Tíminn - 03.12.1993, Qupperneq 6
6
BÓKAFRÉTTIR
Útgáfufyrirtaekið Fróði hf. hefur
gefið út bókina Helnauð eftir Eirik
S. Eiríksson. Er þetta hans fyrsta
bók.
í bókinni eru níu þættir um ein-
stæða hrakninga, sem íslenskir
sjómenn hafa Ient í, og um fræki-
leg björgunarafrek við ísland þar
sem björgunarmenn lögðu jafn-
vel líf sitt í sölurnar til þess að
koma nauðstöddum mönnum til
hjálpar.
Þættímir í bókinni eru um eftir-
talda atburði:
Hrakninga vélbátsins Bjargar frá
Djúpavogi. Báturinn fór í róður
að kvöldi 27. desember 1947 og
hraktist vélarvana í marga daga.
Menning
Föstudagur 3. desember 1993
Afreksverk sjómanna
Giftusamlega björgun áhafnar-
innar á vélbátnum Ver frá Bfldu-
dal, sem fórst í róðri 26. janúar
1968.
Mikla hrakninga skipvetja á vél-
bátnum Helga frá Homafirði, sem
sökk í fárviðri á Færeyjabanka
'17. september 1961.
Strand togarans Pelagusar við
Vestmannaeyjar 21. janúar 1982.
Atburður þessi var mikil harm-
saga.
Tvö frækileg björgunarafrek,
sem björgunarsveit Slysavamafé-
lags fslands í Grindavík áttí aðild
að.
Þegar vélskipinu Eddu hvolfdi í
miklu fárviðri á Grundarfirði 16.
nóvember 1953.
Slys í Stokkseyrarhöfn 20. janú-
ar 1970.
Þegar vélbáturinn Mummi frá
Flateyri fórst í róðri 10. október
1964.
í öllum þáttum bókarinnar em
það menn, sem sjálfir vom þátt-
takendur í atburðunum, sem
segja frá.
Nafn bókarinnar er sótt í Egils
sögu.
Verð bókarinnar er kr. 2.980,00
með vsk.
(Fréttatilkynning)
Höfundur bókarinnar, Eiríkur S.
Eiríksson, afhendir Oskari Vigfússyni,
forseta Sjómannasambandsins,
eintak af bókinni Helnauö, en Oskar
er einn frósögumanna í bókinni.
Hann var skipverji ó vélskipinu Eddu,
sem hvolfdi ó Grundarfir&i.
Ljósmynd Hreinn Hreinsson
Benedikt á Auðnum
BÓKAFRÉTTIR
Mál og menning hefur sent frá sér
ævisögu Benedikts á Auðnum, sem
skráð er af Sveini Skorra Hösk-
uldssyni.
Benedikt Jónsson, sem kenndur
var við Auðnir í Laxárdal, lifði svo
sannarlega tvenna tíma. Hann
fæddist að Þverá í Suður-Þingeyj-
arsýslu árið 1846, og lést á Húsa-
vík snemma árs 1939. Alla sína
löngu ævi var Benedikt með ólflc-
indum starfsamur og tók öflugan
þátt í því mikla uppbyggingarstarfi
íslensks samfélags og menningar,
sem fram fór á þessu tímabili. Ára-
tug fyrir andlátíð kaflaði Halldór
Laxness hann „föður Þingeyinga' í
tímaritsgrein, „af því að hann er
Benedikt ó Auðnum.
faðir þingeyskrar alþýðumenning-
ar". Benedikt lét til sín taka í
stjómmálum, hann var lífið og sál-
in í starfsemi Kaupfélags Þingey-
inga um langt skeið, hann byggði
upp stórmerkilegt sýslubókasafn á
Húsavík og hann áttí merkan þátt í
varðveislu íslenskra þjóðlaga.
