Tíminn - 03.12.1993, Blaðsíða 1
ÍA EKKI í
EVRÓPUKEPPNI
MEISTARAIJÐA
-sjá síSu 7
ÁTTA TONN AF
JÓLAMAT TIL
ÚTLANDA
-sjá síðu 4
LÍF í LEIKLIST
ÞORLÁKSHAFNAR
-sjá síðu 11
VEGHD AÐ
LANDS-
BYGGÐINNI
-sjá síðu 4
STRÆTISVAGNAR
FARA NÝJAR
LEIÐIR
-sjá síðu 5
HÖNNUNAR-
KOSTNAÐUR
INGÓLFSTORGS
GAGNRÝNDUR
-sjá baksíðu
SÍMAMENN
RÁÐÞROTA
-sjá síSu 4
RÁÐHERRA
LÖGBRJÓTUR
-sjá baksíðu
AÐSKILNAÐAR-
STEFNA
Á ÍSLANDI
-sjá sí&u 3
Hjúkrunarforstjóri segir að til greina komi að
flytja sjúkradeild af sjöundu hæð spítalans
Pak A-álmu Borgarspítala lekur
og hafa skapast vandræði af þeim
sökum í þeim miklu rigningum
sem verið hafa í haust. Sigríður
Snæbjörnsdóttir, hjúkrunarfor-
stjóri Borgarspítala, segir að ástand
þaksins sé orðið slíkt að það þoli
ekki lengur óveður. Hún segir að
verði ekkert að gert fljótlega komi
til greina að flytja sjúkradeild á
sjöundu hæð spítalans annað.
Vegna aðhalds í rekstri Borgar-
spítala hefur eðlilegt viðhald hús-
næðis og tækja verið í algjöru lág-
marki síðustu ár. Sigríður segir
útilokað að þetta geti gengið svona
áfram. Fyrr en síðar verði að laga
það sem úr sér er gengið.
»Það má segja að ástandið sé orð-
ið þannig að við þolum ekki óveð-
ur lengur. Á sjöundu hæð spítal-
ans, sem er sjúkradeild, hafa verið
að detta niður loftaplötur á gang-
inn og það lekur víða mikið inn.
Fyrir utan þetta blæs og rignir inn
um glugga.
Ef við getum ekki gert neitt í
þessu fljótlega stöndum við fram-
mi fyrir því að flylja starfsemina, ’
sagði Sigríður.
Sigríður sagði að þegar hún væri
að tala um leka væri hún ekki í
öllum tilfellum að tala um að það
dropaði inn. Á stöku stað læki
vatn inn í stríðum straumum.
Sigríður sagði að enn væri ekki
búið að ljúka við innréttingar í B-
Mannbjörg í Hestfirði
Tveir menn björguðust þe|ar Dröfn ÍS strandaði í gær
Mannbjörg varð þegar rækjubát-
urinn Dröfn ÍS 44 frá ísafirði
strandaði yst í Hestfirði við ísa-
fjarðardjúp laust eftir miðjan dag í
gær.
Tveir menn voru um borð í bátn-
um.
Beiðni um hjálp barst til björgun-
arsveitarinnar Kofra í Súðavík.
Björgunarsveitarmenn fóru á
strandstað á gúmmíbjörgunarbát
og komu línu úr Dröfn í land og
eftir henni komust skipverjarnir
tveir í land. Lögreglubíll frá ísafirði
sótti mennina tvo landleiðina frá
ísafirði að Folafæti þar sem strand-
ið varð. Þeim varð ekki meint af.
Eftir því sem næst verður komist
olli vélarbilun strandinu. Dröfn er
40 tonna eikarbátur -ÁG
álmu og þar væri hætta á að ýmis-
legt sem þegar hefur verið gert
innanhúss eyðilegðist ef fram-
kvæmdum yrði ekki lokið fljót-
lega. Þá má nefna að deild, sem
ætluð er til að vista sjúklinga sem
þurfa að vera í einangrun, er ekki
betur einangruð en svo að það
bæði blæs og rignir inn á hana.
