Tíminn - 08.12.1993, Síða 3

Tíminn - 08.12.1993, Síða 3
Miðvikudagur 8. desember 1993 3 Gamla Viðreisn BÓKMENNTIR Jón Þ. Þór Gylfi Þ. Gísioson: Viðreisnarórin. Almenna bókafélagi& 1993. 272 bls. Tvær þeirra ríkisstjóma, sem set- ið hafa á íslandi frá stofnun lýð- veldis, hafa orðið að hálfgerðri goðsögn í pólitískri sögu þessa tímabils: „nýsköpunarstjórnin', 1944-1946, og „viðreisnarstjórn- in", 1959-1971. Báðar komu þess- ar stjórnir ýmsu góðu til leiðar, báðar stuðluðu þær að miklum breytingum í þjóðfélaginu, þótt með ólíkum hætti væri, og í báð- um hafði Sjálfstæðisflokkurinn á hendi stjórnarforystu í samstarfi við þá flokka, sem kenna sig við alþýðu manna. í „nýsköpunar- stjóminni' áttu báðir „verkalýðs- flokkarnir', Sósíalistaflokkurinn og Alþýðuflokkurinn, aðild að stjórnarsamstarfinu ásamt Sjálf- stæðisflokknum, í hinni síðari Al- þýðuflokkurinn. Er athyglisvert að menn úr þessum tveim flokkum, Sósíalistaflokknum (síðar Alþýðu- bandalaginu) og Alþýðuflokknum, hafa lagt miklu meira upp úr goð- sögninni, reynt miklu meira til að halda í henni lífi en sjálfstæðis- menn. Hvernig á því stendur er mér hins vegar ekki fullljóst. Því er ekki að neita að sá, sem hér stýrir penna, fylltist nokkmrn spenningi á haustdögum þegar það spurðist út að von væri á bók um viðreisnarárin eftir dr. Gylfa Þ. Gíslason. Hann átti sæti í „við- reisnarstjórninni' allan tímann sem hún sat að völdum og ætti því að hafa manna besta aðstöðu til að rita sögu hennar. Svo kom bókin, vel skrifuð, skemmtileg aflestrar, á margan hátt fróðleg, en reyndist töluvert rýrari í roðinu en ég hafði vænst og olli mér óneitanlega nokkrum vonbrigðum. Ef undan er skilinn einn kafli, hlýtur frá- sögnin að teljast harla yfirlits- kennd og miklu minna nýtt kemur fram en vænta hefði mátt. Hér er ekki ætlunin að ræða störf og gerðir „viðreisnarstjórnarinn- ar', enda ritfregn trauðla réttur vettvangur til þess. Á hinn bóginn verður ekki undan því vikist að taka bókina til athugunar og ræða nokkur atriði, sem þar koma fram. Dr. Gylfi hefur frásögn sína á stuttu en greinargóðu yfirliti yfir stjórnmála- og hagsögu íslendinga frá því á 19. öld og fram til þess er „viðreisnarstjórnin" var mynduð 1 árið 1959. Þriðji kafli ber yfirskrift- ina: „Afdrifarík spor á þriðja ára- tugnum'. Þar kemst höfundur að þeirri niðurstöðu að forystumenn Alþýðuflokksins hafi gert mikil mistök eftir þingkosningamar árið 1927, er þeir studdu ríkisstjórn Tryggva Þórhallssonar með hlut- leysi, í stað þess að taka höndum saman við íhaldsflokkinn og Fijálslynda flokkinn um að knýja fram breytingar á kjördæmaskip- aninni. Telur hann að þar með hefði mátt koma í veg fyrir að völd og áhrif Framsóknarflokksins yrðu jafn mikil og raun bar vitni, en Al- þýðuflokkurinn hins vegar orðið mun öflugri. Þessi söguskoðun höfundar vakti nokkra athygli fjölmiðlamanna er bókin kom út, enda giska nýstár- leg. Sá, sem þetta ritar, gefur þó lítið fyrir vangaveltur af þessu tagi. Þær hljóta að flokkast undir það, sem í fræðilegri kenningu út- lenskri kallast „counter-factual speculation' og hefur notið all- nokkurra vinsælda meðal hag- sögufræðinga upp á síðkastið, einkum þó þeirra sem aðhyllast Kina svonefndu „nýju hagsögú'. Ekki kann ég neitt íslenskt orð yfir þetta hugtak. Það táknar nánast sagnfræði í viðtengingarhætti og þótt slík fræði geti verið skemmti- leg dægrastytting eru þau, að mín- um dómi, harla lítils virði. Það, sem hér skiptir máli, er hvað gerð- ist og hvers vegna, ekki hvað hefði getað gerst, ef... Forysta Alþýðuflokksins afréð ár- ið 1927 að styðja stjórn Tryggva Þórhallssonar og var það fullkom- lega