Sveinn Skorri Höskuldsson hefur
um langt árabil rannsakað ævi og
verk Benedikts á Auðnum, eftir
prentuðum heimildum sem
óprentuðum, og hefur hér dregið
saman niðurstöður sínar í merka
og læsilega bók, sem í senn er ævi-
saga og aldarspegill. Hún er ríku-
lega myndskreytt.
Bókin er 607 bls., unnin í G. Ben.
prentstofu hf. Kápu hannaði Er-
lingur Páll Ingvarsson. Verð kr.
3880. (Fréttatilkynning)
Uppflettibækur frá dtv
norræn goðafræði þótti nauðsyn
til skilnings á íslenskri klassík.
Merkasti höfundur íslendinga
skrifaði konungasögur og rit um
norræna goðafræði á sínum tíma.
í þessu uppflettírití um goð og
goðsögulegar persónur fomþjóð-
anna eru um 800 uppflettiper-
sónur, sem koma allar meira og
minna fyrir í flestum kunnustu
skáldverkum, höggmynda- og
myndlistarverkum Vesturevrópu,
svo ekki sé minnst á hugtök og
hugtakatengsl af þeim dregin í
heimspeki og sálfræði nú á dög-
um. Gerð er grein fyrir hverjum
einstaklingi eða goði innan gríska
og rómverska goðheimsins og
síðan rakin framhaldssaga goð-
anna í evrópskum bókmenntum,
listum, heimspeki og sálfræði.
Hvenær ríkti þessi keisari og
Til sölu
Fiskveiðasjóður (slands auglýsir til sölu fasteignimar
Hafnarbraut 2 og Hafnarbraut 4 á Bakkafirði (saltfisk-
verkunarhús), áður eign Útvers hf.
Tilboð í eignimar óskast send á skrifstofu sjóðsins fyrir
kl. 12.00,17. desember nk., merkt „Bakkafjörður”.
Nánari upplýsingar um eignimar og þann búnað, sem
þeim fylgir, veitir Ragnar Guðjónsson á skrifstofu sjóðs-
ins, Suðurlandsbraut 4, Reykjavík, í síma 679100.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
Fiskveiðasjóður íslands.
BOKMENNTIR
Sigurlaugur Brynjólfsson
Who's who in der ontiken Mythologie —
von Gerhard Fink. dtv 1993.
Wer regierte wann? Regententabelle zur
Weltgescnichte — von Klaus- Jurgen Malz.
dtv 1992 (Zweile Auflage).
Handlexikon zur Wissenschaftstheorie —
Herausgegeben von Helmut Seifiert und Ger-
ard Raanitzky. dtv 1992.
Deutscher Taschenbuch Verlag
— dtv — gefur út áður óbirt rit
og endurútgáfur. Þetta forlag er
sarnlag tíu fremstu forlaga á
þýska málsvæðinu um útgáfu
kilju-rita, og telst vera meðal
vönduðustu kilju- útgáfa sem nú
eru starfandi.
Grísk og rómversk goðafræði var
lengi talin grundvöllur klassískrar
menntunar, eins og íslensk eða
þessi forseti? Hér er hægt að
finna ríkisstjórnartíma Ramses
annars og Katrínar miklu eða
Wen-Ti í Kína og Múhammeðs
þriðja o.s.frv. Bókinni er skipt
upp í þrjá hluta: Fornöld, Nú-
tímaríki og Þýskaland. Þjóðhöfð-
ingjaraðir, raðir harðstjóra og
vafasamra landstjómenda, forseta
og páfa. Þetta er mjög handhæg
uppflettibók fyrir þá sem áhuga
hafa á marmkynssögu og þá sem
annast fjölmiðlun.
Vísindakenningar em hér tíund-
aðar í 88 ritgerðum. Hér er fjallað
um hrein vísindi, þ.e. raunvísindi,
og einnig um þær greinar fræða,
sem nefndar eru Geisteswissens-
chaften, heimspeki, sálfræði, fé-
lagsfræði, málvísindi o.fl. o.fl.
