Tíminn - 03.12.1993, Blaðsíða 12
imdfaKSiaWBI
FJÖLBREYTTAR
FÓDURVÖRUR
MR búðin «Laugavegi 164
sími 11125-24355
NÝTTOG
FERSKT
DAGLEGA m
reiðholtsbakarí
VÖLVUFELU 13 - SlMI73655
POSTFM TIMANS
Ritstjóm:
61-83-03
Auglýsingar:
61-83-21
TÍÆIiNN
Föstudagur 3. desember 1993
Alþingi að tapa
öllum völdum?
Erlendir
ferðamenn
aldrei fleiri
Erlendir ferðamenn sem komu
hingað til lands í nóvember hafa
aldrei verið fleiri í þeim mánuði.
Alls komu 7.276 erlendir ferða-
Jón Kristjánsson alþingismaður segir að dregið hafi stórlega úr völdum
Alþingis síðustu tvö ár
Jón Kristjánsson, alþingismaður og
nefndarmaður í fjárlaganefnd, seg-
Ráðherra
braut jafn-
réttislög
Veita átti Helgu Kress
lektorsstöðu við Há-
skóla íslands
Menntamálaráðherra gerðist
brotlegur við lög þegar hann
veitti Matthíasi Viðari Sæ-
mundssyni lektorsstöðu í ís-
lenskum bókmenntum við Há-
skóla íslands, þann 27. desem-
ber 1985 og gekk framhjá
Helgu Kress. Petta er niður-
staða Hæstaréttar sem felldi í
gær dóm í áfrýjunarmáli ráð-
herra gegn Jafnréttisráði,
vegna Helgu. Með þessu stað-
festir rétturinn niðurstöðu
borgardóms, sem féll 1990.
Hæstiréttur ber ekki saman
menntun Helgu og Matthíasar,
eins og dómur undirréttar
byggir á, heldur byggir hann á
ákvæðum laga um að atvinnu-
rekendur skuli vinna markvisst
að því að jafna stöðu kynjanna
innan fyrirtækja og stofnana.
Rétturinn telur að veita skuli
konu starf ef hún er að
minnsta kosti jafnt að því kom-
in, að því er varðar menntun
og annað sem máli skiptir, og
karlmaður sem við hana kepp-
ir ef á starfssviðinu eru fáar
konur.
Pað voru hæstaréttardómar-
amir Þór Vilhjálmsson, Guð-
rún Erlendsdóttir, Hjörtur
Torfason og Hervör Þorvalds-
dóttir sem mynduðu meiri-
hluta, en Hrafn Bragason skil-
aði sératkvæði. Kröfu Jafnrétt-
isráðs um miskabætur til
handa Helgu Kress var vísað
frá en menntamálaráðherra
var gert að greiða Jafméttisráði
150 þúsund krónur. -PS
Leitað áfram
Björgunarsveitarmenn á annað
hundrað leituðu í slæmu veðri í
gær fram í myrkur að skipveijan-
um á Önnu SH 310, sem hvolfdi í
mynni Hvammsfjarðar á miðviku-
dag.
Leitað var í mynni Hvammsfjarð-
ar og Breiðafirði. Leit verður haldið
áfram í birtingu á morgun og þá
verða gengnar fjörur við Breiða-
fjörð og Hvammsfjörð. -ÁG
ir að Alþingi hafi aldrei verið snið-
gengið í jafnríkum mæli af fram-
kvæmdavaldinu eins og síðustu
tvö ár. Alþingi, sem fer lögum sam-
kvæmt með fjárveitingarvaldið,
taki engan þátt í að ráðstafa fjár-
munum sem skipti milljörðum.
Þeim fjármunum ráðstafi ríkis-
stjómin.
Jón sagði þetta í umræðum um
fjáraukalög fyrir árið 1993. Hann
tók sem dæmi að ríkisstjómin hefði
sjálf algerlega ákveðið hvemig
veija ætti fjármunum á þessu ári til
að draga úr atvinnuleysi, en þar
væri um 1,5 milljarða að ræða.
„Við í fjárlaganefnd sitjum heilu
dagana og emm að fjalla um skipt-
ingu á safnliðum sem em allt niður
í 100 þúsund krónur, en svo geta
ráðherrar skipt milljörðum á hné
sér án þess að þingið komi þar
nokkuð nærri. Ég gagnrýni þessi
vinnubrögð harðlega,' sagði Jón.
