrímsmenn að minnka muninn. Þeir Ingvar Ormarsson og Lárus Dagur Pálsson voru bestir leik- manna Tindastóls, en einnig var Robert Buntic ágætur. Birgir Mikhaelsson var bestur gest- Staðan Keflavík ... 9 4 5 904-814 8 Snæfell .... 94 5 732-781 8 Skallagrímur .9 3 6 718-740 6 Akranes ... 9 2 7 725-860 4 Valur 9 1 8 760-852 2 B-ríðill Njarðvík.... ..98 1 848-737 16 Grindavík ...9 7 2 815-757 14 Haukar .... ...9 7 2 761-678 14 KR ...9 6 3 878-819 12 Tindastóll . 9 3 6 682-757 6 Úrvals- hópur FRI 2000 Landsliðsþjálfari FRÍ hefur kall- að Úrvalshópa FRÍ 2000 saman til æfingabúða í Reykjavík og Hafnarfirði dagana 19.-21. nóv- ember. Þeir sem nú eru boðaðir til æfingabúða eru úrvalsung- lingar á aldrinum 15-20 ára, en síðast komu þeir saman á Laug- um í S- Þingeyjarsýslu í enda október. Aðalviðfangsefni æf- ingabúðanna að þessu sinni verður greining á tækni og tækniæfingar. Millivega- og langhlauparar munu m.a. taka þátt í götuhlaupi sem kennt er við Pizza 67. Sumir halda... En rétt er... ...að íslenskur landbúnaður sé vágestur í íslenskri náttúru og mergsjúgi landið og þjóðina. ÍSLENSKUR LANDBÚNAÐUR ...að bændur eru mikilvægir lífverðir í íslenskri náttúru og vinna af krafti að náttúruvernd og margþættu ræktunarstarfi. Landgræðsla og skógrækt eru til dæmis ört vaxandi þættir í starfi íslenskra bænda.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.