rökrétt ákvörðun, eins og þá háttaði í íslenskum stjórnmálum. Framsóknarmenn og alþýðu- flokksmenn litu á sig sem banda- menn í baráttunni fyrir bættum kjörum alþýðu til sjávar og sveita og í þeirri baráttu voru íhalds- flokkurinn og Fijálslyndi flokkur- inn höfuðandstæðingar þeirra. Það var því næsta sjálfgefið að Alþýðu- flokkurinn styddi stjómarmyndun Framsóknarflokksins þegar færi gafst og langflestir alþýðuflokks- menn munu hafa talið sig eigá meiri samleið með Tryggva Þór- hallssyni og Jónasi Jónssyni en með Jóni Þorlákssyni og Jakob Möller. Bandalag Alþýðuflokksins og þeirra tveggja flokka, sem tveim árum síðar mynduðu Sjálf- stæðisflokkinn, var því nánast úti- lokað árið 1927 og þótt það hefði tekist og kjördæmaskipaninni ver- ið breytt er alls ekki þar með sagt að Alþýðuflokkurinn hefði eflst. Má í því viðfangi benda á þá sögu- legu staðreynd að á undanförnum áratugum hefur kjördæmaskipan- inni oft verið breytt og vægi þétt- býlisins aukið, án þess þó að fylgi Alþýðuflokksins hafi vaxið að sama skapi. Kaflarnir um störf „viðreisnar- stjómarinnar' em greinargóðir, en yfirlitskenndir, og sama máli gegn- ir um þá sem fjalla um einstök meiriháttar mál, sem komu til kasta stjórnarinnar. Einkum er þetta tilfinnanlegt í kaflanum um landhelgismál og samninginn um- deilda við Breta árið 1961 (í bók- inni segir að samningurinn hafi verið samþykktur á Alþingi árið 1960 [bls. 157], en það mun vera prentvilla). Enn sem komið er hafa forystumenn „viðreisnar- stjórnarinnar' ekki skýrt frá því í smáatriðum hvað gerðist á bak við tjöldin er þessi samningur var gerður. Skjöl í skjalasafni utanrík- isráðuneytisins, þau sem aðgengi- leg em fræðimönnum, veita engar Gylfi Þ. Gíslason. upplýsingar um það og verðum við því að bíða enn um hríð, uns bresk skjöl verða aðgengileg. Mörgum spurningum er þó enn ósvarað í þessum efnum, t.d. hvers vegna var gengið til samninga við Breta einmitt þegar þeir voru að gefast upp á baráttunni. Vestur- Þjóðveijar buðu íslendingum hag- stætt lán til að greiða fyrir samn- ingagerð; gerðu Bretar eitthvað svipað? Langbesti og fróðlegasti kafli þessarar bókar er að mínu viti sá, sem fjallar um handritamálið og lausn þess. í því máli vann dr. Gylfi Þ. Gíslason gífurlega mikið og gott starf og ekki fjarri lagi að lausn handritamálsins hafi verið hápunkturinn á stjórnmálaferli hans. Er mér til efs að öðrum ís- lenskum stjórnmálamanni hefði tekist jafn vel upp í því mikilvæga máli. Fróðlegt er að lesa lýsingar dr. Gylfa á falli „viðreisnarstjórnar- innar'. Hann telur meginorsakir kosningaósigursins árið 1971 hafa verið skort á skýrri og einfaldri stefnu í landhelgismálinu, áróður andstæðinganna, m.a. vegna al- mannatrygginga og gengislækk- ana, og loks stofnun Samtaka frjálslyndra og vinstri manna. Allar eiga þessar skýringar við rök að styðjast, en fleira kom til og vó trúlega þyngra. í kosningunum 1967 munaði afar litlu að „við- reisnarstjómin" missti meirihluta sinn á Alþingi og á síðasta kjör- tímabili hennar varð mikil breyt- ing á viðhorfi fólks á íslandi. Landsbyggðin varð miklu verr fyr- ir barðinu á erfiðleikunum, sem hlutust af hruni síldveiðanna, en fólk við Faxaflóa og fyrir það galt ríkisstjómin, með réttu eða röngu. Annað atriði, sem miklu máli skip- ti, var það að á árunum 1967- 1971 varð mikil breyting á gildis- mati fólks, ekki síst yngra fólks. Þetta fólk vildi breytingar, annars- konar þjóðlíf, og margt af því hafði aldrei þekkt aðra ríkisstjórn á ís- landi en „viðreisnarstjórnina". Af þeim sökum varð „viðreisnar- stjórnin" persónugervingur þess kerfis og samfélags, sem fólk vildi