„Það er umhugsunarefni fyrir
þingmenn almennt, fjárlaganefnd-
armenn og ekki síst forsætisnefnd
Alþingis, að þrátt fyrir þá breytingu
sem orðin er á þinginu þá er þingið
sniðgengið í vaxandi mæli í störf-
um framkvæmdavaldsins.'
Jón sagði að vissulega væri hér
um að ræða þróun sem átt hafi sér
stað á Iöngum tíma, en hann full-
yrti jafnframt að framkvæmda-
valdið hefði aldrei áður náð til sín
völdum af þinginu í jafn miklum
mæli og í tíð þessarar ríkisstjómar.
-EÓ
menn til landsins, en í sama
mánuði í fyrra voru þeir 4.843 og
er það 50% aukning. Alls em er-
lendir ferðamenn á árinu orðnir
151.473 og er það aukning um
13.474 frá sama tímabili í fyrra,
eða um 10%.
Flestir þeirra, sem komu í nóv-
ember komu frá Bandaríkjunum,
eða 1562. Frá Danmörku komu
1173 og 1138 frá Svíþjóð.
Af þeim 151.473 sem komið
hafa hingað til lands það sem af
er árinu, komu flestir frá Banda-
ríkjunum, eða 23.310. Mest
aukning er hins vegar í komum
ferðamanna frá FinnJandi eða
45.5%. -PS
Þa& er erfitt a& ímynda sér að Ingólfstorg verði opnað á morguii, en eins og sjó mó ó þessari mynd eru nokkur handtök
enn eftir. Tímamynd Árni Ðjarna
30 milljóna hönnunar
kostnaður gagnrýndur
„Hringlandaháttur og fáránlega
hár hönnunarkostnaður við fram-
kvæmdir á Ingólfstorgi er verðugt
umhugsunarefni fyrir kjöma full-
trúa og víti til vamaðar.'
Svo hljóðar bókun fulltrúa Fram-
sóknarflokks, Kvennalista og Nýs
vettvangs í Borgarráði frá 23. nóv-
ember sl. vegna framkvæmda við
Ingólfstorg í Reykjavík. í bókun-
inni er gagnrýnt að hönnunar-
kostnaður vegna Ingólfstorgs sé
tæpar 30 milljónir króna og hafi
farið rúmlega 30% fram úr áætlun.
Minnihlutaflokkamir árétta að
enn sem fyrr ætli Reykjavíkurborg
að reynast ofviða að semja raun-
hæfar kostnaðaráætlanir um
hönnunarkostnað mannvirkja.
Ingólfstorg verður formlega opn-
að á laugardag. Framkvæmdum á
þá að mestu að vera lokið, en upp-
haflega var gert ráð fyrir að torgið
yrði tilbúið 15. október.
Á sama fundi Borgarráðs fengu
Guðrún Ögmundsdóttir, fulltrúi
Kvennalista og Sigrún Magnús-
dóttir, fulltrúi Framsóknarflokks,
upplýst, að áætlaður heildarkostn-
aður við torgið væri 170 millljónir
króna, eða 25 milljónum hærri en
áætlað var í upphafi. Áður hafði
Guðrún fengið svör í Borgarráði
um að framkvæmdir hefðu hafist
við torgið áður en hönnun lá end-
anlega fyrir og að verktaka vom af-
hentar um 150 breytingar á upp-
haflegri teikningu á meðan á fram-
kvæmdum stóð. Þær vom flestar
fremur smávægilegar. -ÁG
dagar til jóla
Vinn ngstölur
miövikudaginn:
1. des. 1993
D
VINNINGAR
6 af 6
5 af 6
'+bónus
5 af 6
4 af 6
a
3 af 6
kbónus
FJÖLDI
VINNINGA
307
1.280
UPPHÆÐ
Á HVERN VINNING
21.225.000,-
1.526.588.-
92.269.-
1.912.-
196.-
Aðaltölur
21 23 29
BONUSTOLUR
Heildarupphæð þessa viku:
45.183.528.-
á Isl.:
2.733.528.-
^Jjjl/inningur fár til: Flnnlands og DanmerVur
UPPLÝSINGAH, SÍMSVARt 91- 68 15 11
LUKKUUNA 99 10 00 - TEXTAVARP451
BIBI UEÐ FTBIBVABA UU BBEHTVILEUfl