Ljóst er að ráðast verður í mjög
umfangsmikla viðgerð á þaki A-
álmunnar og er áætlað að sú við-
gerð ein og sér kosti um 35 millj-
ónir króna.
Auknum fjármunum er ekki ætl-
að til viðhalds sjúkrahúss í fjár-
lagafrumvarpi fyrir næsta ár. Sig-
ríður sagði að viðræður stæðu yfir
við fjárlaganefnd Alþingis og ráðu-
neytin um þennan vanda og hún
sagðist gera sér vonir um að þær
skiluðu jákvæðari niðurstöðu. -EÓ
Ferðalok
Tímamynd Árni Bjama
Borgar-
spítalinn
hriplekur
Framlenging gálgafrestur
Ofmælt að tala um tryggan vinnufrið, þrátt fyrir framlengingu kjarasamninga
,Þótt kjarasamningar hafi verið framlengdir til ársloka 1994 þá er
ekki þar með sagt að menn bara sitji og haldi að sér höndum. Það er
til ýmislegt sem heitir nauðvöm. Mér finnst ofgert á stundum þegar
verið er að tala um tryggan vinnufrið. Ég bendi t.d. á að samningar
sjómanna em lausir.
Þannig að það er ekki allt með
kyrrum kjörum á vinnumarkaði
og andskotans ekki þegar verið er
að segja upp launakjörum fólks í
stómm stfl. Það er engin sátt um
þessi mál og það væri því rétt-
nefni að kalla framlengingu
kjarasamninga gálgafrest," segir
Bjöm Grétar Sveinsson, formað-
ur Verkamannasambands íslands.
Vemlegrar óánægju gætir innan
verkalýðshreyfingarinnar með þá
þróun mála sem virðist hafa byij-
að með sjálftöku launa hæstarétt-
ardómara og nú síðast þegar
Kjaranefnd ákvað að hækka laun
presta um tugi prósenta. Margt
virðist benda til þess að fleiri
hópar innan kerfisins hugsi sér
gott til glóðarinnar og m.a. hafa
einstakir alþingismenn lýst því
yfir að þeir séu ekkert ofaldir í
launum.
„Það sér ekkert fyrir endann á
þessu hjá hópum sem eru með
hærri launakjör en t.d. fólkið sem
vinnur við að skapa þessu landi
gjaldeyri. Það er búið að marglesa
yfir því að það verði að sýna þá
ábyrgð að ná niður verðbólgunni
o.s.frv. Eins og ég er margbúinn
að benda á, þá má kannski efast
um þessar ábyrgðartilfinningar
sem við höfum verið að sýna.
Okkar gerðir hafa miðast út frá
atvinnustiginu. En kannski er
það allt saman vitlaust hugsað,"
segir formaður VMSÍ.
Þá em naínvextir enn himinhá-
ir þrátt fyrir að verðbólgan mæl-
ist lítil sem engin og einhver
tregða virðist vera fyrir áfram-
haldandi vaxtalækkun í banka-
kerfinu. Sömuleiðis bendir margt
til þess að ríkisstjórnin ætli að
ganga á bak orða sinna frá 5.
nóvember sl., þess efnis að ekki
muni koma til frekari skerðingar
á atvinnuleysisbótum. Allavega
sá miðstjórn ASÍ ástæðu til að
mótmæla harðlega framkomnum
hugmyndum vegna fjárlagagerð-
ar stjórnvalda um enn frekari
skerðingar á rétti launafólks til
atvinnuleysisbóta, tekjutengingu
bóta og skerðingu vegna hluta-
starfa. Að mati ASÍ eru öll slík
áform brigð á gerðu samkomu-
lagi. -GRH
FOSTU-
DAGSSPJALL
SÍÐA2
W ÍÞRÓTTIR
; SIÐA 7
f'
ÚTVARP
SJÓNVARP
SIÐA8