Þessi bók leynir á sér, því hér
eru ritgerðir eða pistlar um efni
svo sem: alfræði, pósitívisma,
marxisma, hugmyndafræði, skil-
greiningar, rétt og rangt, alheims-
fræði og lífrfld. Eins og áður segir
em hér 88 hugtök skráð, sumar
greinamar eru allt upp í 15- 20
blaðsíður, aðrar mun styttri.
Hverri grein fylgja tilvísanir til rita
og greina um efnið. í bókarlok er
efnisregistur og persónuregistur,
mjög ítarleg.
Hugtaka-útlistanir með nauð-
synlegum tilvísunum eru mjög
þarfar. Ritíð er tvídálka, alls um
500 blaðsíður, og eins og er regl-
an hjá dtv og reyndar flestum
sómakæmm útgáfum, finnst ekki
ein einasta prentvUIa.
Þessi handbók er upplýsingarit
um flest þau efni sem snerta
raunvísindi og einnig önnur
hrein andleg viðfangsefni.
Ný sýn á Jónas
BÓKAFRÉTTiR
Bókmenntafélagið Hringskuggar
hefur gefið út bókina Um Jónas
eftir Matthías Johannessen. f
bókinni fjallar Matthías um Jónas
Hallgrímsson og kemur víða við.
Á bókarkápu segir m.a.: „Matt-
hías Johannessen hefur lengi haft
dálætí á Jónasi. Veturinn 1991 til
1992 flutti hann fyrirlestra um
verk skáldsins í Háskóla íslands
og vöktu þeir verðskuldaða at-
hygli. Hér heldur hann áfram á
sömu braut, gefur okkur nýja sýn
á manninn og skáldið Jónas Hall-
grímsson og samtíð hans, bæði á
íslandi og á meginlandi Evrópu.
Með vissum hætti er óhætt að
segja, að í þessari bók gefi Matthí-
as Johannessen okkur nýjan Jón-
as.'
Kápumynd bókarinnar er eftír
Gylfa Gíslason. Bókin er 205 bls.
að stærð, í A-5 brotí. Hún er gefin
Matthías Johannessen.
út með styrk frá Menningarsjóði.
Verð innbundinna eintaka í
verslunum er 2.500 krónur, en
óinnbundin kostar bókin 1.845
krónur. (Fréttatilkynning)
Ævintýralegt
lífshlaup
BÓKAFRÉTTIR
Mál og menning hefur sent frá
sér heimildaskáldsöguna Falsar-
inn eftir Björn Th. Björnsson.
Þetta er spennandi söguleg
skáldsaga um drátthagan norð-
lenskan ungling á 18. öld, sem
fær í hendumar peningaseðil og
getur ekki stillt sig um að stæla
hann og kaupa fyrir falsaða seð-
ilinn. Fyrir þetta dæmir íslensk
réttvísi hann til dauða...
Bjöm Th. Bjömsson hefur hér
skrifað af alkunnri íþrótt og stfl-
kynngi breiða og spennandi
sögulega skáldsögu um ævin-
týralegt lífshlaup þessa íslenska
sveitapilts og afkomendur hans,
sem enn þann dag í dag eru
kenndir við Skóga, þótt dreifst
hafi um heiminn. Sumir þeirra
komust með harðfylgi til mikilla
metorða í Danmörku, en aðrir
lögðu Iand undir fót alla Ieið til
Chile, þar sem þeir bera enn
nafn Skóga á Þelamörk.
Höfundur hefur viðað að sér
heimildum úr ýmsum áttum við
smíði þessarar einstöku sögu, en
hikar ekki við að sviðsetja og
skálda þar sem það á við. Að því
leytí sver hún sig í ætt við önnur
söguleg skáldverk Björns Th.,
Björn Th. Björnsson.
sem notið hafa mikilla vinsælda.
Bókin er 391 bls., unnin í
Prentsmiðjunni Odda hf. Kápuna
gerði Gísli B. Bjömsson. Verð kr.
2980. (Fréttatilkynning)
4