breyta. Fyrstu merki þessa komu fram í forsetakosningunum árið 1968, en krafan um breytingar átti eftir að magnast mikið á næstu þrem ámm. Fjölmargir vom bók- staflega orðnir hundleiðir á „við- reisnarstjórninni" og mörgu því sem hún stóð fyrir í þeirra augum. Þess vegna hreif áróður andstæð- inganna svo vel sem raun bar vitni, þess vegna hlutu Samtök frjálslyndra og vinstri manna svo mikið fylgi sem raun varð á, þess vegna fékk jafnvel O-flokkurinn makalausi svo mikið fylgi að minnstu munaði að hann kæmi manni á þing. Það var þó aldrei ætlun þeirra, sem að þessu fram- boði stóðu, heldur aðeins að skop- ast að kerfinu. „Viðreisnarstjórnin' hafði vissu- lega komið mörgu góðu til leiðar, stuðlað að nauðsynlegum breyt- ingum og tekist að leysa farsællega ýmis erfið úrlausnarefni. Vorið 1971 hafði hún hins vegar mnnið sitt skeið, átti ekki lengur hljóm- grunn hjá meirihluta þjóðarinnar. Ævintýri á selaslóð BG BOKMENNTIR Karvel Ögmundsson, Hilmar Þ. Helgason: Þrír vinir. Ævintýri Jitlu selkópanna. Örn og Orlygur 1993. 80 bls. Þrír vinir, ævintýri litlu sel- kópanna, er heiti á bók eftir Kar- vel Ögmundsson, sem sótt hefur sjó og stundað útgCrð frá ellefu ára aldri. Bókin er ríkulega myndskreytt af Hilmari Þ. Helga- syni. Söguhetjumar em kópar, sem fæddust í sellátri á Breiðafirði. Þeim er fylgt eftir neðan sjávar og ofan þar sem alls staðar leyn- ast hættur. Hin stærri dýr, þar með taldir mennirnir, sækjast eftir lífi selanna, en sjálfir veiða þeir minni fiska og önnur sjávar- dýr sér til viðurværis. Stormar, ís og straumar gera lífsbaráttuna oft harða, en Breiðafjörðurinn hefur líka upp á ýmis bjóða. Frásögn Karvels er ekki ein- vörðungu einfalt barnagaman, heldur lifandi frásögn um nátt- úru Breiðafjarðar, um dýralífið, lífsbaráttuna og samspil lífsins ofan sjávarmáls og neðan. Það er urtan Brana sem segir söguna. f formála segir Karvel, að hann gefi henni þau forrétt- indi að geta tjáð sig á manna- máli, svo að börn fái skilið lífs- baráttu selsins, sorgir hans og gleðistundir. „Frásagnir Brönu byggjast á kynnum mínum af selum um áratugi, samtölum við fræðimenn og lífsreynda, sjálf- menntaða, vitra menn úr skóla Kfsins.' Málfar höfundar er kjamgott og skýrt og hann talar við bömin eins og þau séu viti bomar vemr, sem óhætt sé að opinbera leynd- ardóma náttúrunnar fyrir. Út- koman verður stórfróðleg og bráðskemmtileg bók, sem ekki á síður erindi við fullorðna en börnin. Greinilegt er að Karvel Ögmundsson viðurkennir ekkert kynslóðabil og em ævintýri litlu selkópanna sögur sem ungir og gamlir geta skemmt sér sameig- inlega yfir. Myndir Hilmars Þ. Helgasonar falla einstaklega vel að öðm efni bókarinnar og eru góð náttúm- fræði út af fyrir sig. Matthías Bjarnason alþingismaður og Örnólfur Árnason. Tímamynd: Árni Bjarna Matthías með tvær í takinu BÓKAFRÉTTIR „Ég efast ekki um að forsætisráð- herra gefi bókina í jólagjöf," sagði Matthías Bjamason alþingismaður á blaðamannafundi fyrir skömmu, í tilefni af útkomu bókar um ævi hans og störf. Bókin ber heitið Járnkarlinn, Ömólfur Árnason skráði, en útgefandi er Skjaldboig. í bókinni kemur Matthías víða við, enda búinn að sitja á þingi í 30 ár og þekkir því tímana tvenna. Að venju er hann ekkert af skafa utan af hlutunum og í bókinni sendir hann pólitískum andstæð- ingum tóninn, auk þess sem sam- starfsmenn hans í Sjálfstæðis- flokknum fá sína dóma. Auk bókarinnar um ævi hans og störf hefur Matthías safnað saman og búið til prentunar bókina ís- land frjálst og fullvalda rfld 1918 — 1993, í tilefni af 75 ára afmæli fullveldisins. -GRH

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.